Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Ólga um borö í Vatneyri BA 238 við komuna til Patreksfjarðar:
Ahöfnin vissi ekki
um glæpinn
sem seldur er á eina króna kílóið en
ef kílóið kostar 130 krónur.
Þessi frægi þorskur sem Vatneyr-
in landaði á Patreksfirði í gærmorg-
un var veiddur á Fontinum suðaust-
ur af landinu. Upp úr hádegi í gær
var ekið með hann til Brjánslækjar
þar sem hann var settur um borð í
flóabátinn Baldur sem sigdi með
hann yfir í Stykkishólm. Þaðan var
honum svo ekið til Reykjavíkur og
Þorlákshafnar þar sem hluti af hon-
um var settur um borð í Herjólf og
siglt til Vestmannaeyja.
Það má segja að þama hafi fiskur-
inn næstum því verið búinn að fara
hringinn í kringum landið. „Fiski-
stofumenn og ríkislögreglustjóri
geta reynt að elta hann í gegnum
fiskvinnsluvélarnar og jafnvel reynt
að troða honum til baka alla leið.
Það er bara ekki hægt,“ sagði Svav-
ar útgerðarmaður í gær. „Ég vil fyr-
ir dómstóla með málið - til þess var
leikurinn gerður - þetta er leikur
um líf og dauða á landsbyggðinni."
-EIR
Kvótastríðið:
Fiskistofa fór
húsavillt með
kæruna á Svavar
DV, Patreksfirði:
í allan gærdag beið Svavar Guðna-
son, útgerðarmaður á Patreksfirði,
eftir því að vera boðaður í yfir-
heyrslu hjá sýslumanninum á staðn-
um. „Það er eins og hann vilji ekki
tala við mig. Ég er búinn að reyna að
hringja í hann oftar en einu sinni,“
sagði Svavar síðdegis í gær.
Þórólfur Halldórsson sýslumaður
beið hins vegar rólegur á skrifstofu
sinni og sinnti Svavari útgerðar-
manni sem minnst:
„Við þurftum að bíða eftir að
löndun úr Vatneyri lyki því fyrr
höfðum við ekki öll gögn í höndun-
um, “ sagði sýslumaður. „Reyndar
hefði verið eðlilegra hjá Fiskistofu-
mönnum að beina kærunni til efna-
hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra
því þar eru þeir menn sem eiga að
rannsaka málið. Við sendum
kæruna til þeirra og ég á von á að
menn frá þeim komi hingað á morg-
un. Það er ekki flogið meira i dag,“
sagði Þórólfur Halldórsson, sýslu-
maður á Patreksfirði. -EIR
Fulltrúi frá Fiskistofu á tali viö Björn Kristjánsson, skipstjóra á Vatneyri, skömmu eftir að lagst var aö bryggju í gær-
morgun. DV-mynd ÞÖK
.Þrír úr áhöfn Vatneyrarinnar viö komuna til lands: Loftur Indriðason yfirvél-
stjóri og hásetarnir Tómas Waagfjord og Kristinn Kristinsson.
DV, Patreksfirði:
„Það er verið að gera okkur að at-
hlægi um land allt,“ sagði kokkur-
inn á Vatneyri BA 238 skömmu eft-
ir að skipið lagðist að bryggju á Pat-
reksfirði í gærmorgun með 35 tonn
af þorski, veiddum utan kvóta.
„Mér var ekki sagt sagt það fyrr en
á fosutdaginn að við værum að
veiða kvótalausan fisk. Þá var ég
þegar búinn að fara í einn túr og
veiða kvótalaust án þess að vita af
því,“ sagði kokkurinn og átti þar
við 20 tonn af þorski sem landað var
á Eskifirði og seldur í Hull í Bret-
landi í fyrradag.
Hásetarnir um borð báðu kokk-
inn um að hafa sig hægan, hér væri
verið að vinna nauðsynlegt verk.
