Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Síða 26
Fantasía
heildverslun
Brautarholti 8 105 Rvík
símar 561 1344 og 8971333
Bíóborgin
Mulan ★★★★ Mulan er uppfull af skemmti-
legum hugmyndum ogflottum senum, handrit-
ið vel skrifað og sagan ánægiulega laus við þá
yfirdrifnu væmni sem oft einkennir Disney.
Mikil natni er lögö í smáatriði eins og er við
hæfi í teiknimyndum, og aukakarakterar eins
og drekinn og litla (lukku)engisprettan eru svo
skemmtileg að þau hefðu ein og sér verið efni
í heila mynd. Gó sí. -úd
The Horse Whisperer ★★★ Bók Nicholas
Evans hlaut misjafnar viðtökur og var annars
vegar lofuð sem glæsilegt meistaraverk og
hins vegar gagnrýnd sem innihaldslaus loft-
bóla. Myndin brúar að mínu mati bilið og
kar.nski má kalla hana fallega loftbólu. -ge
Bíóhöllin/Saga-bíó
The Negotlator ★★★ Samuel L. Jakson og
Kevin Spacey eru í fínu
formi í The Negotiator
sem er ágætlega skrifuð
sakamálamynd en ekki
nógu heilsteypt. Þeir
dreifa athyglinni frá brota-
lömum í uppbyggingu
myndarinnar og því að
aldrei næst að skapa al-
mennilega spennu í kringum þá dramatísku
atburði sem eru að gerast. -HK
A Perfect Murder ★★★ Andrew Davis, leik-
stjóri A Perfect Murder, ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er hæstur því að fyrirmyndin,
Dial M for Murder (1954), telst ekki til bestu
mynda Alfreds Hitchcocks. Útkoman er þó
ágætis afþreying sem kemur stundum
skemmtilega á óvart. -ge
Wrongfully Accused *i Myndir Leslie Niel-
sen eru farnar að verða svona dálítið eins og
Spaugstofan, þreyttar en enn þá færar um að
kit a upp magahlátur á góðum stundum. Ef þú
ert nægilega skilyrt í aulahúmor þá má vel
skemmta sér yfir þessari þvælu. -úd
FJölskylduglldran ★*★ Sumar sögur eru svo
vel byggðar upp og skemmtilegar að ekki er
hægt að eyðileggia þær og þessi ágæta út-
gáfa af tvíburunum sem skipta um hlutverk er
skommtileg og notaleg þó búið sé að troða
inn á hana misgóðum rokklögum sem ekkert
ha'a með myndina að gera, hún stendur alveg
fyrir sínu án þeirra. -HK
Töfrasverðið ★★
-HK
Háskólabíó
Tar.i ★★★ Taxi er farsakennd spennumynd
þar sem tekst að ná upp jafn skemmtilegri
stemningu með góðum húmor, sérstaklega
fyrri hluta myndarinnar, og þótt samtöl virki
stundum sem eintómur ruglingur þá er Taxi
skemmtileg tilbreyting frá amerísku hasar-
myndaflórunni sem við þurfum að lifa við.-HK
Out of Slght ★★★ Þetta er svona hasarmynd
á yfirborðinu en undir niðri lítill blús um tvær
manneskjur sem hefðu sameinast á öðrum
staö og öðrum tíma en
heimurinn er stundum vond-
ur og svo sem ekkert um
það að segja nema að þetta
jaf iast allt hjá guði. Steven
Soderbergh stýrir þeim Cloo-
ney og Lopez beina leið I
höfn. -ÁS
Stelpukvöld ★★ Persónur
allar dregnar skýrum, einföldum dráttum og
lifna ágætlega á tjaldinu. En þetta er ekki
merkileg kvikmyndagerð, hér er málað á tjald-
ið eftir númerum og satt að segja tilheyrir
þessi mynd síðdegisdagskrám sjónvarps-
stöðvanna. -ÁS
Maurar ★★★ Vel heppnuð og skemmtileg
tölvugrafísk teiknimynd með rómantísku ivafi
sem öll fjölskyldan getur sameinast um að
sjá. Woody Allen talar fýrir aðalpersónuna Z og
fer á kostum í hlutverki sem skrifað var fýrir
hann. Af öðrum frægum röddum er vert að
geta hlutverka Sylvesters Stallones og Genes
Hackmans sem báðir komast vel frá sinu,-HK
Danslnn ★★★
-HK
Fimm ár eru síðan framleiðandinn Jerry Weintraub keypti handritið að Soldier af
David Geffen. Ekki var það nýtt af nálinni þá því Geffen, sem síðar varð einn af eig
endum DreamWorks hafði legið með handrítið í sjö ár.
íiáb^
■rtveið
Takmarkaðar
birgðir.
Að þetta handrit skyldi hafa
legið svona lengi ónotað er ótrú-
legt þegar haft er i huga að það
skrifaði David Webb Peoples,
sá hinn sami og skrifaði Blade
Runner, sem löngu er orðinn að
sígildri framtíðarmynd, og síðar
Unforgiven.
Það tók þó Weintraub langan
tíma að koma myndinni á kopp-
inn og voru ýmsar hugmyndir á
lofti um leikstjóra og leikara,
sem ekki gengu upp fyrr en Kurt
Russell sýndi áhuga á málinu.
Russell segir það að hluta hafa
verið vegna þess að persónan
sem hann leikur segi mjög fátt,
taldi hann það áskorun að glíma
við slíkt hlutverk, þótt árangur-
inn hafi kannski ekki verið sam-
kvæmt vonum, en Soldier hefur
fengið misgóða dóma vestanhafs
og aðsókn var ekki mikil. Hvað
um það, miklu var eytt af dollur-
um til að gera sviðsmynd sem
mikilfenglegasta og hefur það
tekist og þar sem Kurt Russell
segir lítið en gerir hins vegar
meira þurfti hann að vera í góðu
líkamlegu formi og tókst á við
ýmsar æfingar fyrir hlutverkið
og árangurinn er til staðar í
myndinni.
Kurt Russell leikur Todd,
framtíðarhermann sem skilinn
Sendum í póstkröfu
um land allt hin
nsælu uppblásnu
plasthúsgögn.
Bíóborgin sýnir Soldier:
li'jJáEalliðar
framtíðarinnar
er eftir á eyðilegri plánetu til
þess eins að deyja. íbúar á
plánetunni sem hafa verið í fel-
um bjarga honum og hjúkra hon-
um. Þessir íbúar hafa haldið í
gamlar hefðir sem Todd þekkir
aðeins að sögn. Líður honum vel
innan um þetta friðsama fólk þar
til erkióvinur hans, Caine 607,
birtist, en það hafði einmitt ver-
ið hann sen skildi hann eftir í
dauðateygjunum á plánetunni.
Auk Russells leika í myndinni
Jason Scott Lee, Connie Niel-
sen, Michael Chiklis og Gary
Busey. Leikstjóri er Bretinn
Paul Anderson, sem síðast gerði
vísindatryllinn Event Horizon.
I
I
I
(
I
I
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
26
f Ó k U S 11. desember 1998