Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999 Fréttir Prófkjör sjálfstæðismanna á Suðurlandi á morgun: Spennandi slagur - íjórir berjast um fyrsta sætið Á morgun, laugardag, fer fram próf- kjör sjálfstæðismanna á Suðurlandi. Þeir sem gefa kost á sér á væntanleg- an lista flokksins í kjördæminu eru Þórunn Drífa Oddsdóttir, Steingríms- stöð, Grímsnesi, Kjartan Þ. Ólafsson, Hlöðutúni, Ölfusi, Árni Johnsen, Höfðabóli, Vestmannaeyjum, Kjartan Bjömsson, Jómtúni 3, Selfossi, Krist- ín S. Þórarinsdóttir, Básahrauni 47, Þorlákshöfn, Ólafur Bjömsson, Star- engi 1, Selfossi, Víglundur Kristjáns- son, Ártúni 2, Hellu, Óli Rúnar Ást- þórsson, Hafnartúni 1, Selfossi, Drífa Hjartardóttir, Keldum, Rangárvalla- hreppi, og Jón Hólm Stefánsson, Gljúfri, Ölfusi. Óhætt er að segja að þetta verði eitt mest spennandi prófkjör ársins. Árni Johnsen úr Vestmannaeyjum sækist ákveðið eftir fyrsta sætinu nú þegar foringinn í kjördæminu um árabil, Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra, er að hverfa á braut. Samkvæmt hefð- inni er nærtækt að álykta að mögu- leikar sitjandi næstefsta þingmanns flokksins á því að færast upp í fyrsta sætið séu meiri en þeirra utanþings- manna sem líka sækjast eftir því. Víst má telja að Ámi færist ekki baráttu- laust upp í fyrsta sætið. Hann er tölu- vert umdeildur í fyrsta sætið þótt margir vilji endilega hafa hann sem þingmann. Af þessari ástæðu hafa þrír frambjóðendur sjálfsagt ákveðið að keppa um fyrsta sætið við Árna Johnsen. Þessir þrir menn em allir búsettir á Selfossi eða í næsta ná- grenni við Selfoss. Þeir em Kjartan Ólafsson, Ólafur Bjömsson og Óli Rúnar Ástþórsson. Aðrir frambjóð- endur sækjast ekki eftir fyrsta sæt- inu. Tvö til þrjú örugg þingsæti Prófkjörið er barátta um tvö til þrjú nánast örugg þingsæti og af viðræö- um við Sunnlendinga má ráða að þeir telji Árna Johnsen nokkuð öruggan með að ná fyrsta sætinu. Það verði því harður slagur um annað sætið og það þriðja einnig. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur nú tvo þingmenn á Suður- landi. Drífa Hjartardóttir er í þriðja sætinu sem hún háði harða baráttu um fyrir síðustu kosningar við Eggert Haukdal og sigraði. Eftir prófkjörið þá fór Eggert Haukdal í sérframboð sem hlaut um 1100 atkvæði. Það skipt- ir því augljóslega talsverðu hvert þau atkvæði fara nú. Sérframboð Eggerts kostaði sjálfstæðismenn þriðja þing- sætið í Suðurlandskjördæmi í síðustu kosningum. Ekki er að vænta sér- framboðs nú og því ekki ólíklegt að flokkurinn nái þriðja þingsætinu í höfn í vor. Bandalag Drífu og Árna Drífa Hjartardóttir er bóndi á hinu forna höfuðbóli Keldum á Rangárvöll- um. Hún hefur lýst yfir stuðningi við Áma Johnsen í fyrsta sætið og að sjálf sækist hún eftir öðra sætinu. Þetta bandalag þeirra gæti hugsanlega skil- að henni því sæti sem hún óskar. Það er undir því komið að stuðningsmenn Áma viöurkenni bandalagið og kjósi þá Drífu í annað sætið um leið og þeir tryggja sínum manni brautargengi. Eftir flestum sólarmerkjum að dæma er af þessum ástæðum tvísýnt um hvernig hvert þeirra Drífu Hjartar- dóttur og þremenninganna frá Sel- fossi raðast í annað þriðja og fjórða sætið, að því gefnu að Ámi Johnsen vinni fyrsta sætið. Kosningarnar á morgun verða þvi mjög spennandi. Þórunn Drífa Oddsdóttir. Árni Johnsen. Kristín S. Þórarinsdóttir. Fréttaljós Stefán Ásgrímsson Höfuðkeppinautar Árna Þremenningamir fyrmefndu sem keppa við Árna