Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1999, Page 17
16
MIÐVKUDAGUR 17. FEBRÚAR
íþróttir
M
í sumar verður boðið upp á fyrstu
hópferð héðan á keppni í Formúlu 1
kappakstrinum, hina frægu Silver-
stone-keppni í Englandi. Það er einn
stærsti íþróttaviðburður þar í landi
ár hvert. Samvinnuferðir-Landsýn
bjóða upp á ferð á keppnina dagana
8.-12. júlí en keppnin sjálf er sunnu-
daginn 11. júlí.
Þórður, Bjarni og
Jóhannes Guöjóns-
synir léku i fyrsta
skipti allir meö
Genk i belgisku A-
deildinni i knatt-
spymu um siöustu
helgi en liöiö vann
þá Aalst, 1-2, á úti-
velli. Þeir léku þó
ekki allir í einu þvi
Þórður var farinn af velli þegar Jó-
hannesi var skipt inn á.
Stefán Þ. Þórðarson tryggði Brann
sigur á Helsingborg, 3-2, með gull-
marki í framlengingu á æfingamóti i
knattspyrnu á La Manga á Spáni á
mánudag. Stefán hefur þar með gert 4
mörk i 4 leikjum Brann í ferðinni.
„Ég lcet mörkin tala," sagði Stefán
við Bergensavisen, sem hrósaði hon-
um mjög fyrir frammistöðuna. Stefán
hafði áöur verið gagnrýndur af blað-
inu og þjálfurum Brann fyrir að nýta
ekki fjölda marktækifæra í leik gegn
Stabæk á dögunum.
Svo gceti farið að tvö lið frá Kanarí-
eyjum yrðu i A-deildinni spænsku á
næsta tímabili. Kepnin er gríðarlega
hörð í B-deildinni en Las Palmas,
Osasuna, Malaga og Rayo Vallecano
era öll með 42 stig i efstu sætum.
Sevilla, sem átti um áratugaskeið
sæti i efstu deild, er í 7. sæti með 37
stig, en allt kapp er lagt á að liðið
komist í hóp þeirra bestu í vor.
Malaga var lengi í efstu deild en féll
alla leið niður í C-deildina. Nú eru
allt aðrir tímar og liðið stefnir í efstu
deild að nýju.
Tony Yeboah, sem flestir muna eftir
þegar hann lék með Leeds á sinum
tíma, framlengdi i gær samning sinn
um eitt ár við þýska liðið Hamburg
SV. Yeboah kom til Hamborgar frá
Leeds 1997.
Frederic Dehu, varnarmaður
franska A-deildarliðsins Lens, mun
ganga i raðir spænska stórliðsins
Barcelona eftir timabiliö. Dehu er 26
ára gamall varnarmaður sem leikið
hefur með Lens undanfarin 8 ár.
Daniel Passarella, fyrrum þjálfari
Argentínumanna, er efstur á óska-
lista forráðamanna Atletico Madrid
um að taka við þjálfun liðsins af
Arrigo Sacchi. Passarella hætti þjálf-
un Argentinumanna eftir HM síðast-
liöið sumar og hefur verið orðaður
við þjálfarastöðu landsliðs Úrúgvæ.
Valdimar Gríms-
son, landsliðsmað-
ur í handknattleik
og leikmaður
Wuppertal, er í 7.
sæti yfir marka-
hæstu leikmenn
þýsku A-deildar-
innar í handknatt-
leik. Þessir eru
markahæstir:
Kyung-Shin Yoon, Gummersb 161/21
Daniel Spehan, Lemgo........137/48
Lars Christiansen, Flensburg 131/62
Zoran Mikulic, Nettelstedt. . . 127/26
Nikolaj Jacobsen, Kiel......121/56
Aleksandr Tutschin, Minden . . 118/0
Valdimar Grímsson, Wuppertal 115/47
Róbert Duranona er í 13. sæti með
93 mörk og Dmitri Filippov í 14. sæti
með 92 mörk.
