Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Nöfnin Árborg og SkagaQöröur farin aö vinna sér sess, m.a. á bréfsefnum:
„Skrifstofa Skaga-
fjarðar, góðan dag! “
- ákveðið með nöfn fimm sveitarfélaga eftir helgi, segir félagsmálaráðuneytið
„Ráðhús Árborgar, góðan dag-
inn“ og „Skrifstofa Skagafjarðar"
var svarað í símann þegar DV
hringdi í gær í skrifstofur tveggja af
fimm sveitarfélögum sem félags-
málaráðuneytið mun ákveða um
nöfn á eftir helgina - umdeild nöfn
sem íbúarnir eru sáttir viö en bara
„nokkrir karlar" í Reykjavík eru
ósammála, eins og bæjarritari í Fló-
anum orðaði það. Þessi nöfn eru
þegar farin að festast við sveitarfé-
lögin, meira að segja er á bréfsefni
sveitarfélagsins í Flóanum, Árborg.
„Við bíðum róleg eftir niðurstöð-
unni. Við erum þverhausar alveg
eins og þeir í ömefnanefndinni.
Þess vegna fóram við fram á það við
Pál Pétursson félagsmálaráðherra
að hann staðfesti nafnið Skagafjörð-
ur á sveitarfélögin okkar ellefu sem
voru sameinuð," sagði Snorri Bjöm
Sigurðsson, bæjarstjóri sameinaðs
sveitarfélags i Skagafirði.
Tökum ekki annað en
Skagafjörö í mál
„Ég held að lang-, lang-, langflest-
ir íbúamir hér liti svo á
að ekkert annað en
Skagafjörður komi til
greina. Það er ósköp ein-
falt. Ég leyfi mér að full-
yrða þetta. Það verður
hins vegar ansans vanda-
mál ef ráðherrann tekur
ákvörðun um annað. En
við hugsum ekki út í það.
Við tökum ekki annað í
mál. Ég bara trúi ekki
öðra en þetta gangi upp,“
sagði Snorri Bjöm.
„Nafnið Árborg hefur fest við
sveitarfélagið," sagði Helgi Helga-
son bæjarritari í samtali við DV um
nafn fyrir sameinuð sveitarfélög í
Flóanum. „Hins vegar höldum við
enn póstnúmerinu 800 fyrir Selfoss,
815 fyrir Eyrarbakka og svo fram-
vegis. Aðspurður í hvaða nafni tal-
að sé um sveitarfélagið þegar farið
er út í kaupfélag sagði Helgi:
„Þaö er hiklaust Árborg. Það eru
allir sammála um þetta nema ein-
hverjir örfáir karlar í Reykjavík. En
boltinn er nú hjá ráðuneytinu um
Árborgamafhið sem ör-
nefnanefnd samþykkti
ekki. Við teljum að Ár-
borg standist fyllilega,"
sagði Helgi.
Fyrst menn eru
pfndir þá ...
Á „sameinuðum" Eski-
firði, Neskaupstað og
Reyðarfirði gegnir öðra
máli en í Árborg og
Skagafirði. Þar hefur
Austiu-ríkisnafhinu verið
rutt út af borðinu. Bæjarstjómin
hefur ákveðið að láta gera skoðana-
könnun i byrjun desember um nöfn-
in Miðfirðir eða Fjarðabyggð - nöfn
sem örnefnanefnd lagði blessun
sína yfir.
„Sumir eru hundóánægðir með
bæði nöfnin en ég átta mig ekki á
hvemig þetta skiptist hjá íbúum
bæjarfélagsins," sagði Guðmundur
Bjarnason bæjarstjóri. En eitthvað
verður stjómsýslan okkar að heita
fyrst það er búið að þrengja þetta
svona. Menn era pindir. Ef þeir
ætla í skoðanakönnun verður bara
að velja annað nafiiið. Menn bara
tóku þessa ákvörðun í bæjarstjóm-
inni að við nennum ekki að þvælast
með þetta lengur. Líka vegna þess
að það er enginn afgerandi áhugi
hér á einhverju tilteknu nafni. Það
er auðvitað okkar höfuðverkur
gagnstætt því sem er til dæmis í
Skagafirði og Hornafirði," sagöi
bæjarstjóri.
Ákvörðun eftir helgi
Sesselja Ámadóttir, lögfræðingur
í félagsmálaráðuneytinu, sagði við
DV að ákvörðun yrði tekin um nöfn
á sveitarfélögin „fljótlega eftir
helgi“. Auk framangreindra sveitar-
félaga hafa sameinuð sveitarfélög í
Vestur-Húnavatnssýslu óskað eftir
að fá staðfest nafnið Húnaþing. í
sameinuðum sveitarfélögum í Borg-
arfirði hefur verið óskað eftir stað-
festingu á nafnið Borgarfjörður og á
Hornafirði og nágrannasveitarfélög-
um vilja menn fá nafhið Homafjörð-
ur á nýtt og sameinað sveitarfélag.
-Ótt
Snorri Björn Sigurðs-
son bæjarstjóri.
Róleg helgi:
Margir að
spóka sig
Lögreglan í Reykjavík segir að
helgin hafi verið mjög róleg enda
var fátt í miðbænum bæði aðfara-
nótt laugardags og sunnudags.
Seinna kvöldið var talið að aðeins
um 500 manns hefðu verið í bænum.
í gær var víðast hvar margt um
manninn í verslunarkjömum, s.s.
Kringlunni, Holtagörðum og í Skeif-
unni, og fúllt út úr dyrum í Jólahöll-
inni í LaugardalshöÚ.
