Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Síða 19
18
ÞRHXFUDAGUR 26. JANÚAR
Iþróttir
Þórður Lárusson er tekinn við
kvennalandsliðinu í knatt-
spyrnu.
Knattspyrna:
Þórður
þjálfar
kvennaliðið
Þórður Lárusson hefur verið
ráðinn þjálfari kvennalandsliðs
íslands í knattspyrnu til tveggja
ára og mun hann einnig stjóma
21-árs landsliði kvenna.
Þórður þjálfaði síðast karlalið
Stjömunnar árin 1995 til 1997 en
hann þjálfaði drengjalandsliðið á
ámnum 1990 til 1993. Þórður tek-
ur við af Vöndu Sigurgeirsdóttur
sem er tekin við liöi KR.
Frímann fræöslustjóri KSÍ
Þá hefur Frímann Ari Ferdin-
andsson verið ráðinn fræðslu-
stjóri KSÍ í staö Gústafs Bjöms-
sonar sem hefur verið ráðinn
þjálfari hjá úrvalsdeildarliði
Fram.
-VS
Skammtímasamningurinn viö Bolton rennur út 17. mars:
Stefnan tekin heim
- segir Birkir Kristinsson landsliösmarkvörður
„Ég hef haft mjög gott af veranni
hjá Bolton. Hér æfir maður við topp-
aðstæður á grasi á degi hverjum og
þjálfunin er fyrsta flokks. Það er
miklu betra fyrir mig að vera hér en
heima, þar verður ekki komist á gras
fyrr en í byrjun mai,“ sagði Birkir
Kristinsson landsliðsmarkvörður í
samtali við DV í gær.
Birkir gerði eins og kunnugt er
skammtímasamning við Bolton fyrir
áramót en á þeim tíma var félagið i
vandræðum vegna meiðsla tveggja
markvarða. Þetta vora þeir Keith
Branagan og Gavin Ward en þeir áttu
báðir við nárameiðsl að stríða og
gengu undir uppskurð af þeim sök-
um. Þeir era smám saman að koma
til. Finnskur markvörður hefur varið
mark Bolton og Birkir er varamark-
vörður.
Birkir hefur ekki fengið tækifæri
með aðalliðinu en leikið einu sinni
með varaliðinu.
Birkir gerði samning við Bolton til
17. mars og eins og staðan er i dag
kemur hann heim þegar þeim tíma
lýkur.
„Ef ekkert breytist þá verður stefn-
an tekin heim eftir 17. mars. Það setti
auðvitað strik í reikninginn að fara
til Bolton varðandi með hvaða félagi
ég myndi leika heima á íslandi næsta
sumar. Nú þarf ég að fara að huga að
þeim málum á nýjan leik,“ sagði
Birkir en Fram og ÍBV vora á eftir
honum áður Bolton kom inn í dæm-
ið.
Birkir átti von á því að taka þátt í
æfingaleik með varaliðinu gegn Nott-
ingham Forest á fímmtudaginn kem-
ur. Aðalliðið á síðan heimaleik í
deildakeppninni gegn Norwich á
laugardaginn.
-JKS
Sigurður Jónsson hjá Dundee United:
stöðuna í vor
áá
Sigurður
Jónsson, fyr-
irliði ís-
lenska lands-
liðsins í
knattspymu,
hefur náð sér
af meiðslum
í hásin og
leikur að
öllum líkind-
um með
lundee United gegn Dunfermline
>egar úrvalsdeildin hefst að nýju
iðafloknu vetrarfríi sem haldið var í
ýrsta skipti. Staða liðsins er slæm
)g ljóst að tíminn fram að vori verð-
ír erfiður.