Maurice Green tóskt ekki að slá
heimsmet sitt í 60 metra hlaupi eins
og hann stefndi að á innanhússmóti í
Madríd í gær. Green kom fyrstur í
mark á 6,49 sekúndum en heimsmetið
sem hann setti á sama stað fyrir ári
síðan er 6,39 sekúndur.
Þór komst að nýju i toppsæti 2.
deildar karla í handknattleik í
gærkvöld þegar liðið vann Völsung á
Húsavik, 21-25. Staðan í deildinni er
þessi:
Þór A. 15 12 2 1 404-284 26
Fylkir 15 11 3 1 431-290 25
Víkingur 13 9 3 1 365-249 21
Breiðablik 14 7 1 6 348-330 15
Fjölnir 15 5 2 8 354-342 12
Völsungur 13 3 1 9 267-355 7
Hörður 15 3 1 11 294-406 7
Ögri 14 0 1 13 227-434 1 -VS/GH/JKS
oka
Bland i
Judit Rán Ezstergal og Herdís Sigurbergsdóttir fylgdust með lokaæfingu kvennalandsliðsins í
handknattleik fyrir leikina gegn Króatíu i Kaplakrika igær. Þær verða fjarri góðu gamni i þeim leikjum eins og leikjum
Hauka og Stjörnunnar en báðar urðu þær fyrir því óláni að slíta hásin og leika ekki meira á þessu tímabili.
DV-mynd E.ÓL
m
NBA-DEILDIN
Urslitin í nótt
Philadelphia-Milwaukee . . 92-93
Iverson 23, Ratliff 21, Geiger 17 -
Robinson 18, Hill 16, D.Curry 16.
New Jersey-Detroit ........97-82
Van Hom 35, Kittles 15, Murdock 13 -
Hill 22, Stackhouse 15, Reid 9.
Cleveland-Orlando..........90-78
Kemp 18, Potapenko 16, Newman 15 -
Strong 14, Austin 12, Outlaw 11.
New York-Toronto...........95-85
Houston 20, Ewing 16, Johnson 13 -
Carter 17, Christie 16, Slater 12.
Indiana-Miami..............78-89
Muilin 16, Smits 14, Rose 14 - Brown
22, Mouming 19, Hardaway 18.
Chicago-Atlanta............67-83
Kukoc 27, Barry 10, Bryant 9 -
Smith 17, Henderson 14, Long 13.
Houston-Phoenix ..........109-92
Pippen 19, Olajuwon 19, Dickerson 18
- Gugliotta 14, Kidd 14, Respert 12.
Seattle-Utah...............71-56
Payton 17, Ellis 11, Norris 9 -
Malone 15, Russell 9, Fuller 8.
LA Lakers-Charlotte.......116-88
Shaq 20, Fox 20, Jones 19 -
Phills 20, Reid 13, Armstrong 12.
Sacramento-Boston ........101-98
Webber 22, Williamson 22, Divac 16 -
Mercer 24, Pierce 19, Walker 17.
LA Clippers-Vancouver . . . 89-93
Taylor 21, Wright 15, Murray 12 -
Mack 22, Rahim 20, Bibby 17.
Staðan, sigrar / töp:
Austurdeild:
Milwaukee 4/1, Orlando 5/2, Atlanta
5/2, New York 4/2, Miami 4/3, Ind-
iana 4/3, Philadelphia 4/4, Cleveland
3/3, Detroit 3/4, Boston 2/3, New
Jersey 2/4, Washington 1/3, Toronto
1/4, Chicago 1/5, Charlotte 1/5.
Vesturdeild:
Seattle 6/0, Utah 6/1, Houston 5/1,
Minnesota 4/2, Portland 3/2, LA
Lakers 4/3, Phoenix 4/3, San Antonio
4/3, Sacramento 3/3, Vancouver 3/3,
Golden State 2/5, Dallas 1/6, Denver
1/6, LA Clippers 0/6.
