Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 Fréttir 18 ára og tvísviptur ökuskírteini: Sýslumaður neitar um meiraprófið - hrikaleg mismunun, segir skólastjóri ökuskólans Sýslumaðurinn á isaflrði, Ólafur Helgi Kjartansson, stoppar af rúm- lega 18 ára mann sem er i skóla til að öðlast aukin ökuréttindi sem al- mennt kallast meirapróf ökumanna. Sýslumaður telur að áreiðanleiki mannsins sé ekki nægilegur til að vera bílstjóri. Á stuttum ökuferli hefur lögreglan neyðst til að hirða af honum ökuskírteinið í tvígang, vegna ölvunaraksturs og hraðakst- urs. Ný reglugerð virðist þó ekki endilega veita sýslumanni heimild til afskipta af námi piltsins og skóla- stjóri ökuskólans talar um vald- níðslu hjá sýslumanni. Lengi vel háttaði svo til að mönn- um var „refsað" á þann hátt að þeir komust ekki í skóla til að öðlast aukin ökuréttindi öðruvísi en að vera með hreint mannorð i 12 mán- uði á undan, til dæmis ekki með sviptingu ökuréttinda. Mörgum þótti þetta óeðlilegt, þótti um að ræða viðbótarrefsingu við þá sem þeir höfðu tekið út. í ágúst í fyrra var gerð reglugerðarbreyting sem gengur út á það að viðkomandi skal vera með allt í lagi þá stundina sem hann sest á skólabekk og öðlast rétt- indi. Hins vegar eiga sýslumenn og lögreglustjórar að kanna feril manna og áreiðanleika þeirra. Óáræðanlegur „Ég treysti mér einfaldlega ekki til að líta svo á að ökumaður sem ekki hefur náð 19 ára aldri en hefur þegar verið án ökuskírteinis vegna ölvunar og hraðaksturs og auk þess fengið refsingar fyrir önnur umferð- arlagabrot sé ekki áreiðanlegur, fer- Ert þú aflögufær? Gfróseðtar Uggja frammi í öllum bönkum, sparisjóðum og á pósthúsum. Sti 'mSSSÍM Þú getur þakkað fyrir þitt hlutskipti Gefum bágstöddum von Þegar krafan um gott sæti er í fyrirrúmi Skúlagötu 61 » S: 561 2987 illinn hlýtur að benda til þess. Það fólk sem á við- skipti við þá menn sem hafa lokið svokölluðu meiraprófi hlýtur að eiga að geta treyst því að búið sé að kanna að þeir séu bæði góðir bílstjórar og ferill þeirra áreiðanlegur. Auð- vitað eiga kennarar strax i upphafi að gæta að þessu,“ sagði Ólafur Helgi Kjart- ansson. „Þama er verið að mis- muna mönnum hrikalega," sagði Sigurður Gíslason skólastjóri sem annast um ökuskólann sem veitir „aukin öku- réttindi. „Sýslumaðurinn stoppar af Olafur Helgi Kjartansson sýslumaður - telur að unga ökumanninum sé ekki treystandi. þennan unga mann, hann leggur hlutlægt mat á hann og telur að áreiðanleiki hans sé ekki nægilega mik- ill, hann sé ekki nógu áreið- anlegur bílstjóri vegna sviptinganna sem hann fékk á sig. Ég hef verið skóla- stjóri skólans í sex ár og kennt í tuttugu. Ég gerir mér fulla grein fyrir því þegar hrottalega er brotið á fólki. Það er engin spurning að þarna er verið að brjóta á þessum unga manni,“ sagði Sigurður. Valdníðsla Hann segir að það breyti engu með sviptingarnar þó ljót saga sé. Hjá öðram umdæmum lögreglunnar sé farið eftir nýju reglugerðinni. Sigurður fór með pappírana til Reykjavíkur og taldi vist að allt mundi ganga þar. Skarphéðinn Njálsson frétti hins vegar af synjun sýslumanns og sagðist ekki vilja stimpla pappírana þar sem Ólafur Helgi hefði neitað slíku. „Lögmaðurinn minn segir þetta vera valdníðslu hjá