Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.1998, Qupperneq 30
FJöldaaðgerðlr, að taka afstöðu, rífa kjaft og
leggja sig eftir því aö hrekkja yfirvöld. Á einni
nóttu snerist island á hvolf. Ládeyða í áratug
og nú má allt í einu hafa skoðanir. Þúsund
manns sóttu um kvóta rétt eftir að dómurinn
um kvótann féll. Háskólabíó var fullt af virkjun-
arandstæðingum og hér á síðunni við hliðina
er maður sem vill aö hálendið veröi virkjaö.
Þetta er bara eins og árið 1980. Allir farnir aö
gera eitthvað.
Bráðum fer fólk
jafnvel að mæta
á verkalýðsfundi
en það hefur nú
varla gerst á
þessum áratug.
Fólk er bara aö
tryllast á þess-
um síðustu dög-
um árþúsunds-
ins. Samt látum
við enn yfir okk-
ur ganga. Helgi
Hjörvar lofaöi að
hækka ekki
gjöldin en hækkar samt. Það er ómögulegt og
llklega eru væntanleg mótmæli hvað þaö
varðar. Ætli Reykvíkingar bruni ekki niður I
Ráðhús eftir helgi og taki Helga meö valdi.
Píni hann til að lækka útsvarið aftur. Honum
er allavega ráðlagt að vara sig því Islendingar
eru í ham. Þeir láta kannski traðka á sér I
kreppu en I góöæri erum við til alls líkleg. Þá
er bara að vona að þjóðin verði ekki of róttæk
og allt fari að loga hér í hryðjuverkum eins og
stundum gerist þegar þjóðir eru pirraðar. Há-
tið Ijóss og friðar verður að haldast án ann-
arra sprenginga en þeim sem tengiast
gamlárskvöldi.
A Foupfím
MPOUmesA^
ú r f ó k u s
'68 kynslóöin er algerlega
sniðgengin hvað tslensku
bókmenntaverölaunin varð-
ar. Þetta er fýrsti flokkur-
inn. Þeir rithöfundar sem,
þegar hún kom, ýttu öllum
þeim eldri í burtu. Þeir einu
sem urðu eftir voru Thor og
Guðbergur en hinir beinlínis hættu að skrifa.
Höfundarnir sem nú eru sniögengnir eru Einar
Kárason, Vigdís Grímsdóttir, Sigurður Pálsson
og Þórarinn Eldjárn. Þetta er sá hópur sem
hefur verið einna mesta
áberandi á undangengnum
árum. Hópurinn á sín af-
kvæmi sem eru Sjón, Gyrð-
ir Elíasson og Kristín
Ómarsdóttir, svo dæmi
séu tekin. Allt þetta fólk er
ekki tilnefnt til verðlauna.
Þeir sem eru tilnefndir eru
þrir fyrstu bókar höfundar og þeir Thor og Guð-
bergur, báðir af gömlu kynslóðinni. Nefndin er
sem sagt að heimta breytingar, endurnýjun og
augljóst að hún kærir sig ekki um bækur
þessarar millikynslóðar. Sem er forvitnilegt í
Ijósi þess að þetta er fólkið sem á samkvæmt
formúlunni að ráða öllu I
þessu þjóöfélagi. En sú
völd virðast bara vera í
stjórnmálum og fyrirtækj-
um. Og kannski ekki. Oz-
gæjarnir eru allsráðandi I
viðskiptaheiminum (en þeir
eru einmitt keimlíkir fyrstu
bókarhöfundum) og í stjórnmálum er veriö að
heimta endurnýjun meö mótmælunum sem
dynja yfir okkur. Landið liggur sem sagt þannig
að millikynslóðin er ekki æskileg nema þá að
hún taki sönsum. Fari að skrifa öðruvísi bæk-
ur eða hreinlega hætti að skrifa eins og svo
margir af kynslóðinni á undan gerðu. Næstu
jól ættu allavega aö verða forvitnileg bókajól
og gaman að sjá hvort tilnefningarnar hafa
áhrif.
Hvaö er málið?
