Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 Spurningin Hvað gefurðu margar jólagjafir? Pétur Eyfjörð sjómaður: Um tíu. Tómas Haíllðason nemi: Sjö. Aðalheiður Sigbergsdóttir nemi: Níu. Guðbjörg Tómasdóttir: Um tutt- ugu. Valgeir Árnason nemi: Ég hef ekki hugmynd. Ingólfur Ingólfsson smiður: Um tuttugu. Lesendur Tíminn er allur afstæður Fólk fékk póstinn tvisvar á ári og gluggapóstur var einnig nær óþekkt fyrirbæri, segir Konráð m.a. í bréfinu. Konráð Friðflnnsson skrifar: í þá daga er menn höfðu enga bíla til að skutla sér á milli staða hafði tíminn aðra merkingu en nú gerist. í þá daga var það t.d. ekki óalgengt að fólk fengi póstinn sinn frá útlöndum tvisvar eða þrisvar á ári eða eftir því hvemig skipaferð- um var háttað til lands- ins. í þann tíð komu skipin sem sé ekki vikulega eins og tíðkast í dag. Gluggapóstur var einnig nær óþekkt fyr- irbæri þótt hann tröll- ríði húsum og heimil- um í dag. í sumum til- vikum er svo komið að sá þykir áhugaverðast- ur sem fær mest af þessum óhugnaði inn um bréfalúguna. Þá hlakkar einnig í lögmönnum sem sjá fram á næga atvinnu. Því sann- leikurinn er sá að ekki geta allir greitt í samræmi við beiðni sneplanna og þá fer stundum illa hjá fólki. Timinn er allur afstæður, það þekkjum við öll. - Hver kannast til dæmis ekki við þá tilfinningu að finnast tíminn aldrei ætla að líða hjá? Augnablikið sem heil eilífð og þar fram eftir götunum. En þegar horft er um öxl má hins vegar sjá á hvilíkum ógnarhraða líf manna hef- ur verið og maður undrast hve lítið hefur orðið úr verki. Einnig sér maður suma atburði í eigin lífi sem gátu hæglega hafa gerst i gær, svo nálægt eru þeir í minningunni. Billy Graham, hinn kunni banda- ríski prédikari, sagði eitt sinn að hið eina sem raunverulega hefði komið sér á óvart á lífshlaupinu væri hversu stutt lífið væri og hve hratt það liði hjá. Billy Graham er eins og margir kannski vita kominn á þann aldur að hann man tímana tvenna og sem aðeins aldurinn sjálfur er fær um að veita. Og í því samhengi eru þessi ummæli höfð eftir honum. Það er ekki ýkja langt um liðið síðan íslendingar sættu sig við að fá fréttir frá útlöndum með nokkurra mánaða millibili. Flaug þá líka fiskisagan um öll héruð, er hún loks barst hingað. Oft eilítið stilfærð hjá síðasta manni er sagði hana, líkt og enn gerist hér þegar tíðindi berast. Það eru nefnilega ekki allir trúir upphafinu og það má líka byggja á tímanum sem er alltaf sagður af- stæður og er það sjálfsagt. Ráðherra aflétti veðunum Jón Pálmi Steingrimsson skrifar: Nú hefur komið í ljós að forsætis- ráðherra hefur heimilað veðsetning- ar á eignum mínum án heimildar vinar hans og án nokkurrar laga- heimildar. Það verður ekki séð að hann hafi persónulegan ávinning af þessu, þótt öðru máli skipti um ut- anríkisráðherra hans. Forsætisráðherra er æðsti yfir- maður framkvæmdavaldsins og því ábyrgur sem slíkur fyrir bankavaldi og landhelgisgæslu. Fyrrverandi bankastjóri og áður flokksbróðir seldi af skipi þær aflaheimildm sem á skipinu voru, án heimilda að lög- um. Skip þetta var tekið sem land- helgisbrjótur og var fært til hafnar. Menn sem voru í fullum rétti að veiðum voru mannorðssviptir. Þeir og fjölskyldur þeirra urðu fyrir óþægindum og fjárútlátum. Hvernig hyggst nú ríkisstjómin bæta þann skaða og mannorð sem gjörningar þessir hafa valdið öðrum? Nú vil ég biðja forsætisráðherra að aflétta þeim veðum af því sjávar- fangi sem mér og minni fjölskyldu tilheyrir. Að veðsetja fiskinn í sjón- um er jafn siðlaust og veðsetning í óbyggðum húsum í Kópavogi sem ráðherra dásamar svo mjög. Ráð- herra varði ekki atvinnurétt um- ræddra manna eins og áður er sagt heldur mannorðssvipti þá. - Vona ég að ríkisstjórnin fari að lögum í framtíðinni. Nýfallinn Hæstaréttar- dómur yfir ríkisstjórninni sannar að umrædd taka skipsins á sínum tíma var lögbrot sem rfkissjóður verður að bæta. Lýðræði og stjórnmála- flokkar í hættu Magnús Sigurðsson skrifar: Ég sé ekki betur en lýðræðið, sem við höfum gjarnan státað af, sé hætt komið. Þetta er engin einkaskoðun mín heldur margra sem ég hef hitt að máli. Hættan steðjar líka og kannski mest að stjórnmálaflokkun- um sem gegna þeirri skyldu að vera uppistaða málefnalegrar umræðu innan löggjafarþingsins. Já, til þess eru flokkarnir hugsaðir, að spegla alla fleti þjóðlífsins. Nú virðist breytt viðhorf á þessu innan sjálfs Alþingis. Það er það alvarlegasta. Það gerist nú æ oftar að þingmenn sem kosnir eru á þing innan sinna