Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 199Í Kennitöluslagurinn tryggir metþátttöku í Búnaðarbankaútboðinu: Hagnaður en lítið til skiptanna Um allt land situr fólk og spáir í að selja verðbréfafyrirtækjum og bönk- um afnot af kennitölunni sinni til kaupa á hlutabréfum í Búnaðarbanka íslands. Slagurinn um kennitölumar er harður og fréttir um nýtt gengi kynda undir áhuga fólks. Á þriðja tug þúsunda hafa þegar framselt kauprétt sinn til þriðja aðila. í þessu útboði eru hlutabréf í Bún- aðarbankanum að andvirði 350 millj- ónir króna að nafnvirði til sölu. Bank- inn gefur upp kaupgengið 2,1. íslands- banki hóf kapphlaupið um kauprétt- inn eða kennitölumar með því að bjóða gengið 2,28 fyrir hverja kenni- tölu. Nú hefur það gengi hækkað í 2,4. Síðan kom hvert fyrirtækið á fætur öðm, Landsbankinn, Handsal, Kaup- þing Norðurlands o.fl. og boðið var gengi eins og 2,46, 2,50 og ailt upp í 2,54. Eftir hlutafjárútboð í Landsbankan- um, Fjárfestingarbanka atvinnulífs- ins, FBA og Skýrr er almenningur kominn á bragðið í hlutabréfavið- skiptum. Verðbréfamiðlarar sem DV ræddi við segja að það hafi reyndar haft töluvert að segja að Búnaðar- bankaútboðið var síðast í röðinni. En það sem réði úrslitum um þann fjölda fólks sem sýnt hefur útboðinu áhuga var kennitöluslagurinn og hagstætt gengi sem í boði er - vissan um ömgg- an gróða. Lítið til skiptanna En vegna hins gríðarlega áhuga er ekki mikið til skiptanna. Reiknað er með að um 40 þúsund manns hafi framselt kauprétt sinn þegar útboðinu lýkur 7.700 krónur á kennitölu ef 20.000 aðilar taka þátt. Taki 40 þúsund aðilar þátt er hagnaðurinn 2.100 til 3080 krónur á hveija kennitölu. Taki 30 þús- und manns þátt í útboð- skiptanna mæla verðbréfamiðlarar sem DV hefur rætt við eindregið með því að fólk framselji kauprétt sinn. Þegar keypt er á eigin vegum og hluturinn er lítill getur verið erf- iðara að losna við hlutinn og gengis- hagnaðurinn ekki mikill á ári. Ekki tóm sæla Hagnaður í kennitöluslag Hagnaöur * Fjöldi N. Verð hlutar Kaupgengi BB= 2,15 Gengi 2,4 Gengi 2,46 Gengi 2,50 Gengi 2,54 20.000 17.500 36.750 5.250 6.300 7.000 7.700 25.000 14.000 29.400 4.200 5.040 5.600 6.160 30.000 11.667 24.500 3.500 4.200 4.667 5.134 40.000 8.750 18.375 2.625 3.150 3.500 3.850 50.000 7.000 14.700 2.100 2.520 2.800 3.080 á morgun. Á töflunni hér á síðunni má sjá hver hagnaðurinn er miðað við mismunandi fjöida þátttakenda í útboðinu og mismunandi gengi sem boðið er fyrir kaupréttinn. Þar sést að hagnaðurinn fyrir 10% flár- magnstekjuskatt getur verið 5.250 til * -10% Fjármagnstekjuskattur mu a þennan hátt getur íjögurra manna fjölskylda halað inn á bilinu 14.000 til 20.536 krónur, allt eftir því hvaða að- ili fær afnot af kennitölunum. Þar sem tiltölulega lítið verður til Hins vegar beri að hafa í huga að með slag banka og verð- bréfafyrirtækja um kennitöl- ur fóiks er verið að gefa út traustsyfirlýsingu á Bún- aðarbankann, hann sé góð fjárfesting í sjálfú sér. Þótt bankar og verðbréfa- fyrirtæki lofi öruggum hagnaði í þessu útboði eru hlutabréfaviðskipti áhættusöm. Almenning- ur verður að gera sér grein fyrir að hægt er að tapa á hlutabréfamark- aði. Þar gildir hin gull- væga setning að ávöxtim í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Verðbréfamiðlarar eru þó ekki á því að kennitöluslagurinn og vissan um hagnað skekki vitund fólks um hlutabréfamarkaðinn. -hlh Hlutabréfakaup geta veitt myndarlegan skattaafslátt: Ríflega 41 þúsund krónur fyrir hjón - breytingar í nýju lagafrumvarpi Þegar líður að áramótum hugsa margir um að nýta sér skattaafslátt sem býðst vegna kaupa á hlutabréf- um. Til að einstaklingur geti nýtt sér hámarksskattafslátt eða endur- greiðslu verður hann að kaupa hlutabréf í einstökum félögum eða aðild að hlutabréfasjóðum fyrir 133.148 krónur á þessu ári. Þá fær hann um 20.782 krónur endur- greiddar frá skattinum í byrjun ágúst á næsta ári. Ætli hjón að nýta sér hámarksskattaafslátt verða þau að kaupa hlutabréf í félögum eða að- ild að hlutabréfasjóðum fyrir 266.296 krónur á þessu ári. Skattaafsláttur- inn nemur þá 41.563 krónum í ágústbyrjun 1999. Fyrirvarar Hafi viðkomandi ekki keypt nein hlutabréf áður þarf ekki að hugsa neitt frekar um þessi kaup. En hafi