Um helgina vora 12 teknir fyrir
ölvun við akstur. Tvær líkamsárás-
ir vora framdar og í öðra tilfellinu
var fómarlambið rænt. Sex innbrot
vora framin og 6 þjófnaðir og 8 slys
urðu þar sem líkamstjón varð. -Ótt
'
Gríðarleg aösókn var aö Jólahöllinni, jólasýningu verslana og fyrirtækja í Laugardalshöll um helgina. I gær mynd
uöust biöraöir sem náöu aö íþróttamiöstöðinni þegar mest var. DV-mynd S
Toppurinn í húsgögnum í dag
Módei Mílanó
Tilboð
3+1+1
179.000,- stgr.
Ekta leðursófasett
Color it, óendan-
legir möguleikar á upp-
röðun hillusamstæða.
1 fj íl'"
^ Jsr 1 & ■ ■■■-.: i
- i- • .
0
TtLBOÐ
148.600,- stgr.
borðst. borð, 6 stólar,
skenkur og skápur í
kirsuberjavið.
Nýkomin sending af þessum
vinsælu sófasettum á sama góða verðinu, t.d.:
3+2+1 198.000,- stgr.
2+H+2 169.000,-stgr.
2+H+3 189.000,-stgr.
Litir: koníaksbrúnt,
vínrautt, dökk-
grænt og svart.
Mó'del Florens, ekta leðursófasett í koníaksbrúnu,
vínrauðu, grænu og svörtu.
T1LBOD
3+1+1
169.000 stgr.
3+2+1 189.000 stgr.
2+H+2 159.000 stgr.
2+H+3 179.000 stgr.
Mode! 1517, sófasett og
í mjög sterku pólyester
áklæði, margir litir.
3+1+1 Verð 159.000,-stgr.
Bæjarhrauni 12 Hfj. Sími 565 1234 2+H+2 Verð 149-6oo,- stgr.^
Opiö virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 10-16
Sunnudaga kl. 13-16 til jóla. mmmmmmm—'xmmammsmacammmm
• •
Rauká dyr
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra var á fundi í flokki sínum í
Valhöll í síðustu viku. Þar voru
rædd fjarskiptamál á vegum undir-
búningsnefndar fyrir landsfund.
Fimm sérfróðir
menn voru frum-
mælendur og Jón
Magnússon hæsta-
réttarlögmaður sið-
astur á mælenda-
skrá. Jón ræddi
um Landssímann
sem „síbrotafyrir-
tækið“ gagnvart
samkeppnislög-
um. Halldór ráðherra greip fram í
fyrir lögmanninum og sagði að það
væri gott að hafa einhvem í saln-
um sem vissi bókstaflega alla skap-
aða hluti. Jón svaraði af bragði og
sagði: „Já, ráðherra, það tóku allir
eftir því þegar þú gekkst í salinn.“
Halldór óskaði eftir að fá oröið eft-
ir ræðu Jóns. Fundarstjórinn,
Tómas Ingi Olrich, sagði hins veg-
ar að ekki hefði verið gert ráð fyrir
Qeiri ræðum. Ráðherra varð þá
reiður og rauk á dyr...
I löns
Það er ekki langt síðan að nokkr-
ir starfsmenn Stöövar 2 tóku sig
skyndilega til, sögðu upp og fóru að
vinna fyrir keppinautinn, Stöð 3.
Stöðin sú gekk reyndar ekki lengi
og áður en varði
hafði íslenska út-
varpsfélagið með
Jón Ólafsson í
broddi fylkingar
kokgleypt keppi-
nautinn. Var við
því búist að brott-
hlaupsmennimir
ættu ekki upp á
pallborðið hjá
Jóni eftir þessar uppákomur og
yrðu hafðir úti í kuldanum á hans
bæ. Hafi svo verið virðist þýða
komin í sambandið því á dögunum
sást hvar nefndur Jón og Magnús
Kristjánsson, oddviti brotthlaup-
inna, lönsuöu saman á veitingastað
í borginni...
Ný atvinnutækifæri
Frægt er að hvalurinn Keikó
leggur einkum stund á ástir með
tilfallandi dekkjum sem gagnvart
honum eru álíka kynþokkafull og
glæstar hvalkýr af kvísl háhym-
inga. í Vestmanna-
eyjum hafa gárung-
amir það í flimt-
ingum að þetta
framferði hins ást-
þyrsta hvals hafi
þegar skapað ný
atvinnutækifæri
í Eyjum. í kjölfar
komu hans
stofnaði nefnilega
Óskar Óskarsson í Áhaldaleig-
unni nýtt hjólbarðaverkstæði. Fé-
lagar Guðjóns Hjörleifssonar bæj-
arstjóra segja að nú bíði hans það
verk að fá styrk úr sjóðum ESB til
að þróa sérstök Keikó-dekk...
Þorskgáfur
Bjami Stefán Konráðsson frá
Frostastöðum hefur safnað
skemmtiljóðum í lítið kver sem ber
nafhið Skagfirsk skemmtiljóð H.
Ekki skal fjölyrt um gæði kveð-
skaparins á þessum
vettvangi en nóg er
af kveðskapnum í
kverinu. Þar sem
kvótamál eru ei-
lifðarmál er ekki
úr vegi að birta
hér eina vísu eft-
ir Sigmund Jón-
son, Vestara-
Hóli. Hún fjallar um þann gula
og Þorstein Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra:
Öllum saman um það ber,
enginn fiskur vitur er,
þó mun hata þorskur hver,
að Þorsteinn ráði yfir sér.
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom (®£f. is