Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1998, Side 21
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1998
25
Stjörnubíó - Can't Hardly Wait
Get alveg beðið
★a Þessi unglingamynd sver sig i ætt við gleðimyndir
á borð við Grease að því leyti sem hún fjallar um út-
skriftarárgang menntaskóla, paranir og afparanir. Nema
í þetta sinn fylgjum við ekki hópnum eftir á einu ári
heldur hittum hann allan fyrir í sjálfu lokapartíinu. Þar
er helsta fréttin sú að aðalgæinn, fótboltahetjan, hafi
hætt með aðalpiunni, sjáifri balldrottningunni. Þessar
tvær persónur gefa strax tóninn um persónusköpunina
en þama er raðað upp öllum klisjunum sem gengið hafa
aftur og aftur í gegnum svona myndir. Utan um þessi tvö
er sex manna vinahópur (sbr. Grease), þrjár stelpur og
þrir strákar og þau mynda þrjú (gagnkynhneigð) pör.
Síðan höfum við ríku stelpuna sem heldur geimið,
nörda, gangsta töffara og gáfuðu stelpuna og bókmennta-
hneigða strákinn, sem enginn hefur nokkum tímann
tekiö eftir. Síðustu tvö eru aðalhetjur myndarinnar en
ekki aðalparið eins og í Grease og er sú nýbreytni reynd-
ar farin að þreytast líka.
En nú er best að hætta þessari neikvæðni og draga að-
eins fram það jákvæða. Þama var nefnilega á feröinni
mjög greinileg tilraun tú að vinna með
þetta menntaskólalokaballs-form, þvi
þessi markvissa kynning kimnuglegra
persóna var mjög meðvituð; líkt og
með unglingahrollvekjuna sem varð öll
póstmódernísk, hefur unglinga-partí-
myndin líka gerst nútímaleg og sjálfsvísandi (tO að und-
irstrika þetta er ein nýja hrollvekjuleikkonan hér í aðal-
hlutverki). Þannig eru týpumar allar mjög ýktar og
kynntar á ýktan hátt til sögunnar, með tilheyrandi ýkt-
um sögulokatextum (hann varð síðar...). En þessi sjáifs-
meðvitund gengur því miður ekki nógu langt og
klisjumar hlaðast æ hraöar upp eftir þvi sem líður á
myndina, temum úr Breakfast Club skaut óvænt upp og
allt skundaði þetta einhvern veginn niður á við.
Eins og aðrir jafnaldrar mínb- þá er ég alin upp við
þennan bandaríska unglinga-vörtúalveruleika og kom
aldrei til hugar að taka hann alvarlega,
leit á þetta sem hverja aðra vitleysu og
tilbúning. Mikil var undrun mín þegar
ég kynntist bandariskri smábæjarstúlku
sem sagði mér að svona gengi þetta nú
mikið til fyrir sig. Þetta hefur orðið til
þess að ég sé þessar myndir alltaf sem hálfgerðar traged-
iur.
Leikstjórar og handritshöfundar: Harry Elfont og
Deborah Kaplan. Kvikmyndataka: Uoyd Ahern.
Tónlist: David Kitay og Matthew Sweet. Aðalhlut-
verk: Ethan Embry, Charlie Korsmo, Lauren
Ambrose og Jennifer Love Hewitt.
Úlfhildur Dagsdóttir
Kvikmynda
GAGNRÝNI
Háskólabíó - Taxi:
Klessubflaleikur
iriri Luc Besson er frægastur
franskra kvikmyndagerðarmanna
nú og frægð hans sést best á því að
stanslaust hefur nafni hans veriö
haldið á lofti i auglýsingaherferð fyr-
ir Taxi. Þetta er að mörgu leyti skilj-
anlegt, Besson er handritshöfundur
og framleiðandi. Leikstjóri er aftur á
móti gamall félagi hans,
Gerard Pires, og er honum margt
til lista lagt. Hann fetar dyggilega í
spor Bessons hvað varðar hraöa en
vantar frumleika sem einkennir leik-
stjóm Bessons. Á móti kemur að
Pires virðist hafa mun meiri húmor
heldur en Besson og er Taxi best lýst
sem spennufarsa þar sem farið er út
fyrir allt raunsæi í atburðarásinni
en um leið tekst að halda uppi vissri
spennu sem aðallega felst i
hraðakstri um götur Parísar.
Aðalpersónan, Daniel, hefur i sex
ár beðið eftir því að fá leyfi til að
starfa sem leigubílstjóri. í millitíð-
inni hefur hann starfað sem pitsu-
sendiU og á öll hraðamet í þeirri
stétt. Daniel er haldinn ólæknandi
bUadellu og hefur nánast gert leigu-
bU sinn að kraftmiklum kappakst-
ursbU. í einu fyndnasta atriði mynd-
arinnar kemur hann taugastrekktmn
viðskipavini út á flugvöU á mettíma.
