Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999
9
Utlönd
Útlit fyrir sigur Siumut á Grænlandi:
Motzfeldt tilbúinn
í stjórnarmyndun
Allt bendir til að Siumut-flokkur-
inn verði áfram stærsti flokkurinn
á Grænlandi eftir kosningamar til
heimaþingsins í gær.
Þegar búið var að telja 54 prósent
atkvæðanna í morgun hafði Siiunut
fengið 36 prósent og ellefu menn á
þingi þar sem 31 maður situr í
einni deild.
Samstarfsflokkur Siumut i
heimastjóminni frá kosningunum
1995, frjálslyndi flokkurinn Atassut,
var með stuðning 25 prósenta kjós-
enda og fengi átta sæti, ef sú verður
lokaniðurstaðan.
„Við emm mjög ánægð og ég býst
við að ég muni hafa frumkvæði að
myndun næstu ríkisstjómar," sagði
Jonathan Motzfeldt, formaður
heimastjómarinnar og leiðtogi Si-
umut, í viðtali við grænlenska sjón-
varpið í nótt. Hann sagði ekki við
Jonathan Motzfeldt er ánægður
með úrslitin í kosningunum.
hvaða flokk hann myndi ræða fyrst
um stjómarmyndun.
Motzfeldt hefur gegnt starfl for-
manns heimastjómarinnar í fjórtán
ár af þeim tuttugu sem liðin em
síðan Grænlendingar fengu stjóm
eigin mála.
Flokkur þjóðemissinnaðra
vinstrimanna, Inuit Ataqatigiit
(IA), sem er í stjómarandstöðu var
kominn með 21 prósent atkvæða í
morgun og fengi sjö þingmenn.
Samfylking óháðra frambjóðenda
fær væntanlega fimm þingsætin
sem eftir em. Ef þetta verður niður-
staða kosninganna missir Siumut
þrjá þingmenn og Atassut tvo. IA
bætir við sig einum og óháðir fjór-
um.
Búist er við að auðlindamálin
verði fyrirferðarmikil á næsta kjör-
tímabili.
Grunaðir um
kaupá
filippseyskum
drengjum
DV, Ósló:
Bamasálfræðingurinn, skóla-
tannlæknirinn og bamakennar-
amir tveir i Noregi, sem úrskurð-
aðir vom í gæsluvarðhald vegna
meints kynferðisafbrot gegn fil-
ippseyskum drengjum, munu
hafa flutt fyrstu drengina frá Fil-
ippseyjum til Noregs fyrir fjórtán
árum.
Allir hafa mennimir verið tíð-
ir gestir á Filippseyjum undan-
farin ár og þaðan hafa norsku
lögreglunni borist reglulega síð-
ustu tiu árin upplýsingar um
framferði þeirra. Ekkert var þó
gert til að rannsaka málið fyrr en
í haust að enn nákvæmari upp-
lýsingar bámst.
Þá vekur athygli að fjórmenn-
ingamir hafa reglulega sent um-
talsverðar flárhæðir til fólks á
Filippseyjum án þess aö nokkur
skýring hafi fengist. Norskir fjöl-
miðlar leiða að því getum að
mennimir hafi keypt drengina af
fjölskyldum þeirra á Filippseyj-
um. -GK
Framkvæmda-
stjórn ESB við-
urkennir svindl
Háttsettir embættismenn í
framkvæmdastjóm Evrópusam-
bandsins, ESB, viðurkenndu i
gær að gmndvöllur væri til að
ætla að skipulagt svindl heföi átt
sér stað í hinni svokölluðu Leon-
ardo-áætlun. Edith Cresson,
fyrrverandi forsætisráðherra
Frakklands, sem er í forsvari fyr-
ir áætlunina, hélt því nýlega
fram á Evrópuþingi að enginn
granur léki á svindli.
William King, aðalforsprakkinn í morði á blökkumanni í Jasper í Texas í
fyrra, sést hér leiddur út úr réttarsalnum. Við réttarhöldin í gær kom fram að
King hafi ætlað að nýta sér morðið og umtalið um það til að stofna samtök
kynþáttahatara í tengslum við sams konar samtök í fangelsum Texas.
Framboðsmál forsetafrúarinnar:
Hillary hugsar sig um
Hillary Rodham Clinton, forseta-
frú í Bandaríkjunum, lofaði í gær
aö hugsa sig vandlega um áður en
hún tæki endanlega ákvörðun um
hvort hún býður sig fram til öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings.
Demókratar í New York hafa lagt
hart að Hillary að bjóða sig fram
þar á bæ.
í skriflegri yfirlýsingu um málið,
þeirri fyrstu sem Hillary hefur látið
frá sér fara, sagðist hún vera ákaf-
lega þakklát fyrir þann áhuga sem
hugsanlegt framboð hennar hefúr
vakið.
Ákvörðunar um framboð er ekki
að vænta fyrr en síðar á árinu.
Þangað til ætlar Hillary að einbeita
sér að helstu málum á stefnuskrá
Bills Clintons forseta.
NICORETTE
innsogslyf
Þegar þú vilt hœtta að reykja
Febrúartilboð á „STARTPAKKA”
hjá eftirtöldum aðilum:
Apotek Austurbæjar
Árbæjar Apótek
Borgar Apótek
Breiðholts Apótek
Fjaröarkaups Apótek
Grafarvogs Apótek
Háaleitis Apótek
Holts Apótek
Hraunbergs Apótek
Ingólfs Apótek
Laugavegs Apótek
Nesapótek, Seltj.
Vesturbæjar Apótek
Háteigsvegi 1
Hraunbæ 102 b
Álftamýri 1
Mjódd
Hólshrauni 1 b
Hverafold 1-5
Háaleitisbraut 68
Glæsibæ
Hraunbergi 4
Kringlunni 8-12
Laugavegi 16
Eiðistorgi 17
Melhaga 20-22
OTRULE
Flísar frá kr,
HEFST A MORGUN
í
S 90
M2
T
ÓLFEFNABUÐ
traust undirstaða fjölskyldunnar
BORGARTÚNI 33
SÍMI 561-7800 - FAX 561-7802