Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Side 15
FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999
19
Arnar Gunnlaugsson
klæðist væntanlega
hinum bláa búningi
Leicester í fyrsta
skipti á
morgun.
Arnar Gunnlaugsson seldur:
Dýrastur
- Leicester kaupir hann á 230 milljónir
Arnar Gunn-
laugsson er orðinn
dýrasti knatt-
spyrnumaður ís-
lands frá upphafi.
Eins og Visir.is
skýrði frá í gær, fyrst-
ur íslenskra fjölmiðla,
samþykkti Bolton tilboð frá
Leicester sem bauð 230 milljón-
ir króna í Amar. Það er jöfnun
á félagsmeti hjá Leicester sem
keypti Frank Sinclair frá Chel-
sea fyrir sömu upphæð á síðasta
ári. Amar kostaði Bolton aðeins
11,5 milljónir króna fyrir hálfu
öðm ári.
Hermann Hreiðarsson var
áður dýrasti íslenski leikmaður-
inn eftir að Brentford keypti
hann frá Crystal Palace í haust
fyrir 90 milljónir.
Amar skrifar væntanlega í
dag undir samning við Leicester
til hálfs fjórða árs, eða til vors-
ins 2002. Gangi það hratt fyrir
sig er líklegt að Amar fari beint
í lið Leicester sem mætir Sheff-
ield Wednesday í ensku A-deild-
inni á morgun.
„Amar fær gullið tækifæri til
að sýna hvað hann getur í efstu
deild,“ sagði Martin O’Neill,
framkvæmdastjóri Leicester,
við Daily Mail í morgun.
Arnar hefur skorað 14 mörk
fyrir Bolton í vetur, 13 í B-deild-
inni og eitt í deildabikarnum.
-VS
ir
ind í poka
Gunnar Andrésson er orð-
inn þriðji markahæsti leik-
maðurinn í úrslitakeppninni um
svissneska meistaratitilinn í hand-
bolta. Gunnar gerði 7 mörk i vikunni
þegar lið hans, Amicitia, tapaði,
25-19, fyrir Suhr og er með 26 mörk.
Sjálfur Marc Baumgartner hjá
Winterthur er markahæstur með 33
mörk, Harald Johnson hjá Grass-
hoppers er með 27 og síðan kemur
Gunnar. Július Jónasson hjá St. Ot-
mar er síðan i 18. sæti á listanum
með 13 mörk.
Stefán Þ. Þóróarson, knattspymu-
maöur hjá Brann i Noregi, fær mikið
hrós fyrir leik sinn gegn Croatia Za-
greb á Spáni i vikunni. Eins og fram
kom i DV skoraði Stefán eitt marka
Brann 1 3-3 jafntefli, með glæsilegu
langskoti, en auk þess krækti hann i
vitaspymu á lokamínútunni og þótti
eiga stórgóðan leik en honum var
skipt inn á í hálfleik.
Jóhanna Rósa
Ágástsdóttir úr
Gerplu hafnaði i
niunda sæti á
opna hollenska
meistaramótinu í
þolfimi um síð-
ustu helgi. Kepp-
endur voru á
þriðja tuginn frá
níu Evrópulönd-
um. Jóhanna fékk 14,10 stig
en sigurvegarinn, Chrystelle Soulie
frá Frakklandi, fékk 15,45 stig. -VS
Körfuknattleiksliðin bæta við sig útlendingum:
Tveir nýir komnir
- til KFÍ og Hauka og Grindavík fær einn í dag
*
Tvö úrvalsdeildarlið í körfuknatt-
leik, KFÍ og Haukar, hafa styrkt
leikmannahópa sína með erlendum
leikmönnum og það þriðja, Grinda-
vík, fær leikmann til reynslu í dag.
Allt eru þetta Evrópubúar með
sömu réttindi og innlendir leik-
menn, og hafa því ekki áhrif á
útlendingamál liðanna.
Ray Carter, 26 ára enskur lands-
liðsbakvörður, kom til KFÍ á ísa-
firði í gær. Hann kemur frá
Oberwart í Austurríki þar sem
hann varð bikarmeistari. „Mér líst
mjög vel á þennan leikmann sem
verður tilbúinn til að spila með okk-
ur gegn Njarðvík og KR um næstu
helgi. Það verður okkur mikilvægt
því Ósvaldur Knudsen verður frá
vegna meiðsla í 3-4 leiki í viðbót,"
sagði Guðjón Þorsteinsson, for-
svarsmaður KFÍ, við DV í gærkvöld.
