Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Val styrkþega úr 80 miUjóna króna sjóði iðnaðarráðherra gagnrýnt:
Vafasöm vinnubrögð
og vond stjórnsýsla
- segir Ásta Ragnheiöur - krefst skýrra reglna
„Mér þykir mjög vafasöm vinnu-
brögð viðhöfð við styrkveitingar úr
þessum sjóði iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra. Ég tel að þau stangist á við
grundvallarreglur um góða stjóm-
sýslu sem er að fmna í ákvæðum
EES-samningsins. Þegar pólitískt
valdir samherjar sjá um að vinna úr
umsóknum kallar það á efasemdir um
að faglega sé að verki staðið. Það má
ekki vera minnsti grunur um póli-
tíska misnotkun á opinberu fé og svör
ráðherra kalla á skýrar og afdráttar-
lausar reglur um vinnubrögð við
styrkveitingar af almannafé," segir
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir al-
þingismaður um svör Finns Ingólfs-
sonar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
við íyrirspum hennar á Álþingi.
Ásta Ragnheiður spurði hverjir
hefðu fengið úthlutað styrkjum af
þeirri 80 milljóna króna fjárveitingu
sem ríkisstjómin hefði árlega sam-
þykkt sérstaklega til ráðherrans,
hversu hár hver styrkur hefði verið
og til hvaða verkefiia þeir vom veitt-
ir. Þá var spurt um kynningu og aug-
lýsingu styrkjanna og hvemig staðið
hefði verið að mati á umsóknum.
Féð sem um ræðir er sérstaklega
samþykkt í ríkisstjóminni til verk-
efna á sviði atvinnuþróunar og ný-
sköpunar og hefur verið úthlutað 1997
og 1998. í svari Finns kemur fram að
36 styrkir hafi verið veittir 1997, þeir
hæstu upp á 8 milljónir króna, og 60
styrkir á þessu ári, sá hæsti upp á 10
milljónir króna.
Árið 1997 vora m.a. 8 milljónir
króna veittar til hagkvæmnisathug-
unar vegna byggingar polyol-verk-
smiðju, 8 milijónir til ýmissa ferða-
þjónustuverkefiia víða um land, 7
milljónir til að rannsaka stóriðjukosti
á Reyðarfirði og 5 milljónir til sam-
vinnuverkefnis í textíliðnaði.
í ár runnu m.a. 10 milijónir króna
til átaks um jarðhitaleit á köldum
svæðum, 6,5 milljónir til forhag-
kvæmnisathugunar á framtíðarapp-
byggingu orkufreks iðnaðar í Norður-
landskjördæmi vestra, 6 milljónir til
Ásta Ragnheíður.
samvinnuverkefiiis prjónastofa og 4
milijónir til reksturs verkefha um at-
vinnuþróun á svæðrnn sem ekki njóta
stóriðjuuppbyggingar.
Hér era einungis teknir stærstu
styrkirnir. Ekki er hægt að sjá hvaða
einstaklingar standa á bak við hvert
verkefhi sem fær styrk.
Sérfræðingar ráðherra
En það er mat umsókna sem Ásta
Ragnheiður gerir sérstakar athuga-
semdir við. í svari Finns segir að í
fyrstu hafi allar verkefnahugmyndir
verið metnar af þriggja manna mats-
nefiid sérfræðinga. Hana skipaði m.a.
Ámi Magnússon, aðstoðarmaður ráð-
herra.
Á þessu ári hafi mat á verkefnum
og lokaafgreiðsla þeirra verið færð í
hendur stjómar Átaks til atvinnu-
sköpunar. Frummat er hins vegar í
höndum framkvæmdastjóra Átaksins
og tveggja sérffæðinga. Fram-
kvæmdastjóri átaksins er Bjöm Ingi
Stefánsson, kosningastjóri Framsókn-
arflokksins í Reykjavík í síðustu
kosningum. Sérfræðingamir era þeir
Ámi Magnússon, aðstoðarmaður ráð-
Finnur Ingólfsson.
herra og formaður stjómar átaksins,
og Benedikt Ámason. í svarinu segir
að verkefnin hafi verið metin eftir því
hversu líkleg þau væra til að leiða til
varanlegrar atvinnuuppbyggingar á
viðkomandi stað.
Gagnsæi aðgerða
í leiðbeiningum Eftirlitsstofhunar
EFTA um ríkisstuðning, 3. hluta,
kemur fram að hafa beri í huga meg-
inreglur EES-samningsins um „góða
stjómsýslu" sem m.a. felist í gagnsæi
aðgerða og banni við mismunun ein-
staklinga og fyrirtækja. Lögð er
áhersla á að stuðningsaðgerðir fari
fram eftir fyrirframgerðum staðfest-
um áætlunum.
