Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999 Fréttir Kosovo-albanskur leikskólaleiöbeinandi í Kópavogi nýkominn úr „heimsókn“: 7 klukkustunda mar- tröð og misþyrmingar - í höndum grimmra Serba - fór til aö giftast unnusta sínum „Lögreglumaðurinn sló mig í and- litið, hann reif í hárið á mér og sparkaði í mig. Hann sló mig með sígarettukartoni og einu kílói af kaffi og hrinti mér. Þetta stóð lengi yflr. Ég bara grét og grét. „Af hveiju talar þú ekki? Hvað ertu að gera á íslandi," spurði hann, segir Sabrije „Sonja“ Zogaj, 22ja ára Kosovo-Al- bani, sem er búsett hér á landi en kom á sunnudaginn úr mikilli hættuheimsókn til heimalands síns þar sem hún giftist unnusta sínum sem er einnig á leið heim til íslands. Serbar misþyrmdu henni andlega sem líkamlega í um eina klukku- stund á landamærum Serbíu og Kosovo. Sonja starfar á leikskólanum Marbakka í Kópavogi. Hún fluttist hingað til lands í október 1997 og er ein af 70-80 Albönum sem búa hér á landi. DV hitti hana og fjölskyldu hennar, 14 manns, á einu af þremur heimilum systkina hennar og for- eldra í Breiðholti í gærkvöldi. Flest- ir úr fjölskyldunni komu hingað á síðasta ári. Nauðsynlegt að giftast Albert Ukason, bílstjóri hjá Skelj- ungi, er bróðir Sonju. Hann hefur búið hér á landi í 8 ár og aðstoðaði Sonju við íslenskuna. „Sonja varð fyrir miklu áfalli, lík- amlegu sem andlegu. Hún er að jafna sig og er í rauninni enn þá að segja okkur sögu sína,“ sagði Al- bert. „Henni var misþyrmt andlega sem likamlega i um eina klukku- stund.“ Megintilgangur ferðar Sonju til Kosovo var að giftast unnusta sín- um - Samidin. Hann fær í raun ekki dvalarleyfi hér á landi nema giftast Sonju, þ.e. ef þau vilja búa hér sam- an. Hann er enn í Kosovo en Sonja fór á fund útlendingaeftirlitsins í morgun i þeim tilgangi að ganga frá pappírum fyrir hann. Bílstjóri og aðstoðarmaður drepnir Sonja lagði af stað frá íslandi til Þýskalands þann 10. janúar. Þremur dögum síðar fór hún til Kosovo. „Vandræðin byrjuðu þegar þau komu til Serbíu," segir Albert. „Sonja var í rútu með 12 manns, 11 körlum og aldr- aðri konu. Öllum var haldið í 48 klukkutíma áður en rútan fékk að fara til Kosovo. í vikunni á undan höfðu bílstjóri og aðstoðarmaður hans úr sömu rútu verið drepn- ir. Þar voru Serbar að verki. Sonja var því að taka áhættu með því að fara með rútunni," segir Albert. Sonja fór síðan og hitti sinn heittelskaða. Þau gengu í hjónaband, allir pappírar komust í lag og hún hélt heim á leið til íslands með giftingarvottorðið þann 25. janúar. Þá hófust hörmungarnar „í landamærabænum Podujevo stöðvuðu serbneskir lögreglumenn rútuna," segir Albert. „I henni voru 30 manns. Bíllinn var látinn aka inn á bílastæði. Þarna var kalt, engin ljós, enginn matur, ekki neitt. Allur farangur var tekinn af fólkinu, allar töskur, allt, meira að segja pening- ar. Móðir Sonju, Qeurime Zogaj og faðirinn, Uka, á heimili foreldranna í Breiðholti í gærkvöld. Mál Bretans Kios Alexanders Briggs: Vitnið kemur til íslands Karlmaður á þrítugsaldri, búsett- ur á Benidorm á Spáni, sem hefur verið vitni í e-töflumáli Bretans Kios Briggs, kemur aftur til íslands um miðjan febrúar til að bera vitni. Hér er um að ræða manninn sem hefur m.a. sagt fyrir dómi að hann hafi gert samning við lögregluna og í DV að hann hafi „fórnað Bretanum" til að fá frið fyrir eigin fikniefnainn- flutning til íslands. Saksóknari fékk málinu frestað á miðvikudag um ótiltekinn tíma. Bú- ast má við að réttarhöldum verði fram haldið og jafnyel lokið þegar maðurinn kemur til íslands. Helgi Jóhannesson, veijandi Bret- ans, hefur óskaö eftir að eftirfarandi atriði komi fram vegna umfjöllunar um málið. í DV á miðvikudag var m.a. greint frá því að Helgi hefði lagt áherslu á það í réttarhaldi að ásetningur hefði orðið hjá vitninu í málinu, framan- greindum íslendingi, um að senda flkniefni til íslands með því að vitn- ið hefði fjármagnað farmiða Bretans til íslands og gert uppdrátt af Leifs- stöð. í fétt DV var einnig sagt frá því að ásetningurinn væri byggður á því að vitnið hefði séð Kio stinga efnun- um í tösku sína áður en hann hélt tU íslands. Síðan hefði það sagt lögregl- unni frá. Rétt er að árétta í þessu sambandi að einungis vitnið hefur haldið því fram að það hafl séð Kio stinga efn- unum í tösku Bretans. Kio hefur ávallt haldið því fram, eins og verj- andinn segir, að efnunum og upp- drættinum af Leifsstöð hafi verið komið fyrir í töskunni án vitundar sakbomingsins. -Ótt „Eg bara grét og grét og var frávita af hræðslu. „Hvað ertu að gera á Islandi, hvers vegna svarar þú ekki,“ spurði lögreglumaðurinn. DV-myndir Teitur „Eruð þið að fara að hjálpa KLA (frelsissamtök Kosovo Albana)?