Ólafi Helga. Hann segir að fjölmargir hafl farið í gegnum prófið þrátt fyrir að vera með sviptingar á bakinu. Sýslumað- m- megi ekkert leggja huglægt mat á hvað honum finnist um áreiðan- leika eins eða neins," sagði Sigurð- ur Gíslason á ísaflrði. -JBP Hólmadrangur á Hólmavík og á Drangsnesi: Stefnir í lokun rækjuvinnslunnar DV, Akureyri: „Það segir sig auðvitað sjálft að ef við missum um 20 störf í rækjunni hér á Hólmavík og um 15 störf á Drangsnesi þá er slíkt afar mikið áfall fyrir ekki ijölmennari byggð," segir Gunnlaugur Sighvatsson, íram- kvæmdastjóri Hólmadrangs á Hólma- vík, en fyrirtækið rekur rækju- vinnslu þar og á Drangsnesi. Rækju- vinnslan er mjög mikilvæg fyrir at- vinnulífið á þessum stöðum, en allt útlit er fyrir að til fækkunar starfs- fólks komi á næstunni eða jafnvel að loka þurfl alveg vegna hráeftiisskorts. „Við höfum orðið mjög lítið hráeftii og það stefnir því miður í hráefnis- skort í þessum mánuði. Við höfum haft nokkra innfjarðarrækju til vinnslu að undanförnu en ég á ekki von á öðru en það fari að draga úr framboði á henni og hún standi ekki undir því að halda vinnslunni uppi. Við höfum ekki haldið uppi fullri vinnslu að undanfómu og það þýðir auðvitað lokun eftir einhvem tíma,“ segir Gunnlaugur. Hann segir að í ekki stærri byggð, íbúar á Hólmavík era um 450 og um 100 á Drangsnesi, sé rækjuvinnslan Frá Hólmavík. geysilega mikilvæg, og komi til lokun- ar eins og ýmislegt bendir til sé það mikið áfall. „Við höfum ekki fækkað fólki enn sem komið er en það stefhir í að það gerist um jólin. Við höfúm verið með tvo báta á veiðum en veiðin hefúr gengið mjög illa. Við höfum ekki lagt niður fyrir okkur hvort við getum far- ið í einhverja aðra vinnslu en það verður auðvitað skoðað. Þetta er mik- ið leiðindaástand og það er ekki fyrr en í vor að við sjáum fram á að fá rækju til vinnslu annars staðar frá, t.d. af Flæmska hattinum eða frá Norðmönnum," segir Gunnlaugur.-gk Framsókn í Reykjavík: Lokað prófkjör - Arnþrúður vill 2. sætið Lokað prófkjör, þar sem félags- bundnir flokksmenn hafa einir rétt til þátttöku, verður hjá framsóknar- mönnum í Reykjavik fyrir kosning- arnar í vor. Fulltrúaráð framsókn- arfélaganna í borginni kemur sam- an til fundar á morgun, fimmtudag. Þar verður ákveðiö nánar um fyrir- komulag prófkjörsins og prófkjörs- reglur. Finnur Ingólfsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, sem nú skipar efsta sætið mun að öllum líkindum skipa það áfram að loknu prófkjör- Finnur Ingólfsson. ólafur Örn Haralds- son gefur kost á sér í annað sætið. Arnþrúður Karlsdótt- ir keppir líklega um annað sætið. inu. Hins vegar er liklegt að Arn- þrúður Karlsdóttir sem nú skipar þriðja sætið, hyggist sækja að Ólafi Haraldssyni í öðru sætinu. Arn- þrúður vildi í gær ekki lýsa neinu yfir í því efni. Hún kvaðst þó myndu gefa kost á sér á listann en ákveða fyrir áramótin eftir hvaða sæti hún sæktist. Ólafur Öm sagði í samtali við DV að hann gæfl kost á sér í annað sæt- ið áfram. Jafnframt kvaðst hann styðja Finn Ingólfsson í fyrsta sæt- ið. Ólafur gekk sem kunnugt er gegn vilja flokksforystunnar í há- lendismálinu svonefnda á Alþingi fyrr í vetur og var í andstöðu við þann hluta sveitarstjómarlagafrum- varps