Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999
9
dv Stuttar fréttir
Utlönd
Óveður í Svíþjóö
Fárviðri gekk yfir suður- og
vesturhluta Sviþjóðar í gærkvöld.
Tré féllu yfir vegi og rafinagnslín-
ur og urðu yfir 20 þúsund heimili
rafmagnslaus.
Albright í Moskvu
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, snæddi
í gærkvöld
kvöldverð í
Moskvu í boði
Jevgeníjs Prima-
kovs, forsætis-
ráðherra Rúss-
lands. Albright
er í þriggja daga
heimsókn í
Rússlandi til að ræða bæði utan-
ríkismál og efnahagskreppuna í
Rússlandi.
Mordechai í framboð
Yitzhak Mordechai, sem var
rekinn úr embætti varnarmála-
ráðherra ísraels um helgina, til-
kynnti í gær aö hann hefði hug á
að verða næsti forsætisráðherra
landsins.
Dísilbílar hættulegir
Sænsk rannsókn sýnir að út-
blástur úr dísilbílum er tíu sinn-
um hættulegri en útblástur bens-
ínbíla.
Á von á 20. barninu
40 ára bresk ofurmamma,
Nicola Pridham, gengur með 20.
bam sitt. Nicola hefur fætt barn á
hverju ári undanfarin 20 ár.
Kona forsetaefni
Stjómarandstöðuflokkurmn
CDU í Þýskalandi hefur útnefnt
Dagmar Schipanski, sem er a-
þýskur háskólaprófessor, forseta-
efhi flokksins.
HlV-maðurinn í íran
Mehdi Tayeb, sem grunaður er
um að hafa haft mök við hundmð
kvenna í Svíþjóð án þess að
greina þeim frá því að hann væri
alnæmissmitaður, er talinn fela
sig í íran.
Nýr ríkisarfi
Hussein Jórdaníukonungur
undirritaði í gær tilskipun um að
sonur hans
Abdullah, sem
er 37 ára, verði
krónprins. Kon-
ungurinn svipti
í síðustu viku
bróður sinn
krónprinstitlin-
um. Var kon-
ungurinn óánægður með frammi-
stöðu bróður síns á meðan hann
dvaldist í Bandarikjunum í hálft
ár vegna krabbameinsmeðferðar.
Abdullah er sonur annarrar eig-
inkonu Jórdaníukonungs, Tinu
Gardiner ffá Bretlandi.
Bútaði líkið
Sænska lögreglan greip á götu í
Stokkhólmi á sunnudagskvöld 45
ára konu sem gmnuð er um aðild
að morði á 81 árs manni. Lík
mannsins fannst bútað sundur í
Riddarfjárden í Stokkhólmi í nóv-
ember síðastliðnum.
Öflugur jarðskjálfti í kaffiræktarhéraði Kólumbíu:
Á fjórða hundrað
manns týndi lífi
Öflugur jarðskjálfti varð á fjórða
hundrað manna að bana í kaffírækt-
arhéraði Suður-Ameríkuríkisins
Kólumbíu í gær. Meira en þúsund
manns særðust í skjálftanum sem
mældist 6 stig á Richter og eyðilagði
byggingar og olli aurskriðum.
Kraftur skjálftans var svo mikill
að graíhvelfingar opnuðust og haus-
kúpur og bein flugu um allt, eins og
sjónvarpsmyndir úr kirkjugarðin-
um í bænum Cajamarca.
Héraðshöfuðborgin Armenia sem
er hátt uppi í Andesfjöllunum varð
verst úti. Miklar skemmdir urðu í
um tuttugu borgum og bæjum.
íbúamir í Armenia rótuðu í húsa-
rústunum með berum höndum í all-
an gærdag í von um að fmna ein-
hverja á lífi. Þegar skyggja tók voru
flestir orðnir niðurdregnir og úr-
vinda af þreytu. Eldar sem kveiktir
höfðu verið á götum úti vörpuðu
daufri birtu sinni yfir sviðið og
sírenuvæl fyllti kalt fjallaloftið.
„Við þorum ekki að sofa af því að
það gæti komið annar skjálfti og
það litla sem eftir er gæti hmnið of-
an á okkur,“ sagði kona nokkur sem
leitaði í rústum heimilis síns með
aðstoð vasaljóss.
