Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Side 14
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999 JjV >4 * menning ■ * ★ i „Tjáningin er svo margs konar að það er erfítt að fínna einhver orð sem lýsa sýningunni í heild,“ sagði Ulrika Levén, forstöðu- maður málverkasýningar- innar Carnegie Art Award sem verður opnuð almenn- ingi í Listasafni Islands kl. 14 á sunnudaginn. Rétt er að geta þess þegar í stað að kl. 15 sama dag verður ókeypis leiðsögn um sýn- inguna. Sem dæmi um fjöl- breytileikann i norrænni samtímamálaralist sýndi Ulrika fjölmiðlungum ýmsar ólíkar greinar af meiði hins hefðbundna norræna landslagsmál- verks á sýningunni, ljóð- rænar smámyndir eftir Peter Frie, svart-hvíta þverskurði af jörð eftir Mari Johanne Slaattelid og texta Birgis Andrésson- ar sem framkalla sínar eig- in sérstæðu myndir i huga hvers áhorfanda. Tveir aðrir íslendingar eiga verk á sýningunni, Kristján Davíðsson og Georg Guðni. Ulrik Samuelsson: De smá bádarna. Ein af myndunum hans þremur sem hlutu fyrstu verðlaun. Folke, sem kynnti fyrirhug- aða sýningu og verðlaun á blaðamannafundi í Lista- safninu fyrir tæpu ári, „og þið getið ekki ímyndað ykk- ur hvað það er gaman að koma núna með þessa glæsilegu sýningu. Hún sýnir vel norrænan sam- starfsvilja." . Sýningin hefur þegar hangið uppi í fjórum nor- rænum höfuðborgum, Stokkhólmi, Ósió, Kaup- mannahöfn og Helsinki. Reykjavík er síðasti við- komustaðurinn. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, hefur opnað sýninguna í öll skiptin og opnar hana einnig nú. Sýn- ingunni hefur verið vel tek- ið þó að auðvitað hafi hún fengið misjafna gagnrýni. „Sumir hafa fundið að því að á henni skuli eingöngu vera málverk," sagði Ulrika Levén, „öðrum hefur aftur fundist það helsti kostur hennar!" Öll málverkin á sýningunni voru til sölu og eru nú aðeins 19 óseld af 53 málverkum. Carnegie-sýningin verð- Norræn málverk ! lok hraðferðar um sýninguna kynnti Ulrika verðlaunahafa Camegie Art Award 1998 sem einnig eru ákaflega ólík- ir innbyrðis. Svíinn Ulrik Samuelsson fékk fýrstu verðlaun (tæpar fimm milljón- ir ísl. kr.) fyrir rómantískar náttúru- myndir sem minna sláandi á Edvard Munch. Finninn Nina Roos fékk önnur verðlaun fyrir sérkennilegar loftkenndar myndir sem erfitt er að lýsa með orðum, málaðar á þykkar og gagnsæjar akrýlplöt- ur. Þriðju verðlaun fékk Svíinn Torsten Andersson fyrir harðar og kaldar myndir, málverk sem er „fjarri því að vera gætt ísmeygilegri fegurð“, eins og segir í áliti dómnefndar. Á alþýðumáli þýðir það lík- lega að myndimar þyki ljótar en hafi í sér kraft sem fleyti þeim á verðlaunapall. Auk verðlauna er einum ungum málcu-a veittur sérstakur styrkur árlega. Hann hlaut að þessu sinni Finninn Jussi Niva sem einnig á myndir á sýningunni. Málverk eftir Kristján Davi'ðsson. Löndum hans á OpnHT sýninglina blaðamannafundinum fannst að hann hefði átt að fá fyrstu verðlaun. ,Eg kom hingað í fyrra með orðin tóm í farteskinu," sagði verkefnisstjórinn Anne ur árviss viðburður í norrænu menningarlífi og undirbúningur er þegar hafinn fyrir þá næstu sem verður opnuð í Ósló í október. Þeg- ar hefur 96 listamönnum verið sent boð um að senda myndir af verkum sínum til dómnefndar, þar af eru 15 íslendingar. Sama dóm- nefnd velur svo úr þeim verkum og valdi á þessa sýningu og tilkynnir val sitt í júní í sumar. í henni sitja Tuula Arkio, Olle Granath, Lars Nittve, for- maður, Bera Nordal og Ásmund Thorkildsen. Carnegie-fj árfestingar- bankinn, sem stendur að