Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Síða 42
50
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
Afmæli
Hjalti Kristjánsson
Hjalti Kristjánsson, heilsugæslu-
læknir á Heilsugæslustöðinni í
Vestmannaeyjum, Helgafellsbraut
20, Vestmannaeyjum, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Hjalti fæddist í Ly Sekil í Sviþjóð
og ólst upp í Svíþjóð til 1961, á Pat-
reksfirði 1961-66, í Reykjavík til
1971 en átti heima í Keflavík 1971-74
og í Reykjavík 1974-85.
Hjalti lauk stúdentsprófi frá MH
1977, embættisprófi í læknisfræði
frá HÍ 1984, stundað sérfræðinám í
Vásterás í Svíþjóð frá 1986 og er sér-
fræðingur í heimilislækningum frá
1990. Þá hefur hann lokið B-stigs
þjálfaramenntun á vegum KSÍ.
Á námsárunum var Hjalti í sum-
arvinnu hjá Dráttarbraut Keflavík-
ur við netagerð í Njarðvík. Hann
starfaði við læknadeild Trygginga-
stofnunar ríkisins í nokkur sumur
þar sem hann fékkst við rannsóknir
á vinnuslysum. Þá var hann afleys-
ingalæknir við tólf heilsugæslu-
stöðvar á námsárunum, starfaði við
Heilsugæslustöðina i Vestmanna-
eyjum 1985-86, starfaði með fram-
haldsnámi í Svíþjóð 1986-90, hefur
starfað við Heilsugæslustöðina í
Vestmannaeyjum frá 1990 og var
þar yfirlæknir 1991-94.
Hjalti stofnaði þunglyndishóp við
Heilsugæslustöðina í Vestmanna-
eyjum 1991 og er nú að koma á fót
hópi einstaklinga með vefjagikt og
öðrum hópi einstaklinga sem eiga
við offitu að stríða. Hann hefur ver-
ið læknir ÍBV öðru hvoru og læknir
landsliðsins
spyrnu.
Hjalti hefur verið þjálf-
ari Amors, Framherja og
KFS í 3. deild knatt-
spyrnu og hefur stýrt get-
raunastarfsemi Fram-
herja og KFS frá 1994.
Hann hefur skrifað grein-
ar um læknisfræðileg
efni í innlend og erlend
tímarit.
Fjölskylda
Hjalti kvæntist 25.8. 1979 Veru
Björk Einarsdóttur, f. 12.4. 1958,
skólahjúkrunarfræðingi við Ham-
arsskóla í Vestmannaeyjum. Hún er
dóttir Einars Sigurðssonar og Ragn-
heiðar Kristjánsdóttur.
Börn Hjalta og Veru Bjarkar eru
Trausti, f. 7.9. 1982, nemi við Fjöl-
brautaskólann í Vestmannaeyjum;
Tryggvi, f. 9.8.1986, nemi við Barna-
skóla Vestmannaeyja; Ámi Garðar,
f. 4.4. 1988, lést af slysforam 28.7.
1992; Ragnheiður Perla, f. 29.11.
1993.
Systkini Hjalta eru Hildur, f.
14.10. 1950, ljósmóðir og hjúkrunar-
fræðingur, nú við Heilsugæslustöð-
ina í Hafnarfirði, gift Ingibimi
Tómasi Hafsteinssyni kaupmanni;
Halldór, f. 29.5. 1952, rafmagnsverk-
fræðingur, starfrækir tölvu- og
verkfræðiþjónustu og tölvuskóla og
er forseti Lionshreyfingarinnar á ís-
landi, kvæntur Jenný Ágústsdóttur
tannlækni; Sigurður, f. 23.2. 1955,
sérfræðingur við Landsspítalann í
ónæmissjúkdómum barna, kvæntur
Önnu Daníelsdóttur
tannlækni; Guðrún Þura,
f. 28.1. 1966, sjúkraþjálf-
ari í Reykjavík.
Foreldrar Hjalta: Krist-
ján S. Sigurðsson, f. 14.11.
