Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Page 28
&> w. Fimmtaldur i. vinningur FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1999 Stofnfundur: Engin slagsmál um foringjann „Við höfum verið ákaflega lítið upptekin af því að hugleiða hver verður leiðtoginn, leyfi ég mér að segja. Ég geri ráð fyrir því að það verði verkefni uppstillingamefndar á fundinum að gera tillögur um fólk til stjómarstarfa,“ sagði Steingrím- ur J. Sigfússon alþingismaður. Htmn og fjölmargir félagar hans, þar á meðal þrír aðrir þingmenn, stofna rauð-græna stjórnmálahreyf- ingu í dag, Vinstrihreyflnguna - grænt framboð. Samtökin verða stofnuð í kvöld í Borgartúni 6 og hefst stofnfundur með menningarlegum atriðum og ávarpi fufltrúa sænska vinstri flokksins. Fjórir þingmenn standa í stafni í þessum nýju samtökum: Hjörleifur Guttormsson og Stein- grímur J. Sigfússon, sem koma frá t Alþýðubandalaginu, Kristín Hall- dórsdóttir frá Kvennalistanum og Ögmundur Jónasson sem situr á þingi sem óháður. -JBP Heiðursgestur Stones Nemendamót Verzlunarskólanema náði hámarki í gærkvöld með gleðskap í kjölfar frumsýningar á Dirty Dancing í fslensku óperunni. Þessir knáu sveinar voru á ballinu í gærkvöld og eru allt að því tilbúnir til að leggja undir sig heiminn eins og sjá má. DV-mynd Teitur E-töfluvitni féfletti menntskælinga - stakk af til Benidorm með peningana Helgarblað DV: Sýslumaðurinn og Stones Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu- maður fsflrðinga, er án efa frægasti * aðdáandi Rofling Stones á íslandi. Hann hefur farið á fjölda tónleika með þeim og nú síðast sl. þriðjudag í Den- ver þar sem hann hitti Steinana. DV var á tónleikunum og ræddi við Ólaf Helga, auk þess sem birtar verða myndir af honum í hita leiksins. Rætt er við Reinholt Greve sem var hermaður Þjóðverja í seinni heims- styijöldinni en hefur búið á íslandi. Virtir fræðimenn svara spuming- um um hvað þeir óttist mest í vísind- um framtíðarinnar og hvað sé mesta tilhlökkunarefnið, fjallað er um manninn Glenn Hoddle og nýja von fyrir einhverfa. í fréttaljósum er fjallað um prófkjör Samfylkingar á Reykjanesi og kyn- ferðislegt aðdráttarafl Camillu Park- er-Bowles. -sm/-þhs „Menntaskólanemamir fá pening- ana aftur þegar ég kem heim um miðj- an mánuðinn. Þetta er ekkert mál,“ sagði aðalvitnið í e-töflumálinu, í simtali við DV frá Benidorm í gær. Maðurinn gerði samning við skóla- félag Menntaskólans í Reykjavík um dansleik á skemmtistaðnum Infemo, í kjallara Kringlunnar, síðastliðinn fóstudag. Þegar menntskælingamir ætluðu á ballið var ekkert ball og maðurinn floginn til Benidorm. Var hann þá búinn að selja miða fyrir mörg hundruð þúsund. „Þetta var bara 200 þúsund kall og það þurfti að aflýsa ballinu vegna ein- hverra framkvæmda þama fyrir utan staðinn," sagði hann. „Ég þurfti að fara í flýti og gat ekki látið krakkana vita.“ Bima Þórarinsdóttir, inspector scholae í MR, sem sá um samningana við manninn, hafði þetta um sam- skipti sín við e-töfluvitnið að segja: „Málið er hjá lögfræðingi og óleyst." Maður þessi stóð einnig fyrir komu poppstjömunnar Boy George til ís- lands í fyrra, þá í umboði nemendafé- lags Menntaskólans við Sund. Nem- endafélagið greiddi honum þá nokkur hundrað þúsund krónur sem trygg- ingu, en Boy George lét aldrei sjá sig. Nú stundar vitnið viðskipti á sólar- ströndum við Benidorm: „Ég rek þrjá íslendingabari hér um þessar mundir og það gengur bara vel. Allavega er veðrið gott,“ sagði maðurinn, sem einnig rak hinn víð- fræga Saga-Bar á Benidorm sumarið 1997. Sá bar var seldur í fyrra. Eftirfor í morgun: Unglingar á ofsahraða Lögreglan í Reykjavík veitti í morgun eftirfor bifreið sem tveir unglingspiltar óku um á. Piltamir tveir, sem eru 14 og 15 ára, sinntu ekki merkjum lögreglu um að stöðva bifreið sína á Laugavegin- um. Þess í stað juku þeir hraðann og lögreglan hélt á eftir. Eftirförin hófst á Laugavegi um Rauðarár- stíg, Miklubraut og endaði á Hringbraut við Hljómskálagarð- inn þar sem piltarnir reyndu svo að hlaupa i burtu en voru gripnir. Ökumaðurinn ók greitt og mældist ökuhraði bifreiðarinnar allt að 120 km á klukkustund. Piltarnir eru grunaðir um að hafa tekið bílinn ófrjálsri hendi og em að sjálfsögðu báðir án ökuréttinda. í tilfellum sem þessum eru unglingar undan- tekningarlaust yfírheyrðir hjá lög- reglu ásamt foreldrum og félags- málayfírvöldum. _____________________-hb Skeiðará róleg „Ætli við verðum ekki hér í dag og föram svo heim ef svo heldur fram sem horfír,“ sagði Sverrir Elef- sen vatnamælingamaður í morgun, staddur í Öræfum. „Rennslið í Þverá fer stöðugt minnkandi - Skeiðará er róleg.“ -EIR jplgig Ingvar Helgason hf. krmrltojúa 2 Umi :>2:i HOOO 'iou ih is -EIR Ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitis- brautar í gærdag. Hann var fluttur á slysadeild. DV-mynd HH -4° (3-6? .. ,(lh4s 4 'j ' (J V i -4° -12 -10°(J t-r, / y Veðrið á morgun: Léttskýjað víðast hvar Á morgun verður norðangola eða kaldi en stinningskaldi eða allhvasst við norðaustur- og aust- urströndina. É1 verða norðaust- anlands, einkum við ströndina, en léttskýjað í öðram landshlut- um. Frost verður á bilinu 4 til 10 stig, kaldast inn til landsins. Veðrið í dag er á bls. 29. K

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.