Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Síða 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999
Fólk í fréttum________________
Arnbjörg Sveinsdóttir
Ambjörg Sveinsdóttir alþingis-
maður, Austurvegi 30, Seyðisfirði,
fékk mjög afgerandi kosningu í
fyrsta sæti lista sjálfstæðismanna á
Austurlandi og er því fyrsta konan
sem leiðir lista Sjálfstæðisflokksins
í alþingiskosningum.
Starfsferill
Ambjörg fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Seyðisfírði. Hún lauk
stúdentsprófl frá MR 1976 og stund-
aði nám við lagadeild HÍ 1980-82.
Ambjörg stundaði m.a. flsk-
vinnslustörf á námsárunum. Hún
var starfsmaöur afgreiðslu Smyrils
og Eimskips á Seyðisflrði 1975-79 og
kennari við Seyöisfjarðarskóla
1976-77.
Ambjörg flutti til Reykjavíkur
1977 og var þar fufltrúi í launadeild
Ríkispítalanna 1977-80 og stundaði
verslunar- og skrifstofustörf
1980-83. Þau hjónin fluttu síðan aft-
ur til Seyðisfjarðar 1983 og hafa átt
þar heima síðan.
Ambjörg stundaði skrifstofustörf
hjá Fiskvinnslunni hf. og Gullbergi
hf. 1983-90 og var skrifstofu- og fjár-
málastjóri Fiskiðjunnar Dverga-
steins hf. 1990-95.
Ambjörg sat í bæjarstjóm Seyðis-
fjarðar frá 1986-98 og hefur verið al-
þingismaður Austurlands frá 1995.
Ambjörg var formaður bæjarráðs
Seyðisfjarðar annað
hvert ár frá 1986-94,
varaforseti bæjarstjórn-
ar frá 1990 og forseti bæj-
arstjórnar annað hvert
ár frá 1994, sat í skóla-
nefnd, var formaður
menningarmálanefndar
Seyðisfjarðar, sat í af-
mælisnefnd vegna
hundrað ára afmælis
kaupstaðarins, sat í hafn-
arstjórn, var formaöur
héraðsnefndar Múla-
sýslna, sat í stjórn Hér-
aðsskjalasafnsins og í skólanefnd
ME.
Ambjörg hefur setið í félagsmála-
nefnd Alþingis, í menntamálanefnd
og fjárlaganefnd. Hún sat í stjóm
Húsnæðisstofnunar ríkisins frá
1995, í undirbúningsnefnd íbúðar-
lánasjóðs og situr nú í stjóm íbúð-
arlánasjóðs. Þá sat hún í nefnd um
aukinn hlut kvenna í stjórnmálum
á vegum félagsmálaráðuneytisins, í
laganefnd um félagsþjónustu sveit-
arfélaga vegna yfirfærslu málefna
fatlaðra og situr í stýrihópi um jafn-
rétti kynjanna.
Fjölskylda
Arnbjörg giftist 27.12. 1975 Garð-
ari Rúnari Sigurgeirssyni, f. 30.7.
1953, skrifstofustjóra skiltagerðar-
innar Undur og stór-
merki. Hann er sonur Sig-
urgeirs Garðarssonar,
bónda á Staðarhóli í Eyja-
fjarðarsveit, og Brynhild-
ar Rögnu Finnsdóttur
húsfreyju.
Börn Arnbjargar og Garð-
ars Rúnars era Guðrún
Ragna, f. 13.6. 1976, skrif-
stofumaður í Reykjavík
en sambýlismaður henn-
ar er Jón Valur Sigurðs-
son, starfsmaður hjá SÍF í
Hafnarfirði; Brynhildur
Bertha, f. 15.5. 1980, nemi.
Systkini Ambjargar era Bjöm, f.
5.1. 1950, skrifstofumaður í Reykja-
vík;Ámý Sigríður, f. 18.11. 1958,
landfræðingur, búsett í Kópavogi;
Bóthildur, f. 15.11. 1960, endurskoð-
andi í Reykjavík.
Foreldrar Arnbjargar; Sveinn
Guðmundsson, f. 25.11.1922, d. 13.10.