1924, d. 9.11. 1997, fyrrv.
yfirlæknir við Sjúkra-
húsið í Keflavík, og k.h.,
Valgerður G. Halldórs-
dóttir, f. 20.4. 1929, hús-
móðir.
Ætt
Kristján var bróðir rithöfundanna
Jakobína og Fríðu. Kristján var son-
ur Sigurðar, b. í Hælavík og síðar
símstöðvarstjóri á Hesteyri, Sigurðs-
sonar, b. á Læk, Friðrikssonar, b. í
Rekavík bak Höfn, Einarssonar, b. á
Homi, Sigurðssonar, b. á Horni,
Pálssonar, ættföður Pálsættar,
Bjömssonar. Móðir Sigurðar Sig-
urðssonar var Kristín Arnórsdóttir,
b. í Rekavík, Ebenezerssonar, b. á
Dynjanda, Ebenezerssonar, b. í Efri-
Miðvík, Jónssonar, bróður, sam-
mæðra, Gríms Thorkelíns, leyndar-
skjalavarðar og prófessors.
Móðir Kristjáns var Stefanía,
systir Ingibjargar, móður Þórleifs
Bjamasonar, námsstjóra og rithöf-
undar. Stefanína var dóttir Guðna,
b. í Hælavík, Kjartanssonar, b. á
Atlastöðum, Ólafssonar. Móðir
Kjartans var Soffia Jónsdóttir, b. á
Steinólfsstöðum, Einarssonar, og
Guðrúnar Lárentínusardóttur, b. á
Hóli í Bolungarvík, Erlendssonar,
sýslumanns á Hóli, Ólafssonar,
bróður Jóns fomfræðings.
Valgerður er dóttir Halldórs, b. í
Garði í Mývatnssveit, bróður Þura,
skálds í Garði, og Jóns, læknis á
Kópaskeri, afa Ólafs Jóhanns Ólafs-
sonar, rithöfundar og forstjóra.
Annar bróðir Halldórs var Björg-
vin, faðir Þorgrims Starra í Garði.
Halldór var sonur Áma, b. í Garði
við Mývatn, bróður Amfríðar,
langömmu Kristinar Halldórsdóttur
alþm. Árni var sonur Jóns, b. í
Garði, Jónssonar, b. í Garði, Mart-
einssonar, b. í Garði, Þorgrímsson-
ar, b. í Baldursheimi, Marteinsson-
ar. Móðir Jóns Jónssonar í Garði
var Helga Jónsdóttir, b. á Gautlönd-
um, Marteinssonar, bróður Jóns í
Garði. Móðir Áma var Guðrún,
systir Jóns, langafa Kristjáns Eld-
jáms forseta, föður Þórarins Eld-
jáms rithöfundar. Guðrún var dótt-
ir Þorgríms, b. í Hraunkoti í Aðal-
dal, Marteinssonar, bróður Jóns í
Garði. Móðir Guðrúnar var Vigdís
Hallgrímsdóttir, ættföður Hraun-
kotsættar Helgasonar. Móðir Hall-
dórs Ámasonar var Guðbjörg Stef-
ánsdóttir, b. í Haganesi við Mývatn,
Gamalíelssonar og Bjargar Helga-
dóttur, ættföður Skútustaðaættar,
Ásmundssonar, b. i Baldursheimi,
Helgasonar, bróður Hallgríms í
Hraunkoti. Móðir Sigmundar var
Kristveig Marteinsdóttir, systir Þor-
gríms í Baldursheimi. Móðir Helgu
var Steinvör Guðmundsdóttir, syst-
ir Ásu, ömmu Jóns Þorstéinssonar,
ættföður Reykjahlíðarættar.
Móðir Valgerðar Guðrúnar var
Sigriður Jónsdóttir, b. á Vatnsleysu
í Skagafirði Kristvinssonar.
Vilt þú vinna O
með oldruðum ■
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar leitar að áreiðanlegu
og traustu starfsfólki til starfa við félagslega heimaþjónustu
67 ára og eldri að Lindargötu 59.