“ spurðu lögreglumennimir sem voru fullir. Þeir drekka áfengi til að vita minna hvað þeir eru að gera fólk- inu,“ sagði Albert. Nú tók Sonja við. Andlit hennar lýsti miklum þjáningum: „Þeir tóku einn og einn fyrir í einu. Þegar kom að mér lamdi lög- reglumaðurinn mig með sígar- ettukartoni. Hann reif í hárið á mér, hann sló mig alls staðar. Hann sparkaði líka í mig. Þeir hótuðu að drepa mig. Ég var frávita af hræðslu og kom ekki upp orði. „Hvað hefur þú verið að gera á íslandi. Hvers vegna talar þú ekki“,“ sagði Sonja. Albert sagði að Serbar hefðu mis- þyrmt systur hans i um eina klukku- stund. Þegar fólkinu var leyft að fara eftir 7 klukkustunda martröð hefðu allir verið allslausir. Vinafólk fjöl- skyldunnar í Þýskalandi hefði skotið skjólshúsi yfir hana áður en hún fór til íslands. Kosovo-Albanirnir í Breiðholti vonast nú til að Samidin, eiginmað- Albert Ukason, bróöir Sonju, hefur verið búsettur hér á landi í 8 ár. Hann er bflstjóri hjá Skeljungi. ur Sonju, fái að koma heim til kon- unnar á næstunni. Þau óttast mjög um afdrif hans þegar hann þarf að fara í gegnum landamæravörslu Serba. -Ótt Stuttar fréttir i>v Samkynhneigðir ættleiði Ólafur Örn Haraldsson, þingmað- ur Framsóknar- flokks, gagn- rýndi á Alþingi að í stjórnar- frumvarpi að nýjum ættleið- ingarlögum skuli ekki tryggð rétt- indi bama til að alast upp 1 staðfestri samvist sam- kynhneigðra. RÚV greindi frá. Háskóii íslands sekur? Hæstiréttur dæmdi Háskóla ís- lands í gær til að greiða blindri stúlku 600.000 kr. í miskabætur og 800.000 kr. í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti. Stúlkan hélt því fram að hún hefði ekki fengið þá að- stoð og aðstöðu sem fötlun hennar krafðist þegar hún var í námi í Há- skólanum. Vísir.is greindi frá. ÍE í Financial Times í breska dagblaðinu Financial Times, sem kom út í gær, er fjallað um deCode Genetics, móðurfélag ís- lenskrar erfðagreiningar. í grein FT kemur fram að stjórnendur félags- ins íhugi nú að skrá hiutabréf þess á markað bæði í New York og í Reykjavík. Viðskiptavefur VB á Vísi.is greindi frá. Bæjarstjóri Hornafjarðar Á fundi bæjarstjórnar Horna- fjarðar í gær var gengið frá ráðn- ingu Garðars Jónssonar sem bæjar- stjóra Hornarfjarðar. Vísir.is greindi frá þessu. Sturlaugur Þor- steinsson, fyrrverandi bæjarstjóri hefur, eins og áður hefur komið fram, verið ráðinn framkvæmda- stjóri byggingafélagsins Úlfarsfells sem hyggur á uppbyggingu Blika- staðalands. Nýr flugvöllur Halldór Blöndal samgönguráð- herra segir að ef borgaryflrvöld séu að velta fyrir sér nýjum flug- velli úti í Skerjafirði muni það kalla á mikið um- hverfismat og mikla skipulags- vinnu. Hann hyggur til dæmis að það muni loka siglingaleiðinni til hafnarinnar í Kópavogi. Dagur greindi frá. Læknir sýknaður Hæstiréttur íslands staðfesti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykja- víkur yfir lækni sem ákærður var fyrir að hafa haft holdlegt samræði við konu sem óskaði eftir aðstoð hans. Vísir.is greindi frá. Farsæl málalok Svala Stefánsdóttir, húsvörður í Melasíðu, þar sem íbúð var full af sorpi, segir að farsæl málalok hafi náðst á fundi í fyrrakvöld vegna málsins. Þar voru meðal annarra mættir íbúar fjölbýlis- hússins, fulltrúar Örykjabanda- lagsins og formaður félagsmála- nefndar Akureyrarbæjar og var gengið að öllum kröfum íbúanna um úrbætur í húsinu. Dagur greindi frá. Húnvetningur Dagur telur að Vestur-Húnvetn- ingar úr öllum flokkum og þvert á pólitískar línur muni flykkjast á kjörstað í prófkjöri Samfylkingar að baki alþýðubandalagsmannin- um Pétri Vilhjálmssyni, kennara á Laugarbakka. Vilja skrifstofuna burt Sjálfstæðismenn í borgarstjóm Reykjavíkur hafa lagt tii að at- vinnu- og ferða- málaskrifstofa borgarinnar verði lögð niður. Stofnunin sé óþörf og draga þurfi úr þenslu borgarbáknsins sem orðið hafi í stjómartíð R-listans. Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri lagði til aö vísa málinu til borgarráðs. - íbk/SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.