„Svona styrkir geta verið nauðsyn-
legir en ég gagnrýni vinnubrögð við
val á styrkþegum sem pólitískir full-
trúar ráðherrans annast og stjómin
leggur blessun sína yfir. Það er ein-
kennilegt að Byggðastofnun, sem á að
sinna svona byggðaaðstoð, eða jafhvel
Iðntæknistofriun skuli ekki haifa um-
sjón með þessum styrkjum og hafa yf-
irsýn yfir styrkveitingamar. Sam-
Bæði skemmt og skemmt
Árnl Magnússon.
kvæmt reglum EES ber að kynna slík-
ar styrkveitingar að lokinni veitingu
þeirra þannig að öllum sé ljóst hvem-
ig staðið hefur verið að þeim. En það
er ekki fyrr en ég spyr að þessar upp-
lýsingar era birtar. Iðnaðarráðherra
hefur nýverið fengiö 80 milljóna
króna skammt til úthlutunar á næsta
ári. Ég get ekki séð að neinn sætti sig
við að sömu vinnubrögð verði viðhöfð
við útdeilingu á því fé,“ segir Ásta
Ragnheiður.
Undirróður stjórnarandstöðu
Finnur Ingólfsson var spurður um
þetta mál á flokksþingi Framsóknar-
flokksins í gær. Hann sagðist hiklaust
telja að málatilbúnaöur Ástu Ragn-
heiðar Jóhannesdóttur væri eitt af
þeim verkfærum sem hún og sfjómar-
andstaðan hefði gripið til gegn sér í
því skyni að hafa áhrif á niðurstöð-
una í varaformannskjörinu í Fram-
sóknarflokknum. Hann tók sérstak-
lega fram að hann teldi alls ekki að
Siv Friðleifsdóttir, andstæðingur
hans þar, hefði átt hlut að máli.
-hlh/SÁ
Klofningur hefur
komið upp í Frjáls-
lynda flokknum. Ekki
það að búið sé að
stofna flokkinn, en
stofnfundurinn er í að-
sigi, og ef Frjálslyndi
flokkurinn á að ná fót-
festu verður hann að
sjálfsögðu að klofna
nokkrum sinnum.
Flestir aðrir flokkar
hér á landi hafa klofn-
að, og það jafnvel oftar
en einu sinni, sumir
hverjir. Þetta mun hins
vegar vera í fyrsta
skipti í íslandssögunni
sem flokkur klofnar
áður en hann er stofn-
aður.
Sverrir segir að
þetta skemmi fyrir og
skemmti andstæðing-
unum. Hér er sem sagt
bæði skemmt og skemmt en þetta gerir ekki svo
mikið til vegna þess aö það á eftir að stofna flokk-
inn og það á eftir að stilla upp og ef Sverrir verð-
ur kjörinn formaður þá semur hann við fulltrúa
þjóðareignarinnar um framboðin og aftur öfugt ef
þjóðareignarliðið slær eign sinni á flokkinn.
Þetta er jú frjálslyndur flokkur, ekki satt?
Þeir með þjóðareignina halda því fram að
Sverrir sé ekki heppilegur formaður og vilja
Bárð. Þetta er eflaust rétt hjá fylgismönnum
Bárðar en hefur þó þann annmarka að Sverrir
trekkir, og í raun og vera sá eini sem trekkir,
þannig að Frjálslyndi flokkurinn er andvana
fæddur nema Sverrir verði með. En Sverrir verð-
ur ekki með, nema hann verði formaður, og þar
stendur hnífurinn í kúnni, en auövitað geta þeir
Sverrir og Jón í Jámblendinu stofnað sér flokk
og þeir með þjóðareignina stofnað sinn flokk og
látið á það reyna hvor fái minna fylgi og þá er
hægt að ganga til sameiningar í kosningum eftir
fjögur ár, enda hefur Sverrir nægan tíma eftir að
hann hætti í bankanum og þjóöareignin fer held-
ur ekkert meðan útgerðarmenn gæta hennar og
svona flokksmyndun tekur sinn tíma og við sjá-
um það af sameiningarferli vinstriflokkanna að
málefnin skipta ekki mestu máli heldur hverjir
eru formenn og frambjóðendur og frekar ganga
menn sundraðir til leiks heldur en að láta þá sem
maður ætlar að sameinast ganga yfir sig. í því
felst frjálslyndiö.
Frjálslyndi flokkurinn er greinilega alvöru-
flokkur sem hefur alvöramenn í fararbroddi sem
gera sér strax grein fyrir mikilvægi þess einstak-
lings sem á að vera formaður og Sverrir skal ekki
halda að hann geti formálalaust gengið inn í for-
mannssætið, bara af því að hann var látinn hætta
í bankanum. Þaö skemmir fyrir.
