Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999 13 Fréttir Kínverska morgunleikfimin tætsí er hæg og mjúk en afar vandasöm. Hér er aldrað íþróttafólk á Hrafnistu að æfingu undir stjórn Lovísu Einarsdóttur. DV-mynd Betra líf hjá eldri borgurum: Líkamlegar fram- farir á efri árum Iþróttir eru líka fyrir eldra fólk. Eldra fólk sem stundar íþróttir sýn- ir sumt framfarir. Lovísa Einars- dóttir íþróttakennari hefur undan- farin tíu ár leiðbeint eldri borgur- um á Hrafnistu í Hafnarfirði og segir að reglubundnar æf- ingar séu eldra fólki ekki síð- ur nauðsyn en öðrum. „Það hefur allt að segja að eldra fólk stundi. íþróttir og holla hreyfmgu eins og allir aðrir. Það þarf að viðhalda liðkun, því kalk vill setjast í liðina auk ýmis- legs cmnars sem fylgir öldrun og fær að þróast til hins verra ef ekkert er gert í sambandi við hreyfingu," sagði Lovísa í samtali við DV. Lovísa segir að erlendar rann- sóknir sýni að fólk getur náö líkam- legum framfórum á gamals aldri með réttum æfmgum. Þar hafa hóp- ar verið rannsakaðir með tilliti til líkamsþjálfunar. Sjálf verði hún sí- fellt vör við góðan árangur fólksins, hún sé því ekki í vafa um framfar- irnar. Kínverskt tætsí og pútt Mikil fjölbreytni er í íþróttalífmu hjá þeim á Hrafnistu, sem dæmi má nefna léttar æfingar í vatni, æfingar við tónlist í sal, kínversku tætsí- leikfnnina, auk þess sem hægt er að bregða sér í tækjasal til að lyfta og styrkja sig. Fyrir keppnisfólkið er boccia á vetrum en pútt á sumrin. Milli 50 og 60 manns stunda íþrótta- starfið á Hrafnistu á hverjum morgni undir stjóm Lovísu, ýmist í sal eða laug. Hún fer einnig á hjúkr- unardeildimar og hreyflr fólkið sem þar er í hjólastólum eða situr í dagstofunni. Áhugi fólks vaknar fljótt eftir að það er byrjað að koma í tíma. Sumir hafa ekki stundað líkamsrækt árum saman þeg- ar þeir koma í tímana hjá Lovísu. Fólkið fmnur fljótt betri líð- an af líkamsræktinni, og flest fer það að stunda æfmgamar mark- visst. Aðsóknin er mjög góð að sögn Lovísu og fólkið mjög opið fyrir nýj- ungum. „Þegar við byrjuðum með púttið þá vaknaði strax mikill áhugi. Ég verð að játa það að ég náði frekar til karlanna gegnum púttið. Þeim fannst sumum að æfingarnar í saln- um væru hálfgert dúllerí til að byrja með. En svo þegar þeir fóm að koma þá fundu þeir að þetta var erfiðara en það sýndist og hafði betri áhrif en þeir töldu," segir Lovísa. Hafnfirskir púttarar frá Hrafn- istu em í vinsamlegu sambandi við Keflvíkinga sem ráða yfir inniað- stöðu í gömlu fiskverkunarhúsi sem er orðið að paradís golfaranna, pútt- klúbbur eldri borgara í Reykjanes- bæ, glæsilega inniaðstaða, þar sem einkum karlamir keppa sín á milli. -JBP Tveir meistarar Bandaríkjamennirnir og sambýlis- mennirnir Steve Garner og Cort Larson komu hingað til lands í tilefni af þátttöku Garners 1 Bridgehátíð ‘99. Báðir eru þeir meistarar á sínu sviði. Garner er einn af tíu bestu bridgespil- urum í heimi, auk þess að vera Bandaríkjameistari, en Larson er Bandarikjameistari í hárskurði. Á meðan á dvöl þeirra stóð var Larson fenginn til að leiðbeina starfsfólki hárgreiðslustofunnar Scala en hann keppir og dæmir i hárskurði víða um heim. DV náði tali af parinu rétt áður en Garner átti að vera mættur inn í sal að keppa. Þeir búa í Chicago ásamt tveimur köttum og tveimur hundum og Larson segir að meistaratitlamir séu þeim ekki fjötur um fót í sambúð- inni. Hann segir að þeir hugsi ekkert um það. Þeir ferðast mikið saman en það fylgir atvinnu beggja. Þeir ferðast líka einir. „Ég fer þangað sem keppt er í bridge en Cort þangað sem keppt er í hárskurði," segir Garner. Þegar þeir eru spurðir hvort þeir tali mikið um bridge og hárskurð heima segist Garner ekki hafa mikið vit á hárgeiranum. Ætla mætti að Larson hugsaði um hár sambýlis- mannsins. „Þetta er þó stundum eins og með smiðinn sem hugsar ekki um Sambýlismennirnir Steve Garner og Cort Larson á Hótel Loftleiðum. DV-mynd Teitur eigið hús,“ segir Gamer. „Hann hefur svo mikið að gera að ég kann ekki alltaf við að biðja hann.“ Timi er kominn til að fara inn í sal að spila. Gamer sest við sitt borð. Sambýlismaðurinn þarf að vera frammi. Þar getur hann fylgst með gangi mála. Taktu þátt á Vísi.is Þú gætir unnið Play Station tölvu og leik frá B.T. Næstkomandi föstudag, þann 19. febrúar, verður kvikmyndin Fear And Loathing in Las Vegas frumsýnd í á ferðinni nýjasta mynd leikstjórans, og Monty Python meðlimarins, Terry Gilliam. Myndin er byggð á samnefndri og mjög þekktri bók Hunter S. Thompson og er byggð á raunverulegum atburðum. Hunter var að vinna að grein á vegum tímaritsins Rolling Stone um mótorhjólakappakstur í Las Vegas en sökum mikillar neyslu á hinum ýmsu efnum urðu skrifin þó nokkuð öðruvfsi en ætlast var til. I stað þess að skila inn grein um mótorhjólakappakstur skilaði Hunter bókinni sem myndin er gerð eftir. Langar þig í Play Station tölvu ásamt einum leik? Smelltu þér þá inn á Vísi.is og taktu þátt í léttum Vegas leik. Svaraðu þremur léttum spurningum og nafn þitt er komið í pott. Þriðjudaginn 23. janúar verður einn heppinn dreginn út og vinnur hann Play Station tölvu og leik frá B.T. 200 heppnir fá að auki miða fyrirtvo á myndina. Freistaðu gæfunnar í Vegas leik á Vísi.is! www.visirJs -SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.