Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998 Útlönd Stuttar fréttir dv Clinton ekki sóttur til saka Vaxandi líkur eru á því aö þing- menn repúblikana og demókrata nái samkomulagi um að Clinton forseti verði víttur vegna Lewinskymálsins en málsókn á hendur honum verði látin niður falla. Þetta kom fram í máli Martins Frost, eins valdamesta demókratans í fulltrúadeild Banda- ríkjaþings, í gær. Nú standa yfir yfirheyrslur á þingi vegna málsins en vist þykir að nokkrir þingmenn repúblikana muni ekki greiða atkvæði með málsókn. Saksóknarinn Kenneth Starr hef- ur viðurkennt að ekkert misjafiit hafi fundist í Whitewatermálinu sem gæti haft í för með sér afsögn forsetans. Clinton, sem er á ferðalagi um Asiu, fagnaði þessum tiðindum í gær og sagöist vona að málinu færi að ljúka. BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI Formaður norskra hægrimanna ætlar að bjarga ríkisstjóm landsins á síðustu stundu: Kallar Bondevik ráðalausan vingul - styður samt ríkisstjórn hans frekar en að koma Verkamannaflokknum til valda DV, Ósló: „Ríkisstjómin verður að taka sig á og sýna af sér dug. Að öðrum kosti ná vinstriöflin hreinum meirihluta í næstu kosningum," segir Jan Peter- sen, formaður Hægriflokksins norska, og er að settum ströngum skilyrðum reiðubúinn til að bjarga norsku ríkis- stjóminni. Skilyrðin em að séra Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra samþykki stefnu hægrimanna í ríkis- fjármálum. Séra Kjell Magne hefur þannig fúlla ástæðu tO að trúa því að ríkisstjóm hans lifi af kreppuna sem hún rataði í vegna óafgreiddra fjárlaga. Hann þarf bara að faila frá áformum um skattahækkanir og auknar álögum á atvinnulífið, hætta við niðurskurð á framlögum til hersins og lofa að gera eitthvað í einkavæðingu í opinberum rekstri og þá halda allir ráðherrar hans stólum sínum. Norska ríkisstjómin er minnihluta- stjóm þriggja miðflokka með hikandi stuðningi tveggja hægriflokka. Hægri formaðurinn Pet- ersen lýsir þessari stjóm sem „ráðalausri og máttlausri". í viðtölum við norska fjölmiðla í gær talar hann um „vingulshátt“ og á við staðfestuleysi séra Kjell Magne það rúma ár sem hann hef- ur verið við völd. Samt ætla hægrimenn að koma stjóminni til bjargar því aðrir kostir era taldir verri. Thorbjöm Jagland, formaður Verkamannaflokksins, hef- ur biðlað ákaft til hægrimanna síð- ustu daga og á landsfundi flokksins um helgina sagði hann ekki eitt illt orð um hægrimenn. Það mun vera í fyrsta sinn i 111 ára sögu Verka- mannaffokksins. Séra Kjell Magne hefúr tekið yfirvofandi stjóm- arkreppu með stakri ró. Hann hefúr treyst á að flokkamir til hægri muni aldrei fella hann. Það væri til þess eins að koma Verkamannaflokk- um til valda. Á fimmtu- daginn verður kosið um nýja fjárlagafrumvarpið og séra Kjell Magne er viss um að það verður samþykkt - bara ef hann fómar öllum baráttumál- um sínum. Skoðanakannanir sýna að vinsældir stjómarflokkanna dala stöðugt í kreppunni. Nú er samanlagt fylgi tveggja þeirra 18% og þriðji