Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1998, Blaðsíða 9
1 e i k h ú s Bókatíðindi komu með jólabókaflóðið inn á heimili landsmanna á dögunum. Jafnframt því að flytja afraksturinn af andlegum afrekum þjóðarinnar flytja Bókatíðindi með sér útjaskaðar klisjurnar sem bókarútgefendur nota ár eftir ár til að bregða yfir bækur sínar. Það er sþurning hvort annars staðar megi finna jafn gelda hugsun og einmitt í þessu yfirlitsriti Pegasusar. Lesendur Fókus geta sþreytt sig á að ráða í fagurgalann og komast að því á blaðsíðu 31 hvaða höfundur fékk hvaða klisju þetta árið. Finnið bók handa klisjunni „Margslunginn söguþráðurinn nær strax athygli lesandans en undir yfir- borðinu krauma áleitnar spurningar um sekt og sakleysi, lygi og sannleika.“ _ B „Þar [í sagnaheimi höfundar] ríkri einstök, titrandi stemning. Þótt ekkert sérstakt beri til tíðinda hvílir munúðarfullur blær yfir hversdagslífinu og gæðir sögurnar kitlandi spennu." C „Ævintýraleg frásögn þar sem allt getur gerst, rituð af mikilli stílgáfu." D „Allar eru sögurnar drepfyndn- ar en sú fyndni er oft lævi blandin. ísmeygilegur stíll höfundar gerir að verkum að ekki er allt sem sýnist og hætt er við að stundum stirðni bros- ið á andlitum lesenda." k „Af einstöku næmi fyrir blæbrigð- um mannlegrar tilveru fetar skáldið mjóan veg milli veruleika og skáld- skapar og máir út hefðbundin mörk svo að lífið verður list og listin líf.“ P „[Höfundur] sendir frá sér óvenjulegt, margradda verk. Á síð- um bókarinnar kveðja sér hljóðs ólíkir einstaklingar og vísa lesand- anum veginn um eigin hugarheima." Ó „Höfundur sýnir tíðarandann i fyndnu ljósi en þótt sagan sé á köflum ærslafull og persónur skrautlegar er hlýlegur tónn í frásögninni." H „[Höfundur] sendir frá sér sína fyrstu skáldsögu, tregablandið verk þar sem veruleiki og hugarburður fléttast saman.“ I „. . . og saman [tvær persónur í bókinni] hrífa þau lesandann með sér á vit hins óþekkta þar sem ekkert er sjálfgefíð eða sjálfsagt." J „Hér nýtur stílistinn og sögu- maðurinn sín til fulls, tónn sögunn- ar er áleitinn en borinn upp af trega og birtu.“ K „Hnitmiðaður stíll og leikni með ís- lenskt mál, einstök frásagnargáfa og ísmeygilegur húmor sem oft og tíðum reynist egghvass þegar betur er að gáð.“ L „Af hlýju og nærfærni dregur hún upp minnisstæðar myndir af litskrúðugu fólki, sigrum þess og sorgum, gleði og andstreymi. . .“ M Lausnina er að finna á síðu 31 því það er mjög líklegt að enginn komist áleiðis með að festa réttu klisjuna á viðeigandi bók. Bækumar em: 1. Næturgalinn eftir Jón Karl Helgason (Bjartur). 2. Nætursöngvar eftir Vigdisi Grimsdóttur (Iðunn). 3. Borgin bak við orðin eftir Bjarna Bjarnason (Vaka- Helgafell). 4. Á meðan hann horfir á þig ertu Maria mey eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur (Bjartur). 5. Parisarhjól eftir Sigurð Pálsson (Forlagið). 6. Sérðu það sem ég sé eftir Þórarin Eldjárn (Vaka-Helgafell). 7. Flugnasuð í farangrinum eftir Matthías Johannessen (Vaka-Helgafell). 8. Augun í bænum eftir Sindra Freysson (Vaka-Helgafell). 9. Eitruð epli eftir Gerði Kristnýju (Mál og menning). 10. LÚX eftir Árna Sigurjónsson (Mál og menning). 11. Fylgjur eftir Harald Jónsson (Bjartur). 12. Stjómlaus lukka eftir Auði Jónsdóttur (Mál og menning). Þjóðleikhúslö. Solveig verður á stóra sviðinu kl. 20 á morg- un en það er uppselt. Á sunnudaginn eru hins vegar til lausir miðar. Símapantanir í síma 551-1200. Hafnarfjarðarlelkhúslð: Við feðgarnlr eru sýndir í kvöld kl. 20. Sími 555-0553. Smíðaverkstæði ÞJóðlelk- hússlns: Maður í mlslit- um sokkum kl. 20.30 T kvöld, uppselt. Á morgun uppselt. Á fimmtudaginn uppselt. Sími 551-1200 fyrir þá sem vilja ná T miða þeirra sem forfallast. Nemendaleikhúsið sýnir T Lindarbæ leikritið Ivanov á morgun kl. 20 en það er uppselt. Á sunnudaginn eru hins vegar lausir miðar og einnig á miðvikudaginn. Miðapantanir T síma 552-1971 allan sólarhringinn. Skemmtlhúsið, Laufásvegi 22. Einleikurinn Ferðir Guðríðar verður fluttur á sunnudaginn kl. 20. Miðasala er T Iðnó s: 530-3030 eða T Skemmtihúsinu hálftíma fyrir sýningu. Iðnó sýnir leikritið Þjónn í súpunni! kvöld kl. 20 og eru örfá sæti laus. Það er hins vegar uppselt á miðnætursýninguna kl. 23.30. Sími 530-3030. í Loftkastalanum eru Fjögur hjörtu sýnd ann- að kvöld kl. 20.30. Sími 552-3000. Hvað haldið þið að sé á stóra sviði Borgarlelk- hússins á morgun kl. 15? Jú, Grease. Og auö- vitað er uppselt. LTka á sunnudaginn kl. 13. Þeir sem vilja athuga hvenær hægt er að láta það eftir krökkunum að fara á þennan söng- leik ættu að hringja í síma 568-8000. Leikfélag Reykjavíkur. Sumarið '37 er á litla sviðinu á morgun kl. 20. Gott fyrir þá sem vilja athuga hvort enn sé eitthvað varið í verk Jök- uls Jakobssonar og eins fyrir þá sem eru sannfærðir um að Kristín Jóhannesdóttir hafi þegar sannað að svo sé. Síminn er 568- 8000. Llstaverkið er enn T gangi og þeir sem enn hafa ekki látið verða að þvT að sjá þetta stykki ættu að drifa sig T Loftkastalann á morgun kl. 20.30. Því er hótað að þetta sé næst síðasta sýning - en reynslan sýnir að það er lítið að marka hótanir leikhússfólks. STmi 552-3000. » _ Itl6 JL 2T 3L 3L www.visir.is Fitness Shop Skeifunni 19 - S. 5 68 1 71 71 20. nóvember 1998 f Ókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.