viðkomandi selt hlutabréf á síðustu 10 árum verður sá hinn sami fyrst að kaupa hlutabréf til að jafna þá sölu og bæta síðan við til að njóta skattaafsláttar. í raun þýðir þetta að hafi kaupandi hlutabréfa t.d. selt bréfin sín í fyrra þarf hann fyrst að kaupa hlutabréf fyrir sömu upphæð áður en hlutabréfakaupin nú fara að telja til afsláttar frá skatti. Til að njóta skattaafsláttar þarf að eiga þau í að minnsta kosti 3 ár frá kaupum. Þetta gildir um öll hlutabréf sem keypt eru árið 1993 eða síðar. Ef hlutabréf eru seld inn- an timamarkanna færist skattaaf- slátturinn sem viðkomandi naut til tekna á því ári sem hlutabréfin eru seld. Þetta gildir þó ekki ef önnur hlutabréf eru keypt fyrir andvirði seldu bréfanna innan 30 daga. Muna eyðublað Til að skattstjórinn taki tillit til lækkunar á tekjuskattsstofni vegna hlutabréfakaupa er nauðsynlegt að fylla út eyðublað frá ríkisskatt- stjóra, RSK 3.10, og láta það fylgja með skattframtalinu. Þá verður að hafa í huga að hlutafélagið, sem keypt er í, þarf að hafa hlotið stað- festingu ríkisskattstjóra á því ári sem frádráttur er nýttur. Verðbréfafyrir- tæki, bankar og spari- sjóðir veita upp- lýsingar um hvaða fyrirtæki þetta eru og senda í sumum tilfellum eyðublaðið frá ríkisskattstjóra til þeirra sem keypt hafa hlutabréf á árinu. Verður að greiða tekjuskatt Skilyrði fyrir endurgreiðslu frá skattinum í ágústbyrjun er að við- komandi borgi tekjuskatt. Skattaaf- sláttur vegna hlutabréfakaupa fæst ekki ef kaupandi hlutabréfa hefur tekjur undir skattleysis- mörkum og greiðir ekki frádráttar Einstaklingur 53.259 Hjón 106.518 *Hámark frádráttar er 409 **Tölur fyrir þetta tekjuár < af kaupverði arskatt. Ef viðkomandi hefur full- nýtt persónuafsláttinn sinn nýtast hlutabréfakaup til skattalækkunar. Lækkun afsláttar Fyrirhugað er að afsláttur vegna hlutabréfakaupa falli niður í áfong- um. Ef einstaklingur í dæminu að ofan ætlar að kaupa sér hlutabréf á næsta ári og njóta fulls skattaaf- sláttar árið 2000 mun afslátturinn aðeins nema ríflega 10.000 krónum. Fyrir hjón verður hámarksafsláttur um 21.000 krónur. Nýtt lagafrumvarp Samkvæmt lagafrumvarpi sem liggur fyrir Alþingi og búist er við að verði samþykkt fyrir áramót á að lengja þann tíma sem kaupandi verður að eiga hlutabréfin úr 3 árum í 4 eða 5 ár. I frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir afnámi 10 ára reglunnar sem minnst var á hér að ofan. Þannig að einungis sala hluta- bréfa á sama ári og keypt er hefur þau áhrif að fyrst verði að kaupa hlutabréf til að jafna þá sölu áður en hlutabréfakaupin fara að telja til skattaafsláttar. Nánari upplýsingar um skattaaf- slætti vegan hlutabréfakaupa má m.a. fá á vefslóðunum www.vib.is, www.kaupthing.is og www.lands- bref.is. -hlh Fjármagns- tekjuskattur Samkvæmt lögum leggst 10% fjármagnstekjuskattur á vaxta- tekjur og aðrar eignatekjur ein- staklinga utan atvinnurekstrar. Til fjármagnstekna teljast greiddir vextir, greiddar verð- bætur á afborganir og vexti, gengishækkun hlutdeildarskír- teina, gengishagnaður og afföU af keyptum verðbréfum, víxlum og sérhverjum öðrum kröfum, leigutekjur af fasteignum og lausafé, hagnaður af sölu eigna, arður af hlutafjáreign og fé sem fært er til séreignar í stofnsjóði, t.d. hjá vátryggingar- eða sam- vinnufélögum. Arðgreiðslur Arður er greiddur af nafhverði hlutafjár og er viðkomandi fyrir- tæki skylt að halda 10% af hon- um eftir í fjármagnstekjuskatt. Fleiri framselja ekki í atkvæðagreiðslu Viðskipta- blaðsins á www.visir.is er spurt: Ætlar þú að framselja kauprétt þinn (kennitölu) í hlutafjárút- boði Búnaðarbankans. í gær- morgun höfðu 41% svarað nei en 59% já. Hækkun vísitölu í dag mun Hagstofan birta vísitölu neysluverðs fyrir desember. Spá Fjár- festingarbanka at- vinnulífsins, FBA, hljóðar upp á 0-0,05% hækkun vísitölunnar sem jafngildir 0-0,65% l hækkun á árs- grundvelli. FBA býst við að smávægilegar I hækkanir á matvöru og | húsnæði eyði áhrifum lækkaðs bensín- verðs. Hlutabréfasjóðir raunávöxtun 1998 Landsbréf íslenski fjársjóðurinn hf. -6% Islenski hlutabréfa- sjóðurinn hf. 0% VÍB Hlutabréfa- sjóöurinn hf. 5,9% Vaxtarsjóðurinn hf. -9,3% Sjóöur 6 -innl. hlutabr. 1,5% Kaupþing

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.