Seattle vann mjög öruggan sigur í
uppgjörinu við Utah og er nú eina
taplausa liöið í deildinni. Utah gerði
aðeins 56 stig sem er lægsta skor
liösins í deildarleik og stigi frá
metinu í NBA en Indiana gerði 55 stig
í leik í fyrra. ..c
Theodór Guöfinnsson, landsliösþjálfari kvenna í handknattleik:
Hrasðist ekki skelli
- kvennalandsliöið hélt út í morgun og mætir Króötum tvívegis um helgina
Theodór Guðfinnsson, landsliðsþjálfari kvenna
í handknattleik, hefur valið 15 leikmenn til að
leika tvo leiki gegn Króatíu 19. og 21. febrúar í
undankeppni HM. Leikirnir fara báðir fram ytra,
sá fyrri í borginni Osijek og sá síðari í Slavnoski
Brod.
Eftirtaldir leikmenn voru valdir: Markverðir:
Fanney Rúnarsdóttir, Tertnes, Helga Torfadóttir,
Bryne, Hugrún Þorsteinsdóttir, Fram.
Aörir leikmenn: Ágústa Björnsdóttir,
Gróttu/KR, Björk Ægisdóttir, FH, Brynja Stein-
sen, Minden, Dagný Skúladóttir, FH, Eivor Blön-
dal, Val, Gerður B. Jóhannsdóttir, Val, Guð-
munda Kristjánsdóttir, Víkingi, Harpa Melsted,
Haukum, Hrafnhildur Skúladóttir, Bryne, Inga
Fríða Tryggvadóttir, Stjömunni, Ragnheiöur
Stephensen, Stjörnunni og Svava Sigurðardóttir,
Víkingi.
Landsliðið hélt utan nú í morgunsárið en
liðsins bíða tveir mjög erfiðir leikir.
Thelma fer ekki
Mikil meiðsli hafa verið að hrjá íslenska lands-
liðið í vetur og allt fram að síðustu æfingu liðs-
ins. Þrátt fyrir að Theodór hafi bætt tveimur leik-
mönnum við hópinn frá því í leikjunum gegn
Rússum í janúar varð landsliðið sjálfvalið þegar
upp var staðið. Af þeim 17 leikmönnum sem hófu
æfingar fyrir leikina gegn Króötum féllu tveir út
vegna meiðsla, Judit Estergal sleit hásin á æfingu
og Thelma Ámadóttir er meidd í baki og taldi
Kristján Ragnarsson, sjúkraþjálfari liðsins, ekki
á það hættandi að senda hana í erfitt ferðalag við
þær aðstæður.
„Ég valdi 17 leikmenn fyrir þessa Króatíuferð
og bætti þar með við tveimur leikmönnum frá því
í leikjunum gegn Rússum í janúar. Þetta gerði ég
í ljósi þess ástands sem var á liðinu þá þar sem
ég var oft ekki með nema 10 leikmenn á æfingu,
bæði vegna meiðsla og veikinda. En með því að
kalla inn nýja leikmenn jók ég möguleikann á því
að breyta og eins að hafa leikmenn tilbúna ef eitt-
hvað kæmi upp á,“ sagði Theodór.
- En nú hefur þú þurft að bregðast við því að
missa báða leikstjómendurna, Herdísi Sigur-
bergsdóttur og Judit Estergal, út vegna meiðsla,
hvernig leysir þú það verkefni?
Ágústa og Brynja á miðjuna
„Ágústa og Brynja, sem voru í hornunum,
koma inn á miðjuna í stað Juditar og Herdísar.
Judit var búin að vera slæm í olnboga og í öxl og
átti ég alveg eins von á þvi að hún yrði ekki með
svo ég tók Guðmundu inn í hægra hornið og Dag-
nýju inn í vinstra hom, þar sem Ágústa var áður.
Ég tel mig vera með það sterkasta sem völ er á í
stöðunni, það er þó ljóst að ég er án fjögurra lyk-
ilmanna í íslenskum kvennahandbolta í dag, sem
eru: Auður Hermannsdóttir, Halla María Helga-
dóttir, Herdís Sigurbergsdóttir og Judit Estergal.
