Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 * *{kvikmyndir ** * Stjörnubíó/Laugarásbíó - Stepmom Ekki karlmannsverk ^ Það undrar mig alveg stjórnlaust að Bandaríkja- menn halda áfram að framleiða kvenfjandsamlegar kvennamyndir og að Bandaríkjakonur skuli láta sér slíkt vel líka. Stjúpan er eitt af þessum ofurdramatísku erfiðleika- drömum og sver sig í ætt við vasa- klútamyndina miklu, Terms of Endearment, með smásnerti af Kramer-hjónunum. Skilnaður og sjúkdómar virð- ast vera endalaus uppspretta upp- hafinnar væmni í Hollywood en þetta keyrði ger- samlega um þverbak og var dramað svo sviðsett og ýkt að mér leið alltaf eins og þama væru leikarar í stílæf- ingu fremur en tilraun til að gefa mynd af togstreitu tveggja kvenna um mann og böm. Sagan segir frá Luke (Ed Harris) og Jackie (Susan Sarandon) sem era skilin og nýrri konu Lukes, Isabel (Julia Roberts), sem bömum Lukes og Jackie líkar ekki við. Konumar takast á um bömin og Isabel reynir eins og hún getur til að falla inn í hið fullkomna móðurhlutverk sem hún viðurkennir þó að hcifa engan sérstakan áhuga á. Eins og til þess að tryggja að hún eigi enga undan- komuleið fær Jackie krabbamein. Það var afskaplega áhugavert að sjá hina gamalkunnu hlutverkaskipt- ingu ganga þama aftur, rétt eins og við væram að bíða komu aldamót- anna 1900 en ekki 2000. Því það er að sjálfsögðu Isobel sem verður að fóma frama sínum og ljósmyndara- ferli til þess að hugsa um bömin. Faðirinn er algerlega utangátta, hef- ur alltaf komið sér undan bama- gæslu með vinnu og heldur því hamingjusamlega áfram með nýja konu. Þegar sú gamla getur ekki haldið uppi 24 stunda móðurhlut- verki verður sú nýja bara að taka við - bamagæsla er ekki karlmanns- verk. Þannig geng- ur myndin út á það að ala Isabel upp sem hina full- komnu fómfúsu móður. Eins og vanalega er Sarandon eft- irminnileg í sínu hlutverki en henni virðist alltaf takast að gæða lífi hverja þá þvælu sem hún annars brotlendir í. Roberts er hins vegar hálfutanveltu, eins og hennar hlut- verk reyndar er, og Harris er jafn- ósannfærandi sem heitur elskhugi og faðir. í heildina fannst mér þetta alveg voðaleg mynd og ég vildi helst geta komist í gegnum mitt daglega líf án þess að vita að svona lagað sé framleitt. En ég er líklega í minni- hlutahópi hér því það var ekki þurrt auga i húsinu. Leikstjórn: Chris Columbus. Hand- rit: Gigi Levangie. Aðalhlutverk: Julia Roberts, Susan Sarandon, Ed Harris, Jena Malone, Liam Aiken. Úlfhildur Dagsdóttir Kvikmyn^da GAGNRÝNI Susan Sarandon og Julia Roberts leika mömmuna og stjúpmömmuna. T O P P 2 0 í Bandaríkjunum - aðsókn dagana 22. - 24. Janúar. Tekjur í milljónum dollara og helldartekjur Litlar breytingar Þaö var ekki mikið um frumsýningar á nýjum kvikmyndum um síöustu helgi í Bandaríkjunum. Eina myndin sem vakti forvitni var Gloria sem er endurgerö þekktrar kvikmyndar John Cassavettes frá áttunda áratugnum. Þrátt fyrir aö Sharon Stone væri í titilhlutverkinu þá var aösókn mjög lítil og náöi hún ekki aö komast nema I fimmtánda sætiö. Engar breytingar eru á efstu sætum listans, I efsta sæti situr Varsity Blues, sem er enn ein gamanmyndin um fót- boltastrák sem gerir það gott. Stutt er síðan önnur slík, The Waterboy, náöi mik- illi aösókn. Golden Globe-veröláunin voru veitt um síöustu helgi og þar kom mik- iö viö sögu Shakespeare in Love, sem enn heldur sínu striki og er meðal efstu kvikmynda á listanum. +IK Robin Williams í Patch Adams en hún skreiö yfir 100 milljón dollarana í vikunni. Tekjur Heildartekjur 1. (1) Varsity Blues 10.574 30.757 2. (2) Patch Adams 8.101 108.588 3. (3) A Civll Action 7.648 40.786 4. (4) The Thin Red Line 5.794 22.313 5. (6) Stepmon 5.145 78.556 6. (5) At First Sight 4.787 14.553 7.