Nýi Haukamaðurinn heitir Jim-
my Stellato. Hann er 1,97 metrar á
hæð, 27 ára gamall og getur leikið
bæði stöðu bakvarðar og framherja.
Stellato er með ítalskt ríkisfang.
„Hann hefur æft með okkur í
nokkra daga og hefur spjarað sig
vel. Hann er góður skotmaður og er
í líkamlega mjög góðu ástandi. Með
tilkomu Stellato styrkist og stækkar
hópur okkar. Það hafa verið miklar
breytingar hjá okkur en við gerum
ráð fyrir að vera á toppnum þegar
úrslitakeppnin byrjar," sagði Jón
Amar Ingvarsson, þjálfari Hauka, í
samtali við DV í gær.
Grindvíkingar hafa verið að svip-
ast um eftir miðherja frá því upp-
stokkunin vairð í liði þeirra fyrir jól-
in. „Við höfum farið okkur hægt í
þessu máli, en haft augun opin og
verið í sambandi við umboðsmenn,"
sagði Guðfinnur Friðjónsson,
stjórnarmaður í körfuknattleiks-
deild UMFG. Nú er deildin komin í
samband við 19 ára portúgalskan
leikmann, Gilberto Darcio Dias
Baptista, og er hann væntanlegur til
landsins í dag. Gilberto er 2,05 á
hæð og kemur til Grindavíkur til
reynslu. Samkvæmt heimildum DV
er ekki mikið vitað um getu leik-
mannsins, en hann fær tækifæri til
að sýna sig og sanna.
-GH/bb/VS
Víkingur í úrslitin
Víkingur sigraði Þrótt úr Reykjavík, 3-1, í undan-
úrslitmn bikarkeppni kvenna í blaki í Víkinni í gær-
kvöld og mætir því ÍS í úrslitaleik. Þróttur vann
fyrstu hrinuna, 22-25, en Víkingur hinar, 25-12, 25-14
og 25-10. -VS
1. DEILD KVENNA
Stjarnan 14 12 1 1 403-299 25
Fram 15 12 1 2 395-332 25
Haukar 14 9 2 3 327-300 20
Valur 14 9 1 4 313-270 19
Vlkingur 14 7 4 3 320-297 18
FH 14 5 2 7 318-286 12
ÍBV 14 5 1 8 315-329 11
Grótta/KR 14 4 2 8 296-311 10
KA 15 1 0 14 258-387 2
ÍR 14 0 0 14 232-366 0
Frey gengur vel
Freyr Bragason komst í gær í 16 manna úrslit í
keppni einstaklinga á Norðurlandamótinu í keilu í
Kaupmannahöfn. Sólveig Guðmundsdóttir og Ásgeir
Þórðarson náðu lengst í parakeppni, 11. sæti, og Ás-
geir og Jón H. Bragason urðu 9. í tvímenningi. -VS
Nyjar leikaðferðir gengu vel hja Stjornunni
Stjaman byrjaði vel án Herdísar
Sigurbergsdóttur og endurheimti
efsta sætið í deildinni er liðið vann
ÍBV mjög auðveldlega, 30-18, í gær-
kvöld í Garðabæ.
Stjarnan hafði mikla yfirburði í
leiknum sem Aðalsteinn Jónsson
nýtti til að prófa nýjar leikaðferðir
til að leysa fjarveru Herdísar. Fimm
leikmenn reyndu sig i stöðu Herdís-
ar í gær. Ragnheiður Stephensen (6
mín.), Inga Fríða Tryggvadóttir (22
mín.), Nína K. Björnsdóttir (15
mín.), Anna Blöndal (10 mín.) og
Margrét Theódórsdóttir (7 mín.)
fengu að reyna að stíga í fótspor fyr-
irliðans. Eyjaliðið, sem var án
Andreu Atladóttur, var afar slakt.
