Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Blaðsíða 25
DV FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999 29 Diving eftir Rui Horta. Diving, Flat Space Moving og Kæra Lóló í kvöld frumsýnir íslenski dans- flokkurinn í Borgarleikhúsinu þrjú verk, Diving og Flat Space Moving eftir portúgalska danshöfundinn Rui Horta og Kæra Lóló, nýtt verk eftir Hlíf Svavarsdóttur. Eitt af höfundareinkennum Rui Horta, sem stundaði á tímabili nám í arkitektúr, er að hann notar vatn mikið í verkum sínum og lætur dansara gjarnan fara með texta. Bæði Diving og Flat Space Moving bera merki þessa. Sýningin er að auki sérstök að því leyti að í verk- um Horta er hlutverkaskipan mis- munandi eftir sýningarkvöldum. Hver dansari er í tveimur hlut- verkum sem hann dansar til skipt- is. Þetta er mest áberandi í Diving þar sem Chad Bantner og Guð- mundur Helgason skipta með sér aðalhlutverki og Chad fer með text- ann á ensku en Guðmundur á ís- lensku. Textinn er eftir Horta sjálf- an en Karl Ágúst Úlfsson þýddi. Dans Verk Hlífar Svavarsdóttur, Kæra Lóló, er samið sérstaklega fyrir ís- lenska dansflokkinn við tónlist Jean-Philippe Rameau (1683-1764) og hefur nokkuð klassískt yfir- bragð. Um verkið segir Hlíf: „Dans- inn er óður til móður minnar, stutt ástarsaga sem tengist Vestmanna- eyjum þar sem hún ólst upp.“ Viðar Eggertsson leikur lögfræöing- inn Arthur Kipp. Svartklædda konan í október síðastliðnum frumsýndi Sjónleikur Svartklæddu konuna í Tjamarbíói og hafa undirtektir ver- ið góðar. Þar sem annar aðalleikar- inn, Amar Jónsson, varð að hætta i leikritinu vegna anna í Þjóðleikhús- inu hefur Viðar Eggertsson tekið við hlutverki hans. Mótleikari hans er Vilhjálmur Hjálmarsson. Svartklædda konan segir sögu Arthurs Kipps, aldraðs lögfræðings sem fengið hefur til liðs við sig ung- an leikara með það í huga að koma frá sér og skýra fyrir sínum nán- ustu angistarfulla og hrollkennda upplifun. Á sínum yngri árum var hann sendur til afskekkts sveita- þorps í þeim erindagjörðum að ganga frá erfðamálum sérlundaðrar ekkju sem nýlega hafði fallið frá. Dulmögnun staðarins og ógnandi andrúmsloft, kynngimagnaðir reim- leikar ásamt viðhorfi bæjarbúa fá smátt og smátt hárin til að rísa ... Leikhús Næsta sýning á Svartklæddu kon- unni er í kvöld og er um styrktar- sýningu að ræða en allur ágóði rennur til alnæmissamtakanna. Næstu sýningar á Svartklæddu kon- unni em í kvöld og annað kvöld. Ásgarður, Glæsibæ: Nýju gleðigjafamir Um árabil hefur hinn kunni söngvari, André Bachmann, starf- rækt hljómsveitina Gleðigjafana og leikið víða um land á dans- leikjum. í síðustu útgáfu af Gleði- gjöfunum voru bara tveir innan- borðs, André og Kjartan Baldurs- son. Lítið hefur borið á Gleðigjöf- unum að undanfómu og er aðalá- stæðan sú að Kjartan Baldursson hefur átt við erfið veikindi að stríða. André Bachmann hefur þó ekki setið auðum höndum eins og Skemmtanir André Bachmann fyrir miöri mynd ásamt Gleöigjöfunum sem einnig tilheyra