Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.1999, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1999 5
DV Fréttir
Vísindalegt norrænt fé-
lag á að efla læknaskop
Sagt er að hláturinn lengi lífið.
íslenskir og norrænir læknar eru
þessu sammála og telja að gaman-
semi og hlátur hafi mikið að segja
í samskiptum sjúklinga og fjöl-
skyldna, sem og milli einstakra
lækna. Vönduð rannsókn þykir
ótvírætt sanna að gamansemi og
skop sé afar gagnlegur þáttur í
meðhöndlun íjölmargra sjúkdóma.
Bjarni Jónasson, heilsugæslu-
læknir í Garðabæ, fer utan sem
fulltrúi Læknafélags íslands á
stofnfúnd norrænna samtaka sem
stofnuð verða 16. janúar. Hér er
um að ræða norrænt félag um
skop í lækningum sem fulltrúar
læknafélaga á öllum Norðurlönd-
unum standa að.
„Við teljum hér um mikilvægt
mál að ræða,“ sagði Guðmundur
Björnsson, formaður Læknafélags
íslands, í gær. „Við tókum strax
jákvætt i málið og viljum stuðla að
þvi að gera starfið sem skemmti-
legast og gæða það sem mestu lífi,“
sagði Guðmundur og hló léttum en
heilsusamlegum hlátri. Aðild að
félaginu fá einstaklingar ein-
göngu.
Hæfilegt skop spennulosandi
Bjarni Jónasson læknir tók þátt
í undirbúningsfundi fyrir stofn-
fundinn í júní í Ósló.
„Það er enginn vafi í hugum
Bjarni Jónasson heilsugæslulæknir
í Garðabæ - fer utan til stofnfundar-
ins í Danmörku.
okkar sem hafa staðið í því að
undirbúa stofnun félagsskaparins
að þetta gerir gagn, bæði fyrir
lækna og sjúklinga. Fyrir læknana
sjálfa til að verjast þreytu í starfi
og það sem í læknastétt hefur ver-
ið kallað útbruni. Angi af því að
„brenna út“ er hátt sjálfsmorðs-
hlutfall í læknastétt," sagði Bjarni
Jónasson í samtali við DV í gær.
„Það hefur sýnt sig að þar sem
hæfilegt skop er haft uppi, bæði í
samskiptum lækna og eins milli
lækna og sjúklinga, þar sem að-
stæður leyfa, auöveldar það öll
Guðmundur Björnsson, formaður
Læknafélags íslands - læknar
styðja stofnun félagsins
samskipti fólks. Hæfilegt skop er
þvi spennulosandi, léttir mönnum
oft að slaka á og gerir allar kring-
umstæður auðveldari viðfangs.“
„Skop hefur þýðingu á mörgum
sviðum læknisfræðinnar. Það er
verkjastillandi og að hluta til leng-
ir það lífið. Tilraunir á krabba-
meinsdeildum í Bandaríkjunum
sýna að sjúklingar sem fengu kát-
legar bíómyndir og aðra skemmt-
un lifðu lengur en sjúklingar sem
svipað hagaði til um,“ segir Per
Husfeldt, læknir í Herning í Dan-
mörku, sem er einn frumkvöðla að
stofnun þessa norræna félags, í
samtali við Politiken í gær.
Stofnun félagsins fer fram 16.
janúar á Hotel Eremitagen í Lyng-
by, útborg Kaupmannahafnar.
Læknar og læknanemar á Norður-
löndunum fá að taka þátt í félag-
inu. Á stofnfundinum verður með-
al annars boðið upp á faghúmor-
íska fyrirlestra sem norrænir
læknar halda en síðan verður fé-
lagið stofnað og stjórn kosin. Þeg-
ar Nordisk selskab for medicinsk
humor hefur verið stofnað verður
höfuðviðfangsefni félagsins að efla
rannsóknir á kímni og gamansemi
og í því skyni stefnt að náinni
samvinnu á öllum Norðurlöndun-
um. -JBP
Evran til þæginda
„Það verður ósköp þægilegt þeg
ar evran verður komin í fulla al
menna notkun,
að þurfa t.d.
ekki að skipta
um gjaldeyri
milli
landamæra.
Evran verður
hið besta mál
fyrir ferða-
manninn og öll
viðskipti og ég
er mjög jákvæð-
ur á allt sem
auðveldar
manni lífið,"
segir Gunnlaugur M. Sigmunds-
son, sem sæti á í efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis, um tilkomu
evrunnar, nýs evrópsks gjaldmið-
ils.
„Annars held
ég að áhrifin
hér á landi
verði lítil í
byrjun. En í
Sviss hafa
menn áhyggjur
af því ef evran
stendur sig
ekki fyrstu
mánuðina að
svissneski
frankinn muni
styrkjast mjög
mikið. Það
mundi gera ferðaþjónustu þar og
alla framleiðslu ósamkeppnisfæra
við nágrannalöndin.“ -hlh
® NOTAÐIR BÍLAR®
euro- raögreiöslur
Skipti - Bílaián
Skuldabréf
VWPolo1400, árg. '98,
ek. 15 þús. km, blár, ál-sportfelgur, 5
d., beinsk. Verð 1.190 þús.
Toyota Carina GLi station, árg. '93,
ek. 72 þús. km, ssk. Verð 1.120 þús.
Dodge Dakota, árg. '95,
pickup m/veltigrind, blár, ek. 37 þús.
km, 8 cyl. ssk. Verð 1.550 þús.
Plymouth Grand Voyager LE, áng. '93, Suzuki Sidekick Sport 1800, árg. '98.
7 manna, blár, ek. 95 þús. km, 4x4. Nýr bíll, rauður, beinsk., rafdr. rúður.
Verð 1.650 þús. Verð 1.950 þús.
Chrysler Caravan, árg. '90, 7 manna, 4x4, brúnn, ssk.
Verð 850 þús.
Chevrolet Blazer, árg. '89, vél 4,3, ssk., brúnn.
Verð 490 þús.
Grand Cherokee Limited, árg. '93, svartur, ek. 77 þús. km.
Verð 2.300 þús.
Gleðilegt ár.
Plymouth Neon Sport, árg. '96, hvítur,
ssk., ek. 44 þús. mílur.
Verð T.250 þús.
Opel Astra, 1,4 árg. '95, rauður, ssk.,
ek. 51 þú$. km.
Verð 920 þús.
r
BMW 735i Shadow line, árg. '92,
steingrár, ek. 180 þús. km,
(þjóðvegaaskstur erlendis), allt rafdr.,
spólvörn, ABS,
tvívirk þakl. Verð 2.200 þús.
EGILL VILHJALMSSON EHF.
r
SMIÐJUVEG11 KOPAVOGI
Volvo 740, árg. 85, grænn, ssk.,
fallegur bill. Verð 320 þús.
Sími 564 5000