Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1998, Page 8
1 g i k h ú s
Frumsýning á Litla sviöi Þjóöleikhússins í
kvö!dJti»20. Verkiö heitir Abel Snorko býr elnn
og Éf“eiy%ejpaoekjagirij|^rlc Emmanuel-
Schmltt. Melkorka Tekla Olafsdóttlr WfR%týrir
en þetta er henrWr fffsta'leikltlóraði^kðmi t
Þjóóleikhúsinu. Önnur sýning er á sunnudag-
inn og síminn er 551-1200 fýrir þá sem vilja
tryggja sér miða.
I TJarnarbíól veröa frumsýnd þrjú ný dansverk í
kvöld: Schizo stories eftir Helenu Jónsdóttur,
Sannar sögur og lognar eftir Ólöfu Ingólfsdótt-
ur og Sóló 8 eftir þær báöar. Fyrri dansarnir
tveir eru sólódansar og dansa höfundarnir
hver sinn dans. Sóló 8 er hins vegar fyrir sjö
dansara og spítu og sjá félagar í nýstofnuðum
Nemendadansflokkl Llstdansskóla íslands
um hann. Þær stöllur hafa stofnaö félagsskap
í kringum þessa sýningu og kalla hann Pontus
og piu.
Iðnó. Á mánudaginn
heldur lelkhússportlð
áfram. Nú er spurningin:
Hvort eru stelpur eöa
strákar betri í spuna?
Keppt veröur I kynja-
skiptum liöum. Anna
Krlstjánsdóttir, fyrrver-
andi karl, er meöal dóm-
enda - enda er hún lík-
lega sá íslendingur sem
getur best allra sett sig
inn í hugarheim beggia
kynja þótt hún verði sjálfsagt seint sögð óvil-
höll þar sem hún yfirgaf karlaheima í hálfgeröu
fússi. Sfmi 530-3030.
Hafnarfjaröarlelkhúsiö sýnir tölvugamanleik-
inn Vírus annað kvöld kl. 20 og eru örfá sæti
laus. Svo eru líka laus sæti á sunnudagskvöld-
ið. Þessi sýning gefur nánast út þau fýrirheit
að í henni sé að finna lausn við tölvuvandan-
um sem skapast árið 2000. Þetta er annars
ágætis gamanleikur eftir Hugleiksþriburanna.
Síminn er 555-0553.
Á stóra sviði Þjóðlelkhúss-
ins kl. 20 í kvöid og á
! fimmtudagskvöldið eru
Tvelr tvöfaldlr. Uppselt er
í kvöld en miðar til á
! fimmtudaginn. Þetta er
farsi um stjórnmálamann
: sem er flæktur f lygavef og
kvenmannsraunir. Það skal tekið fram að leik-
ritið á ekkert skylt við Clinton greyið og enn
sfður Lewlnsky skinnið. Sfmapantanir f síma
551-1200.
lönó sýnir leikritið Rommf kl. 20.30 á morgun
og er uppselt. Af þeim sökum hefur verið skellt
upp aukasýningu á fimmtudaginn. Erlingur
Gfsla og Gunna Ás f góöum gír. Sfmi 530-
3030.
Borgarlelkhúslö, stóra sviðið kl. 20 f kvöld:
Mávahlátur, saga úr íslensku sjávarþorpi frá
þvf fyrir fáeinum áratugum. Kona snýr aftur
heim og snýr öllu á annan endann, velgrafin
leyndarmál skjóta upp kollinum og allt f einu
þurfa þorpsbúar að horfast f augu við það sem
þeir hafa viljað forðast hingað til. Leikurinn er
endurtekinn á sunnudaginn. Sfminn er 568-
8000 fyrir þá sem vilja panta miða.
Lelkfélag Reykjavíkur. Sex i svelt eru á stóra
sviöinu kl. 20 á laugardaginn og það er upp-
selt á þessa 50. sýningu verksins (ætli það
þýði ekki að á bilinu 20-30 þúsund manns
hafi horft á leikritið). Á fimmtudaginn eru hins
vegar örfá sæti laus - eins og þaö heitir á leik-
húsmáli. Síminn er 568-8000.
Hellisbúinn er sýndur f ís-
lensku óperunnl í kvöld kl.
20 og aftur kl. 23.30 og er
uppselt á báðar sýningar.
Lfka á sunnudaginn kl. 21.
Sfminn f Óperunni er 551-
1475 fýrir þá sem treysta á
ósóttar pantanir.