1995, síldarsaltandi og fram-
kvæmdastjóri Strandarinnar á
Seyðisfirði, og k.h., Guðrún Björns-
dóttir, f. 15.4. 1929, d. 1.9. 1971, hús-
móðir.
Ætt
Sveinn var sonur Guðmundar, b.
á Mýrarlóni, bróður Aðalsteins á
Vaðbrekku, fóður dr. Jóns Hnefils
prófessors, dr. Stefáns, fram-
kvæmdastjóra Norræna genabank-
ans, Hákonar, skógarb. og hagyrð-
ings, og Guðrúnar, móður Hrafn-
kels A. Jónssonar, fyrrv. alþm. Hálf-
bróðir Guðmundar, samfeðra, var
Jón, alþm. á Hvanná, afi Sigríðar
Hagalín. Guðmundur var sonur
Jóns Hnefils, b. á Fossvölum í Hlíð
Jónssonar, b. á Bæ í Lóni Jónsson-
ar, hreppstjóra í Hafnamesi í Nesj-
um Magnússonar, pr. í Bjarnamesi
Ólafssonar, sýslumanns í Haga á
Barðaströnd Ámasonar. Móðir Jóns
á Fossvöllum var Steinunn Pálsdótt-
ir. Móðir Guðmundar var Guðrún
Bjömsdóttir frá Ekkjufelli í Fellum.
Móðir Sveins var Arnbjörg, systir
Jóns, bæjarstjóra á Akureyri, fóður
Brynhildar, deildarstjóra í utanrík-
isráðuneytinu. Ambjörg var dóttir
Sveins, b. á Ámastöðum í Loð-
mundarfirði og í Geitavík í Borgar-
firði eystra Bjamasonar, b. á Stóra-
bakka og Heykollsstöðum í Hró-
arstunguhreppi Jónssonar. Móðir
Sveins var Bóthildur Sveinsdóttir.
Móðir Arnbjargar var Sigríður
Ámadóttir, á Ámastöðum Jónsson-
ar, og Þorbjargar Pálsdóttur.
Guðrún var dóttir Bjöms, bróður
Guðmundar á Mýrarlóni. Móðir
Guðrúnar er Árný Stígsdóttir, á
Grand á Jökuldal Jónssonar, b. í
Teigagerði Jónssonar. Móðir Stígs
var Guðbjörg Jónsdóttir.
Arnbjörg
Sveinsdóttir.
Fréttir
Snæfellsnes:
Afli glæðist
hjá netabátum
DV, Vesturlandi:
Afli hjá netabátum sem róa frá
höfnunum fjórum á Snæfellsnesi var
heldur að glæðast í síðustu viku. í
Stykkishólmi rær Þórsnesið eitt skipa
með net og var með 48 tonn eftir vik-
una. Smábátar sem róa með línu á
Breiðafirði gátu lítið verið að vegna
ógæfta í síðustu viku og var heildar-
afli 5 Stykkishólmssmábáta rúm 12
tonn eftir vikuna.
í Grandarfirði era þrír bátar á net-
um og var heildarafli þeirra 40 tonn í
síðustu viku. Þeirra hæstur var
Grundfirðingur með tæp 21 tonn.
Fimm línubátar í Grundarfirði voru
með 14 tonn eftir vikuna. Þá lönduðu
togaramir tveir og togbátarnir Sóley
og Farsæll samtals tæpum 200 tonn-
um í Grundarfirði i síðustu viku.
í Ólafsvík róa 5 bátar með net og
lönduðu þeir samtals 52 tonnum.
Þeirra hæstur var Guðmundur Jens-
son með 23 tonn. Níu dragnótabátar
lönduðu í Ólafsvík í síðustu viku,
samtals 122 tonnum. Þeirra hæstur
var Sveinbjörn Jakobsson meö 26
tonn eftir vikuna. Þá lönduðu 37 línu-
bátar í Ólafsvík í síðustu viku, sam-
tals 190 tonnum.
