Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999
5
DV
Fréttir
^ Prófkjör Samfylkingarinnar á Noröurlandi vestra:
Ovænt úrslit geta
styrkt framboðið
Kristján L. Anna Kristín
Möller. Gunnarsdóttir.
Alþýðubandalagskonan Anna
Kristín Gunnarsdóttir á Sauðár-
króki, sem af mörgum var talin eiga
sigur nokkuð vísan í próíkjöri Sam-
fylkingarinnar á Norðurlandi vestra
um helgina, var ekki beinlínis
ánægð með þá niðurstöðu prófkjörs-
ins að hafna í 2. sæti, á eftir Siglfirð-
ingnum og kratanum Kristjáni L.
Möller. Hún sagðist þó hafa átt á
ýmsu von, eftir að fréttir bárust af
hinum ótrúlegu kjörsóknartölum frá
heimabæ Kristjáns, Sigluflrði, að
þar hefðu yfir 800 manns greitt at-
kvæði. Þegar úrslitin lágu fyrir var
þungt hljóðið í Önnu Kristínu og
hún vildi ekki svara þeirri spum-
ingu hvort andstæðingar hennar í
prófkjörinu hefðu unnið heiðarlega,
á annan hátt en
þann að menn
gætu horft á kjör-
sóknina á Siglu-
firði.
Að yfir 800
manns hafi kosið á
Sigluflrði, í bæ þar
sem utn 1100
manns eru á kjör-
skrá, er ekki hægt að líta á öðruvísi
en svo að Siglfirðingar hafl tekið þá
afstöðu að um byggðakosningu væri
að ræða, og þeir yrðu að koma sín-
um manni í öruggt sæti. Þótt Krist-
ján hafl staðið lengi í eldlínunni í
bæjarmálunum á Siglufirði nýtur
hann ekki þvilíks yflrburðastuðn-
ings í bænum. Hann lagði allt undir
í bæjarstjórnarkosningunum á síð-
asta ári, tók þá baráttusætið á Siglu-
fjarðarlistanum og freistaði þess að
ná hreinum meirihluta í bæjar-
stjóm. Það tókst ekki.
Einn á móti þremur
Það er ekki ný saga að rigur sé
mikill á milli Siglflrðinga og Sauð-
krækinga og því komu úrslit próf-
kjörsins sem köld vatnsgusa framan
í þá síðarnefndu. Úrslitin voru um
leið mikil vonbrigði fyrir Alþýðu-
bandalagsmenn í kjördæminu, sem
fengu þrefalt meira fylgi en Alþýðu-
flokkurinn í kosningunum 1995.
Ragnar Arnalds var þá kjörinn á
þing enn eitt kjörtímabilið, en kratar
voru langt frá því að koma að manni.
í prófkjörinu nú naut Kristján
þess að vera eini kratinn sem sóttist
eftir 1. sætinu, en þrír liðsmanna Al-
þýðubandalagsins vildu í það sæti;
Anna Kristín, Jón Bjarnason, skóla-
stjóri á Hólmn, og Signý Jóhanns-
dóttir á Siglufirði. Kristján fékk 852
atkvæði í 1. sætið, Anna Kristín 810,
Jón 580 og Signý 89. Alþýðubanda-
lagsframbjóðendurnir fengu því sam-
tals 1479 atkvæði gegn 852 atkvæðum
Kristjáns og það sveið undan því að
þessar tölur skiluðu ekki meiru en
raun varð á.
Það fer ekki hjá því að menn velti
fyrir sér afleiðingum niðurstöðu
prófkjörs Samfylkingarinnar fyrir
framboðið og hvaða áhrif niðurstað-
an geti haft á sjálfar kosningarnar í
vor. Svo virðist sem Anna Kristín
hafi verið fljót að jafna sig eftir von-
brigðin sem fylgdu
úrslitunum, og
hún er þegar byrj-
uð að tala fyrir því
að Samfylkingin
eigi möguleika á
tveimur þingsæt-
um, og því verði
hún í baráttusæt-
inu. Þessu eru
sumir viðmælenda DV sammála,
þótt aðrir bendi á að það verði þungt
á fótinn fyrir margan allaballann að
greiða Kristjáni L. Möller atkvæði
sitt.
Eina konan sem á möguleika
Bent er á að Anna Kristín sé eina
konan sem eigi möguleika á að ná
kosningu til Alþingis í kjördæminu
og stilla menn dæminu þannig upp
að hún sé valkostur á móti Vilhjálmi
Egilssyni, sem skipar 2. sætið á lista
Sjálfstæðisflokksins, og Árna Gunn-
arssyni, sem er í 2. sætinu hjá Fram-
sóknarflokknum. Lítum nánar á
þessa möguleika.