Lelkfélag Reykjavfkur. Ofanljós er á litla svið-
inu I kvöld kl. 20. Sfminn er 568-8000 og enn
til miðar.
Svlkamylla hefur lengi iullað áfram f Kaffilelk-
húslnu og í kvöld kl. 21 verður sfðasta sýning
ársins. Sfminn er 551-9055.
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni er náttúrlega algjört kjaftæði því epli
vaxa á eplatrjám. Það er þó ekkert kjaftæði að Páll Steinarsson (25 ára)
leggur þessa dagana fyrir sig plötuútgáfu líkt og pabbinn, Steinar Berg,
hefur gert áratugum saman. Páll hefur yfirumsjón með Sprota-útgáfunni,
sem hefur gefið út tvær safnplötur, „Spírur" og „Kvisti“,
síðustu plötu Maus, og er stórtæk nú fyrir jólin með fjórar plötur.
„Væri gott ef
böndin væru
ekki alveg
svona sveitt!“
Er eitthvaö upp úr þessu aö
hafa?
„Þessu braski? Ekki svo. Ég er í
fullu námi líka og þetta verður oft
fuilmikið. Maður er að standa í
þessu ásamt prófum og veseni,“
segir Páll Steinarsson, umsjónar-
maður Sprota.
í hverju felst vinnan?
„Ég er kontaktmaður fyrir bönd-
in og prómótera í fjölmiðla. Svo er
ýmislegt sem ég þarf að gera, t.d.
stundum þarf ég að vera „gæd“
fyrir erlenda blaðamenn. Svo sinni
ég umboðsmennsku fyrir Vinýl og
fyrir Naglbítana að hluta til. Þar
hef ég þvi áhrif á lagasmíðar, hef
atkvæði."
Kemur mikiö inn á borö hjá þér?
„Já, hellingur. Ég fer á tónleika
reglulega, er boðaður á síðdegis-
tónleika Hins hússins og aðra tón-
leika. Ég sinni því eins og ég get,
kíki þegar það er hringt í mig.“
Hvaö kveikir á perunni hjá þér?
„Það er misjafnt. Ég reyni að
vera eins opinn og ég get en ég vil
helst að böndin komi mér á óvart.
Þegar ég sé lifandi spilamennsku
tek ég eftir því hvernig fólk stend-
ur sig og hvemig attitjútið er á lið-
inu; hvort fólk sé feimið eða hvort
það sýnir spilagleði. Lögin skipta
svo auðvitað aðalmáli, hvernig
stíllinn er og annað.“
Hefuröu þurft aö vísa mörgum
frá?
„Ég vísa engum beint frá. Segi
frekar að það sé ýmislegt sem er
alveg ágætt - oftast er eitthvað
ágætt við alla - en sumir misskilja
Sprota. Merkið er meira fyrir indí-
eitthvað, sumarböndunum er bara
bent annað.“
Hvaö getur merkiö gert fyrir fólk
sem þaö getur ekki sjálft?
„Við erum með þetta á góðu
plani, sjáum um allan stúdíókostn-
að; tökum böndin vel að okkur. Oft
kann fólk ekki að prómótera tón-
listina, hefur ekki sambönd í fjöl-
miðla og slíkt. Ég sé um það. Við
gerum samninga við böndin og
reynum að koma þessu í gang. All-
ir sem em að búa til músik vilja
náttúrlega selja sína afurð og mitt
hlutverk er að koma því í verk.“
Ertu eitthvaö að spila sjálfur?
„Nei, en mig langaði alltaf til
þess. Ég á gítar, bassa og gamalt
orgel en hef alltaf gefist upp. Ég
hef alltaf haft löngun til að vera í
kringum tónlist og finn mig betur
í þessu."
Fékk poppfræðslu
Langaöi þig alltaf til aö verða
plötuútgefandi eins og pabbinn?
„Ég veit það ekki, það getur vel
verið. Þegar maður hugsar um það
núna þá er maður bara að verða
eins og pabbi sinn. Maður stefndi
ekkert að þvi en þetta er náttúr-
lega eitthvað sem maður hefur lif-
að við. Maður ólst upp við það að
þekkja Hendrix og einhverja
gaura; vissi allt um það þegar
maður var krakki, fékk popp-
fræðslu. Það eru auðvitað forrétt-
indi að fá að vinna við eitthvað
sem maður hefur gaman að.“
Jón Ólafsson byrjaöi sem um-
boösmaöur Júdasar og vann sig
upp. Ertu hrifinn af þessum ís-
lenska draumi - stefniröu á aö
veröa Jón Ólafs tvö?
