Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1998, Síða 15
popp
20. nóvember 1998 f Ó k U S
Kaffl Jensen. Mæðusöngvasvelt Reykjavíkur
I allri sinni dýrð ætlar að syngja á morgun.
Ásgarður. í kvöld er ball. Hljómsvelt Blrgls
Gunnlaugssonar leikur fyrir dansi. Á morgun
verður líka ball en þá ætlar Harmóníkufélag
Reykjavíkur að halda uppi stuðinu. Á sunnu-
dagskvöldið verður svo dansaö með Caprttrló-
S inu-
c Stuðboltarnir Svensen & Hallfunkel munu
S ekki láta sig vanta á Gullöldina nú um helgina
z og ætla sér að halda uppi stanslausu fjöri.
o
'j, Catalína. Dúettinn Jukebox leikur fyrir dansi í
m kvöld og annað kvöld. Svakastuð.
S í kvöld verður endurtekið á Café Frank
„boogie“-kvöldið fræga sem gerði allt vitlaust
f sumar. Dj. Kári mun dusta rykið af boogie-
gallanum og spila eðalfönk og boogie-diskó
allt kvöldið.
Péturspöbb. Arnar og Þórir ætla aö leika í
kvöld og annað kvöld og svo verður auðvitað
boltinn á breiðtjaldi.
Sveitin
Hljómsveitin 200.000 naglbítar er frá Akur-
eyri. Þess vegna flnnst þeim vel við hæfi að
halda útgáfutónleika stna þar. Þeir verða á
morgun, annaðhvort t leikhúsinu eða sam-
komuhúsinu, og byrja klukkan hálfttu. Diskur-
inn sem þeir eru að koma með heitir Neóndýr-
in.
SJalllnn. Land og synlr ætla aö vera þar ann-
að kvöld og leika fyrir þá sem ekki ætla á út-
gáfutónleikana hjá Naglbítunum.
Á morgun mun BJörgvln Halldórsson ásamt
hljómsveitinni Byltingu leika á skemmtistaðn-
um Odd-Vitanum á Akureyri.
Norðlenska rokkhljómsveitin 200 þúsund naglbítar hélt útgáfutónleika
Þjóðleikhúskjallaranum í síðustu viku. Fókus kíkti baksviðs rétt fyrir
tónleikana og hitti bræðurna Villa og Kára. Axel var þarna líka og hann
á sömuleiðis bróður en hann er ekki í hljómsveitinni.
Skítamórall spilar á Hótelinu á Akranesl ann-
að kvöld. Þá um kvöldiö ferfram úrslitakeppni
í vetrarstúlku Bárunnar en undangegnar helg-
ar hafa verið valdar stúlkur fyrir þetta kvöld.
Einnig koma fram í tískusýningu piltarnir sem
tóku þátt t keppninni um Herra Vesturland.
Húsiö verður opnað klukkan hálftólf.
Þá er búið aö opna Inghól á Selfossi á ný eft-
ir smáhlé. Á morgun ætlar Sól Dögg að halda
uppi stuöinu með góðri hjálp drengjanna t O.fl.
DJ Marvln, Junlor og Prlpps ætla að sjá um
diskótónlistina og svo verða Itka sýnd þarna
föt og fleira tengt ttskunni.
I tilefni útkomu nýjasta geisladisks Haröar
Torfa, Rætur og Vænglr, heldur hann útgáfu-
tónleika t félagsheimilinu á Hvammstanga í
kvöld klukkan ntu.
Höfölnn í Vestmannaeyjum. Hljómsveitin GOS
verður með stórdansleik þar á morgun.
Duggan. Blístrandl æöarkollur er hljómsveit
sem veit hvað hún syngur. Hún leikur
dansvæna tónlist fyrir alla aldurshópa og verö-
ur þarna t Þorlákshöfn annað kvöld.
Rúnar Þór verður á Ránnl i Keflavtk t kvöld og
annað kvöld.
á þriðjudögum"
„Við erum í bjórbanni," segir En hvernig er aö vera að noróan og rífur leöurflyksu af náranum á
Kári til að réttlæta að þeir séu
bara búnir að innbyrða einn lítra
af bjór. Þeir eru samt að drekka
bjór í augnablikinu og því er þeim
fyrirgefið.
„Einu sinni vorum við að spila
fyrir norðan," segir ViHi, „og laun-
in voru einn lítri af vodka á mann.