Reyndar höfðu hásetamir Tómas
Waagfjord og Kristinn Kristinsson
meiri áhuga á að komast til Spánar
og það helst strax:
„Við emm búnir að reikna það út
að best er að fljúga til Svíþjóðar og
kaupa Spánarferðina þar,“ sagði
Tómas og var þar með farinn í land
ásamt félaga sínum að leita að kaffi-
húsi. Kokkurinn fylgdi i kjölfarið en
ætlaði til Reykjavíkur.
Áður hafði útgerðarmaður skips-
ins, Svavar Guðnason, kallað hvem
áhafnarmeðlim fyrir sig einn af öðr-
um og gert samning um að hann
keypti aflann úr kvótalausu veiði-
ferðinni á eina krónu kílóið þegar
markaðsverð þennan morgun var
130 krónur á kílóið. Með þessu lagi
ætlaði útgerðarmaðurinn að sjá við
yfirvöldum sem ætluðu að gera
söluverð aflans upptækt. Og það
fæst minna fyrir 35 tonn af þorski
Aflabresturinn í rækjuveiðinni:
Ráðherra krafinn um aðgerðir
Einar K. Guðfinnsson, alþingis-
maður Vestfirðinga, lýsti þeim
vanda sem við er að fást í rækjuveið-
um og vinnslu í utandagskráram-
ræðu á Alþingi í gær. Hann sagði að
sá aflabrestur sem verið hefur und-
anfarið og þriðjungs skerðing á
heildarrækjukvóta í ofanálag hefði
komið mjög illa við fjölmörg útgerð-
arfyrirtæki og byggðarlög sem
byggðu afkomu sína að miklu eða
öllu leyti á þessari grein. Hann lýsti
eftir aðgerðum flokksbróður síns,
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráð-
herra í þessu máli og spurði hvort
ekki yrði að endurskoða aðferðir við
stofnmat á rækju í framhaldi af því
skipbroti sem stofnmat HAFRÓ á
rækju hefur beðið.
Frá 1. september til 31. janúar hafa
veiðst 12.400 tonn af rækju sem er
um helmingur þess sem veiddist á
sama tima í fyrra. Ástandið á rækju-
miðunum er þannig að sögn Einars
að fátt bendi til þess að þess að það
náist að veiða upp í útgefinn rækju-
kvóta, jafnvel þótt að nýlega sé búið
að skerða hann um þriðjung frá því
sem ákveðið var i upphafi fiskveiði-
ársins. í ljósi þess sagði Einar að
margir teldu að þriðjungs skerðing
myndi ekki hafa nein áhrif á heildar-
veiðina en myndi einungis leiða til
tilfærslna á rækjukvóta milli út-
gerða sem eiga aflaheimildir í rækju,
enda væru þegar dæmi um skip sem
hefðu leigt frá sér allar rækjuveiði-
heimildir. Skerðingin hefði hins veg-
ar slæm áhrif á útgerðir og vinnslu-
fyrirtæki sem vildu nýta aflaheim-
ildir sínar til að afla hráefnis til inn-
anlandsvinnslu. Þær verði nú að
taka aflaheimildir á leigu dýrum
dómum frá skipmn sem ekki sjá sér
hag í að nýta eigin heimildir.
Einar K. Guðfinnsson benti á að í 9.
grein fiskveiðistjómunarlaganna
væra úrræði til þess að mæta vanda
sem skapast vegna samdráttar á ein-
stökum sviðum sjávarútvegs. Hann
spurði sjávarútvegsráðherra hvort
hann teldi ekki rétt að beita heimild-
um laganna til að halda eftir afla-
magni til að ráðstafa til þeirra útgerða
sem verða fyrir mestum tekjumissi
vegna skertra aflaheimilda í rækju.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði að HAFRÓ væri að
vinna að þróun aðferða við stofn-
mat á úthafsrækju til að styrkja ráð-
gjöf um þennan mikilvæga nytja-
stofn. Vandamál við aldursgrein-
ingu rækju hefðu komið í veg fyrir
að hægt væri að nota hefðbundin
reiknilíkön við að meta stofnstærð.
