Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Síða 15
ÞRDÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 Þóra Þórðardóttir, kennari á Suóureyri: Þorrablótið lífgar upp á skammdegið I g hef alla tíð tekið slátur og útbúið allan súrmat sjalf. Ég ler ættuð frá Stað og er svo heppin að fá alltaf úrvalskjöt það- an. Þorramaturinn er faslur liður í tilverunni og alltaf tiihlökkun að bragða á honum á hverju ári,“ segir Þóra Þórðar- dóttir kennari, en hún er búsett í Brekkukoti á Suðureyri við Súg- andafjörð. Þóra segir súrmat- inn í dag almennt ekki eins góðan og hann var áður fyrr. „Það er orðið svo erfitt að fá góð- an súrdrukk. Hann er lélegri nú til dags og mat- urinn þarf að liggja miklu lengur í hon- um til þess að það náist almenni- legt bragð. Það er líka slæmt að ekki skuli vera hægt að fá vambir i sláturgerðina. Mér er sagt að það vanti mann skap til að þrífa þær en á árum áður var þetta aldrei vandamál. Mér tókst eftir talsvert umstang að útvega mér vambir síðastliðið haust þannig að mitt slátur er enn hefðbundið. Ég er ekki viss um að svínagamimar eigi eftir að reyn- ast eins vel og vambimar," segir Þóra. Þjóðlegir siðir hafa ætíð verið í heiðri hafðir á heimili Þóm en skyldi vera eitthvað sem Vestfirð- ingar geta einir státað af? „Mér dettur helst í hug magállinn sem er frekar óalgengur annars staðar á landinu. Vestfirski magállinn er hreinasta lostæti og ég kemst ekki í jólaskap fyrr en hann er tilbúinn." Þóra Þórðardóttir hefur allan sinn búskap útbúið súrmat fyrir heimilið Fastheldin á hefðir Þorrablót Súgfirðinga er stærsti viðburður vetrarins. Það voru kvenfélagskonur í Ársól sem héldu fyrsta þorrablótið árið 1936 og ári síðar héldu karlar upp á góuna með góufagnaði og hefur þessi skemmtilegi siðm- haldist æ síðan. „Það er alltaf fjölmennt á þorra- blótinu, í kringum 150 manns. Við emm afar fastheldin á hefðir í sambandi við þorrablótið. Til dæmis á hver fjölskylda sitt eigið borð og þegar ég giftist hingaö inn á eyrina var mér fengið sæti við borð tengdafólksins og þar hef ég setið síðan. Þorrablótið Úfgar mjög upp á skammdegið og ekki er verra að hugsa til þess að karlam- ir sjá um það í ár þannig að við konumar þurfum engar áhyggjur að hafa,“ segir Þóra Þórðardóttir. -aþ Hallgerður Gísladóttir safnvörður: Þótti púkó að pukrast með slátur Þióðleg matar þorran Þorrinn er genginn í garð og súrmeti víða á borðum. Þorramaturinn virðist langtfrá því að vera á undanhaldi og æ fleiri sem líta á hann sem skemmti- lega tilbreytingu í mataræðinu. Flest- ir láta sér nægja að kaupa þorramat- inn í næstu búð en þeir eru líka til sem af fyrirhyggju leggja í súr á haustin. Tilveran kannaði hver gald- urinn er á bak við góðan súrmat. Jón Stefánsson gerir meira en að útbúa sinn eigin súrmat því á háaloftinu hjá hon- um er að finna reykt svínalæri og skerpukjöt að færeyskum sið. DV-mynd E.ÓI. Ján Stefánsson organleikari: Margir vilja meina að hvergi sé nú til dags hægt að fá eins góðan súrmat og kom upp úr vel lager- aðri sým í gamla daga. Hér var hún notuð til að krydda súpur og grauta, menn spáðu í veöur eftir ólgunni í sýmtunnunum og það vom gerðir gigtarbakstrar með gamalli sým, svo að dæmi séu nefnd," segir Hallgerður Gísla- dóttir, safiivörður í þjóðháttadeild Þjóðminjasafhsins. Hallgerður þekkir vel til ís- lenskrar matarmenningar og seg- ir geymslueiginleika sýrunnar lengi hafa verið þekkta hér á landi. „Þessari aöferð svipar auö- vitað til ediknotkunar í löndunum í kringum okkur. Örverur sem skemma mat þola illa súrt