Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Page 27
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
35
I
I
J
1
j
I
Það er slæmt ef löggan í West Hartford nappar mann fyrir umferöarlagabrot. Þá er nafn manns birt á Netinu og
saumaklúbbar bæjarins hafa eitthvað að spjalla um þá vikuna.
Löggan tekur Netið í þjónustu sína:
Birtir nöfn umferðarlagabrjota
Nú þurfa umferðarlagabrjótar
hafa hægt um sig, að minnsta kosti
þeir sem búa í bænum West Hart-
ford í Connecticut í Bandaríkjun-
um. Lögreglan þar í bæ er farin að
nota heimasíðu bæjarins til að berj-
ast gegn þeim sem keyra of hratt,
virða ekki stöðvunarskyldu og öðr-
um slíkum þrjótum. Á heimasíö-
unni eru birt nöfn þeirra sem kærð-
ir eru fyrir umferðarlagabrot.
„Við getum svo sem gefrð út sekt-
armiða þangað til við verðum bláir
í framan, en það bara hreinlega hef-
ur engin áhrif nú á tímum,“ segir
lögreglustjóri bæjarins. í staðinn
fyrir að skipta litum ákvað lögregl-
an þvi að taka nýjustu tæknina í
þjónustu sína.
Eins og búast mátti við hafa þó
ýmsir orðið til að gagnrýna þessi
vinnubrögð. Forsvarsmaður mann-
réttindasamtaka í Connecticut segir
að samfélagið hagnist ails ekki á
framferði lögreglunnar. í staðinn
segir hann að þau einu sem hafi af
þessu gagn séu Gróa á Leiti og skó-
sveinar hennar.
Spurningin er nú hvort þessar
starfsaðferðir muni breiðast út til
fleiri borga og bæja í Bandaríkjun-
um. Ef af því yrði er aldrei að vita
nema við íslendingar myndum
kynnast þessu einhvern tímann. Þá
væri mögulegt að höfundi lesenda-
bréfs hér í DV fyrir skömmu yrði að
ósk sinni um að myndir frá eftirlits-
myndavélum í miðborginni yrðu
sendar beint út á Netinu.
Myndbandaskólinn:
Kennt á Word og Excel með margmiðlun
Um þessar mundir er að koma á
, markaðinn gagnvirk kennsla á for-
ritin Word 97 og Excel 97 á marg-
miðlunardiskum. Word er án efa
I algengasta ritvinnsluforrit í heimi
og Excel hefur álíka stööu meðal
töflureikna.
Það er Myndbandaskólinn sem
gefur námskeiðið út, en um er að
ræða fjóra geisladiska, tvo fyrir
hvort forrit. Skólinn hefur áður
geflð út námskeið á myndböndum
fyrir tölvuáhugafólk. Að mati for-
ystumanna fyrirtækisins er tölvu-
kennsla á geisladiskum hins vegar
einhver sú alþægilegasta og fljót-
| legasta leið sem þekkist til að
kenna fólki notkun þessara for-
rita.
Námskeiðin eru byggð upp á
►
I
I
I
I
)
)
I
>
)
)
I
f
>
í sfðustu viku var hin árlega Comdex-ráöstefna haldin í Las Vegas. Á ráð-
stefnunni kynna ýmis tölvufyrirtæki nýjustu framleiðslu sína væntanlegum
samstarfs- og samkeppnisaðilum. Almenn niðurstaða þeirra sem fylgdust
með var að tæki búin tölvutækni verða almennt smærri, sérhæfðari og með-
færilegri í framtíðinni. Áætlað var að nærri 230.000 manns hefðu sótt ráð-
stefnuna.
Word er algengasta ritvinnsluforrit í
heimi og því fagnaðarefni að komið
sé á markaðinn margmiðlunarefni
sem einfaldar almenningi notkun
forritsins.
þann hátt að einfalt er að nota þau
og auðvelt er að fara á milli kafla
og velja það sem hver og einn hef-
ur mesta þörf fyrir. Þannig getur
notandinn ráðið hraða og áhersl-
um náms síns og sniðið að eigin
þörfum.
Fyrirkomulag námskeiðsins er
ekki með þeim hætti að fólk verði
að hafa kynnt sér ítarlega allt efni
geisladiskanna áður en hafist er
handa við að nota forritin. Frekar
er gert ráð fyrir því að notendur
diskanna séu að vinna að verkefn-
um í Word og Excel samhliða þvi
að læra af diskunum. Þannig er
hægt að nýta kennsludiskana sem
uppflettirit til að finna lausnir á
þeim vanda sem glímt er við
hverju sinni. Til að auðvelda þetta
er kennsluefninu skipt upp í
marga kafla svo auðvelt sé að
finna umfjöllun um einstök mál-
efni.
Námskeiðin verða til í öllum
helstu tölvuverslunum auk þess
sem Myndbandaskólinn mun
kynna þau fyrir fyrirtækjum.
jólapósturinn
Rétt póstfang skiptir öllu máli
Það vill enginn missa af jólakveðjum frá ættingjum
og vinum. Þess vegna brýnum við fyrir fólki að hafa
rétta áritun á jólakveðjunum sínum. annars er hætta
á að þær komist ekki til skila eða að þeim seinki.
Eins er mikilvægt að merkja hús. póstkassa og
bréfalúgur greinilega. Póstnúmeraskrá fæst afhent
í næsta pósthúsi og eins eru
upplýsingar á bls. 681