Laun skv. kjarasamningi Starfsmannafélagsins
Sóknar og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veitir Helga Jörgensen deildarstjóri
félagslegrar heimaþjónustu, í síma 561 -0300, eða á staðnum.
Til sýnis og sölu
Eigum til sölu örfáa iítið notaða og vel með farna
Daihatsu Terios 4x4 bílaleigubíla, árg '98,
á einstaklega hagstæðu verði.
Búnaður m.a.: Vökvastýri, 15“ álfelgur, 2 loftpúðar,
samlæsing, rafdrifnar rúður að framan,
tregðulæsing, útvarp,
segulband o.m.fl.
BRIM
Faxafeni 8 • Sim
Opið laugardag
sunnudag kl.
Ragna E. Guðmundsdóttir
Ragna Efemía Guð-
mundsdóttir, Bergþóru-
götu 9, Reykjavfk, er sex-
tug í dag.
Starfsferill
Ragna fæddist í Sölva-
nesi í Lýtingsstaðahreppi
í Skagafirði og ólst upp
hjá foreldram sínum til
sextán ára aldurs. Hún
var siðan einn vetur við
fiskvinnslustörf á Akra-
nesi.
Ragna giftist átján ára
og hófu þau hjónin búskap á Sauð-
árkróki en fluttu síðan til Akureyr-
ar þar sem þau bjuggu í sex ár. Þau
hófu búskap í Sölvanesi 1965 og
fluttu aö Steinsstaðabyggð í sama
hreppi 1972. Þar bjuggu þau í tíu ár
en Ragna starfaði þá við mötuneyti
Steinsstaðaskóla. Þau fluttu svo til
Reykjavíkur 1982 og slitu samvist-
um um svipað leyti.
I Reykjavík starfaði Ragna í
þvottahúsinu Fönn um sex ára
skeið, var ráðskona við eldhúsbíl í
háfjallaferðum á vegum Úlfars Jac-
obsens i níu sumur og starfaði við
mötuneytið að Nesjavöllum í Þing-
vallasveit 1988-98.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Skólavörðustígur 18, 16,66% ehl. í 3.
hæð í norðurhluta merkt 0302, þingl. eig.
Elvar Hallgrímsson, gerðarbeiðandi Toll-
stjóraskrifstofa, föstudaginn 27. nóvem-
ber 1998 kl. 13.30.
Spítalastígur 10, 78,20 fm 3ja-4ra herb.
íbúð á 1. hæð, þingl. eig. Gústaf Adolf
Gústafsson, gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður ríkisins, föstudaginn 27. nóvember
1998 kl. 14.
Tryggvagata 4, Hamarshúsið, íbúð 3. hæð
merkt 03-05, þingl. eig. Vatnsiðjan Lón
ehfi, Reykjavík, gerðarbeiðandi Toll-
stjóraskrifstofa, föstudaginn 27. nóvem-
ber 1998 kl. 14.30.____________
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK.
Fjölskylda
Fyrrverandi maður
Rögnu er Pétur Símon
Viglundsson, f. 28.8. 1937,
járnsmiður að Varma-
hlíð í Skagafirði. Hann er
sonur Víglundar Péturs-
sonar úr Svarfaðardal,
bróður Jóhanns Svarf-
dælings, og Margrétar
Jónsdóttur frá
Kambakoti í Húnavatns-
sýslu.
Börn Rögnu og Péturs
eru Guðmundur Svanberg, f. 1956,
rafmagnstæknifræðingur hjá
Landsvirkjun, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Elísabetu Guðmundsdótt-
ur hjúkrunarfræðingi og á hann
fjögur böm; Margrét Björg, f. 1957,
hárgreiðslumeistari á Sauðárkróki,
gift Björgvin Guðmundssyni raf-
virkja og eiga þau fjögur börn;
Víglundur Rúnar, f. 1959, jámsmið-
ur í Varmahlíð, kvæntur Hafdísi
Stefánsdóttur nuddara og eiga þau
tvö böm; Sólborg Alda, f. 1962, kenn-
ari og námsráðgjafi í Varmahlíð,
gift Hallgrími Gunnarssyni hag-
fræðingi og eiga þau eina dóttur;
Ragnar Pétur, f. 1971, bílstjóri hjá
Sorpu, kvæntur Dóra Valgarðsdótt-
ur sjúkraliða og eiga þau eina dótt-
ur.
