Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1998, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
Sviðsljós
25
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni.
aWtmil llhlmin.
$ fO I
Smáauglýsingar
550 5000
Springsteen og
E-götubandið
Stjórinn sjálfur og E-götuband-
ið hans ætla aðleggja land undir
fót á næsta ári og leika á
nokkrum tónleikum vítt og breitt
um ... Ekki fylgir sögunni hvort
það verður um Bandaríkin ein-
göngu eða heiminn. Springsteen
og E-götubandið hafa ekki leikið
saman á tónleikum í heilan ára-
tug. Orðrómur um að Stjórinn og
sveitin hans myndu koma saman
að nýju hefur verið þrálátur síð-
ustu vikurnar, einkum eftir út-
komu geisladiskasetts sem inni-
heldur 56 lög sem ekki hafa
heyrst af plötu fyrr. E-götubandið
lék undir hjá Springsteen í tíu ár
á áttunda og níunda áratugnum.
/
@1»
• ••
Gerð undir borðplötu H-82-87, B-60, D-57.
Ryðfrítt innra byrði. Ytrahús sinkhúðað
(ryðgar ekki). Hægt að lækka efri grind með
einu handtaki fjórfalt vatnsöryggiskerfi.
Mjög hljóðlát aðeins 47db (re 1 pW).
TURBO-þurrkun, þurrkar með heitum blæstri
Hægt að stilla start-tíma allt að 12 klst. fram
í tímann. Sjálfvirk hurðarbremsa.
12 manna stell. 5 kerfi.
Hvað er TURBO þurrkun?
í þurrkkerfinu blæs vélin út heitri
gufunni sem hituð er upp af hitaelementinu.
Hin fullkomna þurrkun.
Kanadíska poppstjarnan Celine Dion skemmti löndum sínum á tónleikum í
Montreal í vikunni. Tónleikarnir voru þeir fyrstu af sjö sem hún heldur fyrir
Montrealbúa á næstunni og er uppselt á þá alla.
Símamynd Reuter
Jagger leitar að skóla
fyrir yngsta barnið
Þó að Gabriel Luke Beauregard
Jagger sé bara 14 mánaða gamall
fóru foreldrar hans, Mick Jagger og
Jerry Hall, á stúfana í síðasta mán-
uði til að leita að heppilegum
heimavistarskóla fyrir drenginn.
Mick og Jerry heimsóttu heimavist-
arskólann Stowe fyrir utan London
til að afla sér upplýsinga um hvað
hann getur boðið drengnum þegar
hann hefur skólagöngu sína.
Þetta var reyndar áður en fregnir
bárust af því að hjónakornin væru
að skilja, ekki bara vegna endumýj-
aðra kynna Jaggers við fyrirsætuna
Cörlu Bruni heldur einnig vegna
þess að hann á von á bami með
brasilísku fyrirsætunni Luciönu
Morad. Luciana mun hafa greint frá
því að Jagger hafi boðið henni
milljónir fyrir að þegja um samband
þeirra.
Filippus prins vill að hertogaynj-
an af Jórvík, sem köOuð er Fergie,
flytji út úr húsi Andrésar prins og
hætti að berjast fyrir hærri skilnað-
argreiðslum. Það er mat Filippusar
að Andrés geti ekki lifaö eðlilegu lífi
og myndað varanlegt samband við
aðra konu á meðan fyrrverandi eig-
inkona hans býr enn hjá honum.
Fergie kveðst ekki hafa efni á því
að flytja út úr húsi Andrésar og inn
í húsið sem drottningin hefur fund-
ið handa henni. Húsið sem drottn-
ingin fann handa Fergie er með sjö
svefnherbergjum, fimm stofum,
tennisvelli og fjórum bílskúrum. Ár-
legur rekstrarkostnaður fasteignar-
innar, sem er nálægt Windlesham í
Surrey, er talinn verða að minnsta
kosti sem svarar 10 milljónum ís-
lenskra króna. Húsið hefur nú stað-
ið autt í fjóra mánuði.
Fergie segir nýja heimilið of dýrt í
rekstri. Símamynd Reuter
Fergie segir að hún verði skuld-
um vafin flytji hún í þetta hús. Hún
vilji heldur búa í litlu húsi.
Hvorki drottningin né Filippus
skilja hvers vegna Fergie, sem unn-
ið hefur sér inn milljónir i auglýs-
ingabransanum, hefur ekki efni á
að búa í húsinu í Surrey. Nú eru
liðnir 22 mánuðir frá því að Fergie
og dætumar fluttu aftur til Andrés-
ar. Sambýlið átti aðeins að vera til
bráðabirgða.
Náinn vinur Fergie hefur bent á
að það sé undir Andrési komið
hvort Fergie verði áfram undir
sama þaki og hann. Augljóst sé að
hann vilji hafa fyrrverandi eigin-
konu sína og dæturnar nálægt sér.
Bæði Andrés og Fergie setji
hamingju dætranna ofar öllu ööru.
Þeirra eigin hamingja sé í öðru
sæti.
Ofurgellan Cindy
meiddist á auga
Ofurfyrirsætan Cindy Craw-
ford fékk glerbrot í augað á dög-
unum þegar bifreið sem Randy,
eiginmaður hennar, ók rakst á
steinvegg. Glugg-
inn farþegamegin
að framan brotn-
aði við árekstur-
inn.
Tildrög slyssins
voru þau að hestur
stökk óvænt út á
veginn fyrir Cherokee jeppa
þeirra hjóna og tókst Randy með
snarræði að sveigja frá, með fyrr-
greindum afleiðingum. Skuggsýnt
var orðið þegar þetta gerðist. At-
buröurinn átti sér staö nærri
heimili þeirra í Malibu í Kalifom-
íu. Randy slapp við meiðsl.
Sjúkraflutningamenn veittu
fyrirsætunni sætu fyrstu að-
hlynningu á slysstað en hún
þurfti síðan að fara til læknis dag-
inn eftir til frekari skoðunar og
aðhlynningar.
KEI^LIST
SKEIFAN 7 - Slttl: 5Í8 1000 - FAX: 511 1075
reidliitðreldlisf.is
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
DV
Filippus vill að
Fergie flytji út
-ómótstæðilegir
fyrir kaldar tær
Groom kuldaskór
Vatnsheldir kuldaskór með
einstaklega hlýju Thermolite fóðri.