Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 7 Fréttir Rlkisstjórnin vill lagabreytingu vegna kvótadóms Hæstaréttar: Alþingi ræður ferðinni - forsætisráðherra segir ekki ástæðu til að hrófla við 1. greininni um sameign þjóðarinnar „Það er ljóst að við þurfum að breyta lögunum til samræmis við dóm Hæstaréttar," sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra eftir ríkisstjórnarfund í gær þar sem fjallaö var um kvótadóm Hæstarétt- ar þar sem einróma úrskurður var sá að sjávarútvegsráðuneytinu hefði verið óheimilt að neita Valdi- mari Jóhannessyni blaðamanni um kvóta á grundvelli 5. greinar laga um stjórn fiskveiða. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að af- greiðsla ráðuneytisins stríddi gegn stjórnarskrá. Málið allt hefur vald- ið miklu íjaðrafoki og símbréf með kvótaumsóknum streyma inn í sjávarútvegsráðuneytið. Sérfræð- inga greinir á um áhrif dómsins þar sem sumir telja létt verk að breyta lögum til samræmis- við stjórnar- skrá á meðan aðrir telja kvótalögin í heild sinni vera í uppnámi. Þor- steinn vildi engu spá um það hvenær ný lög verði samþykkt vegna málsins. „Það er auðvitað æskilegt að ljúka málinu sem allra fyrst en þingið hefur það auðvitað í hendi sér hvað það tekur sér langan tíma í málið,“ sagði Þorsteinn. Davíð Oddsson forsætisráðherra tók í sama streng og Þorsteinn. Hann segir nauðsynlegt að laga lög- in að niðurstöðu dómsins. Þegar DV spurði hann hvort ástæða væri til að breyta 1. grein laga um stjóm fiskveiða þar sem kveðið er á um að þjóðin eigi fískistofnana, svaraði hann: „Hæstiréttur segir hvergi að Davíð Oddsson hefur legið undir feld undanfarna daga til að leita leiða til að fella kvótalögin að stjórnarskránni. Tillögur ríkisstjórnarinnar fóru til þingflokka stjórnarflokkanna í gær. Hér svarar Davíð spurningum fréttamanna. DV-mynd ÞÖK 1. greinin brjóti í bága við stjómar- skrána," sagði Davíð. Hann segir að ríkisstjórnin hafi fjallað um málið með færastu sér- ffæðingum þjóðarinnar á sviði lög: fræði og einhugur hafi verið um til- lögur. „Það hvar hvorki lögfræðilegur ágreiningur meðal sérfræðinganna eða okkar. Við vinnum að því að laga lögin að dómi Hæstaréttar þannig að þau standist," segir Dav- íð. Hann vOdi engu spá um það hvort skamman tíma tæki að af- greiða lögin frá Alþingi. Ekki sé endilega nauðsynlegt að afgreiða málið fyrir jól. „Það væri betra en er ekki nauð- synlegt," segir Davíð. -rt < -1 Westpoint Stevens I Rúmteppi/sett MARTEX Lök/1akasett X Dýnuhl ífar'”” (oddarI Perfect FitI Yfirdýnur Viðskiptaverðlaunin 1998: Maður og frumkvoðull ars- ins útnefndir á þriðjudag Viðskiptaverðlaunin 1998 verða afhent við hátíðlega athöfn á Grand Hotel í Reykjavík þriðjudaginn 15. desember. Þetta verður í þriðja sinn sem Viðskiptaverðlaunin verða veitt. DV, Stöð 2 og Viðskiptablaðið standa sameiginlega að verðlaunun- um og skiptast þau í tvennt: Ann- arsvegar er um að ræða verðlaunin Maður ársins í íslensku viðskipta- lífi. Hins vegar er veitt viðurkenn- ingin Frumkvöðull ársins í íslensku viðskiptalífi. Viðskiptaverðlaunin í fyrra féllu Finnboga Jónssyni framkvæmda- stjóra Síldarvinnslunnar á Nes- kaupstað í skaut, en hann var út- nefndur maður ársins í íslensku viðskiptalífi fyrir trausta og farsæla stjóm 40 ára gamals sjávarútvegs- fyrirtækis sem undir hans stjórn hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt og verið laust við hvers kyns uppá- komur í rekstri. „Við höfum sjálf- sagt verið heppnir í ákvörðunum og hitt á rétta hluti á hverjum tíma,“ sagði Finnbogi í samtali við DV þeg- ar hann tók við verðlaununum. Frumkvöðull ársins var Skúli Þor- valdsson þáverandi hótelstjóri Hót- Maður ársins í íslensku viðskiptalífi 1997, Finnbogi Jónsson, og frumkvöðull ársins 1997, Skúli Þorvaldsson, við afhendingu viðskiptaverðlaunanna 1997. el Holts. Skúli hlaut viðurkenning- una fyrir brautryðjendastarf og sókn á erlendan markað með ís- lenskt vegamesti, en hann leiddi hóp íslenskra fjárfesta sem keyptu eina stærstu skyndibitakeðju í Bandaríkjunum sem sérhæfð er í fiskréttum. „Mér finnst ég ekkert Santas lök X Santas 100% bómúllarlök fyrir þykkar dýnur, allt að 40 cm. djúpar. Allar amerískar stcerðir, einnig Full XL (1.35x2m.) og Tlvin XL (97x2m.) ( ) ; \ Unn. - Jos. O'hltt V lMO I.an. 10-17 • Stm. I.M7 hafa afrekað, heldur einungis byrj- að á verkefni sem ekki sér fyrir endann á,“ sagði Skúli í samtali við DV í tilefni af verðlaununum. Viðskiptaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1996. Þá hlutu hjónin Þóra Guðmundsdóttir og Arngrímur Jó- hannsson hjá flugfélaginu Atlanta verðlaunin sem menn ársins í ís- lensku viðskiptalífi. Verðlaunin hlutu þau fyrir þann árangur sem þau höfðu náð með flugfélag sitt sem þau stofnuðu við eldhúsborðið heima hjá sér áratug fyrr. „Hefði einhver sagt okkur að við ættum eftir að reka 14 flugvélar með nokkrum hundruðum starfsmanna hefðum við vísað honum á dyr og talið hann veikan á geði,“ sögðu þau hjón um velgengni sína í sam- tali við DV i tilefni af verðlaunun- um. Frumkvöðull ársins 1996 var dr. Kári Stefánsson forstjóri ís- lenskrar erfðagreiningar*sem þá var nýtekin til starfa. Kári sagði að það kæmi sér spánskt fyrir sjónir úr Fílabeinsturni háskólamannsins að hljóta viðurkenningu sem frum- kvöðull í viðskiptalífl, en hafa á öðrum þræði gaman að því. -SÁ Crosscill H a n d k 1 æ ð i Sturtuhengi Rug Barn11 Værðarvoðir 100 % bómull -r> i j MARTEX Þykk baðhandklæði margir litir 4.465 kr. Stgr. Thermoflex hei1sukoddar œrm Mörkinni 4 • 108 Reykjavík Sími: 533 3500 • Fax: 533 3510 • www.marco.is Við styðjum við bakið á þér!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.