„Ég ætla að borða á við þrjár
meðalmanneskjur frá 16. til 26. des-
ember og ég hef reiknað út að það
eru um 4000 hitaeiningar til viðbót-
ar við þær 2000 sem ég borða dags
daglega,“ segir Sigurgeir Orri Sig-
urgeirsson rithöfundur og bætir
því við að hugmyndin hafi kviknað
þegar hann heyrði af tveimur ung-
um konum, þeim Guðrúnu Evu
Mínervudóttur og vinkonu henn-
ar Elínu Briem, sem hafa sent frá
sér yfirlýsingu þess efnis aö þær
ætli að svelta sig frá 16. til 26. des-
ember til að mótmæla því að há-
lendið verði virkjað.
Svo þú œtlar sem sagt að boröa
þeirra skammt, eða það sem þœr
œtla ekki að borða yfir hátíðarnar.
En af hverju?
„Vegna þess að ég er alfarið á
móti hagvaxtarhryðjuverkum og
því ætla ég að borða á við þrjá fyr-
ir einmitt hagvöxtinn í landinu og
náttúrlega líka til að vekja fólk til
meðvitundar um að það eru
einmitt virkjanir sem skapa til
dæmis rithöfundum rými til að
skrifa bækur á tölvurnar sínar. í
kjölfar virkjana fylgir einnig hag-
vöxtur sem gerir almenningnum í
landinu kleift að kaupa
fleiri bækur.“
Og þaó voru þessar stelp-
ur sem komu þér til aö grípa
til þessara róttœku aógerða?
„Já. Þetta eru mín við-
brögð við því að tvær sósí-
alistastúlkur ákváðu að
svelta sig yfír jólin til að mót-
mæla virkjunum. Það er mjög
kaldhæðið að horfa upp á
þetta því í gamla daga horfðu
hungraðir íslendingar á árnar
og þá gífurlegu orku sem i þeim
býr renna til sjávar. Þau hefðu
nú þakkað fyrir að fá eitt stykki
virkjun, peninga inn í landið og
hagvöxt í kjölfarið."
Hvað með ferðaþjónustuna og
þá óprýöi sem virkjanir eru?
„Dæmin sanna að virkjanir og
ferðamenn vinna ekki gegn hvort
öðru. Þetta fullyrði ég í ljósi þeirr-
ar staðreyndar að Hoover-stíflan í
Bandaríkjunum er einn mest sótti
ferðamannastaður þar í landi og er
úr nógu að moða í Ameríku."
Fyrstu bókar
hófundurinn
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson er
einnig höfundur skáldsögimnar Út
um þúfur sem var að koma út nú á
dögunum. Tengist átveislan því aó
þú ert aö gefa út þlna fyrstu bók?
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson er strax byrjaður að telja kaloríurnar. Hvað eru margar
kaloríur í stórum rjómaís? Kápa bókarinnar er ekki á þessari síðu til að auglýsa
hana, hún er hér fyrir einskæra tilviljun.
„Nei. Það er
fyrir algera tilvijun að þetta tvennt
gerist á sama tíma í mínu lífi rétt
eins og ég imynda mér að það sé
hjá henni Guðrúnu Evu sem er að
svelta sig og gefa út sína fyrstu
bók.“
Þú heldur það?
„Já. Hún er ekki að vekja athygli
á bókinni sinni frekar en ég.“
En um hvaö fjallar bókin þín?
„Fyrir einskæra tilviljun þá fjall-
ar þessi bók um tvo lúsera sem
hitta stelpu sem þeir ákveða að
ræna. Mannránið er óvenjulegt að
þvi leyti að stelpan, eða unga kon-
an, telur sig vera í spennandi ást-
arævintýri. Það mætti eiginlega
kalla þessa sögu vanþroskasögu
því bókin er uppreisn gegn þessum
uppeldissögum sem við höfum ver-
ið að lesa á undangengnum árum.“
Þú ert líka útvarpsmaöur?
„Já. Ég sé um Skjaldbökuna á
miðvikudögum frá 22-24.“
Hvaö er í gangi þá?
