Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 Fréttir Kvótadómur Hæstaréttar: Dómar mega ekki vekja upp drauga - segir Jón Steinar Gunnlaugsson og gagnrýnir harðlega kvótadóm Hæstaréttar „Það sem auðvitað er slæmt við dóminn er að hugtakanotkun og úr- lausnin í dóminum skuli ekki vera nægilega skýr til þess að við getum séð það greinilega hvað dómurinn er að fara. Hann er að nota hugtök öðruvísi en í lögunum sjálfum. Þetta kemur í ljós þegar dómurinn segir fullum fetum að það sem fjall- að sé um í 5. grein sé svokölluð veiðiheimild," segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmað- ur. Enn einu sinni gagnrýnir hann Hæstarétt íslands. Það gerði hann sem ungur lögmaður í gagnrýninni bók fyrir allmörgum árum. „Dómar eiga auðvitað að vera til þess fallnir að ljúka málum, skýra þau, í stað þess að vekja upp drauga. Mér finnst það annmarki á þessum dómi hversu óskýrt er tal- að. Lögfræðingastétt landsins er vegna þess að deila um það hvað felist í þessum dómi. Það er fyrst og fremst vegna þess að hann er alls ekki nógu skýr. Ég hika því ekki við að gagnrýna dóminn fyrir það,“ sagði Jón Steinar. Jón Steinar segir að vissulega gildi viss pólitískur ágreiningur um kvótakerfið. Eins og oft gerist í slík- um tilvikum séu ýmsir lögmenn aö túlka eftir pólitískum vilja sínum en þýðingarmikið sé að menn greini þarna á milli. Varlega verði að fara í að túlka fordæmisgildi dóma. Hvert mál hafl sín sérkenni. Jón Steinar segir að lögfræðilega sé munur á þeim atriðum sem fjall- að er um í 5. grein laganna og snerta almennt veiðileyfi í fiskveiði- lögsögunni og svo þeim réttindum sem menn öðlast til aflahlutdeildar og kvóta sem fjallað sé um í öðrum greinum laganna. „Það er ljóst að lögin sjáif greina hér skýrt á milli. En ég held að lög- fræðilega sé munur á þessu tvennu. Mín rök eru þau að í 5. grein er fjall- að um eins konar „aðgöngumiða" að veiðunum. Þar er mælt fyrir um það hverjir yfirhöfúð geti fengið réttindi til að stunda veiðar í fisk- veiðilögsögunni. Þau réttindi eru bundin við ákveðna skipaeign aftur í tímann eða eign skipa sem komið hafa í stað annarra sem hafa veriö úrelt. Ég held að það séu alveg gild sjónarmið fyrir því sem felst í dómi Hæstaréttar að segja að þessi háttur við að ákveða hverjir geta fengið þennan aðgöngumiða standist ekki. Þetta snertir almennt atvinnufrelsi á þessu sviði,“ sagði Jón Steinar. „En lítum aðeins á hitt atriðið, grundvallaratriði í fiskveiðistjóm- unarkerfinu, það er að segja að ákveða aflahlutdeild og kvóta. Þar gegnir í raun allt öðru máli. Þar háttar svo til að einhvern tíma þeg- ar þessu kerfi er komið á þá tók lög- gjafinn um það pólitíska ákvörðun að koma heimildunum til að veiða, kvótaheimildunum, í hendurnar á þeim mönnum sem þá höfðu stund- að veiðarnar. Löggjafinn taldi sig gera það með málefnalegum hætti þar sem gætt væri meðal jafnræðis milli allra þeirra sem nýtt hefðu þessi réttindi fram til þess tíma. Það var pólitísk ákvörðun að koma þess- um réttindum í hendumar á þess- um mönnum. Ég tel ekki að dóm- stólar geti hróflað við henni. Við getum deilt um það hvort löggjafinn hefði átt að gera þetta einhvem veg- inn öðmvísi en það er pólitískur ágreiningur," sagði Jón