Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Blaðsíða 34
34
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
Fólk í fréttum
Hilmar Baldursson
Hilmar Baldursson, lögmaður og
framkvæmdastjóri Landssambands
útgerðarmanna kvótalítilla skipa,
telur nú möguleika á skaðabótum
þeim til handa sem sótt hafa um
aflaheimildir á síðustu misserum en
ekki fengið. Þetta kom fram í DV-
frétt í gær.
Starfsferill
Hilmar fæddist á Flateyri 9.6.1952
og ólst þar upp. Hann lauk kennara-
prófi frá KÍ 1973, stúdentsprófl frá
KÍ 1974, embættisprófi i lögfræði frá
HÍ1983, öðlaðist hdl.-réttindi 1987 og
er löggiltur fasteigna- og skipasali
1988.
Hilmar var kennari við Fella-
skóla í Reykjavík 1973-77, stunda-
kennari við Hólabrekkuskóla
1978-83, Fjölbrautarskólann í Breið-
holti 1979-81, Hvassaleitisskóla
1981-82, Seljaskóla 1982-83, Meist-
araskóla Sauðárkróks 1983-84 og við
Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki
1983-85.
Hilmar var fulltrúi hjá bæjarfó-
getanum á Sauðárkróki og sýslu-
manninum í Skagafjarðarsýslu
1983-85, aðalfulltrúi þar 1985-86,
fulltrúi hjá bæjarfulltrúanum í
Hafnarflrði, Garðabæ og á Seltjarn-
arnesi og sýslumanninum í Kjósar-
sýslu frá 1986, deildarstjóri hjá
Kaupþingi hf. í Reykjavík 1987-88,
bæjarstjóri í Hveragerði 1988-90,
starfrækti eigin lögmannsstofu í
Reykjavík 1990-95, var deildarstjóri
á Fiskistofu 1995-97 og hefur starf-
rækt eigin lögmannsstofu
í Reykjavík frá 1997. Þá
hefur hann verið fram-
kvæmdastjóri Landssam-
bands útgerðarmanna
kvótalítilla skipa frá 1998.
Hilmar sat í ýmsum
nefndum og ráðum á veg-
um Hveragerðisbæjar
1988-90, s.s. í stjórn
Heilsugæslustöðvar, í al-
mannavarnanefnd Hvera-
gerðis og Ölfushrepps,
var formaður atvinnu-
málanefndar Hveragerðis, átti sæti í
héraðsnefnd Árnesinga og var ritari
héraðsráðs.
Fjölskylda
Kona Hilmars er Guðrún Nanna
Guðmundsdóttir, f. 10.3. 1953, kenn-
ari og myndlistarmaður. Hún er
dóttir Guðmundar Jónssonar, húsa-
smíðameistara og hreppstjóra á
Flateyri sem nú er látinn, og Stein-
unnar Jónsdóttur húsmóður.
Dóttir Hilmars og Hrafnhildar
Skúladóttur er Anna Rut, f. 26.11.
1984, nemi.
Stjúpbörn Hilmars og böm Guð-
rúnar Nönnu eru íris Björnsdóttir,
f. 27.10. 1974, nemi; Egill Björnsson,
f. 2.5. 1980, nemi.
Systkini Hilmars eru Sigríður
Lillý Baldursdóttir, f. 8.6.1954, skrif-
stofumaður í félagsmálaráðuneyt-
inu, búsett í Reykjavík; Sveinn Ás-
geir Baldursson, f. 21.7. 1956, at-
vinnurekandi í Reykjavík.
Foreldrar Hilmars eru
Benedikt Kristinn Baldur
Sveinsson, f. 4.4. 1929,
kennari á Flateyri, og
Erla Margrét Ásgeirs-
dóttir, f. 29.10. 1928, hús-
móðir og verslunarmað-
ur.
Ætt
Baldur er sonur Sveins,
skólastjóra í Flatey, bróð-
ur Þórunnar, ömmu
Finnboga Péturssonar
myndlistarmanns. Sveinn var sonur
Gunnlaugs, skipstjóra í Flatey,
Sveinssonar, smiðs í Flatey, Einars-
sonar. Móðir Gunnlaugs var Krist-
björg Jónsdóttir. Móðir Sveins var
Guðlaug Gunnlaugsdóttir, b. i Gerði
á Barðaströnd, Jónssonar.