Á sjónvarpsmyndum frá borginni
Pereira mátti sjá björgunarsveita-
menn draga hálfklædd lík fómar-
lamba skjálftans út úr húsarústun-
um á meðan eldar sem kviknuðu í
kjölfarið eyddu þvi sem eftir var af
húsunum.
„Umfang skjálftans er svo mikið
að okkur fallast hendur," sagði Al-
berto Parra, yíirmaður almanna-
varna í Kólumbíu.
Yfirvöldum taldist til aö meira en
þijú hundruð manns hefðu týnt lífi
í hamfórunum og rúmlega eitt þús-
und særst. Búist var við að þær töl-
ur myndu hækka.
„Allt er eyðilagt. Það er ekkert
eftir innan dyra. Við biðum bara
eftir að birti. Þá ætlum við að
bjarga því sem bjargað verður og
sjá til hvert við forum,“ sagði Benja-
min Ortiz í Armenia og tók utan um
eiginkonu sina og tvær dætur. Þau
sluppu öll ómeidd þegar heimili
þeirra hrundi til grunna í jarð-
skjálftanum.
íbúar bæjarins Armenia fylgjast örvæntingarfullir með tilraunum björgunarsveitamanna til að bjarga fólki úr rústum
heimila sinna eftir gífurlega harðan jarðskjálfta sem skók miðhluta Kólumbíu í gær. Meira en þrjú hundruð hafa þeg-
ar fundist látin og er óttast að sú tala eigi eftir að hækka.
Kommar hleraðir í 13 ár
Sænska öryggislögreglan hleraði
öll símtöl til og ffá skrifstofum
kommúnistaflokksins sænska í
Gautaborg á ánmum 1953 til 1966.
Þetta kemur fram í áður óþekktum
skjölum sem fundust hjá saksókn-
ara í borginni, að því er segir í frétt-
um sænska blaðsins Dagens Nyhet-
er.
Meðal skjalanna er fjöldi skýrslna
um leynilegar símahleranir í Gauta-
borg. Flestum þeirra var beint gegn
deild kommúnistaflokksins þar á
bæ. Skjölin leiða í ljós hvemig þús-
undir manna voru kortlagðar og
skráðar, þar á meðal kvikmynda-
leikstjórinn Roy Andersson og rit-
höfúndamir Sture Kállberg og Jan
Myrdal.
Öryggislögreglan þurfti ekki ann-
að en að tilkynna að einhver úr for-
ystu kommúnistaflokksins væri
gmnaður um njósnir til að fá leyfi
fyrir hlerununum. Dómstóll endur-
nýjaði leyfið í hverjum mánuði og í
lok hvers mánaðar var send skýrsla
til viðkomandi dómstóls.
Þrátt fyrir hleranimar var eng-
inn hinna hleruðu nokkru sinni
gripinn eða yffrheyrður.
Brúðkaup við
fýrstu sýn
Ungt enskt par gekk í hjóna-
band í gær um leið og það var að
sjást í fyrsta sinn. Carla
Germaine, sem er 23 ára fyrirsæta,
og Greg Cordell, sem er 28 ára
sölumaður, höfðu tekið boði út-
varpsstöðvar í London um brúð-
kaupsferð til Bahamas, lán á sport-
bil og lúxusíbúð í eitt ár til þeirra
sem þyrðu að giftast strax þeim
sem þeir sæu í fyrsta sinn. Tvö
hundrað manns skrifúðu útvarps-
stöðinni og kváðust reiðubúnir að
taka sjensinn.
Carla og Greg ætla að láta hjóna-
bandiö endast. Leiðtogar ensku
kirkjunnar em ævareiðir yfir upp-
átæki útvarpsstöðvarinnar.
Aðalljós
Európustaðall ^
Þekkirdu þetta verð?
Nissan Micra '93 8.600.
M. Benz 190 '84-‘91 13.300.
M. Benz 230 '86-'93 12.600.
Peugot 405 '92 8.600.
Toyota Corolla '93 6.800.
VW Polo '95 8.800.
Mazda 323 '86-'88 5.400.
Nissan Primera '96 8.800.
Mazda 626 '88 7.200
og fleiri gerðir.
Mikið úrval stefnuljósa
Afturljós á japanska
pickupa, verð 3.400.
Afturljós á vörubíla.
Ljósabretti fyrir kerrur,
verð 3.300,- o.fl.
Póstsendum samdægurs.
Q*
varahlutir
Hamarshðfða 1 sími 567 6744