Markvörðurinn Lukrecija Bokan
var best en hún varði alls 19 skot
þar af 3 víti. Best á vellinum var þó
Sóley Halldórsdóttir, markvörður
Stjömunnar sem varði 26 skot og
átti 4 stoðsendingar fram í hraða-
upphlaup. Ragnheiður var líka öfl-
ug og gerði 10 mörk og átti 5
stoðsendingar á 48 mínútum.
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður
Stephensen 10/3, Nína K. Björnsdóttir
5/2, Inga Friða Tryggvadóttir 4, Inga
Björgvinsdóttir 4, Margrét Vilhjálmsdótt-
ir 2, Anna Blöndal 2, Margrét Theódórs-
dóttir 1, Hrund Grétarsdóttir 1, Guðný
Gunnsteinsdóttir 1.
Mörk ÍBV: Amela Hegic 7/3, Ingibjörg
Jónsdóttir 4/1, EUsa Sigurðardóttir 3,
Eyrún Sigmjónsdóttir 2, Anna Hallgríms-
dóttir 1, Jennie Martinsson 1. -ÓÓJ
Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari og leikmaöur Hauka:
Tippa á Njarðvíkinga
- liðið sem spilar betri vörn vinnur leikinn, segir Jón
Jón Arnar Ingvarsson, þjálfari
og leikmaður Hauka, þekkir vel til
Njarðvikinga og Keflvíkinga sem
bítast munu um sigur i bikar-
keppninni í körfuknattleik á mog-
un. Jón var beðinn um velta leikn-
um fyrir sér og spá fyrir um hvort
liðið hefði betur.
„Þetta verður hörkuleikur milli
liða sem spila nánast sömu gerð af
körfúbolta. Þau spila hraðan sókn-
arleik, skjóta mikið og skora
grimmt og oft þegar þessi lið leika
verður vamarleikurinn svolítið út
undan. Ég lít svo á að það lið sem
nær að spila betri vamarleik muni
standa uppi sem sigurvegari.“
Lykilatriði fyrir Njarðvík að
stöðva Damon Johnson
„Keflvíkingar hafa verið á mik-
illi siglingu að undanfomu en
Njarövíkingar hafa aðeins verið að
hiksta. Leikur Keflvíkinga hefúr
samt mest byggst á að Damon
Johnson hefur verið að spila á allt
öðm plani en aðrir í síðustu leikj-
um og því hefur kannski ekki
reynt mikið á hina mennina í lið-
inu. Damon hefur einfaldlega
klárað leikina upp á eigin spýtur,
með allri virðingu fyrir meðspilur-
um hans. Það er því lykilatriði fyr-
ir Njarðvíkinga að stöðva Damon
ætli þeir að vinna."
Njarðvík með betra
varnarlið
„Keflvíkingar hafa yfir að ráða
betri skyttum en Njarðvíkingar
hafa meiri hæð og ég tel þá vera
með betra varnarlið. Það er mjög
erfítt að spá fyrir um úrslitin en ég
tippa samt á að Njarðvíkingar hafi
þetta. Þeir era líklegri til að geta
spilaö betri vöm sem ég tel vera
lykilinn að sigri í svona leik. Ég
hef ekki trú á að Damon Johnson
geti haldið áfram að spila eins og
hann hefur verið að gera og það
verður þvi gaman að sjá hvemig
félagar hans bregðast við ef hann
nær sér ekki á strik," sagði Jón
Amar.
-GH
íþróttir
Bikarúrslit i körfu S99
Karlar. Keflavfk-Niarðvfk:
Þetta er 30. bikarúrslitaleikurin frá
upphafi en af þessum 29 hafa KR-ing-
ar leikið flesta (14) og unnið flesta (9)
en Njarðvíkingar tapað flestum, sex.
Keflavík og Njarðvik eru sigursæl-
ustu félög íslenska körfuboltans und-
anfarna 2 áratugi en þessi tvö félög
hafa tekið 18 af 25 titlum frá 1989.
Sigurganga Suðurnesjaliða hefur
verið mikil í bikarkeppninni á undan-
fdmum árum en þetta verður ellefti
titilinn af síðustu 13 sem fer suður
með sjó.