sýningunni, greiðir að- gangseyrinn að henni í öll- um borgunum fimm þannig að það er ókeypis inn. Leið- sögnin um hana, sem verður ki. 15 þá þrjá sunnudaga sem hún hangir uppi, er einnig ókeypis. Sýningunni lýkur 21. febrúar svo að menn mega ekki draga lengi að sjá hana. Listrænn viðburður Að njóta leiklistar Fjóröa námskeiðið á vegum Félags ís- lenskra háskólakvenna undir stjóm dr. Jóns Viðars Jónssonar hefst á þriðjudag- inn kemur kl. 20.30 í stofu 201 í Odda. Þátttakendur sjá saman nokkrar leiksýn- ingar sem í boði eru og auk þess verður fjallað um þær með þátttöku leikstjóra eða annarra aðstandenda sýningarinnar. Námskeiðið er öllum opið. Skráið ykk- ur hjá Geirlaugu Þorvaldsdóttur (568 5897/899 3746) eða Jóni Viðari (557 4342). Tímamótasamningur Bókaútgáfan Leifur Eiríksson gaf sem kunnugt er út vandaða og glæsilega heild- arútgáfú af íslendingasögum og íslend- ingaþáttum í nýjum þýðingum á ensku fyrir rúmu ári: The Complete Sagas of Icelanders I-V. Ritstjóri útgáfunnar er Viðar Hreinsson en með honum í ritnefhd var úrvalslið fræðimanna og þýðenda. Undanfama mánuði hafa staðið yfir viðræður milli útgáfúnnar og bresk- bandaríska forlagsins Penguin Press um útgáfu á nýju þýðingunum í safnriti og ritröðinni Penguin Classics. Þeim viðræð- um lyktaði á þriðjudaginn með viðamikl- um samningi sem felur meðal annars í sér að Penguin gefur á næstu fjórum árum út tíu bækur með sögum úr heildar- útgáfunni. Ritstjórn þessarar útgáfú verð- ur í höndum Bókaútgáfunnar Leifs Ei- rikssonar en í því felst mikil viðurkenn- ing fyrir íslenska bókaútgáfu og íslensk fræði. Þessi samningur mun vera sá stærsti sem íslenskt forlag hefur gert við erlenda bókaútgáfu. Ekki þarf að orðlengja hvað það þýðir fyrir útbreiðslu íslenskra fornsagna þegar öflugt forlag eins og Penguin Press tekur að sér að gefa þær út í handhægum bók- um og dreifa þeim um allan hinn ensku- mælandi heim. Penguin hefur lengi verið með fáeinar íslendingasögur á útgáfulista í þýðingu Her- manns Pálsson- ar, Magnúsar Magnússonar og fleiri, meðal annars Njálu, Laxdælu og Eglu, og gefið þær út í stóru upplagi. Nú ættu minna þekktar sögur að eignast nýja lesendur í stór- um stíl. Útgáfa Penguin hefst í haust með úr- vali íslendinga- Forseti íslands, Ólafur sagna í stórbók Ragnar Grímsson, tekur á sem verður inn- móti Alastair Rolfe, útgáfu- bundin; SÚ bók ®,!ór_a..!®n?u,n Press’ á kemur ári síðar i kilju. Á næsta ári koma svo þrjár bækur í Penguin Classics kiljum, þrjár enn 2001 og enn tvær 2002. Útbúin veröur sérstök heimasíða á Netinu þar sem útgáfan verður kynnt auk þess sem hún mun skipa heiðurssess í kynningar- efni útgáfunnar á prenti.. Kunningi minn sagði við mig nýlega að það væri allt í lagi að koma of seint á tónleika í Hall- grímskirkju, bergmálið væri svo mikið að mað- ur heyrði samt fyrstu tónana. Óneitanlega er endurómunin ríkuleg í kirkjunni, en það kom ekki að sök í verkunum sem flutt voru fyrir hlé á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í gær- kvöld. Og fæstir komu of seint; fólk var farið að streyma að klukkutíma áður en tónleikarnir hófust, því orgelkonsert Jóns Leifs var aðalatrið- ið á efnisskránni. Það er verk sem nýtur sín full- komlega í miklu bergmáli, stórbrotin tónsmíð sem salurinn þarf helst að magna upp úr öllu valdi. Orgelkonsertinn var frumfluttur árið 1935 í Wiesbaden, sex árum síðar var hann leikinn í Berlín og fékk svo hrikalegar viðtökur að hann var ekki spilaður aftur fyrr en árið 1988 í Sví- þjóð. Skemmst er frá