Ekki það að það skemmi fyrir með því að
skemmta skrattanum (Sverrir veit að það borgar
sig), en þetta verður spennandi stofnfundur um
næstu helgi, einkum fyrir þá sök að ekki er leng-
ur víst hvort flokkurinn lifir stofnfundinn af.
Dagfari
Stuttar fréttir i>v
Arni ætlar fram
Ámi Gunnars-
son, aðstoðarmað-
ur félagsmálaráð-
herra, hefur
ákveðið að bjóða
sig fram í annað
sæti Framsóknar-
flokksins á Norð-
urlandi vestra.
Ámi er formaður Sambands ungra
framsóknarmanna. Stefán Guð-
mundsson var áður í öðra sæti
flokksins en hann hefúr sagt að
hann muni ekki gefa kost á sér fyrir
næstu kosningar.
Ný kennarasamtök
Á fundum fulltrúaráðs Hins is-
lenska kennarafélags og samráðs-
nefndar Kennarasambands íslands,
sem haldnir vora á fóstudaginn, var
samþykkt að fram færi allsherjarat-
kvæðagreiðsla um sameiningu
kennarafélaganna. Milliþinganefhd
félaganna hefúr unnið drög að lög-
um fyrir ný samtök. Atkvæða-
greiösla um sameininguna fer fram
í mars á næsta ári eftir kynningu
laganna. Verði sameining samþykkt
verða ný samtök til 1. janúar 2000 og
í þeim yrðu 6000 felagsmenn.
Viöurkenning
Þróunarfélag Reykjavíkur veitti
eigendum 10-11 viðurkenningu fyrir
framlag til þróunar og uppbyggingar
miðbæjarins. Reykjavíkurborg og ís-
lensk verslun veitti starfsfólki og
eigendum verslunar Sævars Karls
Ólasonar Njarðarskjöldinn og var
verslunin útnefhd Ferðamanna-
verslun ársins 1998. Þetta er í þriöja
sinn sem skjöldurinn er veittur.
Morgunblaðið greindi frá.
Oddvitaklögur
Nokkrir yfumenn heilsugæslunn-
ar í Hafharfirði hafa klagað í bæjar-
stjóra og oddvita Sjálfstæðisflokks-
ins í bæjarstjóm vegna hugmynda
Þorsteins Njálssonar, oddvita fram-
sóknarmaima í bæjarstjóm, og hins
oddvita meirihlutans. Þorsteinn vill
flytja heilsugæsluna í þijár hæðir í
miðbæjarhúsinu Firði auk þess sem
hann vill færa heimahjúkrun undir
öldrunaimálaflokkinn. Þetta þykir
yfirmönnum heilsugæslunnar slæm-
ar og varhugaverðar hugmyndir.
Dagur greindi frá.
Vestmannaeyjavegur
Frumrannsókn
á möguleikum á
vegtengingu Vest-
mannaeyja og
lands er hafin hjá
Vegagerðinni en
Alþingi sam-
þykkti síðastlið-
inn vetur þingsá-
lyktunartillögu þess efiiis að slík at-
hugun færi fram. Ályktunin gerir
ráð fyrir athugun á þremur mögu-
leikum, jarðgöngum, botngöngum
eða flotgöngum. Jarðgöng þykja
heppilegasti kosturinn. Frumrann-
sóknin mun að öllum líkindum taka
eitt til eitt og hálft ár. Morgunblaðið
greindi frá.
Lengri lestrartíma
Páll Skúlason háskólarektor segir
brýnt að lengja afgreiðslutíma Þjóð-
arbókhlöðunnar og hafa lestrarsal-
ina opna lengur. Fulltrúar Háskól-
ans hafa fariö á fund fjárlaganefhdar
og menntamálaráðherra og munu
hitta menntamálanefiid i vikunni.
Menntamálaráðherra beitti sér fyrir
fjögurra milljóna króna viðbót til
Þjóðarbókhlöðunnar en fram-
kvæmdastjóri samskipta- og þróun-
arsviðs HÍ segir þurfa 14 mifljónir.
RÚV greindi frá.
Qjaldið lækkaö
Stjóm Spalar
hf. hefur ákveðið
aö endurskoða
gjaldskrá Hval-
fjarðarganga
næsta vor. Gisli
Gíslason, stjóm-
arformaður Spal-
ar, sagði það
næsta víst að lögð yrði til lækkun.
Tryggingafélagið John Hancock
verður þó að samþykkja gjaldskrár-
breytinguna en það er stærsti lán-
veitandinn. Gísli telur líklegt að
samþykki fáist Morgunblaöið
greindi frá. .sm