í kosningunum 1995 vann Fram-
sóknarflokkurinn stórsigur, fékk
38,7% atkvæða, bætti við sig 6,4% og
fékk tvo menn kjöma á þing. Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk 30,8% og
einnig tvo menn. Flokkarnir sem
standa að Samfylkingunni nú fengu
samtals 30,6% og Ragnar Amalds
náði kjöri. Alþýðubandalagið fékk þá
15,6%, Þjóðvaki 6,8%, Alþýðuflokk-
urinn 5,0% og Kvennalistinn 3,2%.
Ef horft er á þessar tölur gætu mál
hæglega þróast þannig að geysileg
barátta verði um þingsætin, þar sem
þrír listar gætu orðið mjög jafnir.
Ekki er að efa að Samfylkingin mun
leggja spilin þannig fyrir kjósendur,
að valið standi milli Ónnu Kristínar,
Vilhjálms og Árna, og á því verður
hamrað að Anna Kristin sé eina kon-
an sem eigi möguleika á þingsæti í
kjördæminu og kann það að vega
þungt.
Vilhjálmur Árni
Egilsson. Gunnarsson.
Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknarflokks og Samfylkingarinnar;
Hjálmar Jónsson, Páll Pétursson og
Kristján Möller, eru öruggir með
þingsæti ef svo fer sem horfir, en um
hin tvö sætin getur orðið geysileg
barátta. Margir viðmælenda DV era
eindregið þeirrar skoðunar að Sam-
fylkingarlistinn verði mun öflugri
með Önnu Kristínu í 2. sætinu en
Kristján í því sæti.
Ekki má gleyma vinstri-grænum
En það má ekki gleyma einu at-
riði. Þótt Anna Kristín sætti sig við
niðurstöðu prófkjörsins, helli sér í
slaginn og berjist fyrir þingsæti,
munu eflaust margir alþýðubanda-
lagsmenn eiga erfitt með að sætta sig
við niðurstöðu prófkjörsins og ekki
hafa mikla trú á að Samfylkingin
eigi kost á tveimur þingsætum. Þess-
ir kjósendur munu sennilega margir
halla sér að Vinstrihreyfingunni -
Grænu framboði, en það kann þó að
ráðast af þvi hver eða hverjir veljist
þar til forustu. í augnablikinu eru
tveir menn helst nefndir til sögunn-
ar, Þórarinn Magnússon, bóndi á
Frostastöðum, og Rögnvaldur Ólafs-
son, bóndi í Flugumýrarhvammi,
báðir í Akrahreppi.
Af þessu má sjá að úrslitin í próf-
kjöri Samfylkingarinnar á Norður-
landi vestra kunna að efla Samfylk-
inguna - ef liðsmenn Alþýðubanda-
lagsins fylgja Önnu Kristínu og hella
sér í baráttuna fyrir 2. sætinu. En í
pólitík geta hlutirnir gerst hratt og
„landslagið" kann að breytast mjög
áður en talið verður upp úr kjörköss-
unum í maí.
ALLIR SUZUKI BÍLAR ERll MEÐ:
• vökvastýri • 2 loftpúða •
• aflmiklar vélar • samlæsingar •
• rafmagn í rúðum og speglum •
• styrktarbita f hurðum •
• samlitaða stuðara •
»JIMNY fékk gullverðlaunin '98 í Japan
fyrir útlit, gæði, eiginleika og möguleika!
» Sterkbyggður og öflugur sportjeppi
» Ódýrasti ekta 4x4 jeppinn á íslandi
• Hátt og lágt drif- byggður á grind
FULll=
FRAMtm
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
JIMNY
TEGUND: VERÐ:
Beinskiptur 1.399.000 KR.
Sjálfskiptur 1.519.000 KR.
Frélta|jós
Gylfi Kristjánsson
25" Black invar sW lar aðgerðir
2x20W magnan . rt tengi
^•J^tengi.íslenskur
Heyrnart°lsten9 ^
Nicam
Ssaffi
KJíSA • h«
rCA*16:9 brelðt)
Lágmíila 8 < sTml 533 2
Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Vestfirðir: Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, Isafirði. Kf. Norðurland: V-Hún., Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA Lónsbakka Akureyri.
Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Vélsmiðjan Höfn. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Geisli, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
fin«-oX
finl°x