Steinar Gunnlaugsson. Jón Steinar segir að næsta spurn- ing sé hvað felist í dómi Hæstarétt- ar. „Ég held það sé ótvírætt að Hæstiréttur telji 5. greinina ekki standast og það finnst mér tæk nið- urstaða. Það er alveg ótvírætt að í dóminum felst ekki að úthlutun aflahlutdeildar og kvóta stangist á við stjórnarskrá. Það eina sem menn geta gert sér í hugarlund er það að vegna almennra orða í dóms- forsendunum felist einhver ráða- gerð um það að ef það mál verði bor- ið undir dóminn muni hann dæma það á svipuðum nótum og hann dæmdi þetta. Ég vil nú taka vara við að menn álykti þannig. Það er lögfræðilegur grundvallarmunur á þessum tvenns konar takmörkun- um til veiðanna," sagði Jón Steinar Gunnlaugsson. -JBP Sótt að Haraldi Ólafssyni Það fór ekki mikið fyr- ir þeirri frétt sem einna mestu skipti í gær. Hún var eindálkur á erlendri fréttasíðu og hvarf að kalla í kvótadeilum og kennitölufári, málum sem heltaka landsmenn þessa dagana. Þessi frétt er þó mannleg sem mest má verða en trauðla stórmannleg. Hún snýst nefnilega um það að Norðmenn, grannar okk- ar og frændur í austri, sækja hart að sínum kóngi, Haraldi Ólafs- syni. Kóngurinn norski er hinn besti drengur og hefur farið prúðmann- lega með vald sitt. Það virðist þó eitthvað fara í taugamar á nýríkum þegnum hans. Margir þeirra krefjast þess að hinn frómi kóngur segi af sér og rými konungshöllina fyrir kjömum for- seta. Þetta er þó ekki allt. Það spurðist nefnilega að kóngur hefði skotið fasana í nágrannaríkinu Svíþjóð, taminn fúgl að sagt var. Er nema von að menn slái sér á lær hérlendis og skilji lítt. Haraldur veiddi í jólamatinn fyrir sig og sína drottningu. Það hefur hingað til þótt manndómsbragur að því að sækja sjálfúr sína bráð. Skattgreiðendur þurfa þá ekki að greiða ofan í hann steikina. Ekki getur kóngur gert að því þótt fasaninn hafi ekki verið villtari en hann var. Það hefur lengi tíðkast hér á landi að sækja sér hænsnfugl í jólamatinn, rjúpu sem vart flýgur undan nema alveg sé komið að henni. Svipað er þetta meö fasanann. Hann forðar sér ekki fyrr en á síðustu stundu. Raunar flutti ágætur Austfirð- ingur inn nokkur fasanaegg í vor og hefur komið dulitlum fasanastofni á Héraði. Þegar stofninn verður nægilega stór á að sleppa fuglunum i aust- firskt skóglendi og leyfa mönnum að veiða. Eng- inn hefur amast við því enda era íslendingar ekki smámunasamir. íslendingar standa með Noregskonungi þótt bróðurpartur þjóðar hans geri það ekki. Þeir vOja hafa hann áfram í höllinni og afkomendur hans þegar fram líða stundir. Þá má sá góði maður skjóta hænsnfugl án þess að stórtíðindi þyki. Fram kom í fréttinni að eina vonin til þess að hugga kóng, eftir þennan atgang norsku þjóðar- innar, sé að senda honum jólakort. Vist væri gott ef íslendingar sýndu hug sinn í verki og sendu kóngi jólakveðju. Það munar ekki um kepp I slát- urtíðinni. Flest íslensk heimili senda þetta 20-30 jólakort og þá munar litlu þótt eitt til viðbótar sé stílað á Harald kóng í norsku höllinni. Dagfari ætlar að minnsta kosti að senda þeim konungs- hjónum kort og óska þeim gleðilegra jóla, árs og friðar. í kortinu verður hlý kveðja, svolítill stuðningur vegna hænsnfúglsins og tillaga um heimsókn í austfirskan skóg