Johnsen um fyrsta sætið em allir þekktir og vel kynntir menn í kjördæminu. Fyrstan skal hér nefna Óla 'Rúnar Ástþórsson en frami hans hefur verið undraskjótur innan flokksins á Suðurlandi. Hann gekk ekki formlega í flokkinn fyrr en fyrir fáum mánuðum, eða um sama leyti og hann tilkynnti að hann gæfi kost á sér á framboðslista flokksins á Suður- landi. Óli Rúnar er ættaður úr Rangárþingi og úr Vestmannaeyjum þar sem hann ólst að miklu leyti upp. Hann en tiltölulega nýfluttur í kjör- dæmið, eftir háskólanám og störf utan þess, m.a. hjá Eimskip og sem fram- kvæmdastjóri bílaumboðsins Jöfurs hf. Hann er menntaður hagfræðingur og gegnir nú starfi framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands og í gegnum starfið er hann í nánum tengslum við atvinnulífið í kjördæm- inu. Óli Rúnar nýtur stuðnings margra öflugra manna f atvinnulífi og sveitarstjórnum í kjördæminu, m.a. í Hveragerði og Þorlákshöfn. Þá á hann traust fylgi í V-Skaftafellssýslu einnig. Garðyrkja og steypa Kjartan Ólafsson er innfæddur Sel- fyssingur, sonur Ólafs Jónssonar, fyrrverandi kaupmanns á Selfossi. Kjartan er garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins og stundaði einnig framhaldsnám í Danmörku. Hann starfaði við fag sitt þar til á síð- asta ári að hann tók við starfi sem framkvæmdastjóri Steypustöðvar Suðurlands á Selfossi af fóður sínum. Hann hóf störf sem garðyrkjuráð- unautm- Búnaðarsambands Suður- lands árið 1975 og var kosinn formað- ur Sambands garðyrkjubænda árið 1990. Kjartan hefur því einnig mikla reynslu og þekkingu á atvinnulífi kjördæmisins. Talið er að Kjartan eigi stuðning þeirra bænda, ekki síst garð- yrkjubænda, á Suðurlandi sem styðja stefnu Sjálfstæðisflokksins, vísan og þeir era allnokkrir í kjördæminu, einkum í Ölfusi, Biskupstungum og Hrunamannahreppi. Þá hefur Kjart- an, og raunar Ólafur Bjömsson einnig, það forskot á Óla Rúnar að hafa starfað um tveggja áratuga skeið í Sjálfstæðisflokknum í kjördæminu. Hann hefur setið i stjómum sjálfstæð- isfélaga og kjördæmisráðs á Suður- landi og var formaður ráðsins 1993-1995. Hann var kosningastjóri Sjáifstæðisflokksins í Suðurlandskjör- dæmi 1979 og hefur verið í kosninga- stjómum fyrir kjördæmið í flestum al- þingiskosningum síðan. Ferðamál og lögmennska Ólafur Bjömsson er 36 ára gamall, sonur hins þekkta ferðaþjónustustór- bónda Bjöms Sigurðssonar í Úthlíð í Biskupsfungum. Hann er hæstaréttar- lögmaður og rekur lögmannsstofu á Selfossi og útibú frá henni í Vest- mannaeyjum. Jafnframt lögfræðistörf- um hefur hann tekið þátt í rekstri Út- hlíðarbúsins ásamt foreldram sínum. Ólafur hefúr setið í stjóm og vara- stjórn SUS árin 1987-1990 og verið for- maður kjördæmissamtaka SUS á Suð- urlandi 1991-1992. Hann var formaður sjálfstæðisfélagsins Óðins á Selfossi frá 1993-1998 og skipaði 6. sæti fram- boðslista flokksins á Suðurlandi í síð- ustu kosningum. Þessi fimm sem hér hafa verið nefhd að framan era þau sem sterkastan svip setja á prófkjör Sjálf- stæðisflokksins á Suðurlandi og flest bendir til að þau muni skipa efstu sætin. Aðrir frambjóðendur hafa ekki náð að stimpla sig jafn skýrt inn í hugskot kjósenda til efstu sætanna: Þórann Drífa Oddsdóttir, sem gefur kost á sér í prófkjörinu, er húsmóðir og býr á Ljósafossi í Grímsnesi. Hún hefur tekið virkan þátt í félagsmálum og skólamálum í sinni heimabyggð og gegnt formennsku í Félagi sjálfstæð- iskvenna í Árnessýslu. Kjartan