því að segja að tónleikam- ir í gær voru listrænn viðburður, því orgel- konsertinn er án efa með allra bestu verkum Jóns Leifs. Slæmu viðtökumar í Berlín hafa þar ekkert með að gera, enda svo sem ekki í fyrsta sinn sem ódauðlegt tónverk fær vonda útreið í upphafi. Að formi til er konsertinn tiltölulega einfald- ur. Hann hefst á ærandi dimmhljómaklasa frá orgelinu, og augnabliki síðar eru pákumar barð- ar hressilega. Siðan taka við mikil læti uns ró- leg passacaglia hefst, sem stigmagnast upp í fomeskjulegan dans, æ ógnvænlegri uns allt fer úr böndunum, desíbelaskalinn sprengdur og sjálfsagt einhverjar hljóðhimnur með. Tilþrifin eru víða mikil í rödd orgelsins, sem er flma erf- ið og aðeins á færi flinkustu organista, sumt þar flokkast undir hrein og klár áhættuatriði eins og glissando með báðum fótum niður og glissando Björn Steinar Sólbergsson lék áhættuatriði orgel- konsertsins frábærlega vel. DV-mynd ÞÖK upp um leið með höndunum. Björn Steinar Sól- bergsson stóð sig frábærlega vel, enda í hópi allra bestu orgelleikara landsins. Sinfóníuhljóm- sveit íslands undir stjóm En Shao var líka í ess- inu sínu og vafði sig utan um orgelið af mikilli list. Önnur tónsmíð eftir Jón Leifs var flutt á tón- leikunum, Requiem op. 33b, sálumessa fyrir kór eingöngu. Þetta er örstutt verk, ljóðrænn leikur að dúr og moll þríundum sitt á hvað sem gefur því sérkennilegan blæ. Það er ekki þunglyndis- legt, þvert á móti er eins og maður sé að hlýða á söng úr öðrum heimi - einhvern veginn skynjar maður ljós á bak við það. Mótettukórinn undir stjóm Harðar Áskelssonar söng sálumessuna einstaklega fallega og lyfti henni i hæstu hæðir. Tónlist Jónas Sen Lokaverkið á tónleikunum var sinfónía nr. 6 eftir Bruckner. Hún er ógnarlega löng og tignar- leg, gegnsýrð af gegndarlausri rómantík og ekki fyrir hvem sem er. „Eins og við má búast hjá Bruckner þyrlast hlustendur með í miklum darraðardansi ómsterkra blásara, slagverks og strengja og eru skildir eftir á ystu nöf í lokin,“ segir í efnisskránni. Á ystu nöf af leiðindum gæti ég bætt við, mér fmnst Bruckner teygja lopann óþarflega mikið. En Sinfóníuhljómsveit íslands lék þetta verk prýðilega, enda ágætlega sijómað af En Shao og margir voru greinilega hrifnir. í heild voru þetta stórmerkilegir tónleikar og flutningurinn á Jóni Leifs með því besta sem heyrst hefur á sinfóníutónleikum í langan tíma. Sinfóníuhljómsveit íslands og Mótettukórinn í Hallgrímskirkju 4.2. Á efnisskrá Jón Leifs: Requiem op. 33b og Orgelkonsert op. 7, Bruckner: Sinfónía nr. 6. Einleikari: Björn Steinar Sólbergsson, kórstjóri Hörður Ás- kelsson, hljómsveitarstjóri: En Shao. Leikaraskipti í Hafnarijarðarleikhúsinu sýnir Stopp- leikhópurinn háðsádeiluna Vírus eftir Ár- 5 mann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirs- son og Þorgeir Tryggvason í samvinnu : við Hermóð og Háðvöra við góðar tmdir- | tektir áhorfenda. Fyrir skömmu tók Mar- ! ía Reyndal, sem er nýkomin frá leiklist- I amámi í Bretlandi, við hlutverki Erlu af : Katrínu Þorkelsdótt- ur, og um þessa helgi verða enn manna- skipti þegar Jón St. Kristjánsson hverfur til nýrra starfa norð- an heiða og skilur eiganda tölvufyrirtækisins, Agnar, eftir sig í Hafnarílrði. Við því hlutverki tekur | enginn minni maður en Gunnar Helgason sem einnig leikstýrði verkinu. Þeir sem ekki vilja missa af að sjá I Gunnar í sýningunni geta drifið sig ann- I að kvöld kl. 20 eða á miðvikudagskvöldið kemur á sama tíma. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.