„Það er mjög mikilvægt fyrir liðið
að vinna heimaleikinn á laugardag-
inn. Sem lið höfum við ekki náð að
stilla strengina saman. Liðið er fullt
af góðum einstaklingum en það er
bara ekki nóg. Það er óljóst hvað ég
geri þegar tímabilinu lýkur í vor en
ég er með samning út þetta tímabil
og einnig það næsta. Það eru breyt-
ingar fýrirsjáanlegar, leikmenn að
koma og aðrir á förum. Ég ætla að
sjá hugmyndir framkvæmdastjórans
eftir tímabilið og meta síðan stöð-
una. Ef ekki verður not fyrir mig
nenni ég ekki að vera hér áfram,“
sagði Sigurður Jónsson i samtali við
DV í gær.
Dundee Unitd notaði fríið m.a. til
æflngaferðar til Orlando og sagði
Sigurður það hafa verið góð ferö.
„Ég held að menn hefðu viljað
meira frí en þetta. Vegna þess hve
veðrið var vont tókst okkur einungis
að æfa 3-4 sinnum á grasi allan des-
ember. Síðustu dagana hefur veðrið
verið leiðinlegt, rigningar og frost,
og hafa æfíngar á grasi stundum fall-
ið niður. Menn sjá jafnvel fýrir sér
tveggja mánaða frí í desember og
janúar og byrja þá tímabilið í júlí.
Vellimir sumir hverjir eru illa fam-
ir en þeir era ekki margir upphitað-
ir. Völlurinn hjá okkur er þó búinn
þannig búnaði," sagði Sigurður
Jónsson.
-JKS
West Ham klúbburinn á íslandi
efnir til hópferðar til London sem
standa mun frá 25.-28. febrúar. Far-
ið verður m.a. á æflngu hjá félag-
inu þar sem klúbburinn mim af-
henda þeim leikmanni viðurkenn-
ingu sem kjörinn var leikmaður
ársins 1998. Síðan verður farin
skoðunarferð á Upton Park og
horft á liðið í leik gegn Blackbum í
úrvalsdeildinni. Á sunnudeginum
verður möguleiki að fara á leik
Chelsea og Liverpool. Verð til fé-
lagsmanna er 43.900 en aimennt
verð er 46.000. Nánari upplýsingar
hjá ÍT-ferðum.
Marko Viduka, sem allt hefur snú-
ist um á íþróttasíðum skoskra
blaða siðustu vikurnar, mætti á
sína fyrstu æfingu hjá Celtic í gær.
Viduka var keyptur til Celtic í lok
nóvember en af persónulegum
ástæðum hefur hann ekki mætt
fyrr en núna.
Skoska A-deildar liðið Aberdeen
keypti í gær Þjóðverjann Andreas
Mayer frá norska félaginu Rosen-
borg. Aberdeen greiddi 25 milljónir
fyrir leikmanninn sem er 26 ára
gamail miðjumaður.
Aron Kristjánsson átti stórleik
fyrir lið Skjern í dönsku A-deild-
inni í handknattleik í fyrrdag.
Aron skoraði 6 mörk og fiskaði 3
vítaköst þegar Skjem komst á topp
deildarinnar með því að leggja
Ajax, 33-25.
Arngrimur Arnarson knatt-
spymumaður er genginn í raðir úr-
valsdeildarliðs Fram og gerði 3ja
ára samning við Safamýrarliöið í
gær. Amgrímur, sem er 20 ára
gamall, hefur leikið allan sinn feril
með Völsungi á Húsavík og verið
mjög iðinn við markaskorun. Hann
skoraði 11 mörk fyrir Völsung i 2.
deildinni í sumar. Þá hefur Am-
grímur leikið bæði með U-16 og U-
18 ára unglingalandsliðunum.
Alan Giresse var i gær ráðinn
þjálfari hjá franska knattspymulið-
inu Tolouse í stað Guyla Combe
sem fékk reisupassann eftir að lið-
ið var slegið út úr bikarnum af
áhugamannaliðinu Jura Sud Foot.
