Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Blaðsíða 10
10 Fréttir MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998 TiLBOÐ icu öreyLGJUPOPP tTlbqð 139/ i=fo. APPOLOi BLaniDaoup LaKKnspoKi TiLBOÐ 95." áo'ir 130.- TiLBOÐ 55.~ ?F«T 0U.~ SKPUPUP TiLBOÐ 109.- á"L'r ',oÚr BONUSVIDEO DV i Hjónanámskeið vinsæl: Mikill þrýstingur á íslenskum pörum - á annað þúsund manns hefur mætt á námskeiðin Hjónanámskeið hjá Hafnarfjarðar- kirkju hafa gefist það vel að bókað er í þau langt fram í timann. Námskeið- in nefnast „Jákvæð námskeið um hjónaband og sambúð“ og eru bæði fyrir hjón og pör í sambúð. „Þetta er bæði fyrir fólk sem á við vandamál að etja og þá sem viija styrkja samband- ið,“ segir Þórhallur Heimisson, prest- ur í Hafharfjarðarkirkju, en nám- skeiðin eru haldin í safnaðarheimili kirkjunnar. Þangað kemur fólk afls staðar af landinu. Námskeiðin hafa lika verið haldin víða um land. 1250 manns hafa mætt á þau. Hvert nám- skeið stendur yfir í eitt kvöld og kom- ast tólf pör að í hvert sinn. „Á námskeiðunum er farið í hvað hjónabandið og sambúðin er, hvaða hættur geta verið í sambúðinni og hvaða úrlausnir eru fyrir fólk sem á við ýmis vandamál að etja. Þetta eru ekki fyrirlestrar né hópvinna heldur er hvert par látið vinna saman. Þetta er sjálfstyrkingarnámskeið þar sem hvert par skoöar sambúðina út frá sínum aðstæðum." Auglýsing samkvæmt 53. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 Þann 1. janúar 1999 öðlast lög nr. 44/1998 um húsnæðismál gildi. Við gildistöku þeirra skulu Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna lagðir niður og sameinaðir. Frá sama tíma tekur íbúðalánasjóður við hlutverki, réttindum, eignum, skuldum og skuldbindingum Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna. Réttindi og undanþágur sem Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna njóta samkvæmt gildandi lögum skulu taka til íbúðalánasjóðs. Greiðslu- og vistunarstaður skuldaskjala sem eru í eigu eða til innheimtu hjá Byggingarsjóði ríkisins, húsbréfadeild Húsnæðisstofnunnar ríkisins, eða Byggingarsjóði verkamanna verður hjá íbúðalánasjóði þegar hann tekur til starfa. íbúðalánasjóður tekur við öllum réttindum og öllum skyldum tengdum skuldaskjölum í eigu þeirra eða aðild að dómsmálum sem þeir reka eða rekin eru gegn þeim. Ákvæði í veðskuldabréfum sem gefin hafa verið út vegna lána úr Byggingarsjóði ríkisins og Byggingarsjóði verkamanna skulu að öðru leyti halda gildi sínu. Reykjavík 19. nóvember 1998 HUSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS Þórhallur Heimisson prestur segir að of mikill þrýstingur sé á íslensk- um pörum. DV-mynd E.Ó. Þórhallur segir að pör geti haft samband að mánuði liðnum ef þeim finnst þau þurfa á einkaviðtölum að halda. „Við segjum fólki að þótt því finnist það þurfa á frekari hjálp að halda þá á það samt ekki að láta í sér heyra fyrr en eftir mánuð vegna þess að það á fyrst að prófa þessar hug- myndir sem við höfum verið að velta upp.“ Um 20% hefur haft samband aft- ur að einum mánuði liðnum og óskað | eftir einkaviðtali. Þórhallur segir að við íslendingar l ætlum að gera allt svo snemma þegar , hann er spurður hvort íslenskt nú- tímaþjóðfélag sé að gera út af við hjónaböndin. „Við ætlum að gifta okkur, eignast böm, bil og íbúð. Það er allt of mikill þrýstingur á okkur en ég veit ekki hvort hann má tengja við þjóðfélagið eða okkur sjálf. Það er til dæmis ekki þessi sami þrýstingur á ungu fólki annars staðar á Norður- löndunum." -SJ | Lindarmálið: Ríkislögregl- an kannar gögnin Lindarmálið svokallaða er enn í 1 rannsókn hjá ríkislögreglustjóra. I Landsbanki íslands, eigandi Lindar undir lokin, óskaði eftir rannsókn- inni í maílok. Upphaflega var mál- inu vísað til ríkissaksóknara en þaðan til ríkislögreglustjóra. Viða- mikilla gagna var aflað vegna máls- ins og eru þau nú i rannsókn hjá ríkislögreglustjóra. Jón Snorrason hjá ríkislögreglu- . stjóra vinnur að rannsókn málsins ásamt nokkrum öðrum, ekki síst ( endurskoðendum og öðrum tal- | naglöggum mönnum. Jón sagði í gær að rannsóknin væri uppi á sínu borði, verið væri að kanna gögn sem aflað hefur verið og kunna að varpa ljósi á málið. Hann kvaðst ekki geta sagt um hvenær rannsókn lýkur. -JBP ------------------------- IJrval — gott í hægindastólinn Leigan í þínu hverfi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.