stjómarflokkurinn er nær alveg rúinn kjósendum. Carl I. Hagen, formaður Framfara- flokksins, hefúr hins vegar aldrei ver- ið vinsæfli en einmitt nú. GK --SB Kennedyfjölskyldan minntist þess í gær að 35 ár eru liðin frá því John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, var skotinn til bana í Dallas. Ted Kennedy öldungadeildarþingmaður, Victoria, eiginkona hans, og Ethel Kennedy, ekkja Roberts Kennedy, leggja hér blóm á leiði forsetans og konu hans, Jacqueline. Símamynd Reuter Sleppt úr haldi Rithöfundinum Taslimu Nasreen frá Bangladesh var sleppt úr haldi í gær gegn trygg- ingu. Nasreen er ásökuð um guð- last í bókum sín- um og hafa strangtrúaðir múslímar haft í hótunum við hana. Nasreen hefur dvalið í sjálfskipaðri útlegð í fiögur ár en sneri heim til Bangladesh fyrir stuttu. Kanna ásakanir Þýska lögreglan kannar nú hvort Abdullah Ocalan, leiðtogi Kúrda, hafi átt þátt í ránum á þremur kúrdískum ungmennum og látið flytja þau í skæruliðabúðir sínar. Hungurverkfall Palentínskir fangar sem sifia i fangelsum í ísrael hófu í gær hung- urverkfafl. Fangamir mótmæla því að ísraelar slepptu nýlega 150 glæpamönnum í stað pólitískra fanga. Kuldakast i Frakklandi Að minnsta kosti þrír létust í miklu kuldakasti sem gekk yfir Frakkland um helgina. Hillary býður aðstoð Hillary Clinton hét í gær 3.4 milljónum dala til uppbyggingar- starfs á Haítí en eyjan fór mjög illa þegar fellibylurinn Georg gekk yfir landið fyrr í mánuðinum. Morðingjar ófundnir Morðingjar rússnesku þingkon- unnar Galinu Starovoitovu, sem var myrt aðfara- nótt sunnudags í Pétursborg, em enn ófundn- ir. Aðstoðar- maður þingkon- unnar liggur enn illa haldinn á sjúkrahúsi. Mikil sorg ríkir í Rússlandi vegna morðsins en Galina var mikill bar- áttujaxl fyrir lýðræðisþróun í landinu. 44 láta lífið á A-Tímor Fyrrum ráðgjafi Habibie, forseta Indónesíu, segir að 44 manns hafi látið lífið í árás hersins á búðir að- skilnaðarsinna á dögunum. Færri glæpir Glæpir hafa ekki verið færri í Bandaríkjunum 123 ár. Þetta kem- ur fram í nýrri skýrslu alríkislög- reglunnar. Morðum og ránum fækkaði um 7% á síðasta ári. Þrátt fyrir það er framið morð á hálf- tímafresti og rán á hverri minútu. Orval no+a^ra bíla af öllom s-faerfcow 03 3er*ow / Margar biíreiöar á söluskrá okkar er hægt að greiöa meö Visa- eöa Euro- raögreiðslum MMC Pajero '89. 5 dyra, ssk., ek. 133 þ.km., blár V. 1.080 þús. BMW 318i '89. 4 dyra, ssk., ek. 114 þ.km., steingr. fráb. eint., V. 650 þús. Ford Escort st. 1.6 '97 5 dyra, 5gíra, ek. 42 þ.km., grænn, listav. 1.240 þús. V. 1.090 þús. Suzuki Sidekick '93. 5dyra, 5gfra, ek. 84 þ.km., svartur V. 1.030 þús. VW Golf GL '95 5dyra, 5gíra, ek. 85 þ.km., d-blár V 920 þús. Borgartúni 26, ámar 561 7510 & 561 7511 MMC Colt GL '91.3dyra, 5gíra, ek. 47 þ.km. rauður V. 570 þús. MMC Carisma GLX '98. 4dyra, 5gíra, ek.2 þ.km. grænn. Nýr bíll. V. 1.490 þús. MMC Pajero '97 5dyra, ssk., ek. 45 þ.km. bl/gr„ 32“ dekk, spoiler V. 2.980 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.