-JKS/GH
Spillingin innan ólympíuhreyfingarinnar heldur áfram:
Sydney fékk leikana
eftir mútugreiöslur
- Ástralir og Kínverjar ekki barnanna bestir
Því fer víðs fjarri að hneykslismálum innan
Alþjóða ólympíunefndarinnar linni. Þvert á
móti vex villimennskan sem aldrei fyrr og
daglega og oft á dag berast staðfestar fréttir
utan úr heimi þar sem flett er ofan af siðspillt-
um meðlimum IOC eða ólympíunefnda ein-
stakra landa. Ólympíuleikamir fara fram á
næsta ári í Sydney í Ástralíu. Nú er komið í
ljós að Ástralir notuðu svik og pretti til að
verða sér úti um leikana eins og öragglega
flestir ef ekki allir aðrir.
Peningagreiðslur Ástrala
Forseti ólympíunefndarinnar í Ástralíu,
John Coates, hefur nú viðurkennt að kvöldið
áður en atkvæði voru greidd um það á fundi
IOC hvar leikamir færu fram áriö 2000, hefði
hann lofað tveimur fulltrúum í IOC beinum
peningagreiðslum, 2,5 milljónum króna hvor-
um, og myndu peningamir renna til ólympíu-
nefnda í viðkomandi löndum.
Sydney og Peking börðust mjög hart um að
fá að halda leikana á næsta ári. Sydney hafði
betur en það munaði aðeins tveimur atkvæð-
um þegar upp var staðiö, 45-43.
Kínverjar greiddu fyrir hraðbraut í
Malí
í dag þegar ræflldómur Ástralanna liggur
fyrir era Kínverjar æfir. Þeir kepptust við það
í gær að senda frá sér sverar yfirlýsingar, for-
dæma fulltrúa áströlsku ólympiunefhdarinn-
ar og einnig kröfðust þeir afsagnar út og suð-
ur. En Kínverjar era ekki bamanna bestir.
Juan Antonlo Samaranch forseti Alþjóða
ólympíunefndarinnar var aumkunarverður á
blaðamannafundinum í fyrradag og ekkert
bendir til að hann ætli að víkja úr starfi forseta
þrátt fyrir háværar kröfur. Reuter
Umræddur Coates var á ferð í Malí árið 1993.
Þá þóttist hann skynja að Ólympíuleikarnir
2000 væra að renna Áströlum úr greipum.
Honum var ljóst að Kínverjar vora að sækja í
sig veðrið. Þegar Coates var ekiö frá flugvell-
inum og til höfuðborgarinnar var honum tjáð
að kinversk yfirvöld greiddu fýrir allar fram-
kvæmdimEir við hraðbrautina. Þess má geta
að fulltrúi Malí í IOC var einn þeirra sem for-
seti nefndarinnar „tók af lífi“ á blaðamanna-
fundinum um liðna helgi. Þannig er staðan
innan ólympíuhreyfingarinnar. Það væri
hægt að skrifa margar blaðsíður um hneyksl-
ismál tengd hreyfingunni, liggur við daglega.
Slíkt syndaflóð hefur ekki skollið fyrr á
íþróttahreyfingunni um heim allan og þess
verður langt að bíða að ólympíuhreyfingin nái
að krafla sig út úr þeim ógöngum sem siðlaus-
ir áhrifamenn hafa sökkt henni í.
Aumkunarverður forseti
Juan Antonio Samaranch, forseti IOC, var
aumkunarverður á blaðamannafundinum um
síðustu helgi. Þar reyndi hann að venju að
hvítþvo sjálfan sig og nær alla alþjóðlegu
nefndina. Aðeins sex svörtum sauðum skyldi
fómað og það tímabundið. Eitt stærsta „batt-
eríið“ i íþróttahreyfingu heimsins er auðvitað
lamað og laust við alla virðingu með slíkan
mann í forsæti. Það var fullyrt í erlendum
fjölmiðlum í gær að Samaranch sjálfur væri á
kafi í spillingu og hefði margoft þegið mútur.