Sambýlismaður Rögnu er Sigurð-
ur Steindórsson, f. 10.1. 1938, skip-
stjóri.
Systkini Rögnu era Hjálmar Ind-
riði, f. 1937, bóndi að Komá í Skaga-
firði; Rósa Sigurbjörg, f. 1940, hús-
freyja að Goðdölum í Skagafirði;
Birna Gunnhildur, f. 1941, húsfreyja
að Krithóli í Skagafirði; Snorri, f.
1942, bifvélavirki á Akureyri; Svein-
bjöm Ólafur, f. 1942, járnsmiður á
Sauðárkróki.
Foreldrar Rögnu: Guðmundur
Sveinbjömsson, f. 1914, fyrrv. bóndi,
búsettur á Sauðárkróki, og k.h„ Sól-
borg Hjálmarsdóttir, fi 1905, d. 1984,
ljósmóðir.
Ætt
Föðurforeldrar Rögnu voru
Sveinbjörn Sveinsson frá Mælifellsá
í Skagafirði og Ragnhildur Jónsdótt-
ir frá Bakkakoti í Skagafirði.
Móðurforeldrar Rögnu voru
Hjálmar Pétursson og Rósa Björns-
dóttir frá Breið í Skagafirði.
Ragna Efemia
Guðmundsdóttir.
Til hamingju með afmælið 23. nóvember
90 ára
Ingimundur Jónsson, Brekku, Öxarfjarðarhreppi.
85 ára
Bjami Bentsson, fyrrv. yfirverkstjóri hjá Flug- málastjóm, Digranesvegi 80, Kópavogi. Eiginkona hans er Unnur Jakohsdóttir húsmóðir. Þau eru að heiman. Sigvaldi Dagsson, Hrafnistu í Hafnarfirði. Sigríður Guðmundsdóttir, Klifagötu 8, Kópaskeri.
80 ára
Sofíia Guðmundsdóttir, Eyrarvegi 27, Akureyri.
75 ára
Kristján Hjörtur Gislason, Fannborg 8, Kópavogi. Sveinbjöm Kristjánsson, Móaflöt 18, Garðabæ. Páll Jónsson, Hamrahlíð 32, Vopnafirði.
70 ára
Kristín Ólafsdóttir, Birkimel 8, Reykjavík. Jón Bryntýr Magnússon, Álftamýri 58, Reykjavík. Aldís Albertsdóttir, Krókatúni 8, Akranesi. Laufey Pálmadóttir, Hjallalundi 20, Akureyri.
60 ára
Guðrún Böðvarsdóttir, Grenilundi 6, Garöabæ. Erla María Andrésdóttir, Tjarnargötu 40, Keflavík. Auðiu- H. Hagalín, Siifúrgötu 6, ísafirði.
50 ára
Jakobína Óskarsdóttir, Miklubraut 86, Reykjavík. Sæmundur Rögnvaldsson, Frostaskjóli 57, Reykjavík. Gylfi Þ. Gunnarsson, Sólbrekku, Grímsey.
40 ára
Anna Bjömsdóttir, Þingaseli 8, Reykjavík. Baldvin Reynisson, Vesturási 15, Reykjavík. Hanna Lóa Kristinsdóttir, Spóahólum 2, Reykjavík. Már Þorvarðarson, Álfatúni 9, Kópavogi. Magnús Már Kristinsson, Bakkasmára 9, Kópavogi. Kristín Þorvaldsdóttir, Birkibergi 38, Hafnaifirði. Ólafur Þór Jónsson, Hríshóli, Innri-Akranes- hreppi. Ómar Már Gunnarsson, Háarifi 49, Rifi. Ragnhildur L. Vilhjálmsdóttir, Sunnuvegi 14, Selfossi.