(7) You've Got Mail 4.112 104.139 8. (8) The Prince of Egypt 3.926 87.327 9. (10) Shakespeare in Love 3.629 25.882 10. (-) A Simple Plan 3.422 7.070 11. (9) Vlrus 3.012 10.014 12. (13) A Bug's Life 2.720 151.734 13. (11) In Dreams 2.700 8.161 14. (12) Mighty Joe Young 2.575 43.401 15. (-) Glorla 2.143 2.143 16. (16) Waking Ned Devine 1.862 14.675 17 - (-) Playing by Heart 1.529 1.577 18. (16) Enemy of the State 1.205 106.000 19. (14) The Faculty 1.059 36.710 20. (19) Life Is Beautiful 1.055 15.836 Robert DeNiro leikur mikinn harðjaxl sem er fyrrum leyniþjónustumaður. Bíóborgin - Ronin Allir gegn öllum John Frankenheimer hefúr ekki átt erindi sem erflði i siðustu kvikmyndum sín- um og hefúr því meira og meira snúið sér aftur að sjónvarpinu og náð þar að gera nokkrar ágætar myndir. Hann fær nokkra upp- reisn æm í Ronin, virkilega skemmtilegri og spennandi kvik- mynd þar sem Frankenheimer er á heimaslóðum og sýnir að hann hefur engu gleymt í gerð samsær- ismynda. Þá sýnir hann ekki síður að hann er enn einn fárra sem kunna að setja á svið almennileg- an bílaakstur í stórborg. í byrjun fylgjumst við með þeg- ar hópur fyrrum leyniþjónustu- manna, sem hver kemur frá sínu landi, hittist í París. Ástæðan er freistandi peningatilboð sem fylgir verkefni sem ekki virðist svo flók- ið á yfirborðinu. Þeir eiga að ræna vel varinni skjalatösku sem inni- heldur eitthvað sem sá sem hefur ráðið þá verður að fá í sínar hend- in. Hver það er sem ræður hópinn og hvað það er sem í töskunni er liggur ekki á lausu og hópurinn, með amerískan málaliða Sam (Ro- bert DeNiro), í forsvari veröur því að reiða sig á orð Deirdre (Natashca McElhone) sem er milli- göngumaður, auk þess sem hún er Kvikmynda GAGNRÝNI þátttakandi í ráninu. Fyrsta til- raun til að ræna töskunni mistekst og eftir það ræður vantraust ríkj- um í hópnum, enda eru ein- staklingamir hver og einn hörku- tól og vanir því að treysta ein- göngu á sjálfa sig. Það á lika eftir að koma í ljós að þaö er ömggasta aðferðin ef þeir vilja halda lífi. Það er margt sem gerir Ronin að góðri afþreyingu en hún er einnig nokkuð tæp á svellinu í sumum at- riðum. Til að mynda era i mynd- inni einhver flottustu bílaeltingar- leikatriði sem lengi hafa sést og liggur við að fari um mann við að horfa á öll ósköpin. Þá er leikara- hópurinn sterkur, með Robert DeNiro í hörkuformi, og loks bera að geta þess að þrátt fyrir ýmsa vankanta i handriti gengur þessi flókna atburðarás að mestu leyti upp og dettur ekki niður í lokin eins og oft vill verða. Endirinn er því mjög góður þegar miðað er við vandaræðaganginn inn á milli. Ronin er því hin besta skemmtun fyrir spennufíkla og gaman að sjá að Frankenheimer kann enn tökin þegar hann fær réttu verkefnin. Leikstjóri: John Frankenheimer. Handrit: J.D. Zeik og Richard Weisz. Kvikmyndataka: Robert Fraisse. Tónlist: Elia Cmiral. Að- alleikarar: Robert DeNiro, Jean Reno, Natascha McElhone, Stell- an Skarsgárd og Michael Lons- dale. Hilmar Karlsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.