Hann hefiir sjálfur viðurkennt að hafa þver-
brotið reglur IOC. Og einhverra hluta vegna
era það vopn í öllum tilfellum sem hann hef-
ur viðurkennt að hafa þegið sem gjafir frá
hinum og þessum aðilum. Fyrst vora það for-
láta byssur í Bandaríkjunum og siðan tæplega
milljón krónu sverð í Japan.
Öll nefndin ætti að segja af sér
Þessi sami forseti IOC kemur síðan fram á
blaðamannafundi og biður íþróttamenn um
víða veröld afsökunar á framferði sex manna
í nefndinni. Samaranch á að segja af sér og
það sem fyrst. í raun ætti öll nefndin að segja
af sér, hver einasti maður. Það er eina leiðin
sem fær er út úr þessu hyldýpi siðleysis sem
nefhdin er sokkin í. Vera má að forráðamenn
IOC vonist til þess að yfirklórið síðustu daga
nægi til að koma IOC til vegs og virðingar á
ný en því fer fjarri. Fjölmiðlar um allan heim
era á fullri ferð að rannsaka spillinguna og
daglega líta nýjar fréttir dagsins ljós. Salt
Láke City einn daginn, Nagano annan daginn,
og Sydney þriðja daginn.
IOC rannsakar IOC
Eitt það alvarlegasta í þessu máli öllu sam-
an er að IOC hefur ákveðið að láta sína eigin
menn rannsaka spillinguna. Á þetta var bent
í DV á dögunum. Nokkrir aðilar era að rann-
saka málið en forráðamenn IOC með Samar-
Emch i broddi fylkingar ákváðu að skipa sína
eigin menn í rannsóknina og hunsa aðrar
rannsóknir. Fróðlegt verður að fýlgjast með
niðurstöðunni hjá öðram rannsóknaraðilum.
-SK
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999
23
Friðrik Ragnarsson, fyrirliði Njarðvíkinga, þurfti að fylgjast með sínum mönnum af
varamannabekknum síðustu mínúturnar en hann fór af velli með 5 villur.
Bikarkeppnin í körfuknattleik:
Draumaleikur
- Njarðvík lagði Hauka og mætir Keflavík í úrslitum
„Markmiðið var að vinna leikinn og
komast í Höllina og ég er ánægður með
að það tókst en engu að síður vorum við
næstum búnir að kasta frá okkur sigrin-
um þegar við fóram að gera einhverja
óskiljanlega hluti í seinni hálfleik. Við
spiluðum fyrri háifleikimi mjög vel og
vorum að framkvæma hlutina mjög vel
en svo í seinni háifleik byrjum við að
bulla og þá sérstaklega í sókninni," sagði
Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvík-
inga, eftir sigur í framlengingu á Hauk-
um í bikarkeppni KKÍ í Njarðvík í gær-
kvöldi. Staðan eftir venjulegan leiktíma
var 74-74 en lokatölur urðu 91-84.
Haukamir ætluðu greinilega að selja
sig dýrt í þessum leik og blása á allt tal
spekinga um öraggan sigur Njarðvík-
inga. Þeir börðust vel í byrjun og áttu í
fullu tré við heimamenn. Njarðvík virt-
ist þó vera sterkara liðið og náði yfir-
höndinni í leiknum um miðjan fyrri
hálfleik og var komin með 18 stiga for-
skot þegar fyrri háifleik var lokið, 51-33.
Hairstone fór hamförum
Haukamir vora ekki hættir þrátt fyr-
ir að staðan væri ekki árennileg og
mættu ákveðnir til seinni hálfleiks. Þeir
smásöxuðu á forskot heimamanna og
Roy Hairston, erlendi leikmaðurinn
þeirra, fór hamforam og skoraði grimmt.
