Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Side 7
á ótrúlegu veröi
• Hátt og lágt drif - byggður á grind
• Kraftmikil og hljóðlát vél
• Einstaklega góður í endursölu
$ SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
FÖSTUDAGUR 12. FEBRUAR 1999
Fréttir
Þögnin rofin
Bræðurnir Rúnar Þór Pétursson
tónlistarmaður og Heimir Már Pét-
ursson stjórnmálafræðingur fóru á
í þætti Ingólfs Margeirsson-
, Eftir fréttir, í Sjónvarpinu á mið-
vikudagskvöld. Þar
upplýsti Rúnar Þór að
hann hefði ekki árum
saman fengið spiluð
lög sína á Rás 2
vegna andúðar
Magnúsar Einars-
sonar tónlistar-
stjóra. Það slcorti
ekki á viðbrögðin
hjá Rásinni því
morguninn eftir stoppaði ekki síminn
og voru spiluð á örfáum tímum 5 lög
með rokkaranum ráma. Þögnin var
því rofin með stæl...
Enn siðvætt
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkom @ff. is
Svo sem Sandkorn greindu frá
stendur yflr mikil siðvæðing í álver-
inu í Straumsvík. Ekkert klám eða of-
drykkju eru meðal dagskipana.
Þannig var nokkurt upplag dagatala
eins viðskiptavina ál-
versins endursent
vegna þess að það
þótti sýna nakta
kroppa með grófum
hætti. Það var Einar
Guðmundsson
fræðslustjóri sem
endursendi ósköpin
en ekki sjálf álkon-
an Rannveg Rist sem
stjómar álveri sínu af einstakri hag-
sýni og festu. Nú heyrist pískrað um
að hluti siðvæðingarinnar felist í því
að banna mönnum að pissa úti undir
vegg svo sem gerðist til sveita í den.
Harðjaxlarnir skuli á klóið verði þeim
mál óg gott ef þeim er ekki gert að
sitja svo ekki sullist í kring...
Stigavörður með stæl
Hin geysivinsæla spuminga-
keppni framhaldsskóla, Gettu betur,
hefst í dag þegar lið Verzlunarskóla
tslands og Menntaskólans í Reykja-
vík mætast. Keppnin, sem hófst
raunar í útvarpi, hef-
ur gengið stórslysa-
laust fyrir sig fram
að þessu. Dómarinn,
Illugi Jökulsson,
er sagður lesa
spurningarnar
a.m.k. tíu sinnum
yfir til að koma í
veg fyrir vafamál.
Framhaldsskól-
amir eru svo nokkuð sáttir við
stjórnandann, Loga Bergmann
Eiðsson, en minna er um að hann
sletti háðsglósum framan í skarann
eins og oft tíðkaðist i fyrra. Síðast en
ekki síst hefur hinn spánnýi stiga-
vörður, Þóra Amórsdóttir, staðið
sig með prýði. Karlkynskeppendur
eru stórhrifliir af Þóru og segir sag-
an að áhorfendur og aðrir taki
andköf þegar hún gengur í salinn...
Þorsteinn og tóbakið
Einhver Þorsteinn Njálsson sótti
um stöðu landlæknis fyrir.skömmu
en var algjörlega hafnað af nefnd heil-
brigðisráöuneytisins þar sem hún
taldi hann ekki einu sinni hæfan til
að gegna embættinu. Þetta kom þess-
um Þorsteini nokkuð
á óvart þar sem
hann er jú einu
sinni bæjarfulltrúi
Framsóknarflokks-
ins í Hafnarfirði
og ráðherra Ingi-
björg Pálmadótt-
ir er flokkssystir
Steina. En Þor-
steinn hefur nú endanlega
sig út í hom eftir þvi sem heyrist í
Firðinum því á síðasta fundi bæjar-
stjómar Hafnarfjarðar lá fyrir tillaga
þess efnis að veita sem svaraði verði
eins sígarettupakka á hvern nemanda
í grunnskólum bæjarins til tóbaksfor-
varna í bænum. Þessi Þorsteinn hafn-
aði tillögunni en það þótti stórfurðu-
legt þar sem hann er formaður Tó-
baksvamamefndar...
„Það kemur ýmislegt til
greina í þessu húsnæði,"
sagði Karl J. Steingríms-
son, kaupmaður í Pelsin-
um, í gær. Senn tekur
hann ákvörðun um hvað
verður um húsnæði elsta
apóteks landsins, vöggu
lyflafræðinnar á íslandi,
Reykjavíkurapóteks. Hús-
ið að Austurstræti 16
keypti hann fyrir um 290
mUljónir króna. Jóhannes
Skaftason apótekari hefur
starfað við Reykjavíkur-
apótek síðustu 8 árin.
