Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
9
Utlönd
írakar vilja halda samstarfi við SÞ áfram:
Bandaríkjamenn
láti af hótunum
Tariq Aziz, aðstoöarforsætisráð-
herra íraks, vandaði Richard
Butler, yfirmanni vopnaeftirlits-
sveita Sameinuðu þjóðanna, ekki
kveðjumar í gær. Aziz sagði Ric-
hard Butler vera að gera tilraun tii
aö egna til ófriðar við írak.
Þetta voru fyrstu viðbrogð Aziz
við bréfi sem Butler sendi írökum í
síðustu viku þar sem hann fór fram
á að fá aðgang að skjölum sem vörð-
uðu vopnaframleiðsluna í landinu.
Formlegri beiðni Butlers var
hafnað en Aziz hélt því fram í gær
að það væri rangt að írakar hefðu
ekki viljað leggja fram ákveðin skjöl
um framleiðslu efnavopna. Hins
vegar væri ekki hægt að leggja fram
skjöl sem ekki væru til.
Mohammed Saeed Sahaf, utanrík-
isráðherra íraks, gaf út yfirlýsingu í
gær um að vopnaeftirlit Sameinuðu
þjóðanna hefði þegar undir höndum
hálfa þriðju milljón hergagna og
skjala.
Hann sagði jafnframt að sam-
starfi við vopnaeftirlitið yrði haldið
áfram svo fremi sem Bandaríkja-
menn létu af hótunum sínrnn og
Saeed Sahaf, utanríkisráðherra
íraks, sagði íraka búna að afhenda á
þriðju milljón hergagna og skjala.
vopnaeftirlitið færi að gerðum
samningum. Þá sagði Sahaf íraka í
engu óttast hótanir
Bandaríkjamanna. Reuter
Suður-kóreskir ferðamenn ganga hjá minnismerki um Kim ll-sung, leiðtoga
Norður-Kóreu. Ferðamennirnir voru í hópi 900 ferðamanna frá S-Kóreu sem
heimsóttu norðurhluta landsins á dögunum. Heimsókn ferðamannanna
markar tímamót því hálf öld er liðin frá því landinu var skipt.
Sex létu lifið í óeirðum í Indónesíu:
Múslímar brenna kirkjur
Sex manns létu lífið og 15 særöust
í miklum óeirðum sem geisuðu í
Jakarta, höfuðborg Indónesíu, í gær.
Það eru múslímar og kaþólskir
sem eigast við en hinir fyrmefndu
eru 90% þjóðarinnar. Múslímar báru
eld að kaþólskum kirkjum í gær og
brenndu auk þess híbýli kaþólikka.
Deilur trúarhópanna tveggja hafa
farið stigvaxandi undanfarið og
létust 16 manns í götubardögum í
síðustu viku.
Kristnir menn halda því fram að
rúmlega 400 kirkjur hafl verið
brenndar í landinu á flmm ára tíma-
bili.
REYKJAVlK: Heimskfinglan. Kringlunni.VESTURLAND: Hljómsyn. Akranesi. Kauplélag Borgfiiðinga. Borgamesi. Blnmsiurvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrimsson. Gnindarlirði.VESlflRBIB: Rafbúð Jnnasar Nrs, Patreksliröi. Póllinn, Isaliröi.
NORDURLAND: Lf Steingrímsljarðar. Hólmavik. Kf V-Húnvetninga. Hvammsianga. Ef Húnvetninga. Blónduósi. Skagfirðingabúð. Sauðárkróki. KEA, Oalvik. fiósgjafinaAkureyrí. Kf Þiugeyinga, Húsavík. Urð. Raufarhöfn. AUSIURLAND: Kf Héraðsbúa.
Egilsstoðum. Verslunin Vlk. Neskaupsstað. Kauptún Vopnafirði. KF Vopnfirðinga. Vopnalirði. KF Héraðsbúa. Seyðisfirði. Tumbræöur. SeyðisfirðLKF Fáskrúðsfiarðar. f áskrúðslirðl. KASK. Djúpavogi. KASK Höfn Homaf irði. SUOURLANO: Ralmagnsverkstæði
KR. Hvolsvelli. Mosfell, Hellu. Heimstækni. Selfossi. Kí, Selfossi. Rás. Þorlákshnfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. RfYKJANES: flafborg. Grindavik. Raflagnavinnust. Sig. Ingvarssonar. Garði. Ralmætti. Hafnarfirði. Tónborg. lópavugi.
qóé kaupl
• Mono hlióðkerfi • i'íleosk r textávaro • S‘ar‘-reo r: BLAGK MATRIK
G Rl Ll r iNITCD 1 1 31 IG
Allar lagnir, vökvahraðtengi
aftan og framan, gaflar fyrir
hraðtengi, 40, 60 og 90 cm
skóflur.
Verð kr. 4 millj.- án vsk.
í toppstandi, nýtt lakk,
vökvalagnir, 25 og 55 cm
skóflur.
Verð kr. 1.750.000,- án vsk.
Gúmmíbelti, vökvalagnir og
slétt skófla, 85 cm.
Verð kr. 1.650.000,- án vsk.
Hraðtengi framan, vökvalagnir,
55 cm skófla.
Verð kr. 2.150.000,- án vsk.
Yfirfarin, servo, 90 cm skófla.
Verð kr. 1.200.000,- án vsk.
y KRAFTVÉLAR
Dalvegi 6-8 • 200 Kópavogi
s:535 3500/fax 5353519
e-mail peturi@kraftvelar.is