Þegar 5 mínútur vora eftir af venjuleg-
um leiktíma voru Haukamir óvænt
komnir yfir, 68-70, og Friðrik Ragnars-
son og nafni hans Stefánsson báðir fam-
ir út af með 5 villur. Haukar komast yfir,
72-74, með körfu frá Roy Hairston þegar
rétt rúm mínúta var eftir af venjulegum
leiktíma og Teitur jafhaði stuttu seinna.
Haukamir nýttu ekki sína sókn og
Njarðvíkingar fengu síðasta skotið en
Brenton Birmingham hitti ekki úr
þröngu færi. Þar með varð að grípa til
framlengingar og þar reyndist reynsla
Njarðvíkur meiri og tryggði sér þar með
réttinn til að spila til úrslita við granna
sína í Keflavík um Bikarinn eftirsótta.
„Maður fer nú að setjast niður fljót-
lega og fara yfir bikarúrslitaleikinn en
þessi lið þekkja hvort annað mjög vel.
Þetta era bestu liðin á landinu í dag og
þetta verður alvöruleikur," sagði Frið-
rik um bikarúrslitaleikinn við Keflavík.
2-8, 10-10, 18-16, 27-19, 36-25, 42-28, 49-28,
(51-33), 55-37, 5844, 58-53, 65-53, 65-62, 70-70,
72-74, (74-74), 77-77, 82-77, 82-77, 82-82, 86-84,
91-84.
Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 33,
Páll Kristinsson 14, Teitur Örlygsson 13, Her-
mann Hauksson 11, Friðrik Stefánsson 8, Frið-
rik Ragnarsson 5, örvar Kristjánsson 5, Guð-
jón Gylfason 3.
Stig Hauka: Roy Hairston 41, Ingvar Guð-
jónsson 13, Bragi Magnússon 12, Jón Amar
Ingvarsson 8, Daniel Ámason 8, Sigfús Gizzur-
arson 2.
Víti: Njarðvík 23/28, Haukar 11/22
3ja stiga.' Njarðvík 5/18 Haukar 4/13
Fráköst- Njarðvik 28, Haukar 32
-BG
íþróttir
Viggó Sigurðsson settur af sem þjálfari Wuppertal:
Verð ekki lengi
atvinnulaus
Þjálfaraskipti urðu hjá þýska
handknattleiksliðinu Wuppertal í
gær. Viggó Sigurðsson fékk að taka
pokann sinn og Stefan Schöne, leik-
maður liðsins, var ráðinn í hans
stað. Þessi tíðindi þurfa svo sem
ekki að koma á óvart. Wuppertal
hefur gengið allt í óhag á síðustu
vikum og á sunnudaginn tapaði lið-
ið sjötta leik sínum í röð þegar það
beið lægri hlut fyrir Magdeburg. í
síðustu viku sagði Viggó í samtali
við DV að honum kæmi ekki á
óvart þó honum yrði vikið úr starfi
enda fengi þjálfarinn oftast að súpa
seyðið af slöku gengi.
Gekk vel framan af vetri
Wuppertal gekk mjög vel fram-
an af vetri eða fram til 30. desem-
ber. Liðið var þá í 8. sæti deildar-
innar og mjög nálægt efstu liðum.
Síðan hefur allt gengið á afturfót-
unum og hver tapleikurinn á fætur
öðrum hefur litið dagsins ljós.
Viggó tók við liðinu þegar það
lék í B-deildinni árið 1997. Hann
kom því upp í efstu deild í fyrsta
skipti i 15 ár á sínu fýrsta ári sem
þjálfari og á síðasta tímabili hafn-
aði það í 8. sæti deildarinnar. Sá
árangur vakti mikla athygli enda
frábær árangur nýliða í deildinni.
Viggó var með samning við Wupp-
ertal fram til júní árið 2000 og fé-
lagið mun því þurfa að greiða hon-
um laun fram til þess tíma.