Hinn misheppnaði lögreglumaður
EmUien, sem sér aðeins eitt ráð tU
aö koma sér í mjúkinn hjá forkunn-
arfagurri lögreglukonu, það er að
hafa uppi á bankaræningjum sem
hreUa íbúa MarseUles, nær óvænt
tangarhaldi á Daniel og hyggur gott
tU glóðarinnar í eltingaleiknum við
bankaræningj ana.
Taxi er þrátt fyrir aUan bUaelt-
ingaleikinn og klessubílaatriðin, þar
sem fyrirmyndin er amerisk, mjög
svo evrópsk og á húmorinn, sem er
nokkuð sérstakur, stóran þátt í því.
Það er ekki oft sem tekst að ná upp
jafn skemmtUegri stemningu og ein-
kennir Taxi, sérstaklega fyrri hluta
myndarinnar, og þótt samtöl virki
stundum sem eintómur ruglingur þá
er Taxi skemmtUeg tUbreyting frá
Kvikmyn^da
GAGNRÝNI
amerísku hasarmyndaflórunni sem
viö þurfum að lifa við.
Leikstjóri: Gerard Pires. Handrit:
Luc Besson. Aðalleikarar: Samy
Nacéri, Frederic Diefenthal,
Marion Cotillard og Emma
Sjöberg.
Það borgar sig ekki
að reykja
Á undan Taxi er sýnd ný íslensk
stuttmynd, Á blindflugi eftir Gunnar
B. Guðmundsson. FjaUar myndin um
ungan og staurblankan mann sem
Hilmir Snær Guðnason leikur. Hann
getur ekki gert upp við sig hvort hann
eigi að hætta að reykja eða ekki. Þeg-
ar freistingin verður skynseminni yf-
irsterkari má segja að hann fari á
brún hengiUugs í orðsins fyUstu merk-
ingu. Á blindflugi er láUaus í fram-
sögn og ágæUega gerð tæknUega séð
en sagan er nokkuð fyrirsjáanleg, en
þótt endaatriðið sé samkvæmt bókinni
þá er það gott og grátbroslegt.
Hilmar Karlsson
Regnboginn - Smoke Signals
(Reykmerki):
Grónar götur
★Reykmerki er afurð skrýthmar skepnu; stefnu í banda-
riskri kvikmyndagerð sem virðist vera hvorki né. Að
nafninu tU flokkast hún undir „óháðar myndir"
(independents), það er myndir sem gerðar eru utan stóru
HoUywood-myndveranna og viðfangsefni hennar er hlut-
skipti indíána eða innfæddra Ameríkana eins og þeir
vUja réttUega láta kaUa sig. Sögur úr þeirra umhverfi eru
fáséðar í meginstraumsmyndum Bandaríkjamanna en
séu þær geröar þá er sjónarhornið yfirleitt hvíta manns-
ins sem annaðhvort viU þeim vel eða fær einhvers konar
innsýn í lif þeirra og iðrast gjarnan gjörða forfeðra sinna.
Dæmi um slíka kvikmyndagerð, sem í flestum tilfeUum
er afskaplega patróníserandi, er hin tUgerðarlega Dansar
við úlfa, afspymu vond kvikmynd sem stýrt var af manni
sem telst þokkalegur leikari en hefur því miður enga
kvikmyndalega sýn.
Hin „óháða" kvikmyndagerð Bandaríkjamanna hefur
tekið vafasama stefnu á síðari árum. Þökk sé velgengni
nokkmra mynda sem hlotið hafa verðlaun á Sundance-
hátíðinni (Reykmerki hlaut þar áhorfendaverðlaunin í
byrjun ársins), hefur hún breyst úr vettvangi tilrauna og
framsækni í umsóknareyðublað fyrir HoUywood. Höf-
undar myndanna halda sig enn að mestu í einhvers kon-
ar jaðarmenningu en pólitísk rétthugsun brenglar í aUtof
mörgum tilfeUum listrænar kröfur. Þessar myndir fara
fram á forgjöf, okkur á að líka við þær vegna þess að
hjartað slær á réttum stað (svipuð röksemdafærsla er
stundum notuð um íslenskar bíómyndir). Þannig hefur
tU dæmis verið gert nokkuð úr þeirri staðreynd að Reyk-
merki er fyrsta myndin sem gerð er af innfæddum Ám-
eríkönum og frá þeirra sjónarhóli. AUt
er það nú gott og blessað en ekki nóg.
Sagan fjaUar um tvo unga pUta sem
vitja um látinn foður annars þeirra.
Faðirinn hafði yfirgefið fjölskyldu sína
löngu áður og kann
sonurinn honum liUar
þakkir. Hinn á hins
vegar fóðurnum líf
sitt að launa og ber tU
hans hlýjan hug.