Þetta eru lykilleikmenn bæði í sókn og vörn.
Þetta era hlutfallslega sterkari varnarmenn, hver
um sig, heldur en þeir leikmenn sem ég hef yfir
að ráða núna og við þurfum að breyta aðeins um
vamaraðferð hjá okkur.“
Spila með vörnina framar
„Ég hef ekki leikmenn núna sem ég get teflt
fram og spilað 6-0 vöm, þannig að ég verð að
spila vömina aðeins framar og fara jafnvel út í
3-2-1 vöm á móti Króatíu. Króatarnir hafa mjög
hávaxið lið og líkamlega sterka leikmenn, ekkert
ósvipað uppbyggt lið og Rússamir, þ.e. snögga
hornamenn, stórar skyttur og stóran línumann.
Ég hefði kosið það að spila 6-0, eins og okkur
tókst svo ágætlega á móti Króatíu í Tyrklandi, en
sá möguleiki er tæpast fyrir hendi nú,“ segir
Theodór.
íslenska liðið hefur leikið þrjá leiki gegn Króa-
tíu og tapað þeim öllum. Fyrsti leikurinn var í
undankeppni HM árið 1997, þar sem ísland tapaði
16-21 hér heima í góðum leik. Síðan kom stór
skellur í útileiknum 34-8 og loks lék íslenska lið-
ið gegn Krótatíu á æfingamóti í Tyrklandi fyrr í
vetur og tapaði þar með þriggja marka mun í góð-
um leik, eftir að hafa verið yfir 13-11 í hálfleik.
En er Theodór ekkert hræddur við að leika báða
leikina úti, hafandi í huga hversu slæma útreið
landsliðið fékk í síðustu ferð sinni til Króatíu?
Spila langar sóknir
„Ég hefði vissulega viljað fá annan leikinn
hingað heim og jafnvel báöa en HSÍ taldi það fjár-
hagslega best að gera þetta svona, að spila tvo
leiki við Rússa hér heima og báða leikina gegn
Króötum úti. Ég er ekki hræddur við það að
lenda í skelli eins og þeim sem við lentum í gegn
Króötum 1997, en ef leikmenn verða ekki vel
stemmdir og vakandi þá gætum við fengið útreið
eins og þá sem við fengum gegn Rússunum hér
heima.
í þessum leikjum, sem við erum að tapa svona
stórt, er alltaf það sama að gerast. Óvönduð
vinnubrögð í sóknarleik okkar sem skilar sér í
hraðaupphlaupum og mörkum andstæðinganna,
þ.e. of stuttar sóknir. Þessu hef ég verið að hamra
á og benda þeim á að til þess að ná fram eins hag-
stæðum úrslitum og okkur er unnt þá þurfum við
að stjórna hraðanum í leiknum. Við verðum að
halda okkar sóknum í lengra lagi og halda hraða-
upphlaupum frá þeim í lágmarki. Málið snýst um
það að ná löngum, vönduðum sóknum sem enda
með skotum, sagöi Theodór Guðfinnsson, þjálfari
íslenska kvennalandsliðsins.
-ih
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 1999
49
íþróttir
Brynjar samdi
við Örgryte
Brynjar Bjöm Gunnarsson, landsliðsmaður í knattspymu, skrifaði síödeg-
is í gær undir tveggja ára samning við sænska A-deildar liðið Örgryte og lék
sinn fyrsta leik með félaginu í gær sem var óopinber æfingaleikur. Brynjar
lék í Noregi á síðasta keppnistimabili. Hann gekk til liðs við norska A-deM-
arliðið Válerenga í fyrra frá KR en náði ekki að vinna sér fast sæti í liðinu.
Hann var leigður til Moss í byrjun júlímánaðar en varð fyrir því óláni að fót-
brotna þar og gat ekki byrjað að spila aftur með liðinu fyrr en í haust.