Get verið stoltur af
árangrinum
„Það má segja að þetta hafi legið
í loftinu. Ég er settur í frí til að
byrja með, eins og það er kallað, og
þeir tóku þann kostinn að standa
við gerða samninga sem ég er auð-
vitað mjög sáttur við. Á næstu vik-
um mun svo félagið gera starfs-
lokasamning við mig og eftir það er
ég laus allra mála. Ég get veriö
Viggó Sigurðsson er hættur að
þjálfa þýska handknattieiksliðið
Wuppertal.
mjög stoltur af þeim árangri sem
ég náði með þetta lið. Það hefur
enginn þjáifari hjá Wuppertal náð
betri árangri. Rótin að vandamál-
inu er sá, og það er einnig mér að
kenna, að við gerðum of miklar
væntingar til liðsins í byrjun. Þeg-
ar við byrjuðum að spila var mér
ljóst að það var ekki líkt því eins
sterkt og í fyrra og nýju leikmenn-
imir, að Valdimar undanskildum,
hafa bragöist og þá hafa meiðsli
sett strik í reikninginn. Ég vildi
styrkja liðið en mér var tjáð að
ekki væra peningar til þess,“ sagði
Viggó í samtali við DV í gær.
- Ert þú þá á heimleið?
„Ég er svona rétt að melta þetta
en það er alveg öruggt að við verð-
um hér úti til vors. Krakkamir
klára skólann og ég mun sjá til
næstu daga hvað er í boði. Ég hef
ekki trú á að því að ég verði lengi
atvinnulaus. Ég hef skapað mér
það gott nafn og þegar þessar frétt-
ir spyrjast út býst ég við að samn-
ingaviðræður fari af stað. Það era
alla vega fimm þjálfarar í deildinni
í hættu að missa starfið. Ég hefði
ekkert á móti því að slappa aðeins
af í nokkrar vikur. Það er búið að
vera gífurleg pressa á manni að
undanfomu og mikil spilatörn en
ég mundi samt ekki sleppa feitum
bita ef hann byðist," sagði Viggó
-GH
Nýi Kaninn hjá ÍA:
Lék með New Jersey
Nýi bandaríski leikmaðurinn sem körfuknattleiksliö ÍA hefur fengið
til liðs við sig, Kurk Lee, hefur leikið í NBA-deildinni. Hann spilaði meö
New Jersey Nets tímabilið 1990-91 við hliðina á köppum eins og Derrick
Coleman, Mookie Blaylock og Drazen Petrovic.
Lee taldist þó til minni spámanna hjá New Jersey, lék einna minnst af
þeim 14 sem skipuðu leikmannahópinn og skoraði 1,4 stig að meðaltali í
leik.
Lee var aðeins þetta eina tímabil í NBA en hefur lengst af síðan spil-
að með ToPo í Finnlandi. Hann hætti þar um áramót þegar nýir eigend-
ur tóku við félaginu og stokkuðu allt upp. Samt var hann nú um áramót-
in kjörinn besti erlendi leikmaðurinn í Finnlandi af þjálfurum liðanna.
Lee, sem er 31 árs bakvörður, spilar stóra mennina vel uppi og á mik-
iö af stoðsendingum. Hann skoraði 14,7 stig að meöaltali í leik i Finn-
landi fyrir áramótin en hefur skorað meira - gerði t.d. 28 stig að meðal-
tali í leik meö liðinu 1996-97. Hann spilar sinn fyrsta leik með Skaga-
mönnum gegn Haukinn í úrvalsdeildinni á fimmtudagskvöldið. -VS
• Ólafur með
ÍA í sumar?
Svo getur verið að vamarjaxlinn
Ólafur Adolfsson leiki með Akur-
nesingum að nýju í úrvalsdeildinni
í knattspymu í sumar. Hann þjálf-
aði og lék með Tindastóli í 2. deild-
inni síðastliðið sumar en spilaði
með ÍA frá 1991 til 1997.