samflokksmanns síns, Páls Péturssonar, sem laut að því að skipta hálendinu upp í reiti út frá aðliggjandi hreppum. Þótt hann hafi með andstöðu sinni veikt stöðu sina gagnvart flokksforystunni, þá telja margir hann hafa styrkt stöðu sína meðal reykvískra framsóknar- manna og kjósenda flokksins og eflt fylgi sitt. -SÁ Setkrókur Kristinn H. Gunnarsson var maður þriðjudagsins þegar hann stimplaði sig formlega inn í Fram- sóknarflokkinn og sagðist stefna á fyrsta sætið þar sem Gunnlaugur Sig- mundsson er reyndar fyrir. Umskipti Kristins koma fæstum á óvart þar sem sandkorn gi-eindu frá því fyrir löngu að þau stæðu fyrir dyrum. Aftur á móti mun ekki öllum stuðningsmönnum hans vera skemmt og óvíst er um bakland vestur á fjörðum. Á Al- þingi gengur gáta, tengd aðventu og jólasveinum. Spurt er hvaða jóla- sveinn hafi komið síðast til byggða. Svarið er Setkrókur í gervi Kristins H. sem loks hafi krækt sér í sæti... Forstjóradraumur Sameining ÍS og SH er mjög til um- ræðu en óvíst hvað úr verður. Sam- eining fyrirtækjanna er að sögn mjög ofarlega í huga Axels Gíslasonar, forstjóra Vátrygginga- félags íslands. Axel mun hafa hvatt til þessarar sameiningar og lagt sín lóð á vog- arskálarnar í um- ræðunum. Þeir sem muna eftir Sam- bandinu muna einnig að Axel var oftar en ekki nefndur sem einn af kandídöt- unum þegar framtíðarskipan í for- stjórastöðu hjá Sambandinu var til umræðu hér áður fyrr. En Sambandið lognaðist út af áður en af því gat orð- ið. Gárangar segja Axel nú hafa dustað rykið af þessum gamla draumi og hann eygi loks von um að verða forstjóri stærsta fyrirtækis landsins. Betra er seint en aldrei - það er ef af sameiningu verður... r A sama sviði New York var flutt á Broadway sl. laugardagskvöld. Á annað þúsund manns mættu þangað til að hlusta á Stórsveit Reykjavíkur og Ragga Bjarna, Andreu Gylfa og Páli Óskar Hjálmtýsson. Mesta athygli vakti þó meintur (ójvinur homma, Árni Johnsen, sem að vísu féll ekki inn í neitt prógram en fékk að koma fram fyrstur. Ekki varð gestum óglatt undir söng þingmanns- ins hreinlynda og var honum fagnað mjög. Það sem vakti þó mesta spennu var að þeir fjandvinir, Ámi og Páll Óskar, skyldu vera undir sama þaki og á sama sviði. Þeir sem væntu þess að þeir tækju sáttalag saman urðu fyrir vonbrigðum því það gerðist ekki. Enginn veit þó hvað gerðist milli þeirra í búningsherbergjum að tjaldabaki... Foringjaslagur Vinstra framboð Græningja er á fullri ferð og fundur þeirra um helg- ina þykir vísbending um að meðbyr sé talsverður. Framboðið lýtur for- ystu alvörumanna á borð við þá Ögmund Jónasson, Stein- grím J. Sigfússon og Hjörleif Gutt- ormsson sem hrökt- ust undan veðri og vindum út á vinstri kantinn. Nú herma heimildir sandkorna að Sósíalista félagið sé gengið í heilu lagi í raöir Ógmundar og Steingríms. Þar er að vísu ekki um að ræða nema um 100 manns en það munar um allt. Síðan er spurningin um Fylkinguna og Marx-Lenínista. Þeir sem gleggst þekkja til innviða Græningja spá því að i uppsiglingu sé foringjaslagur miEi Steingríms J. og Ögmundar sem báðir ku hafa metnað til að verða leiðtogar... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom ffiff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.