Erik Hamrén, þjálfari Örgryte, sagði í samtali við DV að hann væri mjög
ánægður með að fá Brynjar í liðið. Hann væri sterkur og fjölhæfur leikmað-
ur sem hann hefði mikla trú á. Hamrén mundi vel eftir Brynjari þegar hann
lék með KR-ingum gegn AIK í Evrópukeppninni en hann var þá við stjóm-
völinn hjá AIK.
Valur Fannar Gíslason var til reynslu hjá Örgryte á sama tíma og Brynj-
ar en ljóst er að honum verður ekki boðinn samningur við liðið að svo
stöddu. -EH/GH
Körfuknattleikur:
Henning og Bjarni
fá ekki leikheimild
Körfuknattleiksmennimir Henning Henningsson og Bjami Magnússon, sem ný-
lega skiptu um félög í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, Henning úr Skallagrími í
Hauka og Bjami úr ÍA í Grindavík, fá ekki leikheimild með nýju félögunum á
þessu keppnistímabili. Þeir höfðu báðir félagaskipti eftir 5. janúar en óheimilt er
að skipta um félag eftir þann tíma nema sérstakar ástæður liggi að baki, eins og
segir í reglugerð KKÍ.
Félagaskiptanefhd KKÍ tók þessi mál fyrir á fúndi sínum og taldi að félagaskipti
Hennings og Bjama flokkuðust ekki undir sérstakar aðstæður og gaf þeim því ekki
leikheimild. Þetta er endanlegur úrskurður en þeim er heimilt að leika áfram með
sínum gömlu félögum en að öðrum kosti verða þeir löglegir í lok leiktíðarinnar.
Henning var leystur undan samningi við Skallagrím í síðasta mánuði og er flutt-
ur úr Borgamesi í Hafnarfjörð og töldu Haukarnir víst að hann fengi grænt ljós á
félagaskiptin vegna búferlaflutninga. í tilviki Bjarna háttaði þannig til að Skaga-
menn sögðu upp samningi við hann vegna fjárhagsvandræða og ákvað Bjarni að
ganga í raðir Grindvíkinga. -GH
Keegan
ráðinn
í dag
Samkvæmt fféttum
enskra fjölmiðla í
morgun verður Kevin
Keegan ráðinn lands-
liðsþjálfari Englands í
knattspyrnu í dag.
Hann fundaði með
enska knattspymusam-
bandinu í gærkvöld og
talið er að hann hafi
fengið vilja sínum'
framgengt og muni
halda áffam í starfi hjá
Fulham, en þar er hann
samningsbundinn sem
knattspyrnustjóri til
sumarsins 2000.
Þá er talið líklegt að
Keegan fái Peter Be-
ardsley með sér sem
þjálfara hjá landsliðinu
en Beardsley þjálfar nú
undir stjóm Keegans
hjá Fulham.
-VS
KR-ingar héldu hátíðlega upp á 100 ára afmæli sitt í gær. Aðalstjórn KR afhjúpaði minningarskjöld í anddyri hússins í Aðalstræti 6 en þar
var félagið formlega stofnað fyrir 100 árum. í Ráðhúsi Reykjavíkur var móttaka í boði aðalstjórnar. Þar kynnti Ellert B. Schram útgáfu bókar
um 100 ára sögu KR sem hann ritstýrði. Á myndinni afhenda Ellert og Kristinn Jónsson, formaður KR, þeim Birni Bjarnasyni
menntamáiaráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra fyrstu eintökin af bókinni. DV-mynd E.ÓI.
ENGLAND
Southampton keypti 1 gær sóknar-
mann frá Lettlandi, Marian Pahars
aö nafni. Hann er 22 ára og hefur
skorað grhrunt fyrir meistaraliðiö
Skonto Riga. Southampton greiðir
um 120 milljónir króna fyrir piltinn.
Samvinnuferðir-Landsýn bjóða upp
á hópferð til Englands um páskana.