„Nei! Ég er nýbyrjaður í skóla
aftur, bara til að klára stúdentinn.
Mig langar til að vinna í þessu og
lít á mig sem hálfgerðan lærling,
er að þreifa mig áfram. í framtíð-
inni vildi ég geta unnið við þetta á
erlendri grundu. Þetta er náttúr-
lega voðalega sérstakiu- markaður
hérna, allt svo lítið og aumingja-
legt. Bransinn héma er í raun
brandari miðað við hvemig þetta
er annars staðar, þótt grunnelem-
entin séu þau sömu; að gefa út
plötu og reyna að selja hana.“
Hvaöa plata breytti lífi þínu?
„Fyrsta platan með Stone Roses.
Ég var Zeppelin-gæi en breyttist í
indí-bolta þegar ég heyrði þessa
plötu, keypti allt frá Manchester í
eitt ár á eftir.“
Hvaö er skemmtilegast við þenn-
an bransa?
„Þegar gengur vel. Það er gam-
an að vera innan um hljómsveit
sem er hrósað og lag með þeim
verður vinsælt - maður er
kannski búinn að þekkja lagið í
marga mánuði á undan öðrum.
Það er gaman að fá svona litlar
viðurkenningar. Svo er ekki
slæmt að selja vel. Þetta er yfirleitt
bara að koma út á núllinu. Það
væri gott ef böndin fengu viður-
kenningu og þyrftu ekki alltaf að
vera að ströggla svona, gætu hætt
að róta sjálf. Það væri gott ef þau
væru ekki alltaf rótandi og væru
ekki alveg svona sveitt. Þetta er
frekar sveitt hjá okkur eins og er!“
-glh
Páll talar um
■ g m_ w m_SLÆ
BANG GANG: „Mjög gott samstarf.
Þau koma, eins og flest böndin,
út úr Spíru-verkefninu. Við gerð-
um samstarfssamning og það
sem hefur gerst hjá þeim er al-
veg ótrúlega gott og hratt.
„Sleep“ var á Spírum en var ekk-
ert spilað þegar það kom út, en
nú hefur nýju plötunni gengið
mjög vel. Þau fengu samning hjá
East/west í Frakklandi upp á
eina smáskifu, og það er líklegt
að því samstarfi verði haldið
áfram. Ef þau koma sér upp læf-
bandi ætti ekkert að stöðva
þau.“
200.000 NAGLBÍTAR: „Mjög óllkt
Bang gang, þrír gaurar frá Akur-
eyri sem hafa verið að spila síð-
an þeir voru þrettán eða eitt-
hvað. Þeir eru poppaðir en samt
er dýpt í þeim. Þegar ég heyrði í
þeim fyrst fannst mér strax eitt-
hvað varið í þá og þegar ég hitti
þá reyndust þetta vera almenni-
legir strákar og mér fannst þægi-
legt að vera með þeim. Þeir tóku
upp gommu af lögum og við
gerðum samning upp á eina
plötu. Ég sé þá gera stóra hluti á
íslandi."
Er þaö nóg?
„Nei, alls ekki. Við reiknum með
því að böndin geri enska texta
og erum með gott kerfi til að
dreifa á útgefendur og sambönd
sem hafa orðið til. Við höfum
fengið ágætis viðbrögð á Naglbít-
ana, sérstaklega fyrir það að Vil-
hjálmur syngur svo góða ensku.
Þeir bræður bjuggu í Skotlandi
og syngja því ekki með íslensk-
um hreim.“
NEISTAR: „Þegar við gerðum
Spíru-plötuna kom sú hugmynd
að gera sérplötu fyrir þá sem eru
að gera tölvutónlist. Við leituð-
um til aðila og báðum þá um að
gera eitthvað og þetta myndað-
ist, svo kom hellingur af
demóteipum líka. Við vildum
hafa heildarmynd á þessu, mark-
vissa stefnu, ekki allt í einum
graut. Við tókum inn lög eftir
þvi. Það er erfitt að skilgreina
stefnuna í orðum, við vildum
vera í takt við tímann í dag - við
getum sagt að þetta sé einhvers
konar tripp-hopp grúf blanda."
SVÖLU JÓLAKETTIRNIR: „Þetta er
djassjólaplata með þessu tríói:
Hjörvar trommari í Casino, Karl
Olgeirsson og Gunnar Hrafn -
djassexperimental-útgáfur af
jólalögum. Svo er þarna fullt af
gestum. Þetta er engin venjuleg
jólaplata."
f Ó k U S 20. nóvember 1998
FÓKUSMYND: PJETUI