Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1998, Blaðsíða 14
popp
plötudómur
Súrefni - Wide noise: ★★★
Naustið. Leikarinn Öm Árnason og pianóleik-
arinn KJartan Vaidlmarsson veröa með Gleði-
stundina sína í kvöld og annað kvöld. Svo
verður dansað til þrjú.
f Naustkjallaranum verður Skugga-Baldur
plötusnúður og svo skal dansaður línudans á
fimmtudaginn eins og venjulega.
Grand Hótel v/Sigtún. Að venju leikur Gunnar
Páll og syngur fyrir gesti og eru allir velkomnir.
Kringlukráln. Hljómsveitin í hvítum sokkum
klikkar ekki. Ætlar að leika alla helgina í aðal-
salnum. Garðar Garðarsson verður hins vegar
í Leikstofunni.
Café Romance. Llz Gammon er píanóleikari af
Irfi og sál. Hún ætlar að spila fyrir gesti Romance
og Óperu fram eftir kvöldi alla helgina.
Hvíti rapparinn
Vanilla lce seldi
bílfarma af plötu sinni
„To the extreme" fyrir
átta árum en síðan
ekki söguna meir.
Hann týndist,
hreinlega hvarf - og
eins og poppara er
siður þá tapaði hann
sér í dópneyslu. En
hann fann Guð og er
aftur kominn í poppið.
„Æs æs beibí“, söng Vanilla
Ice (Rob Van Winkle) fyrir átta
árum og seldi 15 milljón eintök af
plötunni sinni „To the extreme" í
kjölfarið. Hann var hvítur og
þægilegur í miðju kolsvörtu
gangstarappi og karlarnir á
kontórunum vildu auðvitað gera
það sama við hann og þeir gerðu
þegar rokkið var að fæðast. Þeir
héldu ísnum að krökkunum, rétt
eins og þeir létu Pat Boone og
fleiri franskbrauðsdrengi syngja
rokkið sem Chuck Berry og
fleiri reiðir blökkumenn höfðu
fundið upp. En Vanillan varð
bara eins-smells-undur og ekkert
hélt blökkumönnunum niðri í
rappinu. Strákur var næst beð-
inn um að gera eitthvað létt,
söng væmin lög, t.d. „I love you“
(sem fór í fyrsta sætið í Brasil-
íu!), en svo hvarf hann með öllu í
nokkur ár. Og hvað heldurðu að
hann hafi verið að gera? Dópa sig
til andskotans, hvað annað?
Þegar Vanillan féll í dópað
öngvit á gólfið hjá vinum sínum
fannst honum tími til að snúa við
blaðinu. „Guð hefur blessað mig
á marga vegu,“ segir hann. „Ég
fann Guð þegar ég vaknaði á gólf-
inu við það að hellt var úr fötu
yfír mig. Ég dópaði yfir mig og
fann Guð daginn eftir.“
Nú er hann kominn með konu
og barn og hættur sukki. Hann
fékk sér nýtt tattú á magann -
stórt laufblað, enda búinn að
snúa við blaðinu. Svo er hann að
snúa aftur með nýja plötu, „Hard
to swallow", þar sem hann rapp-
ar oní drulluhart þungarokk í
anda þess sem nú ríður rokk-
heiminum, einhvers konar Rage
against the machine / Korn
drullurokk. Lið eins og Lenny
Kravitz og Jimmy
Pop úr Blood-
hound gang leggja
hönd á plóginn.
Vanillan hljómar
eins og hann sé
ofsareiður en hefur svo sem yfir
engu að kvarta, getur lifað
áhyggjulaust til æviloka á
monníglásinni sem hann fékk á
sínum tíma. Hann bölvar þó og
ragnar blaðamönnum og plötu-
fyrirtækjum í lögum eins og
„F**k me“, en svo kemur í ljós að
hann bullar bara tóma steypu í
viðtölum.
„Mannkynið er allt komið frá
v m
öðrum hnöttum," segir hann.
„Hingað voru sendir loftsteinar
sem drápu risaeðlurnar og mann-
kynið var á þessum steinum.
