Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1998, Síða 45
T>V MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1998
53
Eitt verkanna á Kjarvalsstööum.
Kjarvalsstaðir:
Þrjár
sýningar
Nú standa yfir þrjár sýningar á
Kjarvalsstöðum, það er sýning
nýrrar kynslóðar í norrænni
byggingarlist, sýning á verkum
færeyskra listamanna og sýning
sem fléttar saman tvær listgrein-
ar, myndlist og tónlist. Sýningin
Northem Facto - ný kynslóð í
norrænni byggingarlist er sýning
sem hingað berst frá Finnlandi.
Hún var framlag Norðurlandanna
á arkitektúrtvíæringnum í Fen-
eyjum 1996. Fyrir íslcmds hönd
tók byggingarlistardeild Lista-
safns Reykjavíkur á Kjarvalsstöð-
um þátt í undirbúningnum.
Sýningar
Á sýningunni Framsýning, eru
verk núlifandi færeyskra mynd-
listarmanna og er sýningin þáttur
í samstarfi listasafna í Reykjavík
og Akureyri annars vegar og í
Færeyjum hinsvegar. Þótt lista-
mennirnir sem eiga verk á sýn-
ingunni sé á ýmsum aldri þá eiga
þeir það sameiginlegt að fást við
náttúruna.
Þriðja sýningin er eins konar
stefnumót tveggja listgreina,
myndlist og tónlist þar sem lista-
mennimir Halldór Ásgeirsson og
Snorri Sigfús Birgisson vinna
saman, móta saman listgreinam-
ar sem þó eiga sér sjálfstætt líf
innan heildarinnar og utan.
I
næstu viku
- samkv. tölum frá VeBurstofu Islands -
Hitastíg
8c°
mán. þrl. mi6. fim. fös.
Vindhraði
12stig
10
8
6
ASA nnv
4SA NV NNV SSV
2 NA VSV c
mán. þri. miö. fim. fös.
Úrkoma -a 12 tima bin
18 mm
16
14
12
10
8
6
4
2
0 'mán. þri. miö. fim. fös.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans:
Hundur í óskilum
Mánudaginn 23. nóvember munu
þeir Eiríkur Stephensen og Hjörleif-
ur Hjartarson í dúettinum „Hundur
í óskilum" gera sér ferð norðan úr
landi til að skemmta gestum Lista-
klúbbs Leikhúskjallarans. Eiríkur
Stephensen leikur á hljóðfæri og
syngur og Hjörleifur Hjartarson
leikur einnig á hljóðfæri og syngur.
Skemmtanir
Tónlistarflutningur Hundsins er
ekki síður óvenjulegur en nafngift-
in. Mjög færir tónlistarmenn og
söngvarar leika sér með hið hefð-
bundna form og og beita margvís-
legmn hljóðfærum á óvenjulegan
hátt. Á ferðinni er vandaður tónlist-
arflutningur þar sem gleðin og leik-
urinn sitja í fyrirrúmi. Að sögn
þeirra Hjörleifs og Eiríks hefur
hljómsveitin Hundur í óskilum
gengið í gegnum miklar og erfiðar
nafnabreytingar á undanfornum
árum. Undir nafninu Börn hins
látna öölaðist hún fyrst vinsældir
og frægð á stór-Dalvíkursvæðinu en
síðan hefur hún gengið undir ýms-
Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson skemmta í Leikhúskjailaranum í
kvöld.
um nöfnum um lengri eða skemmri
tíma.
Hljómsveitin flytur allar tegundir
tónlistar og hefur að sögn gagn-
rýnenda aldrei verið smekklegri í
lagavali en einmitt nú.
Víðast hvöss
austanátt
í dag er gert ráð fyrir hvassri vert landið en slydda eða snjókoma
austanátt um mestallt landið. Rign- um landið norðanvert.
ing eða slydda verður um sunnan-
Veðrið kl. 12 á
hádegi í gær:
Akureyri
Akurnes
Bergsstaðir
Bolungarvík
Egilsstaóir
Kirkjubœjarkl.
Keflavíkurflv.
Raufarhöfn
Reykjavík
Stórhöfði
Bergen
Kaupmhöfn
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Dublin
Halifax
Frankfurt
Hamborg
Jan Mayen
London
Lúxemborg
Mallorca
Montreal
Nuuk
París
Róm
Vín
Winnipeg
léttskýjað -2
alskýjað 1
léttskýjað -3
skýjaó -4
-2
skýjaó 1
léttskýjað -2
skýjaó -2
léttskýjað -2
léttskýjaö 0
rigning 6
skýjað 0
heióskírt 17
léttskýjaó -2
alskýjaó 8
rign. á síó. kls. 8
skýjaó 2
heióskírt -3
mistur -5
snjókoma -4
skýjaö 5
heiöskírt -3
skýjaó 10
léttskýjað -2
skýjaö -7
heióskírt -1
skýjaö 9
skýjaö -2
heióskírt 6
Veðríð í dag
Svartklædda konan
í Tjamarbíói er þessa dagana
verið að sýna Svartklæddu kon-
una eftir Stephen Mallatratt.