Stuðningsmenn félaganna leggja ör-
ugglega áherslu á að skapa sem besta
heimaleikjastemningu en hvorugt lið-
ið hefur tapað heima í rúmt ár, Kefla-
vlk hefrn- unnið 23. heimaleiki I röð en
Njarðvík 22. leiki í röð heima.
Keflavíkurliðið sem nú leikur sinn
sjötta bikarúrslitaleik hefur unnið 25
leiki í röð I vetur og aðeins tapaö fjór-
um sinnum í slðustu 32 leikjum, I öll
fjögur skiptin fyrir Njarðvik.
Hvorugur þjálfara liðanna hefur
stjómað tapliði í bikarúrslitaleik,
Friörik Ingi Rúnarsson 1 tveimur
sigurleikjum en Sigurður Ingimund-
arson í einum.
Njarðvíkingurinn Teitur Örlygsson
er stigahæsti leikmaður bikarúrslita-
leiks karla frá upphafi með 157 stig 18
leikjum, Valur Ingimundarson hefur
gert 111 stig og Guðjón Skúlason er
þriði með 104 stig en Guðjón hefur
unnið í síðustu fjórum úrslitaleikjum
sem hann hefur spilað.
Konur. KR-ÍS:
Þetta er 25. bikarúrslitaleikur
kvenna frá upphafi en í ár setur KR
met er það spilar sinn 12. úrslitaleik
en sigursælast er Keflavík sem hefur
unnið sína 9 titla í 11 úrslitaleikjum.
Keflvíkingurinn Anna María Sveins-
dóttir er sá leikmaður sem hefur gert
flest stig í bikarúrslitaleikjum eða 164
stig í 10 leikjum. I öðru sæti er félagi
hennar Björg Hafsteinsdóttir sem
hefur gert sin 115 stig í 10 leikjum en
hún hefur oftast allra lyft bikamum
eða 8 sinnum.
Guðbjörg Norðfjörð er reyndasti
leikmaður í úrslitaleikjum af leik-
mönnum á morgun. Guðbjörg er I 5.
sæti með 69 stig í 6 leikjum.
Alls hafa KR-ingarnir, Guðbjörg
Norðfjörð (5), Linda Stefánsdóttir
(3), og Helga Þorvaldsdóttir (3) tapað
samtals 11 bikarúrslitaleikjum.
Félagi þeirra nú, Hanna Kjartans-
dóttir, hefur aftur á móti unnið alla
þrjá sína og vinni hún með KR nú
verður hún bikarmeistari með sínu
þriðja félagi en áður hefur hún unnið
með Haukum ‘92 og Keflavík ‘93 og ‘94.
ÍS er sjöunda liðið sem kemst aftur I
bikarúrslitin eftir að hafa tapað árið á
undan. í 5 af 7 skiptum hefur það lið
sem kemur reynslunni ríkara unnið
bikarinn I annarri tilraun.
Þegar ÍS vann tvöfalt 1978, léku for-
eldrar eins leikmanns ÍS í dag, Öldu
Leifar Jónsdóttur, með báöum lið-
um. Jón Guðni Óskarsson og Kol-
brún Leifsdóttir urðu bikarmeistarar
meö stúdentum 30. mars 1978, eða
rúmu einu ári áður en Alda Leif fædd-
ist. -ÓÓJ
Öll félögin í úrslitum
Renault-bikarnum
á laugardag nota
Leppin sport sportdrykki
og fæðubótarefni.
Við óskum beim öllum
góðs gengís.
Þeir bestu nota Leppin sport:
Körfubolti - úrvalsdeild karla /1999
Keflavík 11 10 0 1 1002-862 20
Njarðvík 11 9 0 2 1030-839 18
KR 11 8 0 3 987-924 16
Grindavflc 11 6 0 5 983-945 12
KFÍ 11 6 0 5 942-935 12
Snæfeil 11 6 0 5 910-926 12
Tindastóll 11 5 0 6 921-933 10
Haukar 11 5 0 6 893-933 10
ÍA 11 5 0 6 831-872 10
Þór A. 11 4 0 7 825-910 8
Skallagrímur 11 1 0 10 857-979 2
Valur 11 1 0 10 839-962 2
Alvöruorka
Ekkert koffein og enginn
hvítur sykur
Hollusta alla leið