Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Síða 28
Meö axarmoröingja í aftursætinu.
I’ll Be home for Christmas:
Jólasveinn á
puttanum
í dag verður frumsýnd í Bíóhöll-
inni, Kringlubíói og Nýja bíói á Ak-
ureyri splunkuný jólamynd, I’U Be
home for Christmas, þar sem aðal-
hlutverkið er í höndum Jonathan
Taylor Thomas, sem margir þekkja
úr sjónvarpsseríunni Handlaginn
heimilisfaðir. Leikur hann Jake
Wilklnson, sem vaknar nokkrum
dögum fyrir jól úti í miðri eyðimörk
klæddur jólasveinabúningi og með
hvítt skegg sem hefur verið límt á
hann. Þetta er verk fótboltaliðs skól-
ans sem hann er í, þar eru náungar
sem þykjast eiga harma að hefna
gagnvart honum. Eina hugsunin
sem kemst að hjá Jake er að komast
heim fyrir jólin svo hann fái nýjan
Porsche sem faðir hans lofaði hon-
um, ef hann kæmi heim á jólunum,
og að hitta kærustuna sem að sögn
er á leiðinni í fangið á öðrum
strák.Til að komast heim þarf hann
að fara á puttanum þvert yfir Banda-
ríkin og eins og gefur að skilja lend-
ir hann í mörgum skrýtnum uppá-
komum á þessari ævintýraferð sinni
i jólasveinabúningnum.
Auk Jonathan Taylor Thomas
leika í myndinni Jessica Biel,
Adam Lavorgna, Gary Cole og Eve
Gordon. Leikstjóri er Arlena San-
ford sem er einn fárra kvenleik-
stjóra í Holiywood sem hefur það að
aðalstarfi að leikstýra kvikmyndum.
Síðast leikstýrði hún A Very Brady
Sequel. Reynslu sína hefur hún eins
og margir fleiri úr sjónvarpinu þar
sem hún hefur meðal annars leik-
stýrt Ally Mc Beal og Friends og
sjónvarpsmyndum.
Myndin er fersk hvað varðar
efnistök. Hún gerist í Pendleton-
háskólanum sem nýlega hefur
verið kosinn öruggasti háskóli
landsins. Það er ekki sökum að
spyrja að rétt eftir að skólinn hef-
ur fengið þennan titil er ein
námsmeyjan myrt. Fljótlega fylg-
ir annað morð í kjölfarið og nú
þykir víst að raðmorðingi gengur
laus á háskólalóðinni. Einn nem-
andinn, sem er með það á heilan-
um að verða rannsóknarblaða-
maður, tekur upp á því að rann-
saka morðin ásamt kunningja-
stúlku sinni. Þau komast að því
að morðaðferðunum svipar mjög
til þekktra sögusagna og munn-
mæla og álykta að framhald
verði á morðunum.
í helstu hlutverkum eru ungir
leikarar, má þar nefna Jared
Leto, Alicia Witt, Rebecca Gayhe-
art, Joshua Jackson, Natasha
Gregson Wafner, Loretta Devine
Urban Legend:
Stjörnubíó frumsýnir í dag táningahryllingsmyndina
Sögusagnir (Urban Legend). Kemur hún frá sömu
framleiðendum og gerðu I Know What You Did last Summer.
og Tara Reid. Þá leikur í mynd-
inni Robert Engluns sem gerði
garðinn frægan sem Freddy Kru-
eger í Elm-strætis kvikmyndun-
um. Eins og margir leikaranna er
leikstjórinn Jamie Blanks að
heyja frumraun sína í kvikmynd-
um. Hann er ástralskur og vakti
strax athygli fyrir stuttmyndir
þegar hann var við kvikmynda-
nám i Sidney. Eftir að hafa unn-
ið við auglýsingar í nokkurn
tíma var honum boðið vestur um
haf til Bandaríkjanna og fékk
strax það verkefni að leikstýra
Urban Legend. Blanks hefur að
sögn lengi verið hryllingsmynda-
aödáandi og telur John Carpent-
er læriföður sinn á þessu sviði.