Leikritið er byggt á hrollvekju
Susan Hill og er næsta sýning í
kvöld. Svartklædda konan segir
sögu Arthurs Kipps, aldraðs lög-
fræðings sem fengið hefur til liðs
við sig ungan leikara með það í
huga að koma frá sér og skýra fyr-
ir sínum nánustu angistarfúlla og
hrollkennda upplifun. Á sínum
yngri árum var hann sendur til
afskekkts sveitaþorps í þeim er-
indagjörðum að ganga frá erfða-
málum sérlundaðrar ekkju sem
nýlega hafði fallið frá. Dulmögn-
un staðarins og ógnandi andrúms-
loft, kynngimagnaðir reimleikar
ásamt viðhorfi bæjarbúa fá smátt
og smátt hárin til að rísa ...
Leikhús
Tveir leikarar eru í Svart-
klæddu konunni, Amar Jónsson
og Vilhjálmur Hjálmarsson. Leik-
stjóri er Guðjón Sigvaldason.
Hljóðmaður er Kjartan Kjartans-
son og mæðir mikið á honum í
leikritinu.
Arnar Jónsson og Vilhjálmur Hjálmars-
son eru einu leikararnir.
Heiða og Axel
eignast
Myndarlega telpan á mynd-
inni fæddist 26. maí síðastliðinn,
Barn dagsins
dottur
kl. 22.24. Við fæðingu var hún
3980 grömm að þyngd og mældist
54 sentímetra löng. Foreldrar
hennar em Heiða Snorradóttir
og Axel Thorsteinson.
Augnablikið þegar varnarmála-
ráðherrann er skotinn.
Snáksaugun
Snake Eyes, sem sýnd er íSam-
bíóunum gerist að mestu leyti
innan stórrar íþróttahallar. í aðal-
hlutverki er Nicolas Cage sem
leikur lögreglumanninn Rick
Santoro. Hann, eins og fjórtán
þúsund aðrir íbúar borgarinnar,
bregöur sér á hnefaleikakeppni
þar sem barist er um heimsmeist-
aratitilinn. Er hann í fylgd með
vini sínum, Kevin Dunne, sem er
háttsettur foringi í hemum og
vinnur náið með vamarmálaráð-
herra Bandaríkjanna. Þegar
Dunne skreppur frá
_______________{////////
Kvikmyndir
er ráðherra skotinn
og myrtur. Til þess aö enginn
sleppi út er íþróttahöllin nánast
einangruð meðan rannsókn stend-
ur yfir.
Auk Nicolas Cage leika í Snake
Eyes Gary Sinese, sem leikur
Dunne, John Heard, Carla Gugino
og Stan Shaw. Leikstjóri er einn
af stóm leikstjórunum í Banda-
ríkjunum, Brian De Palma.
Nýjar myndir í kvikmyndahusum:
Bíóhöllin: A Smile Like Yours
Bíóborgin: The Avengers
Háskólabíó:Maurar
Háskólabíó: Út úr sýn
Kringlubíó: Popp i Reykjavík
Laugarásbíó: Blade
Regnboginn: There's Something
about Mary
Stjörnubíó: Dansaðu við mig
4
Krossgátan
1 2 3 4 5 6 7
8 9
10 11 12
13 14
15 16 17
18 19 20 21
22 23
Lárétt: 1 tappagat, 6 blöskra, 8
hrósa, 9 krapa, 10 málms, 11 fræ, 13
auralaus, 15 sjóngler, 17 hvíldi, 18
áköfum, 21 venju, 22 hás, 23 hrúga.
Lóðrétt: 1 berja, 2 snáði, 3 ákefö-
inni, 4 heitis, 5 kyrtil, 6 belti, 7
deila, 13 svipur, 14 stjórna, 16 ílát, 19
öðlast, 20 skóli.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 lemstra, 8 álíka, 9 ár, 10
bíla, 11 ugg, 13 ásakar, 15 lakks, 17
ar, 18 sé, 20 linur, 22 flóra, 23 tá.
Lóðrétt: 1 lá, 2 Elísa, 3 mila, 4
skakkir, 5 tau, 6 rá, 7 argur, 10 báls,
12 graut, 14 ???, 16 kló, 19 él, 21 rá.
Gengið
Almennt gengi LÍ 20.11.1998 kl. 9.15
Einina Kaun Sala Tollgenni
Dollar 69,900 70,260 69,270
Pund 116,150 116,750 116,010
Kan. dollar 45,230 45,510 44,900
Dönsk kr. 10,8960 10,9540 11,0520
Norsk kr 9,3430 9,3950 9,3900
Sænsk kr. 8,6570 8,7050 8,8310
Fi. mark 13,6190 13,6990 13,8110
Fra. franki 12,3510 12,4210 12,5330
Belg. franki 2,0072 2,0192 2,0372
Sviss. franki 50,2900 50,5700 51,8100
Holl. gyllini 36,7200 36,9400 37,2600
Þýskt mark 41,4200 41,6400 42,0200
ít. iíra 0,041810 0,04207 0,042500
Aust. sch. 5,8840 5,9200 5,9760
Port. escudo 0,4036 0,4062 0,4100
Spá. peseti 0,4870 0,4900 0,4947
Jap. yen 0,582500 0,58600 0,590400
írskt pund 102,930 103,570 104,610
SDR 97,200000 97,79000 97,510000
ECU 81,5100 82,0000 82,7000
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270