hljómsveitinni Mávunum. þeir vita sem til hans þekkja því auk þess að keyra strætó hefur hann verið duglegur að kynna plötuna Maður lifandi sem gefin var út til styrktar Styrktarfélagi vangefinna og hann stóð að ásamt fleirum, og svo var haldið upp á fimmtugsafmæli kappans í síð- asta mánuði að viðstöddu miklu fjölmenni. Nú er André að fara aftur út í spilamennskuna og til er orðin hljómsveitin Nýju gleðigjafarnir. Þar innanborðs era, auk André sem mun sjá um sönginn, reyndir refir úr tónlistarbransanum sem víða hafa leikið og verið í mörgum hljómsveitum. Á trommur er Sveinn Larsson, Kári Jónsson spilar á gítar, Pétur Þorsteinsson á bassa og Jón Ragnarsson á gítar, auk þess sem hann syngur einnig. Lagaval hljómsveitarinnar er fjölbreytt og nær frá árunum 1960 til 1999 og þar ber hæst „Gullaldartónlist". Þess má geta að meðspilarar André skipa einnig hljómsveitina Máva. Nýju gleðigjafamir leika í kvöld á dans- leik í Ásgarði i Glæsibæ. Veðrið í dag Víða létt- skýjað Yfir Finnlandi er víðáttumikil 948 mb. lægð sem þokast austsuðaustur en 1030 mb. hæð er yflr Norður- Grænlandi. I dag verður norðan- og norðvest- angola eða kaldi en stinningskaldi eða allhvasst við norðaustur- og austurströndina. É1 verða norðaust- anlands, einkum við ströndina, en skýjað með köflum og síðan léttskýj- að i öðrum landshlutum. Frost verð- ur yflrleitt á bilinu 3 til 8 stig, kald- ast inn til landsins. Á höfuðborgarsvæðinu verður hæg breytileg átt og skýjað en léttir til með norðangolu er líður á morg- uninn. Frost 1 til 5 stig. Sólarlag í Reykjavlk: 17.28 Sólarupprás á morgun: 9.53 Síðdegisflóð f Reykjavík: 21.48 Árdegisflóð á morgun: 10.03 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjaó -6 Bergsstaóir alskýjaö -5 Bolungarvík alskýjaó -A Egilsstaðir -5 Kirkjubœjarkl. léttskýjaö -6 Keflavíkurflv. skýjaö -3 Raufarhöfn skýjaö -3 Reykjavík alskýjaö -3 Stórhöföi skýjaö -3 Bergen snjóél 0 Helsinki léttskýjaö -2 Kaupmhöfn skýjaö 2 Ósló léttskýjaö 1 Stokkhólmur 1 Þórshöfn snjóél 0 Þrándheimur snjóél 1 Algarve heióskírt 7 Amsterdam skúr á síö. kls. 8 Barcelona heiöskírt 7 Berlín þrumuv. á síð. kls. 1 Chicago léttskýjaö -7 Dublin skýjaö 6 Halifax þoka -1 Frankfurt léttskýjaö 6 Glasgow hálfskýjaö 5 Hamborg skúr á síö. kls. 4 Jan Mayen snjóél -3 London skýjaö 7 Lúxemborg skúr á síö. kls. 4 Mallorca þokumóöa 0 Montreal þoka 2 Narssarssuaq snjókoma -2 New York skýjaö 7 Orlando skýjaö 20 París skýjaö 8 Róm þokumóöa 4 Vín hálfskýjaö 8 Washington léttskýjaö 6 Winnipeg heiöskírt -15 Talsverð hálka Skafrenningur er á Norðausturlandi en vegir þó færir. Að öðru leyti er góð vetrarfærð á öllum aðal- vegum landsins, en talsverð hálka er þó víðast Færð á vegum hvar. Vert er að benda bílstjómm sem ætla að keyra þjóðvegi landsins um helgina á að vera á vel útbúnum bílum, færð getur breyst skyndilega. Björg Steinunn Litla telpan á mynd- var hún 15 merkur að inni fæddist 27. ágúst síð- þyngd og mældist 51,5 astliðinn. Við