Byggðar voru borgir af því eg-
ypski sólguðinn Ra kom niður og
kenndi fólki siðmenningu."
Vanilla snýr sér að umboðs-
manninum sem er með honum í
viðtalinu: „Af hverju ertu aö
hrista hausinn? Ég má alveg
segja þetta. Allavega, það stendin-
i Biblíunni að Guð ferðist með
ljósinu. Guð er ljós, og hvað seg-
ir það? Að hann sé tímavél! Guð
heimsækir okkar plánetu á tvö-
þúsund ára fresti."
Hann er þá vcentanlegur um
aldamótin?
„Já, en dagatalið gæti verið
vitlaust sem nemur 7-8 árum.
2000 er talið frá Jesú, skilirðu
mig? Og þeir í Kína nota annað
tímatal. Svo Guð kemur ein-
hvern tímann á milli 2000 og
2008. Ég veit ekki hvort tímatalið
er rétt, en það er staðreynd að
Guð er á leiðinni og að risaeðl-
urnar voru ekki til á sama tíma
og við mennirnir."
Takk fyrir það, gamli rjómaís.
-glh
Brallið lamið til hlýðni
Súrefnið úr Hafnarfirðinum eru
tveir strákar að bralla á tölvur.
Brali þeirra hefur verið á stöðugri
uppleið þvi á þessari þriðju plötu
sýna þeir mun glaðbeittari tennur
en á fyrri verkum. Fyrst sýndu þeir
lit með stuttum Geimdjassi og
stórri plötu í fyrra sem bar þess
merki að þeir höfðu verið of lengi í
lagningu í hárgreiðslustofunni
Franska bylgjan. Nú sýna þeir hvað
í þeim býr enda orðnir vel krullað-
ir og afskrifaðir úr hárblásurum
Daft punks og finnst réttilega kom-
inn tími til að bralla eitthvað upp
úr eigin snyrtitösku.
Víði hávaðinn tekur 34 mínútur
og á níu lögum kíkir Súrefni víða.
Fyrstu fjögur lögin eru liflegt raf-
popp, grípandi skakgjafar og at-
vinnumannslega brölluð úr tólun-
um. Gestir setja sterkan svip á
partíið. Fyrst kemur Franz úr Ens-
íma og syngur ofan í „Unfold“; nett
rafpopp og fln byrjun á plötunni. Þá
kemur Tómas Tómasson, kenndur
við Rokkabillíband Reykjavíkur, og
sullar viskíi á „Slide off‘, sem er
ásamt „Skyzo“ best heppnaða lag
plötunnar. Tómas rymur eins og
Malboromaður sem hefur fest í
gaddavír en losar um ilækjuna með
því að hamast á rennigítar. Þessi
starfskynning blúsrokkarans hjá
rafvirkjunum hlýtur að hafa verið
lærdómsrík fyrir báða aðila og nú
við árþúsundamót eru slíkir fundir
einmitt það sem helst hefur verið
að fríska upp á poppið; það að mixa
ólíklegustu tónkryddum saman.
Heimavanari gestur kíkir næst inn,
rapparinn Hössi úr Quarashi.
Skrækimir úr Hössa breyta Súrefni
eiginlega í Quarashi en síðan fallast
böndin í faðma og riðlast saman á
gömlu Donnu Summer-lagi.
„Skyzo" er útkoman, blautt eðal-
popp sem krakkarnir ættu að senda
hátt á vinsældalistana.
Þegar partíið er búið eru Páll og
Þröstur einir eftir og finna sig
næst á víðavangi þar sem
skroOandi búskmaður rúllar hjá og
jarmar að þeim neyðarkalli. Þeir
svara með brokkandi takti og pikka
á gervilinn eins og matvandir orm-
ar að pikka í örbylgjumat. Útkoman
er „Desert drifter" og fólk hlýtur að
fá gæsahúð.
