Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Side 28
32
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999
Sviðsljós
Unglingar áreittu
Pamelu Anderson
í Úrúgvaí
Fyrrverandi strandgellan
Pamela Anderson fór á dögunum
í fússi frá Úrúgvaí. Þangað haföi
hún komið til að leika í auglýs-
ingamynd um sólaráburð. Henni
hafði einnig verið boðið aö vera
gestur I sjónvarpsþætti í Brasilíu.
Vandræðin hófúst á fundi með
fréttamönnum á strönd í Úrúgvaí.
Á fundinum gerðu unglingar hróp
að Pamelu sem var léttklædd. Og
þegar blaðamaður spurði hana
um myndbandið fræga með henni
og eiginmanninum fyrrverandi,
Tommy Lee, sagðist hún vera að
hugsa um að halda heim. Seinna
umkringdu unglingamir Pamelu,
hrópuðu klúryrði að henni og
reyndu að káfa á henni.
Kate Winslet
hefndi sín á
skólasystur
Titanicstjarnan Kate Winslet
lét gamla skólasystur heyra það
nýlega. „Þú ert tæfa. Þú gerðir líf
mitt að helvíti," sagði Kate við
skólasystur sem starfar í snyrti-
vörudeild í vöruhúsi. Kate var í
verslunarleiðangri með mömmu
sinni þegar hún sá skólasysturina
sem hafði tekið þátt í að gera
henni lifið leitt og meðal annars
kallað hana „fitubollu". Kate og
afgreiðslustúlkan höfðu verið
saman í leiklistarskólanum
Redroofs Theatre School í Berks-
hire í Englandi. „Ætlaðir þú ekki
að verða fyrirsæta eða dansari. Af
hverju ertu þá bak við búðar-
borö?“ hæddist Kate að skólasyst-
urinni. Kate segist hafa tekið þá
ákvörðun að láta eineltið ekki
buga sig heldur styrkja sig.
Sonur Peters Sellers slúðrar um föður sinn:
prinsessunnar
Kvikmyndaleikarinn Peter Sell-
ers átti í löngu ástarsambandi við
Margréti prinsessu, systur Elísabet-
ar Englandsdrottningar, snemma á
áttunda áratugnum. Margrét var þá
enn gift Snowdon lávarði. Breska
blaðið News of The World hefur það
eftir syni Peters, Michel Sellers,
sem þá var 16 ára, að Peter hafi
sjálfur gortað af sambandinu.
Blaðið segir að söngkonan
Madonna hafi í hyggju að gera kvik-
mynd um ástarsambandið. Robin
Williams er sagður koma til greina
í hlutverk Peters Sellers og Helena
Bonham Carter í hlutverk
prinsessunnar.
Peter Sellers, sem meðal annars
er þekktur fyrir leik sinni í kvik-
myndunum um Bleika pardusinn,
var margkvæntur. Ein eiginkvenn-
anna var sænska kvikmyndastjarn-
an Britt Ekland. Samkvæmt frásögn
Michaels Sellers á samband Peters
og Margrétar að hafa hafist eftir
skilnaðinn við Britt.
„Hann sagði að prinsessan hefði
boðið honum til kvöldverðar í Kens-
ingtonhöll. Að máltíðinni lokinni
hefðu þjónarnir dregið sig í hlé og
það var þá sem það gerðist," segir
Peter í viðtalinu.
Peter greinir frá því að faðir sinn
hafi gortað af því að hafa mörgum
sinnum átt ástarstundir með
prinsessunni eftir fyrsta róman-
tíska kvöldverðinn.
Sambandið varði til ársins 1973
þegar Margrét tók upp samband við
garðyrkjumanninn Roddy
Llewellyn. Margrét og Peter endur-
nýjuðu kynni sín 1979 þegar hann
varð alvarlega hjartveikur en þá
einungis sem vinir. Peter lést 1980.
Margrét prinsessa, systir Elísabetar
Englandsdrottingar.
Símamynd Reuter
Michael Jackson
neitar að hjálpa
foreldrunum
Michael Jackson er orðinn
þreyttur á að borga reikningana
fyrir foreldra sína. Hann á að
hafa tilkynnt foreldrunum um
áramótin að hann væri búinn að
hjálpa þeim nóg. Nú yrðu þeir að
standa á eigin fótum.
Foreldramir, Joe og Katharine
Jackson, þénuðu á sinum tíma vel
sem söngvarar en þeim hefur tek-
ist að sólunda mestöllu fé sínu.
Bílasali í Los Angeles er búinn að
sækja til þeirra glæsikerru sem
þau gátu ekki greitt af. Bíllinn
var af gerðinni Rolls Royce Silver
Cloud og var hann dreginn burt á
dráttarvagni frá heimili foreldra
söngvarans á meðan forvitnir ná-
grannar fylgdust spenntir með.
Foreldrar Jackson verða víst að
hætta að lifa um efni fram.
Kvikmyndaleikkonan Gwyneth Paltrow var að vonum ánægð þegar Golden Globes verðlaunin voru afhent á
sunnudagskvöld. Gwyneth var kjörin besta gamanleikkonan fyrir hlutverk sitt í myndinni Shakespeare in Love. Með
Gwyneth á myndinni eru Harvey Weinstien, einn stjórnarmanna Miramax kvikmyndafyrirtækisins, og leikkonan
Cameron Diaz. Jim Carrey var kjörinn besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í The Truman Show og Cate Blanchett var
kjörin besta leikkonan. Hún fékk verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni Elizabeth. Titilinn besti leikstjórinn hlaut Steven
Spielberg fyrir myndina Save Private Ryan. Símamynd Reuter
Cindy Crawford
á von á barni
Ofurfyrirsætan Cindy Craw-
ford á von á bami með eigin-
manninum og veitingahússeig-
andanum Rande Gerber sem hún
giftist í maí í fyrra. Ekki er langt
síðan hjónakornin greindu fjöl-
skyldum sínum gleðitíðindin, að
því er segir í bandaríska blaðinu
USA Today. Cindy og Rande hafa
engan áhuga á að vita fyrirfram
hvers kyns bamið er. Þau ætla
bara að bíða spennt og fagna
frumburðinum þegar þar að kem-
ur. Fyrirsætan hyggst halda
áfram störfum sínum þrátt fyrir
ástandið. Hún ætlar einnig að
halda áfram fyrirsætustörfúnum
eftir að bamið er fætt.
Langur laugardagur í miðborg Reykjavíkur
Kaupmenn, veitingamenn og aörir þjónustuaðilar í miðborginni, athugið.
Næsti lanqi lauqardaqur er 6. febrúar 1999 Augiýsingar þurfa að
* * * berast fyrir kl. 12
Þeim sem vilja tryggja sér pláss fyrir
auglýsingu í DV föstudaginn 5. febrúar 1999
er bent á a& hafa samband vii Sigurb Hannesson
sem fyrst, í síma 550 5728.
iriðjudaginn
2. febrúar 1999
Var ástmaður