Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Side 18
kmftmikiH orkudrykkur
Rússland er ekkí fýsilegur staður til að búa á. Að minnsta kosti ekki núna.
Þar er erfitt að nálgast mat og enginn er öruggur um að fá kaupið sitt greitt.
Byggingar eru í niðurníðslu, fátæktin mikil, forsetinn alltaf í bælinu og sfjórnun
landsins í algjöru rugli. Ásta Krísfjánsdóttir og Þórey Vilhjálmsdóitir hjá Eskimo
Modeis voru samt alveg vissar um að þær gætu fundið fallegar stúlkur þarna í
Síberíu. Og það gerðu þær. Fegurðina er að finna úti um allt.
Höfðu
aldrei s
úUending
Liklega dreymdi stúlkurnar tíu í og ársgamalli dóttur í Rússlandi í
bænum Tomsk ekki um að verða
fyrirsætur. Þær vissu ekki hver of-
urfyrirsætan Cindy Crawford var
og höfðu ekki einu sinni séð tísku-
tímarit þegar Ásta fann þær i köld-
um og dimmum skólum Síberíu.
Það er því óhætt að segja að Ásta
sé einn mesti áhrifavaldur í lífi
þessara stúlkna. Úr fátækt og fimm-
tíu stiga frosti eru þær nú á leið til
fyrirsætustarfa í helstu tískuborg-
um heimsins, London og París.
Ásta dvaldi ásamt manni sínum
þrjá mánuði, fór í september og
kom heim í byrjun þessa mánaðar.
Eftir þrjár vikur var fjölskyldan við
það að gefast upp enda næstum pen-
ingalaus.
„Við gátum ekki skipt dollurun-
um sem við fórum með af þvi að
engar rúblur voru til í Rússlandi
og enginn vildi dollarana. Matur-
inn var langt frá því að vera girni-
legur og þar að auki var erfitt að
nálgast hann. Þetta var menning-
arsjokk," segir Ásta.
Gekk í bekki
Hún hélt samt
ótrauð áfram,
enda komin á
fullt skrið með
stofnun skrifstofu
Models á
ótroðnu
í Tomsk
hundruð
Eskimo
þessum
slóðum.
búa sex
þúsund manns og
þar eru sextíu skól-
ar. Ásta þræddi þá
og fékk leyfi hjá
skóla-
Larisa Piskeineoza,
15 ára.
stjórunum til að ganga í bekkina.
„I bekkjunum báðum við þær
stúlkur sem voru hærri en 175
sentímetrar að standa upp og völd-
um úr þær sem komu til greina.
Fyrsti mánuðurinn fór í þetta.
Stundum kom ég í skóla sem voru
rafmagns- eða hitalausir. Nemend-
urnir sátu í úlpunum og störðu á
kennarann og þetta var allt rosa-
lega skrýtið og vanþróað. Eins og
að ganga nokkur ár aftur í tím-
ann,“ segir Ásta.
Upp úr krafsinu hafði Ásta tíu
stúlkur sem allar eiga góða mögu-
leika á velgengni í fyrirsætubrans-
anum. Þær eru allar um fimmtán
ára og höfðu fæstar séð útlendinga
áður en Ásta kom til sögunnar.
Hún sendi þær í enskunám, sýndi
Jasmín tekin við stjórnartaumunum á
skrifstofu Eskimo Models í Tomsk í
Rússlandi.
Aormákur og
Slqoldur stækka
SKJALFTI um áramót
Heimsyfirráð eða dauði er
orðið að aðalsmerki þeirra
herrafataverslunarmanna sem
kenna sig við sjálfa sig. Kormák-
ur og Skjöldur hafa opnað útibú
á Stöðvarfirði. Kannski hafa fáir
hugmynd um hvar sá fjörður er
en hann er einn af þessum
merku Austfjörðum. í nýju búð-
inni, jafnt sem þeirri gömlu,
verður i boði fatnaður og gjafa-
vara og auk þess verður við-
skiptamönnum boðið að panta
vörur úr versluninni að sunnan
sér að kostnaðarlausu. Þeir Kor-
mákur og Skjöldur vonast til að
með versluninni á Stöðvarfirði
verði aukin mjög þjónusta við
austfirska karlmenn en þetta
mun vera eina herrafataverslun-
in i fjórðungnum.
Herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar á Stöðvarfirði er opin
frá 16-19 alla virka daga og frá
13-18 um helgar. Nú er bara að
vona að þetta verði til að styrkja
byggðastefnuna og geri lands-
byggðina eilítið stórborgarlegri.
Hingað til hefur hún liðið fyrir
of litla þjónustu og alltof fáa
kúnna.
Um síðustu verslunarmannahelgi
var ein hátíð sem skar sig úr hin-
um. Það var dansfestivalið
SKJÁLFTI sem haldið var á Akur-
eyri. Allir bestu plötusnúðar lands-
ins fóru til Akureyrar og spiluðu
þar á brjáluðu djammi alla helgina.
Færri komust að en vildu. Nú voru
þær fréttir að berast að aðstandend-
ur SKJÁLFTA ætli að gera enn bet-
ur um áramótin. Þar verða allir ís-
lensku plötusnúðarnir sem skipta
máli, auk góðra erlendra gesta. Ára-
móta-SKJÁLFTI verður á glæsileg-
um stað sem ekki hefur verið notað-
ur undir svona skemmtanir áður
(en á víst eftir að koma skemmti-
lega á óvart). Hver þessi staður er
og hverjir spila, því verður ljóstrað
upp hér í FÓKUSI í næstu viku.
f ó k u s
11. desember 1998
Leigan í þinu hverfí
18