-HK
Jonathan Taylor Thomas
Jonathan Taylor Thomas hefur
nú hætt leik í hinni vinsælu sjón-
varpsseríu Handlaginn heimilis-
faðir (Home Improvement) og snúið
sér alfarið að kvikmyndum og með-
al annars lék hann í Wild America,
sem sýnd var í Stjömubíó fyrr á ár-
I inu. í hlut-
I verki Randys
I Handlaginn
heimilsfaðir
varð Jonath-
an Taylor
T h o m a s
átrúnaðargoð
ungra telpna
og prýddi for-
siður allra
t á n i n g a -
blaða. Hann er nú orðinn sautján
ára, hefur ekki mikið hækkaði i lofti
en orðinn allur fullorðinslegri.
Thomas hefur allt frá því hann
hóf leik í Home Improvement fyrir
sex árum verið eftirsóttur í kvik-
myndir og á hann að baki nokkur
stór hlutverk, meðal annars í The
Adventures of Pinocchio, Man of
the House og Tom and Huck. Þá
var hann röddin á bak við Simba í
The Lion King, vinsælustu teikni-
mynd allra tíma. Nýverið lauk hann
leik í Speedway Junkie, sem frum-
sýnd verður á Sundance kvikmynda-
hátíðinni á næsta ári. Það hefur vak-
ið athygli að þrátt fyrir allt umstang-
ið í kringum leikferilinn hefur Jon-
athan Taylor Thomas ávallt verið
með hæstu einkunnir í skóla.
-HK
Bíódómur
Stjörnubíó - Urban Legend:
★★★
Flakkandl sögur
Leikstjóri: Jamie Blanks. Handrit: Sllvio
Horta. Aðalhlutverk: Alicia Wltt, Rebecca
Gayheart, Jared Leto, Natasha Wagner, Lor-
etta Devine og Robert Englund.
Ég fór á þessa mynd full af þeim
hefðbundnu fordómum sem virð-
ast fylla kvikmyndagagnrýnendur
gagnvart unglingahrollvekjum,
mér leist illa á trailerinn og var
viss um að hérna væri strax kom-
ið dæmi um virkilega ódýra eftir-
líkingu á Scream og I Know What
You Did Last Summer. Og mér til
mikillar gleði og hamingju var
mér komið ánægjulega á óvart.
Urban Legend er ekkert meistara-
stykki en hún er hiklaust þriggja
stjömu hrylla. Umgjörðin er eins
hefðbundin og hægt er, í smábæj-
arháskóla fer skyndilega að bera á
morðum sem virðast taka sér nú-
tíma þjóðsögur, eða flökkusögur,
að fyrirmynd. í fortíð skólans er
myrkt leyndarmál, og einn nem-
andinn á sér einnig vafasama for-
tíð. Henni finnst að sér vegið og
tekur til við að reyna að komast
til botns í málinu, með hjálp ákaf-
lega bláeygs blaðamanns skóla-
blaðsins.
Þetta tema flökkusagna hefur
loðað við hrollvekjuna frá upp-
hafi, en þessi kvikmyndategund
hefur löngum þrifist á þjóðsögum.
í þessari nýju hrollvekjubylgju
hefur þetta flökkusagnaeðli verið
dregið enn betur fram, og hér er
það tekið alla leið og beinlínis
gert að aðalsöguþræði myndar-
innar. Vissulega hefði mátt vinna
betur úr þessu efni og leika sér
meira með sögurnar sjálfar, upp-
runa þeirra og áhrif, en hei, það
er bara ekki „pointið" hér.
Urban Legend tekur sig mátu-
lega alvarlega eins og þessara
mynda er háttur og er ekkert að
hafa áhyggjur af óþarfa smáatrið-
um eins og að allt gangi nákvæm-
lega upp. Ef þið viljið trúverðug-
leika, lesið símaskrána. Hins veg-
ar fellur myndin heldur ekki í
gryfju yfirdrifínnar sjálfsmeðvit-
undar, sem getur orðið afskaplega
þreytandi, hér er öllu haldið hag-
anlega til haga, svona til að búa í
haginn fyrir þennan líka hvín-
andi fína (ef ekki með öllu
óvænta) endi. Byrjunin var virki-
lega smart, og lokasenan vísar
hamingjusamlega, og algerlega
óskammfeilið, í möguleikann á
heilli syrpu af Urban Legends.
Úlfhildur Dagsdóttir
U !) 'J 3 JJ 3 J U JJ JJJ 'i 11
páTRICK CO\
< wannabij
Jdartine_SITBON
PATRICK.
MARITHÉ
FRANCOIS
GIRBÁUD.
f Ó k U S 11. desember 1998
28