Móðir Baldurs var Sigríður Odd-
ný Benediktsdóttir, b. á Bakka í
Vatnsdal og síðar veggfóðrarameist-
ara og húsgagnasmíðameistara i
Reykjavik, bróður Magnúsar Th.S.
Blöndahl aiþm. Benedikt var sonur
Sigfúsar, bróður Benedikts, afa
Geirs Hallgrímssonar forsætisráð-
herra, föður Hallgríms, fram-
kvæmdastjóra Árvakurs. Systir Sig-
fúsar var Sólveig, móðir ráðherr-
anna Péturs og Kristjáns Jónssona
og amma Haralds Guðmundssonar
ráðherra. Sigfús var sonur Jóns,
ættföður Reykjahlíðarættarinnar,
Þorsteinssonar. Móðir Benedikts
var Sigríður Oddný, systir Lárusar
Blöndal amtmanns, afa Lárusar
Blöndal, alþm. og hæstaréttardóm-
ara, og langafa Matthíasar Johann-
essen, skálds og ritstjóra. Lárus var
einnig langafi Benedikts hæstarétt-
ardómara og Halldórs Blöndal sam-
gönguráðherra. Sigríður Oddný var
dóttir Björns, ættfóður Blöndalsætt-
arinnar, Auðunssonar.
Bróðir Erlu Margrétar var Gunn-
ar Ásgeirsson stórkaupmaður. Erla
Margrét er dóttir Ásgeirs, kaup-
manns og útgerðarmanns á Flat-
eyri, Guðnasonar, skipasmiðs og
sjómanns á Eiði við Hestfjörð,
Bjarnasonar, b. á Brekku í Langa-
dal, Magnússonar, b. á Arngerðar-
eyri, Þórðarsonar. Móðir Ásgeirs
var Þorbjörg Ásgeirsdóttir, b. í Hey-
dal, Jónssonar, b. í Kollabúðum,
Jónssonar, læknis í Ármúla, Einars-
sonar. Móðir Þorbjargar var Guð-
rún Jónsdóttir. Móðir Guðrúnar var
Þorbjörg, systir Jónasar á Bakka,
langafa prófessoranna Jónasar og
Halldórs og Þorvalds skólastjóra El-
íassona. Þorbjörg vai' dóttir Þor-
varðs, b. á Bakka í Hnífsdal, Sig-
urðssonar, ættföður Eyrardalsætt-
arinnar, Þorvarðssonar.
Móðir Erlu var Guðjóna Jensína
Hildur, systir Ragnheiðar, móður
Ásgeirs lyfjafræðings, Ragnars
læknis og Önundar, fyrrv. forstjóra
Olís, Ásgeirssona. Guðjóna var dótt-
ir Eiríks, b. á Hrauni á Ingjalds-
sandi, Sigmundssonar, b. á Hrauni,
Sveinssonar, b. á Alviðru í Dýra-
firði, Sigmundssonar.
Hilmar Baldursson.
Afmæli
Finnbogi Kristjánsson
Finnbogi Kristjánsson, löggiltur
fasteignasali, Grandavegi 9, Reykja-
vík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Finnbogi fæddist á Flateyri við
Önundarfjörð en ólst upp á Brekku
á Ingjaldssandi. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Héraðsskólanum að
Núpi í Dýrafirði 1974, stundaði
framhaldsnám þar 1975, lauk bú-
fræðiprófi frá Hvanneyri 1977,
stundaði nám við Tækniskólann á
ísafirði 1978, við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja 1979-80, við Business
School of Hove í Sussex í Englandi
1985, við Samvinnuskólann á Bif-
UPPBOÐ
Framhald uppboös á eftirfarandi
eign veröur háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Bræðratunga 30, þingl. kaupsamnings-
hafar að hluta Fjóla Berglind Þorsteins-
dóttir og Daníel Sigurðsson, þingl. eig.
Helga Jóhannsdóttir, gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður ríkisins og sýslumaður-
inn í Kópavogi, mánudaginn 14. desem-
ber 1998, kl. 14.45.___
Aukauppboð:
Digranesheiði 28, þingl. eig. Þórir K.