Fyrirhugað er að sjá leik Aston Villa
gegn West Ham á fostudaginn langa,
2. apríl, og annaðhvort Liverpool- Ev-
erton eða Wimbledon-Manchester
United laugardaginn 3. apríl.
Brian Robson, knattspymustjóri
Middlesbro, er á höttunum eftir Ge-
orgiuo Kinkladze sem nú er á mála
hjá Ajax. Þangað kom þessi snjalli
Georgíumaður fyrir níu mánuðum
frá Manchester City en hefur fengið
fá taekifæri. Robson er tilbúinn að
greiða 4,5 milljónir punda fyrir leik-
manninn.
Ryan Giggs leikur ekki með
Manchester United þegar liðið mætir
Arsenal í kvöld. Alex Ferguson hafði
i hyggju að tefla Giggs fram en á æf-
ingu í gær varð ljóst að ekki gat orð-
ið af því. Giggs hefur ekki náð sér af
meiðslum og þarf lengri hvíld.
Arsenal verður án þriggja sterkra
leikmanna í leiknum gegn Man.Utd.
Emmanuel Petit og Dennis
Bergkamp taka út leikbann og
Martin Keown er meiddur.
Mark Viduka, sem Celtic keypti frá
Króatfu Zagreb fyrir fjórum mánuð-
um, hefur æft að undanförnu með
skoska liðinu og lék með 21-árs liðinu
í gærkvöld. Útlit er fyrir að hann
verði kominn í aðailiðið innan
skamms.
Skoski landsliósmaðurinn hjá He-
arts, David Weir, er á leiðinni til Ev-
erton en Leeds og Liverpool voru
einnig með augastaö á þessum sterka
leikmanni.
Dundee hefur óskað eftir viðræðum
við nágranna sína í Dundee United
um hugsanlega sameiningu liðanna.
Peter Mar, stjórnarformaður
Dundee, sagði að knattspyrnan væri
ekkert annað en viðskipti og vonaðist
eftir jákvæðum viðræðum við for-
ráðamenn Dundee United.
Dion Dublin, framherjinn snjalli hjá
Aston Villa, þarf að gangast undir
aðgerð vegna kviðslits og talið er að
hann verði frá keppni næstu 6
vikurnar.
-JKS/VS/GH
Tottenham
á Wembley
Tottenham tryggði sér í gærkvölKæti
í úrslitaleik ensku deildabikarkeppninn-
ar í knattspyrnu með því að bera sigurorð
af Wimbledon, 1-0, í síðari undanúrslita-
leik liðanna en þeim fyrri lyktaði með
markalausu jafntefli.
Það var norski landsliðsmaðurinn
Steffen Iversen sem skoraði sigurmarkið
með fallegu bogaskoti frá vítateig á 39.
minútu leiksins. Þetta er í fyrsta skipti í
8 ár sem sem Tottenham leikur til úrslita
á Wembley en andstæðingamir í úrslita-
leiknum verða annaðhvort Leicester eða
Sunderland. Þau mætast í kvöld en
Leicester vann fyrri leikinn, 2-0.
Tottenham hefur nú leikið 12 leiki í röð
án taps og George Graham, knattspyrnu-
stjóri félagsins, hefur heldur betur náð að
rétta gengi liðsins af eftir að hann tók við
stjórninni í upphafi leiktíðarinnar.
Jóhann ekki með
I B-deildinni vora tveir leikir á dagskrá
í gærkvöld og lyktaði báðum með jafn-
tefli. Norwich og Barnsley gerðu marka-
laust jafhtefli og Watford og Huddersfield
skildu jöfn, 1-1. Jóhann B. Guðmundsson
var ekki í leikmannahópi Watford.
Hermann skoraði annan leikinn í
röð
ÍD-deildinni gengur hvorki né rekur
hjá Hermanni Hreiðarssyni og félögum
hans í Brentford. Liðið tapaði fyrir Swan-
sea á útivelli, 2-1, og er í 4. sæti deildar-
innar. Hennann skoraði mark Brentford,
sitt annað mark í jafnmörgum leikjum, og
jafnaði metin en Swansea skoraði sigur-
markið 6 mínútum fyrir leikslok.