Bjömsson er rakari á Selfossi, sonur Bjöms Gislasonar rakara sem er kunnur sjálfstæðismaður og sveitar- stjómarmaður á Selfossi. Kristín S. Þórarinsdóttir er hjúkranarfræðingur í Þorlákshöfn en starfar við rekstur fjölskyldufyrirtækisins sem er útgerð- arfyrirtæki. Víglundur Kristjánsson er frá Hellu. Hann hefur m.a. starfað að ferðamálum. Þá er enn ónefndur Jón Hólm Stefánsson, bóndi að Gljúfri í Ölfusi. Kjartan Þ. Ólafsson. Kjartan Björnsson. Ólafur Björnsson. Óll Rúnar Ástþórsson. Drífa Hjartardóttir. Stuttar fréttir r>v Áfrýja sennilega Sjóvá-Almennar áfrýja að öll- um líkindum til Hæstaréttar úr- skurði Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem segir að tekjuskerðing miskabóta eftir aldri tjónþola stangist á við stjómarskrá. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um breytingar á skaðabótalögum. Þar er m.a. gert ráð fyrir að bætur fyrir varanlegan miska skerðist fyrr en nú er, eða við 49 ára ald- ur, og svo jafnt og þétt til 74 ára aldurs. Ríkisútvarpið greindi frá. RÚV ekki selt Bjöm Bjama- son mennta- málaráðherra lýsti því yfir á Álþingi að ekki væri í undir- búningi að selja Ríkisútvarpið. Hann sagði að skoða þyrfti stöðu RÚV í nýju um- hverfi en sagðist ekki ætla að flytja frumvarp þess efnis. Ríkis- útvarpið sagði frá. Með hærri vinnulaun Öfugt við aðrar stéttir eru fang- ar almennt með tvöfalt til þrefalt hærri vinnulaun í fangelsum á ís- landi en annars staðar á Norður- löndunum. Það sama má segja um námslaun. Dagur greindi frá. Vijja fellt úr frumvarpi Miðstjóm ASÍ skorar á ríkis- stjóm íslands og Alþingi að fella út úr fhnnvarpi til laga um breyt- ingu á skaðabótalögum þá tillögu að hluti af örorkulífeyri almennu lífeyrissjóðanna dragist frá skaöa- bótum eins og ráð er fyrir gert í 4. grein frumvarpsins. Miðstjórn ASÍ ítrekar þá afstöðu sína, sem fram kemur í umsögn sambands- ins um frumvarpið, að iðgjöld til almennu lífeyrissjóðanna eru hluti umsaminna launa sam- kvæmt kjarasamningum og af- rakstur langrar og harðrar kjara- baráttu. Vilja Fullkomna jafningjann Breskt leik- hús hefur áhuga á að setja upp leikrit Fel- ix Bergssonar, Hinn fullkomna jafningja, sem QaUar um mál- efni samkyn- hneigðra. Felix er eini leikarinn í verkinu og bregður sér í margvís- leg gervi. Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri segist vonast til að Hinn fullkomni jafningi verði á fjölun- um ytra í sumar og að leikritið verði jafnvel frumsýnt á frelsis- degi homma og lesbía. Ríkisút- varpið sagði frá. Vantar 222 hjúkrunarrými 222 aldraðir eru á biðlista eftir hjúkrunarrými. Svavar Gestsson bar fram spumingar til heilbrigö- isráðherra um málið og sagði aö þótt nokkuð hefði verið gert til lausnar vandanum væri hann enn mikill og að mikið vantaði á hjúkrunarrými, aðallega þó á þéttbýlissvæðinu á suðvestur- horni landsins. Svavar sagði nauðsynlegt að teknar yrðu ákvarðanir í þessum efnum. Dag- m- greindi frá. Árekstrar við búfé Rannveig Guðmundsdótt- ir benti á á Al- þingi í fyrradag aö árekstrar við búfé á vegunum væru að meðal- tali á bilinu 140 til 150 árlega. Hún sagði að við værum að laða að erlenda feröa- menn sem væru því óviðbúnir að búfé hlypi fyrirvaralaust út á vegi landsins. Hún sagði enn fremur að lausaganga búfjár þekktist ekki á meginlandi Evrópu og að langflestar þjóðir hefðu tekið á þessum málum. Dagur greindi frá. -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.