Bjamason, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, mánudaginn
14. desember 1998, kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN f KÓPAVOGI
röst 1984-86, stundaði löggildingar-
nám í fasteigna-, fyrirtækja- og
skipasölu við HÍ 1993 og öðlaðist
löggildingu 1995 sem löggiltur fast-
eigna-, fyrirtækja- og skipasali. Þá
hefur Finnbogi sótt ýmis námskeið
á sviði viðskipta, félags og endur-
menntunar.
Finnbogi starfaði við búskap á
Brekku með föður sínum framan af,
var um tíma utanbúðarmaður hjá
Kaupfélagi Önfirðinga á Flateyri,
við fiskvinnslu og sláturhús, við
smíðavinnu á vegum Húsagerða-
sambands Vestfjarða og gerði út
vélsleða m.m., stundaði sjómennsku
með fram námi sínu á vestfirskum
skuttogurum, var fréttaritari og
ljósmyndari fyrir Dagblaðið, NT og
síðar Tímann á ísafirði, einnig blað-
ið ísfirðing á ísafirði, vann við ým-
is sölu- og markaðsmál á auglýs-
ingastofu í Reykjavík 1986 og við
fjármála- og fjárfestingarráðgjöf,
starfað við fasteignasölu frá 1986,
fyrst á fasteignasölunni Húsvangi
og setti á stað fasteignasöluna Hól
ásamt fleirum, stofnaði eigin fast-
eignasölu 1995, fasteignasöluna
Frón í Síðumúla 2 í Reykjavík, sem
hann á og rekur í dag.
Finnbogi var virkur í ungmenna-
félagshreyfingunni og formaður
Ungmennafélagsins Vorblóms frá
1977, var fulltrúi á þingum Héraðs-
sambands Vestur-ísfirðinga og Ung-
mennafélags íslands, sótti héraðs-
mót og landsmót ungmennafélag-
anna, hefur setið í ýmsum nefndum
og ráðum á vegum sveitarfélaga á
fyrri árum, setið í miðstjórn SUF,
sótt kjördæmaþing og flokksþing
Framsóknarflokksins á ár-
um áður, í stjórn og vara-
formaður Nemendasam-
bands Samvinnuskólans
og Samvinnuháskólans,
hefur setið í ýmsum
nefndum í félagi fasteigna-
sala og skifað greinar á
sviði fasteignasölu. Hann
var í samkór Hvanneyrar,
formaður samstarfsnefnd-
ar framhaldskólanna í
Borgarfirði, fulltrúi í
mælsku- og ræðukeppni
framhaldsskólanna, átti
einnig sæti í fl. klúbbum og félög-
um. Finnbogi hefur lagt stund á
teikningu, listræna ljósmyndun og
ritgerðasmíð.
Fjölskylda
Finnbogi hóf sambúð haustið 1986
með Magneu Jenný Guðmundardótt-
ur, f. 2.4.1963, landfræðingi. Foreldr-
ar hennar eru Guðmundur Magnús-
son, Jenssonar, Hamri, f. 27.10. 1927,
áður bóndi á Melgraseyri og Kristín
Þórðardóttir, Halldórssonar, Lauga-
landi, f. 12.10. 1928, áður húsfreyja á
Melgraseyri, bæði búsett í Kópavogi.
Dóttir Finnboga og Magneu er
Ragnheiður Kristín, f. 19.2. 1991.
Systkini Finnboga: Eygló, f. 10.8.
1946, nuddfræðingu, rekur nudd- og
sólbaðsstofu Eyglóar í Keflavík; Guð-
rún Jóna, f. 17.2.1949, þroskaþjálfi og
forstöðumaður í Reykjavík; Elisabet
Alda, f. 23.2. 1951, bókari í Bolungar-
vík; Guðný, f. 3.9. 1952, snyrtifræð-
ingur í Keflavík; Guðmundur, f.
27.5. 1954, verslunarmaður í Kefla-
vík; Jóhannes, f. 18.7.1955, skemmti-
kraftur í Reykjavík; Kristján Sig-
urður, f. 23.2. 1957, raf-
virkjameistari í Reykja-
vík; Helga Dóra, f. 22.10.
1960, gjaldkeri og hús-
móðir i Tröð Önundar-
firði; Halla Signý, f. 1.5.
1964, bóndi og ritstjóri á
Kirkjubóli í Bjarnardal;
Magnús f. 11.12. 1962, d.
3.10. 1963; óskírður, f.
22.5. 1966, d. 22.5. 1966.