Restin af plötunni er ekki eins
Hljómsveitin Rússíbanar mun fagna vetrinum
og útgáfu geisladisksins „Elddansinn" meö
tvöföldum dansleik I Kafflleikhúslnu um helg-
ina. Veislurnar heflast klukkan níu meö girni-
legum kvöldveröi en dansinn hefst síöan um
ellefuleytiö og veröur dansaö af krafti til kl. 2.
Noröurkjallarl MH. Listafélagiö Telefunken
veröur meö hip-hop kvöld I kvöld. Sérstakur
kynnir veröur Anthony frá Skratz en plötu-
snúðar veröa Flngaprlnt, Big G, Team 13 og
Maglc. Það kostar sexhundruðkall inn en
fimmhundruö fyrir þá sem eru í nemendafé-
laginu.
Hljómsveitin Karma leikur fyrir dansi um helg-
ina á Kaffl Reykjavík. Á sunnudaginn sjá Rut
Reginalds og Blrgir Birgls svo um stuöiö.
Á síödegistónleikum Hlns hússlns í dag leikur
Interstate. Gæti verið fróðlegt.
Álafoss fót bezt. I kvöld sýnir Lelkfélag Mos-
fellsbæjar stykkiö sitt en kvöldið veröur líka til-
einkaö Creedence Clearwater Revlval. Hin
kvöld helgarinnar veröa það líka en þetta eru
síðustu sýningar á þessari dagskrá. Kostar
sexhundruðkall inn.
Fógetlnn. Blál fiöringurinn leikur i kvöld. Á
sunnudagskvöld veröur hins vegar leikin írsk
tónlist, órafmagnað.
í kvöld er lokað
vegna einkasann-
kvæmis á Broad-
way en á morgun
verður hin vin-
sæla sýning,
„ABBA“, í flutn-
ingi frábærra
h Ij ó m I i sta r-
manna. Svo mæt-
ir Páll Óskar og
h Ijó msveiti n
Casino eftir sýninguna.
Gaukur á Stöng. Land og synlr leikur í kvöld.
Það er ekkert öðruvísi.
FJörukráln. í Hafnarfiröi er alltaf sama gaman-
iö. Á Fjörunni leikur Jón Meller rómantíska
píanótónlist fyrir matargesti en I Fjörugarðin-
um veröa Víkingaveislur þar sem Víklnga-
sveltin leikur og syngur. Á eftir veröur svo
dansleikur með hljómsveitinni KOS.
Hilmar Sverrls og Anna Vilhjálms leika alla
helgina á Næturgalanum.
Á Café Amsterdam verður Sixtles í kvöld. Á
morgun mætir svo diskóboltinn DJ Blrdy, öðru
nafni Fuglinn, og hann mun gera allt vitlaust
með gömlum og nýjum lögum.
grípandi og flögur fyrstu lögin. Lög-
in eru instrúmental og heimta enga
sérstaka athygli, líða hjá eins og
fífukollur á flugi. Margt sniðugt er
þó í gangi, taktar og sánd oft athygl-
isverð og sterkur leikur var hjá
dúettnum að fá trommarann Adda
(úr Stolíu) til að lemja brallið til
hlýðni. Lög eins og „Jay’s
dimension" og „Morbid process" fá
allt heilbrigt fólk til að gjugga höfð-
inu eins og dúfur í stuði og þó þau
skilji kannski ekki meira eftir sig
en aðkenningu að hálsríg eru þau
vel fléttuð og smart.
Súrefni eru á góðu flugi og þetta
er flott plata. Gestagangurinn er
það krydd sem þá hefur alltaf vant-
að í tilveruna og vonandi standa all-
ar dyr opnar á næstu plötu. Þá gætu
„Súrefni eru á góðu flugi
og þetta er flott plata.
Gestagangurinn er það krydd
sem þá hefur alltaf vantað
í tilveruna og vonandi standa
allar dyr opnar
á næstu plötu.“
nágrannarnir farið aö hringja í
lögguna því það partí myndi
sprengja þakið af kofanum.
Gunnar Hjálmarsson
14
f Ó k U S 20. nóvember 1998