Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Side 21
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 25 Fréttir Kuldi einkennir samskipti í bæjarstjórn Hveragerðis: Knútur er kominn aftur - samskiptanefnd lögð niður en ekki hægt að afleggja fleiri nefndir Knúts DV, Hveragerði: Það andaði köldu miUi L-lista- manna og eina fuiltrúa D-lista sjálf- stæðismanna, Knúts Bruun, á fyrsta fundi ársins í bæjarstjóm Hvera- gerðis í Foss Hótel Örk fimmtudag- inn 14. janúar sl. Þetta er annar fundurinn sem Knútur sitiu- eftir aö hann hætti afskiptum af stjómmál- um á sínum tíma eftir illvígar deil- ur við félaga sína í Sjálfstæðis- flokknum. Þær deilur urðu til að meirihlutinn klofnaði frá Knúti sem sat einn eftir í minnihluta og dró sig í hlé í framhaldinu. Hann tók við sæti Einars Hákonarsonar þeg- ar hann sagði af sér sl. haust. Á þessum fundi lagði Knútm- fram fimm bókanir, sem vörðuðu flestar fyrri fundargerðir. Hann lagði auk þess fram tvær tillögur, annarri var visað til næsta fundar og hin felld. Knútur sat hjá við atkvæðagreiðslu um fjárhagsáætlun bæjarins, aðallega vegna þess að hon- um höfðu ekki borist umbeðnar upplýsingar um kostnað vegna bæj- arskrifstofu og fleiri mála. Knútur tók sæti Einars Há- konarsonar í þremur nefndum af Knútur Bruun. fiórum. A fundinum var samþykkt að leggja niður sam- skiptanefnd Hvera- gerðis og ölfús- hrepps sem Knútur átti sæti í. Samþykkt var að forseti bæjar- stjórnar og bæjar- stjóri tækju sjálfir aö sér þessi samskipti. Stofnað var til nefnd- arinnar árið 1998 en aldrei hefúr verið haldinn fundur í henni. Aðrar nefndir sem Knútur á sæti í eru lögskipaðar og ekki hægt að leggja þær niður. -eh Þeir voru þreyttir en fegnir slökkviliðsmennirnir tveir sem slökktu eld í versl- unarmiðstöðinni f Mosfellsbæ á föstudagskvöldið. Eldurinn, sem mun hafa kviknað út frá rafmagni, olli ekki miklum skemmdum DV-mynd HH Matthías Sævar Lýðsson bóndi. DV-mynd Guðfinnur Bolungarvík: Bakki hyggst auka vinnsluna í vor Rækjuvinnsla Bákka hf. í Bolung- arvik, sem Nasco hf. í Reykjavík keypti meirihlutann í af Þorbirni hf. í Grindavík sl. haust, hefur nú yfír nægu hráeöii að ráða næstu mánuði. Þannig komu til Bolungar- víkrn- um áramótin 20 gámar með um 400 tonnum af iðnaðarrækju sem unnin verður hjá Bakka. Nasco á nú um 60% í Bakka og hefur aðgang að umtalsverðum veiöileyfum á Flæmingjagrunni. Fær Bakki nú iðnaðarrækju þaðan. Agnar Ebenezerson hjá Bakka segir hráefnið duga vel fram á vor en þá er ráðgert að auka vinnsluna í hús- inu eftir að veiðar á flæmska hattin- um fara að fullu í gang aftur með vorinu. Ástandið hjá rækjuvinnslunni í Bakka er því talsvert ólíkt því sem er hjá flestum rækjuvinnslum á landinu um þessar mundir en ör- deyða hefur verið á flestum rækju- miðum við landið að undanfomu. Búið er m.a. að loka veiðisvæðum frá Grímsey og austur fyrir land og rækjuskip eru nú sem óðast að skipta yfir í grálúðu- eða bolfisk- veiðar. Agnar segir ástandið hjá Bakka vissulega gleðilegt í ljósi þess að í haust hafi útlit rækjuvinnslunnar í Bolungarvík ekki verið bjart. Auk rækjuvinnslunnar er nú veriö að koma í gang á nýjan leik bolfisk- vinnslu hjá fyrirtækinu en hún hef- ur legið niðri síðan í september. Um 60 manns vinna nú hjá Bakka en Agnar áætlar að ráða 15 manns til viðbótar í bolfiskvinnsluna sem verður þá með 20 starfsmenn.