QJHÍIjMGM þjónusta allan sólarhringinn Aðeins 39,90 mínútan - eða hringíð í síma vLg&SSo 5000 milli kl. 14 og 16 Á Alþingi. - Eru þingmenn samviskufangar innan flokkanna sem fleytti þeim á þing? stjórnmálaflokka ákveða upp á sitt eindæmi að yfirgefa sinn flokk og ýmist stofna aðra nýja eða skipta um flokk (á Alþingi!). Látum vera þótt þingmaður segi sig úr þingflokki sín- um og lýsi yfir að hann sé óflokks- bundinn eftir það og muni starfa sjálfstætt það sem eftir lifir þings. - Sem er þó nógu slæmt og vafamál að geti staðist, án þess að hann víki hrein- lega af þingi og varamaður komi inn í viðkomandi flokk. Hitt, að þingmað- ur gangi úr sínum flokki til að fara í annan (á starfandi þingi), það er ekki aðeins siðlaust og svik i augum kjós- enda hans heldur hlýtur það að vera kolólöglegt, sem og að stofna nýja flokka á kjörtímabil- inu innan Alþingis. Það sem brennur á almenningi nú er að fá svör fróðra manna um hvernig allt þetta megi viðgangast. Fjölmiðlar virðast ekki taka á málinu í takt við almennings- álitið. Þeir slá þessu upp í hálfkær- ingi, þegar best lætur, en leita hvergi skýringa. - Á almenningur þá kannski hvergi skjól meir? DV Óþarfa nefnda- fargan Lúðvík hringdl: Það er ekki að spyrja að stjórnsýsl- unni, hún er mannfrek og tekur sinn skerf af þjóðarkökunni. Það er ekki bara að ráðuneytin séu mannmörg og þar sé hver silkihúfan upp af annarri heldur starfrækja ráðuneyt- in sérstaka þjónustu þar sem starfa ekki fleiri né færri en 665 nefndir með hálft fjórða þúsund nefndar- manna. Þessir starfsmenn kosta okk- ur skattgreiðendur tæpar 240 millj- ónir króna, bara það sem af er þessu ári og verður reikningurinn eflaust hærri. En til hvers allar þessar nefndir, eru þetta uppbætur á laun opinberra starfsmanna eða einhvers konar jöfhunargreiðslur á milli póli- tfsku flokkanna? Mér sýnist það einmitt vera af þeim toga sem nefnd- irnar eru skipaðar. Þetta er ótækt. Sólon auminginn á Rás 2 Soffía hringdi: Mér þykir alltaf jafn ömurlegt þeg- ar þeir morgunhanar og hænur á Rás 2 taka að leika lagið um Sólon ís- landus eða Sölva Helgason. Þetta kalla ég einfaldlega „aumingjalagið" á Rás 2. Hvergi hefur þetta lag verið spilað jafnoft og þar. Það er sérstak- lega textinn sem fer í taugarnar á mér, strekktar eftir nætursvefninn og alla draumana. Þegar maður vaknar dauðþreyttur eftir drauma- flóðið er ekki á bætandi að fá þenn- an vesæla Sölva yfir sig aftur og aft- ur. Ég er farin að hlusta enn meir á Rás 1 og nú eftir síðasta Sölva 1 morgun (þriðjudag) læt ég mér meira en vel líka tónlistin hjá Lönu Kol- brúnu, þar er þó smekkur í lagavali. Burt með flokka- flækingana Dóri skrifar: Ég get ekki að því gert en mér blöskrar orðið þessir flokkaflæking- ar sem nú sitja á Alþingi. Finnst fólki þetta ekki orðið ömurlegt? Al- þingi situr uppi með þingmenn sem voru kosnir sem fulltrúar sinna flokka og kannski mest af því að þeir sátu sem fuUtrúar einmitt þar en hverfa svo á braut með aUt öðrum sem túlka stjórnmálin allt öðruvísi en þeir hinir sömu gerðu er þeir voru kosnir á þing. Þetta þýðir bara eitt: þingmönnum á Alþingi er ekki treystandi. Þeir geta, hver sem er og hvenær sem er, hlaupist brott frá stefnu síns flokks ef þeim sýnist svo. Hvar standa kjósendur þeii'ra? Burt með flokkaflækingana. Sjómenn og kröfur þelrra Lárus skrifar: Það er ekki hægt að verja málstað sjómanna sem enn standa á því eins og hundar á roði að þeim beri sjó- mannaasfsláttur, þ.e. skattaafsláttur sem engir aðrir hafa. En það er ekki nóg með það, þeir vilja líka að hið opinbera komi tU móts við óskir þeirra um skert lífeyrisréttindi. Þessi málstaður sjómanna er ekki þeim tU framdráttar. Raunar eiga stjómvöld að taka í taumana varð- andi kröfur sjómanna sem þeir hafa sífellt haft á oddinum og hafa fengið sínum málum framgengt með því að ganga á fund ráðherra sérstaklega með sinar kröfur í farteskinu. Líf okkar hér í landinu snýst nú ekki al- farið um sjómenn og sjávarútveg. Sem betur fer. Óttast verð- bréfafárið Grétar hringdi: Ég vU skora á skynsamt fólk að láta sér ekki lynda hinn stöðuga áróður fyrir því að eyða fé sínu tU verðbréfakaupa hér og þar í þjóðfé- laginu. Ég óttast verulega þetta verð- bréfafár, sem hér ríkir. Ég get ekki séð annað en þetta skapi eitt allsherj- ar hrun á fjármagnsmarkaðinum strax upp úr áramótum. Jafnvel fyrr. Svona lítil þjóð með takmarkað eigin fjármagn ræður ekki við þetta verð- bréfaflóð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.