fæðingu sentímetra löng. Foreldr- ar hennar em Gunnar Kristjánsson og Sólrán Inga Ólafsdóttir. Barn dagsins Skafrenningur E3 Steinkast E3 Hálka [a] Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkai Q} Qfæn CD Þungfært © Fært fjallabilum Nicole Kidman og Sandra Bullock leika göldróRu systurnar. Hagkvæmir galdrar í Practical Magic, sem Bíóhöllin sýnir, leika Sandra Bullock og Nicole Kidman systumar Sally og Gillian sem alla tíð hafa verið öðmvísi en aðrar stelpur. Þær hafa verið aldar upp af frænkum við mikið frjálsræði eftir að for- eldrar þeirra létu lífiö. Þegar þær voru litlar fengu þær súkkulaði- kökur í morgunmat, máttu vaka eins lengi og þær vildu og vora fræddar um galdra. Frænkurnar tvær sem ala upp stúlkurnar era miklar forynjur og þegar stúlkurn- ar vaxa úr grasi er þeim gerð grein fyrir þeim krafti sem þær búa yfir. Önn- v ur þeirra, Sally, tel- ''///////< ur galdrakunnáttu x - Kvikmyndir sína eiga eftir að verða sér fjötur um fót, hafi hún hug á að ná sér í eiginmann, en Gillian, sem er mun villtari, er hin ánægðasta með þann kraft sem hún ræður yfir sem meðal annars felst í því að hún getur heillað hvaða karl- mann sem hana langar í og og ráð- ið yfir honum og það er einmitt hömluleysi hennar sem á eftir að koma systranum í vandræði. Nýjar myndir í kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: The Waterboy ‘v Bíóborgin: Ronin Háskólabíó: Elizabeth Háskólabíó: Meet Joe Black Kringlubíó: Wishmaster Laugarásbíó: Rush Hour Regnboginn: The Siege Stjörnubíó: Stjúpmamma Krossgátan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 12 14 15 16 17 18 19 20 21 Lárétt: 1 erill, 5 lítil, 8 ráðning, 9 matarveisla, 10 dýpi, 11 lokka, 12 gauðið, 15 óraði, 16 klampi, 18 fjúk, 20 hey, 21 viður. Lóðrétt: 1 stangir, 2 mál, 3 bát, 4 iöka, 5 fónn, 6 litaði, 7 krafti, 13 afl, 14 kropp, 15 hrygning, 17 flökt, 19 auður. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 hefja, 6 hvað, 8 æðra, 9 fól, 10 gaukur, 11 töm, 13 arka, 15 blauð- ur, 18 linnir, 20 æð, 21 narra. Lóðrétt: 1 hægt, 2 eða, 3 fruma, 4 jaka, 5 afurðir, 6 hór, 7 alda, 12 öliö, ^ 14 kurr, 15 blæ, 16 Una, 17 róa, 19 nn. Gengið Almennt gengi LÍ 05. 02. 1999 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 70,020 70,380 69,930 Pund 115,040 115,630 115,370 Kan. dollar 46,970 47,270 46,010 Dönsk kr. 10,6680 10,7270 10,7660 Norsk kr 9,1040 9,1540 9,3690 Saensk kr. 8,9230 8,9720 9,0120 Fi. mark 13,3340 13,4140 13,4680 Fra. franki 12,0860 12,1590 12,2080 Belg. franki 1,9653 1,9771 1,9850 Sviss. franki 49,6300 49,9000 49,6400 Holl. gyllini 35,9800 36,1900 36,3400 Þýskt mark 40,5400 40,7800 40,9500 ít. líra 0,040950 0,04119 0,041360 Aust. sch. 5,7620 5,7960 5,8190 Port. escudo 0,3955 0,3978 0,3994 Spá. peseti 0,4765 0,4794 0,4813 Jap. yen 0,625700 0,62950 0,605200 írskt pund 100,670 101,270 101,670 SDR 97,730000 98,32000 97,480000 ECU 79,2800 79,7600 80,0800 Símsuari uegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.