Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Side 22
22
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
KauptU jólagjafirnar heima
í stofu fyrir þessi jól
Þú ferð inn á Vísi.is...
yf’ylt*—
|sf w
O
HAOKAUP
@
vísir.ís
...og smellir á þetta merki.
Þú skoðar bækur, geisladiska og myndbönd,
lest gagnrýni, viðtöl og umfjöllun,
heyrir upplestur höfunda úr bókum
og gagnrýnir sjálf(ur).
Þú velur bækur, geisladiska og myndbönd í körfúna þína með því að smella á „Kaupa”...
Kaupa!
Svo greiðir þú fýrir vörurnar með greiðslukortinu þínu *...
<<p-'
... og bíður þess að fá vörurnar afhentar. Mestar líkur eru á því að Pósturinn komi
heim til þín með bækurnar, geisladiskana og myndböndin þín innan 18 tíma frá því að þú pantaðir.
PÓSTURIN N
Góða skemmtun og
gleðileg bókajól.
HAGKAUP@ vísir.is
Það er jafnöruggt að versla
með greiðslukorti í þessari
Hagkaupsbúð og öðrum
Hagkaupsbúðum.
Kortanúmerið er dulkóðað
með 40 bita dulkóðunarlykli.
Lfkurnar á þvf að einhver
annar en Hagkaup geti
numiö kortanúmerið
þitt eru stjarnfræðilegar.
www.visir.is
Fréttir
Skólaminjasafn
á Hólmavík
DV Hólmavík:
„Ég tel að við þurfum
að hefjast handa sem
fyrst til að varðveita
skólasögu okkar með því
til að mynda að safna
saman hinum ýmsu
munum sem tengjast
þeirri sögu. Við þurfum
að byrja á þessu áður en
fleira glatast en nú er
orðið. Á hátíðarstundum
er oft rætt um að efla at-
vinnulíf og stuðla að
meiri fjölbreytni í mann-
lífi og atvinnutækifær-
um, sérstaklega á smærri
Skarphéðinn Jóns-
son skólastjóri.
DV-mynd Guðfinnur
stöðum
sem búa við einhæft atvinnulíf. Nú
er tækifærið, ekki síst fyrir okkur
sem hér búum. Við eigum ýmsa
muni til að leggja í safn sem þetta -
meira að segja gamalt skólahús-
næði,“ sagði Skarphéðinn Jónsson,
skólastjóri á Hólmavík, þegar
minnst var hálfrar aldar afmælis
gamla skólans á Hólmavik.
Hann sagðist í gegnum
tíðina hafa verið góður
liðsmaðm- þeirra sem
best telja að öllu því sé
fleygt sem ekki hefur
lengur notagildi en batn-
andi manni sé best að
lifa. Forstöðumaður
skólaskrifstofu Vest-
fjarða, Pétur Bjarnason,
hefur kveikt áhuga á að
komið verði á laggirnar
skólaminjasafni.
„Það er ekki til i dag.
Við búum við heppilegar
aðstæður. Okkur vantar
fjölbreyttari atvinnu-
- við viljum laða að fleiri
tækifæri ■
ferðamenn. Ég tel að þetta sé góð
hugmynd sem mætti útfæra og
vinna betur að og þykist vita að ef
að yrði kæmu ýmsir til með að
styrkja þetta fjárhagslega . Get þar
nefnt menntamálaráðuneytið, kenn-
arafélögin, atvinnuþróunarfélög og
eflaust fleiri aðila,“ segir Skarphéð-
inn. -Guðfinnur
Ólafur að leiðbeina konu á námskeiðinu.
DV-mynd Ægir Kr.
Utskurðarnámskeið
á Fáskrúðsfirði
DV, Fáskrúðsfiröi;
Nýlega lauk á Fáskrúðsfirði út-
skurðamámskeiði þar sem Ólafur
Eggertsson frá Berunesi var leið-
beinandi. Kennslustundir á nám-
skeiðinu eru 28 og þau standa
venjulega yfir í þrjá til fimm daga
eftir því hvað viðveran er löng á
degi hverjum.
Ólafur sagðist heyra það á fólki
að það væri áhugi á framhaldi á
þessu sviði og nokkrir sem ekki
komust að vegna starfa að þessu
sinni vildu taka þátt í næsta nám-
skeiði ef af yrði. Hér var aðeins
einn hópur en stundum eru bæði
dag- og kvöldhópar. Það fer eftir
fjölda þátttakenda og fólk borgar
einungis fyrir þann tíma sem það er
á námskeiðinu og getur farið og
komið þegar það vill. Elsti þátttak-
andinn nú var Sölvi Ólason. Hann
er orðinn 83 ára gamall og var
nokkuö ánægður með námskeiðið.
Sagði verst að þegar því lyki þá
vantaði sig útskurðarjám til að
gera meira, en leiðbeinandinn legg-
ur þau til meðan á námskeiðinu
stendur. -ÆK
Raufarhöfn:
Verkstæðishús að rísa
DV, Raufarhöfn:
Það er ekki á
hverjum degi
sem fyrirtæki í
einstaklingseigu
reisir myndar-
legt hús undir
starfsemi sína
hér á Raufar-
höfn. Þann 11.
nóvember sl. hóf
verktakafyrir-
tækið Iðufell hf.
að reisa burðar-
Burðargrindin að rfsa á Raufarhöfn.
DV-mynd GAJ
grind fyrir myndarlegt verkstæðis-
hús sem fyrirtækið er með í bygg-
ingu. Verkstæðið verður 300 m að
stærð í fyrsta áfanga en möguleikar
era til stækkunar um eina 400 m til
viðbótar.
Trésmiðir frá SR-mjöl hf. á Rauf-
cuhöfn annast smíðavinnu og upp-
setningu hússins. Iðufell hf. er al-
hliða vélaverktakafyrirtæki i eigu
hjónanna Vilhjálms Konráðssonar
og Heiðrúnar Þórólfsdóttur. Það
hefur yfir að ráða þremur vélgröf-
um, 40 tonna krana, steypubifreið
og stórri ámokstursskóflu og er þar
að auki í náinni samvinnu við
vörubílstjóra hér á staðnum þegar
verkefni kalla á slikt samstarf.
Iðufell hf. hefur annast marghátt-
uð verkefni á sviði jarðvinnu og
gatnagerðar, lagnavinnu fyrir
Rarik og Islandspóst auk þess sem
fyrirtækið sér um löndun fyrir SR-
mjöl hf. Það þarf ekki að fara mörg-
um orðum um hvaða þýðingu og ör-
yggi það hefur fyrir samfélagið að
hafa fyrirtæki af þessari gerð á
staðnum á móti því að sækja alla
þessa þjónustu til annara. Hjá Iðu-
felli vinna að jafnaði tveir fastir
starfsmenn en þeim fjölgar síðan
eftir þörfum á álagstíma. -G