til fasanaveiða. Kannski Haraldur sendi þá á móti kveðju um eða eftir áramótin, segi hvernig fasaninn smakk- aðist og hvemig sósan lukkaðist hjá Sonju. Dagfari Fór stolni vél- sleðinn suður? Dy Akuœyri: Rannsóknarlögreglan á Akureyri leitar að vélsleða og yfirbyggðri kerru sem sleðinn var í en hvoru tveggja var stohð við fyrirtækið Baugsbrot viö Frostagötu á Akur- eyri á fostudagskvöld. Sleðinn er af gerðinni Indy 650 RXL, árgerð 1991, blár að lit með skráningamúmer SM-029. Kerran sem er fyrir einn sleða er óskráð, yf- irbygging hennar er úr svörtu áli en grindin nýsprautuð grá og klæðning á grind úr brúnum krossviði. Rannsóknarlögreglan á Akureyri hefúr heimildir fyrir því að bíll með svipaða kerru hafi verið á ferðinni sunnan við Borgames snemma á laugardag og gæti verið um stolnu kerruna að ræða. Rannsóknarlög- reglan biður því þá sem gætu gefið einhveijar upplýsingar sem að gagni gætu komið við að upplýsa málið um að hafa samband við sig. -gk Sænskt leður- fyrirtæki í Skagafjörð? DV, Akureyri: „Ef af þessu verður þá verður keypt fullkomin verksmiðja og stofnað hlutafelag um reksturinn. Málið er hins vegar ekki komið lengra en það að hlutafélagið hefur ekki verið stoftiað, en það skýrist á næstu dögum hvort af því verður,“ segir Brynjar Pálsson í atvinnu- málanefnd Skagafjarðar, um það hvort sænskt fyrirtæki sem ffarn- leiðir m.a. leðurhulstur utan um farsíma verður keypt frá Svíþjóð á næsúmni. Brynjar segir að um sé að ræða fjölskyldufyrirtæki og ef af kaupun- um yrði myndi aðaleigandi þess væntanlega starfa með nýjtun eig- endum hér á landi í 2-3 ár meðan tökum væri náð á framleiðslunni. Skagftrðingar hafa aðeins átt við- skipti við þetta sænska fyrirtæki þvi Sjávarleður á Sauðárkróki hef- ur selt fyrirtækinu sútað fiskroð sem notað hefúr verið i símahulst- ur. Taliö er að fyrirtækið geti veitt 8-14 manns atvinnu og kæmi það sér vel fyrir Skagfirðinga að fá slíkt fyrirtæki til sín. Brynjar Pálsson. segir hins vegar að of snemmt sé að segja fyrir um hvort af því verði, at- vinnumálanefndin vinni að undir- búningi málsins með öðrum aðilum en væntanlega skýrist það á næst- unni hvort málið gengur upp. -gk Starfsdagur í Laufási DVAkureyn: Hinn árlegi starfsdagur á að- ventu í Laufási í Eyjafirði verður nk. sunnudag og hefst kl. 13 með helgistund í kirkjunni. Að henni lokinni hefst dagskrá í gamla bænum þar sem fram fer jólaundirbúningur eins og tíðkaðist hér á landi fyrir 100 árum. í bað- stofu verður fólk við iðju sína, s.s. kertagerð og tóvinnu, og þar verður skorið laufabrauð. í eldhúsi verður laufabrauðið steikt og á hlóðum sýður hangikjöt og gefst gestam tækifæri til að bragða á því. í stof- unni verður setið við að útbúa jóla- skraut. Nemendur grunnskólans á Grenivik selja kakó og piparkökur og þá er von á jólasveinum sem munu stjóma hringdansi kringum jólatré sem verður fyrir framan gamla bæinn. Aögangseyrir er 200 krónur fyrir eldri en 12 ára. -gk Banaslysið í Eyjafirði DV, Akureyri: Maðurinn sem lést í bifreiðar- slysi á Moldhaugnahálsi í Eyja- firði á þriðjudagsmorgun hét Ás- geir Ásgrímsson. Ásgeir var 44 ára, búsettur á Akureyri. Hann lætur eftir sig þrjú börn. -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.