Og ég man að ég fór til eigandans
og spurði hvort við ættum eftir að
spila. Hann sagöi: „Nei.“ Ég fór þá
upp á svið og þegar ég var búinn að
syngja lungað úr fyrsta laginu þá
tók ég eftir því að míkrafónninn
snéri út í sal. Ég leit þá aftur fyrir
mig og sá að Axel var að pissa í
kókglas við trommusettið. Þá fór
ég aftur til eigandans og spurði
hann hvort við værum búnir að
spila. Hann sagði „Nei!“ og hleypti
mér ekki aftur upp á sviðið."
Norölenskt rokk og ról svíkur
ekki. Veröa ekki útgáfutónleikar
fyrir noröan líka?
„Jú, jú,“ svarar Villi.
Axel: „Við skulum ekkert taka
það fram hvar þeir eru.“
Af hverju ekki?
„Af því við vitum það ekki,“
svarar Axel og hinir í hljómsveit-
inni hlæja eins og vitleysingar.
og koma í boeinn?
„Það er mjög fint,“ svarar Villi
og þeir félagamir fara að rífast um
það hvort bæði Akureyri og
Reykjavík séu á Ameríkuflekan-
um.
Eruö þiö búnir aö fara á McDon-
alds?
„Nei,“ svarar Axel og bætir því
við að þeir hafi ekki einu sinni
haft tíma til að fara í bíó.
„En þetta er sama tilfinningin,"
útskýrir Villi og á við muninn á
Reykjavík og Akureyri. „Bara
80.000 fleiri héma og maður þarf að
taka leigubíl á billi staða. Svo eru
það allir þessir bensínbílar. Kallið
þið þá það ekki?“
Kári: „Og malbikið. Er það ekki
vont fyrir hestana?"
Drengirnir fá ekkert svar. Kári
og Axel sötra bjór og útskýra bol-
ina sem strákamir em í á meðan
Villi plokkar í leðurbuxurnar sín-
ar. En hann er í bol sem kærastan
hans á, Axel í bol af Kára og Kári í
Barcelonabol sem Villi á. Það er
greinileg KEA-samnýting í gangi.
„Þegar maður plokkar svona leð-
urbuxur, ætli það sé eins og þegar
svertingi plokkar sár?“ spyr Villi
ser.
Þiö syngiö á íslensku?
Villi: „Já.“
„Það er asnalegt að gera það
ekki. Það á að syngja á íslensku
fyrir íslendinga," fullyrðir Axel.
Ætliö þiö þá ekkert aö meika þaö
í útlöndum?
„Ha? Alveg eins,“ segir Axel án
sannfæringar.
Kári er ekki alveg sammála því
og segir: „Jú, jú.“
„Heimsyflrráð eða dauði,“ kallar
Villi flissandi.
En skipta textar einhverju máli?
„Jú, auðvitað gera þeir það,“
svarar Villi sem semur alla text-
ana. „Á nýju plötunni em til dæm-
is bara sorglegir textar. Það er eng-
inn texti á þessari plötu skemmti-
legur. Þeir eru súrríalískt sorgleg-
ir.“
Af hverju heitir diskurinn
Neóndýrin?
„Af því að Leynibylgjur gylta
flóðhestsins var of langt. Neóndýr-
in er líka bara besta lagið á diskn-
um.“
Er ekki samt erfiöara aö koma aö
noröan?
„Jú, það er verra," svara Villi.
200.000 naglbítar - Neondýrin: ★★★'^
Sól Dögg verður með hörkudansleik í Skot-
húslnu I Keflavík í kvöld. Karlafatafella frá
Þórskaffi mun mæta á svæðið klukkan ellefu,
fækka fötum og sýna allt það besta og feg-
ursta I fari karlmannsins. Á morgun verður svo
eggjandi diskótek. Piltar og stúlkur úr
körfuknattleiksliði Keflavíkur mæta og heiðra
sjálfa sig og aðra með nærveru sinni. Hinn
eldhressi Siggi D.J. sér um að dilla sér í takt
við danstónlistina. Karl- og kvenfatafellur frá
Þórskaffi munu troða upp.
Knudsen. Mæöusóngvasvelt Reykjavíkur ætl-
ar að halda tónleika þarna í Stykkishólmi I
kvöld.
Það er alltaf fjör á Sauðárkróki og svo verður
einnig I kvöld því á Hótel Mællfelll ætlar Hörö-
ur G. Ólafsson nefnilega að halda útgáfutón-
leika.
Festl I Grindavík. Á morgun verður haldinn
styrktardansleikur fyrir Körfuknattleiksdeild
Grindavíkur. Þaö er hljómsveitln Gelmfararnlr
sem ætlar að leika fyrir dansi.