-GH
Kevin Keegan hefur hrifist af samvinnunni hjá Dwight Yorke og Andy Cole.
^ Kevin Keegan um Dwight Yorke:
Isinn ofan á kökuna
Kevin Keegan, knattspymustjóri Fulham og líklega næsti landsliðsþjálf-
ari Englendinga, segir að Dwight Yorke sé maðurinn sem geti fært
Manchester United Evrópumeistaratitilinn í ár.
„Yorke er klassaleikmaður. Hann er mikill markaskorari og stór kostur
hans sem leikmaður er að hann er alltaf að búa eitthvað tU. Kaup Alex
Fergusons á honum eru hverrar krónu virði,“ segir Keegan og bætir því við
að Yorke hafi verið munurinn á milli Manchester United og Fulham þegar
liðin áttust við í bikarkeppninni á sunnudaginn.
„Yorke er maðurinn sem kemur tU með að skipta United öUu máli í meist-
aradeUdinni. Auðvitað þarf hann hjálp frá meðspUurum sínum en mitt mat
er að Yorke geti upp á eigin spýtur gert Manchester United að Evrópumeist-
uram. Fyrir tímabUið sá ég það ekki fyrir að United gæti farið aUa leið í
meistaradeUdinni en nú er ég annarrar skoðunar. Koma Yorke tU Old Traf-
ford vegur þar þyngst og er ísinn ofan á kökuna hjá félaginu," segir Keeg-
an.
Eins og fleiri hefur Keegan hrifist af samvinnu Yorke og Cole í framlínu
Manchesterliðsins á timabUinu.
„Cole er betri leikmaður nú en þegar ég seldi hann frá Newcastle tU
Manchester United. Hins vegar hefur það komið mér á óvart hvað hann hef-
ur þurft langan tíma á Old Trafford til að sanna sig. Cole er frábær fram-
herji sem á eftir að verða enn betri,“ segir Keegan.
-GH
HM kvenna í knattspyrnu:
Bandaríkin og Danmörk
spila opnunarleikinn
Það verða Bandaríkin og Dan-
mörk sem mætast í opnunarleik
heimsmeistaramóts kvenna í knatt-
spyrnu sem fram fer í Bandaríkjun-
um í sumar. Leikurinn fer fram í
East Rutherford í New Jersey þann
19. júní.
Dregið var i riðla fyrir keppnina
I fyrrinótt og þeir era þannig skip-
aðir:
Kórea, Nígería og Danmörk.
B-riðill: Þýskaland, BrasUía,
Mexíkó og Ítalía.
C-riðill: Kanada, Japan, Rúss-
land og Noregur.
D-riðill: Kína, Ástralía, Ghana og
Svíþjóð.
Keppninni lýkur með úrslitaleik í
Pasadena í Kaliforniu þann 10. júlí.
-VS
A-riðill: Bandarikin, Norður-
LEIKURINN I KVOLD
ÞÝSKIHANDBOLTINN
í BEINNI
Á BRBIDBANDINU
Bad Schwartau-Eisenach
(Sigurður Bjarnason og Róbert Duranona)
llSí L J BREIDVARPID SJÓNVAtPSÞJÓNUSTA SÍMANS jP. Þýski handboltinn er sýndur beint í opinni f 0 dagskrá á Sýnishornarás breiðbandsins á mið- l > vikudögum. ÖUum leikjunum er lýst af marg- = reyndum íþróttafréttamönnum Sjónvarpsins. i YPIK 25.000 HBIMILI Á HÖFUÐBORGAR- SVÆDINU OG 800 HEIMILI Á HÚSAVÍK EIGA ÞESS NÚ KOST AÐ TENGIAST BREIÐBANDINU. Hringdu strax og kynntu frÉR MÁLIÐI
mm 7474H
Opið allan sólarhringinn J