„Ég er eiginlega eingöngu með
eðaldanstónlist. Reyni að vera
alltaf meö íslenskan Dj og viðtöl
við einn rithöfund í hverjum þætti.
Síðast var það Sindri Freysson,
næstkomandi miðvikudag er það
Mikael Torfason."
Þú hefðir nú ekki átt að segja
það. Ég er þessi Mikael Torfason
og nú halda allir aö það sé kannski
engin tilviljun að þú sért í viðtali
hjá mér. Og kannski er engin til-
viljun að við erum báðir með bæk-
ur fyrir jólin. Ég ætla að vísu ekki
að borða neitt meira en vanalega
en ég er búinn að taka viðtal við
þig og er að fara í viðtal til þín.
Hvað segir það þér um okkur?
Sigurgeir Orri svarar ekki.
Hann glottir bara, ypptir öxlum og
hvíslar: „Þetta er allt ein stór til-
viljun í pínulitlu landi.“ -MT
hverjir voru hvar
mexraa
www.visir.is
Hiö lágkúrulega lágmenningarkvöld á 22
heppnaöist vel síöasta föstudag. Hallgrímur
Helgason rappaöi eins og
hann hefði aldrei gert annað,
Mikael Torfason sýndi pönktil-
þrif af einstakri kunnáttu og
Rödd guðs tók meira aö segia
lagiö með Adda í Skýjum ofar.
Aö þessu öllu saman loknu
hélt Ensími uppi fjörinu og viö-
stödd voru Heiða í Unun og
Dr. Gunni, Þórir Snær kvik-
myndaframleiðandi, myndlist-
armennirnir Egill Snæbjörns-
son og Jón Sæmundur, Vllll I 200.000 nagl-
bítum og margir, margir fleiri.
Það var heldur ekki leiðinlegt á
Astró á föstudagskvöldið þegar
Islenska útvarpsfélagið var með
fagnað. Jón Ólafsson, Hallur
Helga, Hreggvlöur sjónvarps-
stjóri, Björgvln Halldórs og allir
töffararriir voru á staðnum og
líka glæsipariö Slgmundur Ernir
og Elín Sveins. Þá lét Halla Tóm-
asdóttir sig ekki vanta né Erla
Friðgelrs, Svavar Örn, Einar
Ágúst og Svenni Waage. Valtýr
Björn og öll íþróttadeildin eins og hún legg-
ur sig skemmti sér víst konunglega.
Daginn eftir var svo allt kreisí á Stróinu. J6-
hann Ingl íþróttasálfræöingur tók út geö-
heilsu gesta, BJarni I Aco mætti og Skúll
Subway með allt sitt lið.
BJarkl á Hard Rock, Eva á
Amigos og Logl ólympiu-
sundkappi kíktu einnig við.
Gus Gus-meðlimlr slæddust
inn ásamt Quarashi-mönnum
og þar ekki langt undan var
Arna P. sem ku vera ein
fallegasta kona í heimi.
Sara, bílasölukona, á Skeif-
unni, Svall af FM957, Raggi
og Súkka voru þarna líka og iþróttafélagið
Stjarnan eins og þaö lagði sig,
allavega fótboltinn og handboltinn.
Skjár 1-melstararnlr voru mættir,
Alll í Skífunni, Þröstur í Súrefni,
Edda Steingríms glæsimey og
Jens Hansson úr Sálinni. Svenni á
Mirabelle var á svæðinu og líka Elf-
ar Aðalsteins og Anna María sem
rétt stigu inn fæti. Goggi é 67 og
liðið hans var þarna og hún Hlín
Hawaiin Tropic, Kristjana gullmoli,
Dianna Dúa, Helena dansari og
fullt af vinkonum litu inn. Arnór
Guðjohnsen knattspyrnutröllkarl
lét fara vel um sig á privatinu og þar var
Andreas Roth töffari líka mættur.