Dramað liggur í upp-
gjöri sonar og fóður,
tekst syninum að fyr-
irgefa foður sínum og
þannig lyfta af sér oki
haturs og sjálfsvor-
kunnar? Því miður
var mér hjartanlega
sama. Handritið er
stútfuUt af ódýrum
lausnum og gamal-
kunnum klisjum, leik-
urinn er undir meðal-
lagi og leikstjórinn
hefur ekkert merki-
legt fram að færa. Að
öUu jöfnu hefði maður búist við að sjá svona verk á ein-
hverri sjónvarpsstöðinni og ekki á besta tíma. TUgangur-
inn með myndum sem gerðar eru utan færibandanna í
draumafabrikkunni hlýtur að vera að bjóða upp á annars
konar sýn, aðrar leiðir í nálgim. Þær gegna hlutverki
brautryðjenda í menningunni. Hér skakklappast menn
upp grónar götur, engum tU gagns eða gamans. Það er
ekki nóg að vera mikið niðri fyrir. Það er heldur ekki
nóg að hafa góðan málstað. Menn verða að hafa vUja og
getu tU að segja vel frá. Engu slíku er tU að dreifa hér,
það er greinUega ekki aðeins á íslandi sem kvikmynda-
höfundar faUa of oft í þá gryfju að telja göfugan tUgang
helga iUa bruggað meðal.
Eini ljósi punkturinn var stutt hmkoma Elaine MUes
og Cynthiu Geary, sem léku MarUyn og SheUy i
Northern Exposure (Á norðurslóðum), einhverjum bestu
sjónvarpsþáttum sem Bandarikjamenn
hafa nokkru sinni framleitt. Návist
þeirra gerði mér kleift að hugsa um eitt-
hvað skemmtUegt meðan þessi meðal-
mennska stóð yfir.
Ásgrímur Sverrisson
Kvikmynda
GAGNRÝNI
íf ; ^J ÍjP J|j
í Bandaríkjunum
- absókn dagana 27. tll 29. nóvember. Tekjur í mllljónum dollara og heildartekjur
Tími teiknimyndanna
Þar sem þakkargjörðardagurinn var siðastliöinn fimmtudag í Bandaríkjun-
um voru nýju myndirnarfrumsýndar á fimmtudegi í staö föstudags. Sjötíu
prósent af öllum þeim sem fóru í bíó í Bandarikjunum þessa fjóra daga sáu
þær fimm myndir sem eru efstar á listanum og langflestir fóru aö sjá tölvu-
geröu teiknimyndina A Bug's Life sem kemur úr smiöju Disneys og viröist
þaö engin áhrif hafa haft á aösóknina að Antz haföi gert þaö gott í nokkr-
ar vikur en þær fjalia báöur um skordýr. A Bug's Life var ekki eina myndin
sem frumsýnd var sem ætluð er fyrir alla fjölskylduna. Babe: Pig in the City
er framhald hinnar vinsælu Babe þar sem söguhetjan er svín sem hefur
mikinn metnaö. Svíniö gjörtapaöi baráttunni fyrir skordýrunum og er þetta
önnur rándýra kvikmyndin í röö frá Universal sem víst þykir aö tap veröi á,
hin er Meet Joe Black, sem enn er í sæmilegri aösókn, en nær aldrei upp
í þær 100 milljónir dollara sem hún er talin hafa kostaö. Athyglisvert er
aö þær þrjár kvikmyndir sem mesta aösókn hafa aö jafnaöi þessa dagana,
A Bug's Life, The Rugrats: The Movie og Enemy of the State koma allar frá
Walt Disney. - HK
Tekjur Heildartekjur
l(-) A Bug's Life 33.258 46.111
2(1) The Rugrats Movie 21.010 57.851
3(2) Enemy of the State 18.114 49.311
4(3) The Waterboy 13.601 122.210
5 (-) Babe: Pig in the City 6.162 8.200
6(4) Meet Joe Black 5.786 35.769
7(5) 1 Still Know What You Did Last Summer 4.461 33.501
8 (-) Home Fries 3.784 5.313
9(13) Elizabeth 3.391 6.958
10(-) Ringmaster 3.344 5.002
11 (-) Very Bad Thing 3.245 4.657
12 (6) The Siege 2.498 36.203
13 (7) l'll Be Home for Christmas 1.678 9.427
14 (9) Pleasantville 1.204 36.720
15 (10) Celebrity 1.026 3.311
16 (12) American History X 0.989 4.001
17 (8) Antz 0.952 85.659
18 (17) Life Is Beautiful 0.871 5.248
19 (18) There's Something about Mary 0.659 172.343
20 (21) Everest 0.643 52.743
„sjúkrarúm
flffl
með nuddi‘
Gæðarúm
á góðu verði
á RB-rúmi
Ragnar Björnsson
Dalshrauni 6, Hafnarflrði • Súni 555 0397
o