Þorsteinn sagðist ekki geta svarað
því á þessu stigi málsins hvort
heimildarákvæðum níundu greinar
fiskveiðistjórnarlaganna yrði beitt.
Fyrst yrði ráðgjöf HAFRÓ að liggja
fyrir og það yrði vart fyrr en á vori
komanda. -SÁ
Stuttar fréttir dv
Siv efst
Framsóknarflokkurinn í
Reykjaneskjör-
dæmi hefur
ákveðið fram-
boðslista sinn.
Efst er Siv Frið-
leifsdóttir, í
öðru sæti er
Hjálmar Árna-
son, í því þriðja
er Páll Magnússon og Drífa Sig-
fúsdóttir í fjórða.
Flugvöliur í sjónum
Borgarráð hefur samþykkt að
fela borgarverkfræðingi og skipu-
lagsstjóra að skoða helstu um-
hverfisþætti og umhverfisáhrif í
frumúttekt á nýjum flugvelli í
Skerjafirði og íbúðabyggð í Vatns-
mýrinni og á núverandi flugvall-
arsvæði.
Mistök í álverinu
Brunamálastofnun telur að mis-
tök og misskilningur hafi valdið
því að starfsmaður Álversins i
Straumsvík þurfti að hringja
tvisvar í Neyðarlímma og leita
sjálfur eftir aðstoð frá slökkviliði
Reykjavíkur þegar eldur kviknaði
í álverinu í vetur. RÚV greindi frá.
Búnaðarbanki hagnaöist
Hagnaður Búnaðarbanka ís-
lands nam 876 milljónum króna á
síðasta ári fyrir skatta. Að teknu
tilliti til skatta var hagnaðurinn
649 milljónir króna.
Sömu úrslit
Niðurstaða í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar á
Norðurlandi
eystra er
óbreytt eftir
endurtalningu í
dag. Sigbjörn
Gunnarsson er
með tíu at-
kvæði umfram
Svanfríði Jónasdóttur í fyrsta
sætið. RÚV greindi frá.
Miöborgarstjórn
Borgarráð hefur skipað sex
manns í nýja miðborgarstjóm.
Formaður er Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir en aðrir stjómarmenn
eru Bolli Kristinsson, Þorkell Sig-
urlaugsson, Eva María Jónsdótt-
ir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.
Styrkir bjórhátíö
Borgarráð hefur samþykkt að
veita Samtökum ferðaþjónustunn-
ar 500 þúsund króna siyrk til aö
fagna því að tíu ár em liðin frá
endurlögleiðingu bjórs á íslandi.
Samtökin ætla að efna til viku-
langrar hátíðar á veitingahúsum
með áherslu á bjór, mat og menn-
ingu. Viðskiptavefur VB á Vísi.is
greindi frá.
Aðalverktakar í mýrina
íslenskir aðalverktakar viija
reisa 30 þúsund manna byggð
með um tíu þúsund íbúðum og
allt að 500 þúsund fermetra af at-
vinnuhúsnæði í Vatnsniýrinni.
Byggja á fimm til sjö hæða hús
við breiðstræti og reiknað er með
umfangsmiklum bílageymslum
neðanjarðar. Viðskiptavefur VB á
Vísi.is greindi frá.
Skólabörn yfirheyrð
Tugir sakborninga og vitna
hafa verið yfirheyrð á síðustu
vikum vegna sex kæra foreldra
grunnskólanema í Hagaskóla til
lögreglunnar. Kært er vegna ein-
eltis, líkamsárása og morðhótana
nemenda á hendur skólafélögum
sínum. Dagur greindi frá.
Nýr forsetaritari
Róbert Trausti Ámason, sendi-
herra í Kaup-
mannahöfn,
verður forseta-
ritari í byrjun
april þegar
Kornelíus Sig-
mundsson, sem
gegnt hefur
starfinu undan-
farin ár, verður sendiherra ís-
lands í Finnlandi.