um- hverfi og þegar sýran er orðin sterk verður þeim ekki vært. Að- ferðin er þekkt frá miðöldum og hefúr líklega þróast vegna viðvar- andi saltleysis hér á landi. Norð- menn þekktu þessa geymslueigin- leika mjólkursýrunnar þótt þeir væm litið nýttir þar. Þeir áttu hins vegar greiðan aðgang að salti og þar var nægur eldiviður til að sjóða salt úr sjó. Ef til vill á lofts- lagið hér og íslensku torfhúsin þátt í þvi að auðvelda langtíma- geymslu af þessu tagi en til að súr- matur þrífist vel þarf góðar kald- ar geymslur. Norsku timburhúsin héldu ekki eins jöfnum hita og torfbæimir," segir Hallgerður. Út úr skápnum Súrmaturinn er hollur að mati Hallgerðar. „Víð geymslu i súr rýmar orkugildi fæðutegunda nokkuð, fita glatast en súrmetið tekur í sig kalk úr mjólkursýrunni og sömuleiðis eykst B-vítamín- magnið, Súrmatur ætti því að vera hollur konum sem komnar era á beinþynningaraldurinn. Þá fer súrmaturinn einkar vel í maga og í honum era meltingarvinsamlegir gerlar. Menn hafa fengið mikið kalk af því að eta til dæmis sviða- og fiskbein upp úr sýru eins og al- gengt var í gamla daga.“ Aðspurð hvort súrmaturinn muni halda velli um ókomna fram- tíð segir Hallgerður: „Ég minnist þess að hafa rekist á það í heimild- um þjóðháttadeildar að á sjötta áratugnum, þegar veitingahúsin voru að viðurkenna „þorramat- inn“ og taka hann upp á sína arma, hafi þjóðlegur matur þótt svo púkó að „finar frúr í Reykja- vík hafi farið hjá sér ef þær vom staðnar að því að vera að pukrast meö slátur". Viðhorfið er dálítið svona gagnvart súrmatnum núna en ég veit að það er fúllt af fólki úti um allt land sem vildi gjaman koma út úr skápnum með þetta, “ segir Hallgerður -aþ Hallgerður segir engan vafa leika á því að súrmatur- inn sé hollur og þá einkum kon- um á beinþynn- ingaraldrl. DV-mynd E.ÓI. m Meinhollur og afbragðsgóður matur Ég borða súrmat á hverjum degi árið um kring. Þorrinn er því ekki mjög frábmgðinn hjá mér þótt auðvitað borði maður meira en alla jafna. Ég ólst upp við súrmat sem er auðvitað meinhollur og afbragðs- góður matur," segir Jón Stefánsson, organleikari í Langholtskirkju. Jón er mikill matmaður og háa- loftið á heimili hans er orðið frægt. „Við fluttum í þetta hús fyrir átta árum og ég hóf strax að þurrka og verka kjöt á loftinu. Þetta er matar- kista heimilisins og lítil hætta á aö við verðum matarlaus," segir Jón. Algjört sælgæti Jón útbýr sinn súrmat sjálfur og geymir hann í 80 lítra tunnu. „Við tökum alltaf slátur og síðan setjrnn við lundabagga, hrútspunga og fleira í súr. Þrír mánuðir era al- gjört lágmark ef maturinn á verða vel súr. Það er galli á súrmatnum sem fólk kaupir tilbúinn að hann er langt frá því að vera nógu súr. Ef til dæmis hrútspungar em ekki orðnir almennilega súrir geta þeir beinlinis verið vondir," segir Jón. Greinilegt er að þjóðlegur matur er í miklu uppáhaldi hjá Jóni. Að- spurður um hvað honum þyki lang- best að borða stendur ekki á svar- inu: „Sviðalappir em algjört sæl- gæti en því miður er svo erfitt að fá þær. Armars er allur þessi matur góöur ef hann er rétt verkaður." Unga fólkið í fjölskyldu Jóns borðar margt súrmatinn af bestu lyst en Jón segir mikilvægt að fólk alist upp við slíkan mat og borði hann oft. „Það þýðir ekkert að bjóða krökkum súrmat einu sinni á ári, þá finnst þeim bragðið skrýtið og jafn- vel vont. Það er ekkert öðmvísi með súrmatinn en annan bragðsterkan mat, fólk lærir ekki að meta hann nema borða hann reglulega," segir Jón Stefánsson organleikari. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.