Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Side 5
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1999
dv Fréttir
Ferðamenn og hvalir:
Aleigan
lögö
undir
- segir Einar Bollason
„TiUögunni um að hefja hval-
veiðar á ný má líkja við það að
leggja húsið sitt, aleiguna, undir í
póker. Maður getur hugsanlega
fengið fullt hús,
en líka tapað
öllu. Með tillög-
unni er verið að
leggja mn 70% af
tekjustofnum
þjóðarinnar und-
ir, þ.e.a.s. ferða-
þjónustuna og
fiskútflutning-
inn,“ sagði Einar
Bollason, fram-
kvæmdastjóri ís-
hesta, í samtali við DV í morgun.
Bæði Samtök ferðaþjónustunnar
og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hafa sent sjávarútvegsnefnd um-
sagnir um þingsályktunartillögu
þá sem liggur fyrir Alþingi um að
hefja hvalveiðar á ný. í umsögn
Samtaka ferðaþjónustunnar segir
að aðeins það að Alþingi samþykki
tilöguna geti valdið skaða. Fyrir-
tæki í ferðaþjónustu hafi fengið
viðvaranir frá sölumönnum ís-
landsferða erlendis. Þeir haldi því
fram að hvalveiðar íslendinga
mimi hafa mjög alvarlegar afleið-
ingár í för með sér fyrir ferðaþjón-
ustuna og hætta á að kynningar-
starf sem unnið hefur verið verði
að engu gert í einu vetfangi.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hefur einnig sent sjávarútvegs-
nefnd umsögn sína um frumvarp-
ið. í henni er tekið sterkt til orða
og fullyrt að fiskmarkaðir íslend-
inga erlendis muni hreinlega
hrynja. Ekki náðist í Friðrik Páls-
son, forstjóra SH, vegna þessa máls
í morgun. -SÁ
Einar Bollason,
forstjóri íshesta.
Hryssan með nýfædda folaldið.
DV-mynd Guðfinnur
Folald fæðist
um vetur
DV, Hólmavík:
Hryssa á bænum Kollafjarðar-
nesi, sem horfið hafði úr hestahópi
heimilisins og lét ekki sjá sig þrátt
fyrir nokkra eftirgrennslan heimil-
isfólks í um vikutíma, lét loks sjá
sig með folald sér við hlið þegar
skammdegið var einna svartast.
Að sögn Sigurðar Marinóssonar
bónda var hann alla tíð nokkuð
viss um að hryssan myndi skila
sér heim en siður að hún kæmi
með folald með sér enda var veður-
far æðibreytilegt þessa daga sem
hún var í burtu: allt frá slagviðris-
hláku suma dagana með nokkrum
hitastigum til veðurfars með frosti
allt að 10 stigum.
Hryssan var ekki parrakuð. Hún
hafði frjálsan aðgang að landi í
næsta umhverfi og því ekki eins
auðfundin. Við heimkomuna tók
við betra atlæti en bæði höfðu not-
ið ,í úthaganum og er folaldið, sem
er hestur, hið sprækasta, svo og
móðirin þótt 17 vetra sé.
-Guðfinnur
frábaeirií
sunnudað
ttá Ul. 13 -1
i JaP»s
Lauaavcði
» 1 U i *.-Ci H i í i fWBi