í Rifi eru fimm bátar á netum og
var afli þeirra í síðustu viku samtals
105 tonn. Þeirra hæstur var Magnús
með 47 tonn eftir vikuna. í Rifi var
landað 110 tonnum af linufiski í síð-
ustu viku, þar af áttu Faxaborg og
Örvar 80 tonn. Auk þess lönduðu þrir
dragnótabátar 33 tonnum og tveir tog-
bátar 12 tonnum í Rifi í síðustu viku
-DVÓ/GK
Slökkvilið í Reykjavík var kallað út vegna elds í bíl við Torfufell á laugardag-
inn. Eigandi bílsins ætlaði að þurrka mottur í bílnum með hárþurrku sem
hann skildi eftir í gangi í bílnum. Eldur kviknaði síðan út frá hárþurrkunni og
olli miklum skemmdum á bílnum. DV-mynd HH
Þegar Ijósmyndari DV var á ferðinni í nágrenni Gróttu um helgina hitti hann
Oliver Hilmarsson sem hélt á þessum fugli. Oliver fann fuglinn niðri í fjöru
en sá litli var skaddaður. Taldi Oliver að óveðrinu væri um að kenna. Fugl-
inn var kominn í öruggar hendur en Oliver ætlaði með hann til fuglafræð-
ings. DV-mynd HH
Til hamingju með afmælið 26. janúar
90 ára
Björg Bjamadóttir, Freyjugötu 49, Reykjavík. Friðbjörg Friðbjarnardóttir, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
85 ára
Ásta Gimnarsdóttir, Hrafnistu, Reykjavík.
80 ára
Gísli Sigurðsson, Blómvallagötu 12, Reykjavik. Jörgen M. Jörgensson, Bólstaðarhlíð 46, Reykjavík. Þór Ingimarsson, Hringbraut 50, Reykjavík.
70 ára
Helgi M. Sigvaldason, Hliðarvegi 38, Njarðvík. Olga Bettý Antonsdóttir, Tjamai’bóli 6, Seltjamamesi.
60 ára
Gunnar Mogensen, Markarvegi 3, Reykjavík. Heiðar Kristjánsson, Hæli, Torfalækjarhreppi. Ragnar L. Benediktsson, Skipasundi 70, Reykjavík. Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Nautaflötum, Ölfushreppi. Sigurður Guðbjartsson, Naustahlein 1, Garðabæ. Skæringur Eyjólfsson, Hlíðarhjalla 17, Kópavogi.
50 ára
Aðalbjörg Þórey Ólafsdóttir, Lautasmára 2, Kópavogi. Einar Þórir Dagbjartsson, Kaldaseli 14, Reykjavík. Guðrún Ósk Ragnarsdóttir, Heiðarbraut 3 E, Keflavík. Jón Atli Játvarðsson, Hellisbraut 8 B, Reykhólahreppi. Kristtn G. Sigurðardóttir, Kríuhólum 6, Reykjavík. Kristjana Kjartansdóttir, Frostaskjóli 15, Reykjavík. Sigurbjörg Gísladóttir, Stekkholti 32, Selfossi. Snjólaug Jónmundsdóttir, Digranesvegi 42, Kópavogi. Sólveig Magnúsdóttir, Seilugranda 2, Reykjavík. Sólveig Vignisdóttir, Holtagötu 4, Drangsnesi.
40 ára
Auður Gunnarsdóttir, Löngumýri 12, Garðabæ. Bergþór Kristleifsson, Húsafelli I, Borgarbyggð. Edda Hrafnhildur Bjömsdóttir, Sæviðarsundi 4, Reykjavík. Gestur Júlíusson, Austurvegi 59 A, Reyðarfirði. Guðjón Birgisson, Melum, Hrunamannahreppi. Guðmundur Guðfinnsson, Logafold 190, Reykjavik. Gylfi Sigurðsson, Áshamri 14, Vestmannaeyjum. Jónas Jóhannsson, Grettisgötu 12, Reykjavík. Margrét Helma Karlsdóttir, Hlíöargötu 22, Sandgerði. Oddur Magnússon, Kaplaskjólsvegi 53, Reykjavík. Sigurður Arinbjömsson, Lambastaðabraut 5, Seltjamamesi. Sigurgrímur Skúlason, Flatahrauni 16 B, Hafnarfirði. Una Sveinsdóttir, Austurbyggð 8, Akureyri. Þorsteinn Kristleifsson, Bergsmára 10, Kópvogi.