Foreldrar Finnboga eru
Kristján Guðmundsson,
f. 27.9. 1918, d. 28.3. 1988,
bóndi á Brekku á Ingj-
aldssandi, og k.h., Árelía Jóhannes-
dóttir, f. 22. 11. 1923, áður húsfreyja
á Brekku, nú búsett í Reykjavík.
Ætt
Foreldrar Kristjáns voru Guð-
mundur Einarsson, b. og refaskytta
á Brekku á Ingjaldssandi, Einars-
sonar, b. á Heggsstöðum í Andakíl,
og Steinþóru Einarsdóttur af Korts-
ætt, og kona hans, Guðrún Magnús-
dóttir frá Tungufelli Lundar-
reykjadal, húsmóðir á Brekku á
Ingjaldssandi, Eggertssonar.
Foreldrar Árelíu voru Jóhannes
J.G. Andrésson, bóndi og sjómaður,
Flateyri, Helgassonar, b. í Dýrafirði,
og Jóna Á Sigurðardóttir húsmóðir,
Finnbogassonar. Móðir Jónu var El-
ísabet Kristjánsdóttir, Gemlufalli.
Finnbogi tekur á móti ættingjum,
vinum og samstarfsfólki í Þórshöll,
Brautarholti 20, 4. hæð, Reykjavík,
laugard. 12.12. kl. 18.00-20.00.
Finnbogi
Kristjánsson.
Til hamingju með afmælið 10. desember
90 ára
Trausti Þórðarson, Klapparstíg 11, Reykjavík.
85 ára
Halldór Kristjánsson, Skerðingsstöðum I, Króksfjarðarnesi. Una Dagný Guðmundsdóttir, Hólavegi 38, Siglufiröi.
80 ára
Sigríður F. Helgadóttir, Holtsgötu 29, Njarðvík.
75 ára
Valgerður Sigtryggsdóttir, Vesturgötu 7, Ólafsfirði.
70 ára
Guðmundur Sigurjónsson, Hólmgarði 2, Reykjavík.
60 ára
Guðný Helgadóttir, Bergstaðastræti 14, Reykjavík. Marinó Jóhannsson, Tunguseli, Þórshöfn. Esther Valdimarsdóttir, Vesturvegi 10 E, Vestmannaeyjum.
50 ára
Jóhann Jónsson, Hátúni 10, Reykjavík. Ásta Sylvía Rönning, Austurgerði 7, Reykjavík. Hörður Stefán Harðar, Gautlandi 13, Reykjavík. Svanhildur Einarsdóttir, Birkililíð 15, Sauðárkróki. Áslaug Jónsdóttir, Skólavegi 12, Fáskrúðsfirði.
40 ára
Guðmundur Guðmundsson, Hjarðarhaga 29, Reykjavík. Lára Bjömsdóttir, Garðsenda 6, Reykjavík. Jóna Margrét Guðmundsdóttir, Háaleitisbraut 123, Reykjavík. Steinunn Lindbergsdóttir, Möðrufelli 9, Reykjavík. Edward R. Jaferian, Suðurhólum 16, Reykjavík. Halldóra Viðarsdóttir, Vesturbergi 48, Reykjavík. Iðunn Árnadóttir, Þórufelli 18, Reykjavík. Ólafur Tryggvi Emilsson, Fjallalind 121, Kópavogi. Kjartan Sveinn Guðjónsson, Furugrund 81, Kópavogi. Friðbjörn Bjömsson, Týsvöllum 8, Keflavík. Haraldur Helgason, Einigrund 8, Akranesi. Margrét Stefánsdóttir, Melabraut 25, Blönduósi. Rannveig Runólfsdóttir, Hvammi, Engihlíðarhreppi. Hanna HaHdóra Karlsdóttir, Borgarsíðu 5, Akureyri. Kristján Þ. Kristinsson, Rimasíöu 25 A, Akureyri. Harpa Katrín Sigurðardóttir, Amarheiöi 6, Hveragerði.
Nauðungarsala á lausafé
Eftir kröfu Radiomiðunar hf. og Tollstjórans í Reykjavík fer fram
_____________nauðungarsala á eftirtöldu lausafé:_______
Flutningakassar fyrir háhyminga.
Nauðungarsalan fer fram þar sem lausaféð er staðsett, að Eldshöfða 12, Reykjavík,
fimmtudaginn 17. desember 1998 kl. 14.00.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK