Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Page 40
48
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
íþróttir unglinga
Hinn sigursæli trompfimleikahópur Gerplu P3. Efri röð frá vinstri: Hlíf Þorgeirsdóttir
dansþjálfari, Jónína Aðalsteinsdóttir, Guðfinna Halldórsdóttir, Hildur Grétarsdóttir,
Vaigerður Helga Einarsdóttir og Svetlana Makarycheva stökkþjálfari. Neðri röð frá
vinstri: Linda Hólmfríður Pétursdóttir, Ásdís Dagmar Þorsteinsdóttir, Inga Rán
Gunnarsdóttir og Hrefna Anna Þorkelsdóttir. Guðrún Sigurtður Pálsdóttir, íris Stella
Sverrisdóttir, Karen Jóhannsdóttir, Kristín Edda Óskarsdóttir og Þuríöur
Guðmundsdóttir voru allar fjarverandi á þessari æfingu hjá stelpunum.
10 til 13 ára
Gerpla P3 ...................23,52
(gólf 7,33 + dýna 8,23 + trampolín 7,96)
Gerpla P4 ...................21,96
(gólf 6,63 + dýna 7,73 + trampolín 7,60)
Ármann.......................21,22
(gólf 6,86 + dýna 7,06 + trampolín 7,30)
14 til 16 ára
Björk Trl ....................22,56
(gólf 7,10 + dýna 7,63 + trampolín 7,83)
Stjarnan, yngri ..............21,92
(gólf 6,80 + dýna 7,26 + trampolín 7,86)
KR-Grótta ....................19,33
(gólf 6,10 + dýna 6,30 + trampolín 6,93)
17 ára og eldri
Gerpla P2 ...................24,20
(gólf 8,10 + dýna 8,10 + trampolín 8,00)
Stjaman, eldri...............23,68
(gólf 8,45 + dýna 7,70 + trampolín 7,53)
Gerpla P5 ...................17,69
(gólf 5,40 + dýna 5,86 + trampolín 6,43)
Viktor Kristmannsson, fimleikastrákur úr Gerplu:
Sigursælasta sveitin úr trompfimleikum kveöur:
Sigurtromp
- stúlkurnar eru nú að ganga upp um flokk
Fyrsta trompfimleikamót
vetrarins var haldið í Ásgarði
Garðabæ helgina 14. til 15. nóv-
ember. Keppt var i þremur ald-
ursflokkum og mættu 13 lið til
leiks frá 7 félögum. í yngsta
aldursflokknum bar sveit
Gerplu P3 sigur úr býtum og
leit unglingasíðan inn á æf-
ingu. 13 stelpur eru í liðinu og
þar af keppa 12 í hvert skipti.
Þær eru nú orðnar of gamlar
fyrir 10 til 13 ára flokkinn og
munu því ganga upp í mið-
flokkinn um næstu áramót.
Trompfimleikar samanstanda
af æfingum á gólfi (dans), dýnu-
æfmgum og loks trampolín-
stökki. Hópurinn hefur æft
saman í 5 ár og á þeim tíma
hefur hann unnið ófáa sigrana
og nú er að sjá hvernig honum
gengur í nýjum flokki þegar á
líður veturinn.
e/a
co
Stelpurnar f Gerplu P3 sýna endaspor sitt í sigurdansinum á gólfinu en þær eru
unglingameistarar í sínum flokki og hafa verið afar sigursælar á undanförnum mótum.
Úrslit á fyrsta trompmóti vetrarins í fimleikum
VjaERPlJv
Ungur garpur
- varð tvöfaldur Norðurlandameistari
Viktor Kristmanns-
son, sem er hér að
ofan, vann gull á
Norðurlandamóti
12 til 16 ára bæði á
tvíslá (til hægri) og
á bogahesti hér fyr-
ir neðan. Hann lék
sér fyrir Ijósmynd-
ara á æfingu
DV-myndir ÓÓJ
mr
Hann er ekki hár í loftinu en engu að síður
sló hinn 14 ára stórefnilegi fimleikastrákur,
Viktor Kristmannsson úr Gerplu, í gegn á
Norðurlandamóti 12 til 16 ára í Árósum i
Danmörku á dögunum.
Dönsk dagblöð greindu frá afreki
Viktors en hann var að keppa við
tveimur árum eldri stráka. Hann end-
aði í fimmta sæti í fjölþrautinni sem
fram fór fyrri daginn en tryggði sér þá
sæti í 8 manna úrslitum á fjórum
áhöldum.
Bætti sig um 6 sæti
Daginn eftir vann hann siðan gull á
tveimur áhöldum. Hann kom verulega á
óvart á bogahestinum þegar hann fékk frá-
bæra einkunn, 8,875, og hækkaði sig um 6
sæti og 0,875 frá deginum áður. Hann vann
einnig í sinni uppáhalds- og bestu grein,
tvíslánni og lenti svo í 4. sæti í hringjum og
i 7. sæti á svifrá. Þess má geta að þeir fjórir
sem voru fyrir ofan Viktor í fjölþrautinni voru
allir frá Svíþjóð og allir 16 ára. Viktor er því
sá eini á topp 5 sem er gjaldgengur eftir 2 ár
þegar mótið fer fram næst.
Var alltaf að klifra
Viktor hefur æft fimleika allt frá 5 ára aldri
þegar móðir hans sendi
hann í fimleika til að fá útrás þar sem hann
var alltaf að klifra út um allt. Viktor er í Þing-
holtsskóla og var reyndar í miðjum prófum
þegar unglingasíðan heimsótti hann, jafnframt
því að vera að undirbúa sig fyrir Norður-Evr-
ópumót sem fram fór um helgina og fjahað
verður um á unglingasíðunni á morgun. Hann
æfir alla daga nema sunnudaga. Viktor segist
hafa grætt mikið á komu Rúnars Alexanders-
sonar í Gerplu fyrir 4 árum en einnig nýttist
það í þessari keppni að hann fékk mikla
keppnisreynslu á Evrópumeistaramóti ung-
linga ytra í vor.
Efni í mótun
Viktor er vissulega efni í toppfimleikamann
en hann veit eins og allir sem fimleika stimda
að að baki góðum árangri liggur mikil vinna
og miklar æfingar. Haldi hann rétt á spöðun-
um er aldrei að vita nema að Rúnar fái keppni
eftir skamman tíma en það er örugglega komu
Rúnars að þakka að fjölgun stráka í greininni
er orðin raunin. Það er þó gaman að sjá að
strákarnir eru famir að láta að sér kveða í
fimleikunum sem hafa jafnan þótt mikil
kvennaíþrótt. Heimir Guðmundsson er þjálf-
ari Viktors og fór hann út ásamt fóður Viktors
á Norðurlandamótið þar sem Viktor var eini
keppandinn frá íslandi.
ÓÓJ
Dani
Fjo!þr°utin
Gó\f*ön6^
i „„oabesW1
»««
[ Bogr
(5.sce£í)
,900 (Vf.)
’ 8,000 (7)
6,750 (5-)