-HKr. Grettistaki lyft í menningarmálum: Ummerki byggöar í Kirkju- bólshreppi tölvuskráð Marinó Álfgeir Sigurðsson við eyðibýlið Kot. DV-mynd Guðfinnur DV, Hólmavik: Matthías Sævar Lýðsson, bóndi í Húsavík, og Vignir Öm Pálsson frá Gmnd áttu frumkvæði og beittu sér fyrir að safnað yrði öllum upplýs- ingum um mannvistarleifar í Kirkjubólshreppi, munum og merkj- um sem sjáanleg væra og/eða hægt væri að afla vitneskju um. Nútíma- tækni er síðan notuð til að koma vitneskjunni á aðgengileg form. Ekki síst var haft í huga varðveislu- gildi slíkra heimilda og einnig að sem flestir sem áhuga hefðu, gætu notið upplýsinga sem slík söfnun byði upp á. „Sumarið 1994 skrifuðum við Vignir Öm bréf sem við afhentum öllum ábúendum í sveitinni. Meö bréfinu fylgdi loftmynd af hverri jörð sem við höfðum fengið hjá Landmælingum til að létta fólki vinnuna við að skrá upplýsingar um hvaðeina sem viðkomandi jörð tengdist og þjónaði tilgangi þessa máls,“ segir Matthías. „Búsetulandslagi má skipta í tvo flokka. Annars vegar það sýnilega og má þar nefna tóftir, stekki, naust, mógrafir og vörður sem oft vom t.d. hlaðnar til að sýna eykta- mörk frá bæjum séð. Meðal þess ósýnilega má nefna slægjulönd á engjum og lagnir á sjó bæði fyrir hrognkelsi og svo selalagnir.“ Til munu vera skrár um ömefni allra jarða í Kirkjubólshreppi. Þau verða öll með í þeirri samantekt sem verið er að vinna. „Markmiöið er að við eigendaskipti þar sem fólk er öllu ókunnugt, eða ef byggð leggst af á einhverjum jörðum, þá verði búið að tryggja varðveislu þessara upplýsinga um sögu byggðarinnar frá löngu liðnum tíma, sem nefna má okkar menningararfleifð. “ Með tímanum verða upplýs- ingamar gerðar aðgengilegar fyrir almenning og þá einkum í gegnum tölvu. Matthías segir að þetta sé glettilega mikil vinna og langt í frá að það sjái fyrir endann á henni. „í sumar var imgur náms- maður í vinnu við þetta verk- efni, Marinó Álfgeir Sigurðs- son. Fór hann um hluta sveit- arinnar búinn GPS staðsetn- ingartæki, stafrænni myndavél og tölvu. Hann skráði öll merki mannvistar og búsetu og mynd- aði allt sem myndrænt mátti telja, svo sem tóftir og mó- og smalakofa." Matthías segir að jafn yfir- gripsmikið verk eins og þetta sé augljóslega mjög kostnaðar- samt. „Hingað til hefur stór hluti undirbúningsvinnunnar verið unninn í sjálfboðavinnu. I upphafi kom þó nokkurt framlag úr poka- sjóði Landvemdar, sem þá var og hét, eða 250.000 krónur. í fyrra barst gott ffamlag frá Byggðastofnun, 300.000 krónur, sem við erum mjög þakklát fyrir. Það er þó ljóst aö mun meira fjármagn mun fara í þetta verkefni." -Guðfinnur Leiðrétting frá Jóni Viðari Jónssyni í gær birtist í DV mynd af und- irrituðmn með þremxu- glæsileg- um leikkonum og einum glæsileg- um leikstjóra. Myndin var tekin á ffumsýningu leikritsins Frú Klein í Iðnó sl. sunnudagskvöld. í texta undir myndinni stendur að ég sé aðstoðarleikstjóri sýningarinnar. Mér þykir alveg óskaplega fyrir því að þurfa að bera þetta til baka. Ég var aðeins gestkomandi í bún- ingsklefa þegar myndin var tekin að ósk ljósmyndara DV. Hefði ég þó sannarlega ekki haft neitt á móti því að eiga einhvern hlut að þessari vönduðu sýningu þar sem Margrét Ákadóttir vinnur einn af mestu leiksigrum sínum. En mál- ið er því miður ekki þannig vaxið og þvf bið ég DV vinsamlegast um að koma þessari leiðréttingu á framfæri. Magnús Ingólfsson á stjornmal.is sendibíla SKEIFUNN117 • 108 REYKJfiVÍK SÍMi 581-4515 • FfiX 581-4510

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.