Búöarklettur. í kvöld er diskótek en á morgun
ætla þeir Arl Jónsson og Úlfar Slgmarsson aö
trylla Borgfirðinga með taktföstum tónum sín-
um.
Hlöðufell Húsavík. Með nýjum eigendum
koma nýir siðir - og ný þönd. í kvöld verður
það Vax-flokkurinn og á morgun Speclal
Treatment.
„Færri þar en hér. Og svo er mað-
ur náttúrlega ekki jafn duglegur að
koma sér áfram og lætur ekki
finna jafn vel fyrir sér.“
Axel: „Og það er nú bara þannig
að maður á að gera allt sjálfur.“
Villi: „En á móti kemur að það
er fint að vera fyrir norðan. Maður
getur kúplað sig út úr öllu og verið
í friði. Samið og slakað á.“
Reykvíkingar eiga sem sagt von á
aö þiö flytjiö í bœinn en veröiö meö
afdrep fyrir noróan?
Axel svara því játandi en það er
samt enginn hiti í svarinu.
„Á næsta ári, kannski," segir
Kári.
„Já. Og svo væri maður til í að
eignast konu, böm og bíl,“ segir
Villi og hlær norðlenskum hlátri
(hvað svo sem það er).
Axel: „Og Laxness-safnið."
„Segjum eitthvað gott líka.“
Villa finnst þeir vera eitthvað of
neikvæðir. „Við hjálpum gömlum
konum á þriðjudögum."
Það verða að vera lokaorðin því
rótarinn og allt tæknigengið er
mætt. Vill fá aö vita hvaða lag er
næst. Klukkan er ellefu og piltam-
ir mega stíga á sviðið. Sýningu
Þjóðleikhússins lokið og leyfilegt
að hækka í græjunum. Stuttu
seinna hefjast tónleikamir og Villi
biður gestina velvirðingar. Segir
að Amar Jónsson hafi verið svo
lengi að fara með textann sinn og
því hafi þeir tafist lítillega. -MT
Plankastreklqari
Þeir em að norðan. Eins og
Ingimar Eydal, Baraflokkurinn,
Stuðkompaníið og ég veit ekki
hvað. Þeir era þrír en ekki tvö-
hundraðþúsund. Þeir spila svona
krafttriórokk sem minnir á allt og
ekkert. Það heitir að hafa sinn
eigin stíl. Og þeir vora að senda
frá sér plötu sem heitir Neondýr-
in og er alveg svívirðilega góð.
Heimsendir er í nánd.
Þetta er fyrsta breiðskífa nagl-
bítanna, en það er ekki að heyra
að hér séu byrjendur á ferð. Tim-
inn í bílskúmum hefur greinilega
verið vel nýttur, hljómsveitin er
högg- og vatnsheld og geislar af
sjálfstrausti og spilagleði.
Poppatlasinn er einnig vel nýttur,
fyrir bregður áhrifum frá Pixies,
Nirvana, Television og fleiri slík-
um, en það þarf að hlusta vand-
lega eftir þeim.
Vilhelm Anton Jónsson er
skrifaður fyrir lögum og textum.
Eins og sannur naglbítur hefur
hann rifið naglana úr bvu'ðarbit-
um skýjahalla annarra og notað
þá til að hamra saman eigin raf-
magnsstól. Lög eins og Neðanjarð-
ar, Fiðrildavængimir, Einn var;
eiginlega bara allt nema Leyni-
bylgjur gyllta flóðhestsins (ha?)
öskra snilld framan í mann og
berja mann svo ítrekað í höfuðið
með bráðsmitandi viðlögum þang-
að til maður gefst upp, rakar af
sér hárið og stofnar aðdáenda-
klúbb.
En það er heildin sem gerir
„Þessi plata er hálfgert
ólíkindatól, planka-
strekkjarinn goðsagna-
kenndi fundinn á Akur-
eyri. Mikilvægari en
D-vítamín. Refur fyrir
rass. Perlur fyrir svín.“
þessa plötu eins góða og hún er.
Góð lög, vel útsett, flutt af góðri
hljómsveit, listilega hljóðblönduð
og borin fram með flottu umslagi.
Það er ekki hægt að biðja um mik-
ið meira og oft lætur maður sér
nægja minna.
Þessi plata er hálfgert ólíkinda-
tól, plankastrekkjarinn goðsagna-
kenndi fundinn á Akureyri. Mik-
ilvægari en D-vítamín. Refur fyrir
rass. Perlur fyrir svín. Jólagjöfin
í ár.
Ari Eldon
meira át
www.visir.is
15