Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Page 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
r
Sanna sig i Reykjavík
Unglingasíðan hitti þrjá hressa
krakka sem komnir voru til Hafnar-
fjarðar á mótið alla leið frá Akur-
eyri. Þeir voru fyrir sunnan til að
keppa á mótinu sem og einnig var
landsæfing á föstudeginum sem
þeim hafði verið boðið á. Þrátt fyrir
að það sé kostnaður og fyrirhöfn að
koma suður telja þeir það nauðsyn-
legt til að geta sannað sig fyrir
landsliðsþjálfurunum.
Krakkarnir eru á myndinni fyrir
neðan, frá vinstri: Margrét Eiríks-
dóttir, Ester Bjömsdóttir og Pétur
B. Árnason.
Verðlaunahafar í einliðaleik hnokka og tátna. Frá vinstri: Þorgerður
Jóhannsdóttir Keflavík, Snjólaug Jóhannsdóttir TBR, Bjarki Stefánsson TBR
og Arnar Ólafsson TBR.
Búnaðarbankamót í Badminton í Hafnarfirði
Verðlaunahafar í einliðaleik bæði hjá piltum og stúlkum.
svipmyndir frá mótinu sem fram fór á dögunum
Helgina 21. til 22. nóv-
ember fór fram Búnaðar-
bankamótið í badminton
eða hniti eins og það heit-
ir á íslensku. Mótið var á
vegum BH og dró að
fjölda þátttakenda frá
mörgum félögum. Þannig
komu keppendur frá Ak-
ureyri og Keflavík auk
þeirra af höfuðborgar-
svæðinu. Það var því mik-
ið líf og fjör í Kaplakrika
um þegar mótið fór fram.
Unglingasíðan kom þar
við seinni daginn og þá
voru úrslitaleikirnir í
fullum gangi.
Badminton telst til litlu
íþróttagreinanna á íslandi
en það ætti samt ekki að
hindra þá í að vekja mun
meiri athygli á því sem er
að gerast. Það var ætlunin
að hirta úrslitin frá þessu
móti er lauk fyrir rúmri
viku en þrátt fyrir loforð
hafa þau ekki borist og er
það að mörgu leyti leiðin-
legt fyrir þá sem þetta allt
snýst um, nefnilega
krakkana sjálfa. Er
vonandi að BH bæti sig
næst.
Hér að ofan eru
verðlaunahafar í
tvenndarleik pilta
og stúlkna. Frá
vinstri: Birgir
Björnsson og
Tinna Helgadóttir
(1. sæti) og Fann-
ey Jónsdóttir og
Baldur Gunnars-
son (2. sæti)
Atli Jóhannesson og Snjólaug
Jóhannsdóttir voru sigursæl og
mjög ánægð með árangur
þessa helgi.
■imjyi'o.
Þrjár stelpur sem komu frá Keflavík til að keppa á mótinu. Þær heita
Flóra Karitas Buenano, Heiða R. Guðmundsdóttir og Þorgerður
Jóhannsdóttir.
Sigurvegarar í tvenndarleik hnokka og hnátna:
Hér til hægri og alveg skælbrosandi eru sigurvegararnir í tvenndarleik
hnokka og hnátna, Atli Jóhannesson og Snjólaug Jóhannsdóttir. Þau koma
bæði úr TBR eða Tennis- og Badmintonfélagi Reykjavíkur. Snjólaug vann
allt sem var í boði á mótinu og Atli var í verðlaunasætum hnokka og voru
þau því mjög áberandi á mótinu og ánægð með sinn árangur.
Þau æfa ekki saman en hafa oft keppt saman og er því eina æfingin í
samspili á mótum. Bæði segjast þau koma frá miklum badmintoníjölskyldum
þar sem allir: pabbi, mamma, afi og systkini, eru á fullu með spaðann.