Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 11 Fréttir Þórir Schiöth, formaður Tannlæknafélags íslands: Kannski eru yfirvöld að útvega okkur meiri vinnu. Deilt um forvarnir tannlækna: Þeir sem helst þurfa flúor fá ekki Þrettán ára börn sem koma til tannlæknis fá ekki lengur flúorlökk- un á tennur sinar, aðgerð sem kost- ar um 3.600 krónur. Þórir Schiöth, formaður Tannlæknafélagsins, sagði í gærkvöld að verið væri að skera niður forvamir á ótrúlegan hátt. Hann segir að enn fremur sé búið að takmarka notkun á skorufyllingar- efnum í tennur bamanna enn ffekar en áður var. „Það er líka búið að skera niður tímaeiningafjölda í skoðun, en það hefur kannski ekki áhrif fyrr en eft- ir hálft ár því krakkarnir koma í skoðun núna fyrri hluta ársins, en þegar þau koma í seinna skiptið verður kvótinn búinn. Eigi börnin að koma tvisvar í skoðun þurfa for- eldrar að borga seinni skoðun að fullu,“ sagði Þórir. Reglugerðin sem tannlæknar segja að skeri niður forvamir var sett 1. janúar, en birt nú nýlega i Stjómar- tíðindum og hefur því tekið gildi. „Þetta er alveg út í hött að ráðast á þennan hátt gegn forvömum. Þetta gengur þvert á stefnu ríkis- stjómarinnar í eflingu forvama, og þvert á skynsamlega leið í forvam- armálum. Það er einmitt þessi hóp- ur, táningamir, sem þarf mest á flú- ormeðhöndlun að halda, táningam- ir sem fá vasapening sem fer í sæt- indi og gosdrykki, krakkamir sem hætta að hlýða foreldrunum og bursta kannski ekki í sér tennum- ar. Þetta er tannskemmdaaldurinn, 12 til 17 ára. Kannski em yflrvöld að útvega okkur tannlæknum meiri vinnu í framtíðinni," sagði Þórir Schiöth. Hann segir að allir sem hafa með heilsuvemd að gera séu sammála tannlækmun um forvama- þáttinn, nema Tryggingastofnun. Næsti fundur deiluaðila, Tann- læknafélagsins og Tryggingastofh- unar, er boðaður eftir 10 daga. -JBP Samdráttur hjá Norsk Hydro: ísland inn í álmóðuna DV, Ósló: ísland er horfið inn í blámóðu fjarskans. Álver í eigu Norsk Hydro rís ekki í bráð á Reyðarfirði eða í það minnsta ekki fyrr en fyrirtækið réttir úr kútnum og það gerist ekki fyrr en olíuverð hækkar á ný og á því eru engar líkur. Talsmenn fyrirtækisins segja þó að enn sem fyrr sé ísland álit- legur kostur fyrir álver en fyrir hefur legið frá því síðla á síðasta ári að ekk- ert verður ákveðið fyrir aldamótin. í fyrradag lögðu stjórarnir hjá Hydro fram ársreikning síðasta árs og nú verður að spara. Fjárfestingar verða skomar niður og ársverkum fækkað um 1500 næsta hálfa annað árið. Auk annars verður nýtekinni ákvörðun um byggingu 475 þúsund tonna álvers á Trinidad frestað. Það átti að koma í gagnið árið 2005, á und- an hugsanlegu álveri á Reyðarfirði. Nú er líklegast að verið á Trinidad hafni í frystikistunni - ofan á álver- inu á Reyðarfirði. Það grátlega við stöðuna er að álframleiðslan er það eina sem gengur skammlaust hjá Hydro. Hins vegar segja markaðssérfræðingar að álmarkaðurinn muni standa í stað fyrst um sinn og þá er skiljanlegt að Hydro-menn vilji bíða og sjá til. Álframleiðsla jókst í heiminum á síð- asta ári og óvíða meira en á íslandi eða um 7,1%. Hydro var rekið með 50 millj- arða ísl.kr. hagnaði á síðasta ári, helmingi minni en árið áður. Útlit- ið er þó dökkt vegna ört minnk- andi gróða af olíuvinnslu og af áburðarframleiðslu. Þetta leiðir til uppsagna og að dregið verður úr fjárfestingum. Fyrir vikið var til- kynnt að áform um að tvöfalda álframleiðslu fyrirtækisins fram til ársins 2005 verði ekki að veru- leika. -GK w w w. m i s i r. i s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.