Hann segir að 1. apríl
næstkomandi verði ekkert
apótek á staðnum, það
verður búið að loka. Apó-
tekið hefur verið á þessum
stað í nærri 70 ár, en var
stofnað vestur á Seltjarn-
arnesi 1760 og er ótvírætt
elsta starfandi fyrirtæki
landsins.
íþróttahús
byggtí
Olafsvík
DV, Snæfellsbæ:
Bygging nýs íþróttahúss í Ólafs-
vík verður líklega boðin út í lok
febrúar, að sögn Kristins Jónasson-
ar, bæjarstjóra í Snæfellsbæ, og er
áætlað að húsið verði tekið í notkun
í júlí árið 2000.
Það verður 2300 fermetrar að
stærð og gólfflöturinn verður 24x45
m. Þar verða löglegir handbolta- og
körfuboltavellir þannig að þá geta
íslensku landsliðin.í handbolta og
körfubolta att hér keppni. Heildar-
kostnaður við byggingu hússins er
áætlaður um 230 milljónir króna.
“Staða bæjarsjóðs Snæfellsbæjar
um síðustu áramót var mjög góð,“
sagði Kristinn. Við seldum hluta-
bréf okkar i Snæfellingi fyrir um
180 milljónir króna og fyrir það gát-
um við greitt upp eldri og óhagstæð-
ari lán og lagað vel til í flármálun-
um.“ -DVÓ
Bogaborð og
ómetanleg listaverk
Kaupandi Austurstrætis
16 er Eignarhaldsfélagið
Kirkjuhvoll, sem er í eigu
Karls og Esterar konu
hans, kaupmanna í Pelsin-
um. Karl sagði í gær að
vissulega væru ýmsar
hömlur á rekstri í hús-
næði Reykjavíkurapóteks. Húsið
væri sögufrægt hús sem hýsti
Landsbankann um 8 ára skeið eftir
Austurstrætisbrunann 1915. Þarna
var líka veitingastaður Rósenbergs.
Húsið veu: í meira en hálfa öld ráð-
hús Reykjavíkur, borgarskrifstofur
voru þar og ekki eru mörg ár síðan
Davíð Oddsson flutti úr húsinu yfir
í hið nýja Ráðhús við Tjömina. í
húsinu era ómetanleg verk eftir
Guðmund Einarsson frá Miðdal.
Það sem lengi hefur hindrað eðli-
lega starfsemi í afgreiðslusal er
bogaborðið mikla sem þar er. Karl
sagðist ekki vilja ræða þá friðun
sem á húsinu hvílir. Hann muni
ræða það viö Húsfriðunarnefnd og
hafi hann skrifað henni erindi sitt
og vonist til að hægt verði að flnna
lausn sem öllum verði að skapi. Inn-
réttingar i afgreiðslusal, sem Sig-
urður Guðmundsson arkitekt teikn-
aði á sínum tíma, eru friðaðar, og
það er útlit hússins lika. Aðrar inn-
Jóhannes Skaftason apótekari og starfskonur apóteksins verða síðustu starfsmenn elsta fyrirtækis landsins sem er nærri 290
ára gamalt. Bogaborðið og innréttingar afgreiðslu eru friðað og takmarkar mjög útleigu á húsnæðinu fáist ekki leyfi til breytinga.
DV-mynd Hilmar Þór.
réttingar eru ekki ö’iðaðar, en þær
eru áratugagamlar og hafa löngu
þjónað ætlunarverki sínu.
Ár er liðið síðan Háskólinn tók þá
ákvörðun að ekki hentaði fyrir
stofhunina að reka lyflabúð og alls
ekki á þessum stað. Ingjaldur
Hannibalsson, formaður stjórnar
Lyflabúðar Háskóla íslands, segir
einmitt að friðun innréttinga hafi
þau áhrif að mjög erfitt sé að hag-
ræða í rekstri eins og nauðsynlegt
væri. Reynt var að selja reksturinn,
sem ekki tókst. Um áramótin var
húsið siðan selt og var þá sjálfhætt.
Jóhannes lyfsali sagði þó að við-
skiptin í Reykjavíkurapóteki væru í
sjálfu sér með ágætum í dag. -JBP
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
• rafmagn í rúðum og speglum •
• styrktarbita í hurðum •
• samlitaða stuðara •
VITAEA
TEGUND: VERÐ:
JLX SE 3d 1.580.000 KR.
JLXSE 5d 1.830.000 KR.
DIESEL 5d 2.180.000 KR.
Sjálfskipting kostar 150.000 KR.
Karl í Pelsinum tekur viö húsnæöinu:
Friðað afgreiðsluborð
er Ijón í veginum
- þegar leigja skal út húsnæöi Reykjavíkurapóteks