Þá vantaði ekki fólk á Sólon frekar en venju-
lega. Á föstudagskvöldiö sáust þar Svan-
hlidur Dalla Ólafsdóttlr stjórnmálafræöi-
nemi og heimasæta á Bessastöðum,
Magnús Þór Gylfason, hagfræöinemi
og fréttamaður á sumrin, Þórllndur
Kjartansson,
sérlegur áhuga-
maður um
enska boltann,
Viggó Örn Jóns-
son auglýsinga-
strákur, Ingvi
Hrafn Óskars-
son, formaður
Heimdallar og
lögfræðingur,
Sigurður Kárl
Kristjánsson,
forseti Rögnunnar og lögfræöingur, Blrgir
TJörvi lögfræðingur og kærastan hans, Erla
Kristin, sem veröur líka lögfræöingur innan
tíöar. Voöa mikið um lögfræðinga alltaf á
Sólon. Þarna var líka Elnar Örn Ólafsson,
efnahagsráöunautur lýðveldisins, Guðlaugur
Þór Þórðarson og Þórlr KJartansson vatns-
beri.
Á Thomsen á laugardagskvöldiö þeyttu Árni
E. og Andrés skífur fyrir troöfullu húsi.
Meðal gesta voru Palll Steinars Sprota-
spaöi og súpermódelið hans, Elva Dögg,
Ingvl af Brennslunni, Sigrún í Sautján,
Jonnl Slgmars kvikmyndageröarmaöur, dj.
Stereo Mike, Tobbi hönnuöur, Agnar Tr.,
ísl, Sveinn Spelght tlskuguð, Tóti Sam-
úræ, Birkir úr NLO, Arnar Sporpönkari og
Guðjón I OZ.
Skuggabar var stútfullur á föstudagskvöld-
iö. Þar voru til dæmis Hlynur dj master
mlx og Bjartur „Nelly's" ásamt íslenskri
Playboydömu. Maggi Magg FM957 tók
flott spor á dansgólfinu ásamt Helðari
Austmann FM957.
Jóna Lár vár gullfalleg
að vanda og umvafin
karlaðdáendum, Árni,
veröbréfasali Búnaöar-
bankans, var aö sjálf-
sögöu ekki langt undan,
Teitur Örlygs lét fara vel
um sig I gyllta salnum
og þarna var líka Andr-
és BJörnsson „herra Is-
land" og OZ-ararnir Ey-
þór og Guðjón sem dömurnar létu ekki I
friði (höfðu greinilega frétt af því að hann
er á lausu - og aö fyrirtækiö hans er millj-
arða virði). Stefán Hilmars var lika i gyllta
I góðra vina hópi eins og Victor Urbanic
Stud landsins.
Kvöldið eftir sáust á Skugganum Tomml
„Sol“ ásamt útlenskum Sol greifa, athafna-
maðurinn Jón Ásgeir sem var flottur að
vanda, Linda, Hulda og hinar Hard Rock-gell-
urnar. Gunni, Kolla og Arnar Gautl GK voru
funheit I gyllta, Svavar Örn á kantinum og
Anna María Deres/hress sem fékk mikla at-
hygli fyrir flott spor á dansgólfinu. Kolla
„Madonna" fékk ekki minni athygli og Svennl
„mirabelle" og Fjölnlr „mussó" voru I vindla-
hugleiðingum á meðan fótboltahetjurnar Am-
ór Guðjohnsen og Gummi Torfa ræddu bolt-
voru þau Selma Björns og
Rúnar „Zuko" á Vegamótum um helgina.
Og þar var annað leikarapar, Gísll Rúnar
og Edda Björgvlns ákváðu að lyfta sér
upp og líka hinn fyndni leiklistarnemi,
Stefán Karl. Reyndar var allur útskriftar-
bekkur Leiklistarskól-
ans á svæðinu, auk
Rúnars og Stebba sást I
Nönnu Kristinu, Hönsu,
Hinrik og Egil. Þeir létu
lika fara vel um sig þeir
Björgvln Frans og Helgi
Áss skákmeistari sem
og Elma Lísa, Björn Jör-
undur og Siggl Blöndal.
30
f ÓkLIS 11. desember 1998