„Ég hef ekki ýtt þessu út af borð-
inu. Auðvitað dauðlangar mann að
spila með ÍA en það sem getur kom-
ið í veg fýrir það er atvinna mín.
Það hefur gengið illa fýrir liðið að
brúa bilið og það togar í mann að
koma aftur,“ sagði Ólafur við DV í
gær.
Ólafur er 31 árs gamall og hefur
leikið 99 leiki fyrir ÍA í efstu deild.
Hann varð fimm sinnum íslands-
meistari með Skagamönnum og
frammistaða hans í vörn ÍA gerði
það að verkum að hann vann sér
sæti í íslenska landsliðinu þar sem
hann lék 21 leik.
Bland í noka
Hanna Dögg Maronsdóttir frá
Ólafsfirði og Baldur Ingvarsson írá
Akureyri sigruðu í flokkum fullorð-
inna á Þðrsmótinu í skíðagöngu sem
haldið var í Hlíðaiflalli á laugardag-
inn. Jón Konráðsson frá Ólafsfirði
sigraði í flokki karla 3549 ára.
Jón Arnar Magnússon tugþrautar-
maður skrifaði um helgina undir
samning við H.P.H. Reebok umboðið
á fslandi og notar því íþróttavörur
frá Reebok. Samingurinn er tvíþætt-
ur, annars vegar stór alþjóðlegur
samningm- við Reebok Intemational
og hins vegar viðaukasamningur við
Reebok-umboðið á fslandi.
Arnór Gunnarsson, sem lék með
Val og síðan Stjörnunni í fyrra, er
genginn til liðs við 1. deildar lið ÍR í
knattspymu.
KA hefur fengið einn leikmann enn
fyrir átökin í 1. deildinni í knatt-
spymu næsta sumar. Það er Róbert
Skarphéóinsson úr Völsungi en
hann hefur áður leikið með KA.
Mart Poom, markvöröur Derby og
eistneska landsliðsins í knattspyrnu,
handarbrotnaði í bikarleik Derby
gegn Swansea á laugardaginn. Hann
veröur frá keppni i nokkrar vikur.
Herrakvöld Fram verður haldið í fé-
lagsheimilinu i Safamýri fostudags-
kvöldið 5. febrúar. Nánari upplýsing-
ar gefur Ágúst Guömundsson t síma
568-0343.
Jónatan Bow og félagar i Edinburgh
Rocks unnu frækinn sigur á Thames
Valley Tigers í bresku A-deildinni i
körfuknattleik á simnudaginn. Þeir
skomðu síöustu 13 stig leiksins og
unnu, 71-69. Edinburgh er í 10. sæti
af 13 liöum en á enn möguleika á sæti
í átta liða úrslitunum. Bow, sem verð-
ur löglegur með íslenska landsliðinu
í vor eða sumar, hefur gert 10,25 stig
að meðaltali í leik og er meö tæplega
40 prósent nýtingu i 3ja stiga skotum,
næstbesta í liðinu.
New York Knicks samdi í gær við
Dennis Scott sem lék bæði með
Phoenix og Dallas i NBA-deildinni í
körfubolta í fyrra en áður lengst af
með Orlando. Þá samdi Miami við
Clarence Weatherspoon sem lék
með Golden State í fyrra.
-VS
-GH
Hæpin vítaspyrna
- bjargaði Chelsea í bikarnum gegn Oxford
Oxford, sem er í þriðja neðsta sæti í B-deild ensku knattspymunar, var
nærri búið að slá Chelsea út úr bikarkeppninni í gærkvöld. Dean Windass
hafði á 52. mínútu komið Oxford yfir en Frank Leboeuf jafnaði úr umdeildri
vítaspymu á lokamínútunni eftir að dómarinn taldi að Gianluca Vialli hefði
verið felldur í teignum. Liðin eigast við að nýju á Stamford Bridge 3. febrú-
ar og það lið sem kemst áfram mætir Sheffield Wednesday í 5. umferð.
-JKS