Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1999, Side 23
Þeir sem sáu kynningarmyndir á blaðamannafundi Sony um PlayStation 2 sögðu að grafíkin hefði verið svo stór-
kostleg að hún hefði helst minnt þá á tölvuteiknimyndina Toy Story.
PlayStation 2 á leiðinni:
Gríðarlegt stökk
Wm
Yfirburðir PlayStation 2
Aöal klukkuhraði
-tölur í megariöum
300
Marghyrningar (Polygons)
- Qöldi á sekúndu
PlayStation 2
Dreamcast
o
o
o
cö
o
o
o
s'
H
o
o
o
o
<0
co
Vlnnsluminni (RAM)
i.PlayStatíon 2 32MB Direct Rambus-RAM ) ;
ÍDreamcast 16MB (auk 8MB vídeo-RAM, 2MB hióö-RAMl)
ÍNIntendo 64 4MB Rambus-RAM (stækkanleít i 8MB)1
ÍPIayStatlon 2MB (auk 1MB vídeo-RAM, 512kb hióö-RAM)!
I síðustu viku rann
loksins upp sú stund
sem allir PlayStation-
aðdáendur hafa beðið
eftir: Sony tilkynnti
að næsta kynslóð
PlayStation-tölva
væri væntanleg á
markaðinn. Að und-
anfömu hafa gengið
alls kyns tröllasögur
um fyrirbæriö og
vora margir jafhvel
famir að búast við að
ekkert yrði af því að
tölvan kæmist
nokkurn timann á
markað.
Þó svo Sony hafi
ekki viljað kalla tölv-
una annað en „næstu
kynslóð PlayStation"
þá hafa fjölmiðlar tek-
ið sig til og nefnt
hana því frumlega
nafhi PlayStation 2
eða PS2 til einföldun-
ar. Tölvan verður
gríðarlegt stökk frá þeirri PlaySta-
tion sem nú er á markaöinum og
tæknilega mun hún skjóta öllum
tölvum sem nú eru á markaðnum
ref fyrir rass eins og sjá má af með-
fylgjandi grafi.
PlayStation 2 mun geta tekið við
gögnum bæði af venjulegum geisla-
diskum og DVD-diskum. Sony hefur
þó lýst því yfir að sennilega verði
ekki hægt að spila DVD-kvikmyndir
á PS2 því annars væri hætta á að
sala á DVD-spilurum fyrirtækisins
myndi hrynja.
Að öllum líkindum verður hægt
að nettengja tölvuna og þannig spila
leiki á móti ööram á Netinu. Þetta
ætti aö gleðja alla PlayStation-aðdá-
endur sem hafa horft með öfundar-
augum á eigendur PC-tölva sem
hafa getað spilað nettengt um tals-
vert skeið.
Kemur á næsta
r m
ari
PlayStation 2 mun að
öllu leyti geta spilað
venjulega PlayStation-
leiki og því þurfa væntan-
legir kaupendur ekki að
hafa áhyggjur af því aö
eldri leikir verði úreltir
um leið og nýja tölvan er
keypt.
Að sögn Sony-manna er
tölvan væntanleg á mark-
aðinn í Japan fyrir lok
mars árið 2000. Þeir sem
til þekkja telja þó líklegt
að stefna fyrirtækisins sé
að koma tölvunni fyrir í
jólapökkum þarlendra í
ár. Tölvan mun þó ekki
vera væntanleg til Vestur-
landa fyrr en haustið 2000.
Enn er ekki ljóst hve
mikið tölvan kemur til
með að kosta en Sony-
menn segja að takmarkið
sé að haida henni innan 400 dollara
marksins (um 30.000 krónur). Það
finnst þó mörgum dýrt og ekki er
ólíklegt aö verðið lækki taisvert eft-
ir að tölvan kemur á markaðinn.
Á Tölvuvef netmiöilsins Vísis er
hægt að finna tengla á heimasiður
sem fjalla ítarlega um PS2 og sýna
m.a. hreyfimyndir sem gefa til
kynna hvemig leikir komi til með
að líta út í tölvunni.
Helmilistölvur oq notnotkun
Fýrirtækið l.F.D er hefur þróað gagna-
grunninn „íslenska fyrirtækjadiskinn"
sem er „stærsti gagnagrunnur sinnar teg-
undar hérlendis", eins og segir í fréttatil-
kynningu fyrirtækisins. Grunnurinn er
geymdur á einum geisladiski fyrir tölvur
og inniheldur hann nöfn allra íslenskra
fyrirtækja ásamt heimilisfangi, póstnúm-
eri og sveitarfélagi, kennitölu, síma- og
faxnúmerum.
Diskinum er dreift í 45.000 eintökum tii
allra fyrirtækja á landinu. Almennum
tölvueigendum veröur gert kleift aö nálg-
ast diskinn sér aö kostnaðarlausu á fjöl-
mörgum stöðum, t.d. á bensínstöðvum, hjá
tölvusölum og víöar.
Diskurinn býður upp á fjölmarga mögu-
leika, bæði fýrir einstaklinga og fyrirtæki,
en hann má t.d. nýta til að prenta út
dreifilista og límmiða. Leitarmöguleikar á
diskinum eru mjög fjölbreyttir en einnig
er hægt aö leita í gagnagrunninum á Net-
inu þar sem hann verður uppfærður mán-
aðarlega. Þar má einnig fmna nánari upp-
lýsingar um Islenska fyrirtækjadiskinn.
Slóðin er http://www.ifd.is/
ísienski fyrirtækjadiskurinn:
Stærsti gagna-
grunnur sinnar teg
undar hérlendis
éi
§kj alaskápar
Traustir - vandaðir
ÓLAFUR GÍSLASON & CO HF SUNDABORG 3 SÍMI 568 4800
EG SKRIFSTOFUBÚNAÐUR ÁRMÚLA 20 SÍMI 533 5900
Læknar
f l l
• • •
Auglýst er eftir læknum til starfa í heilsugæslusveit
innan friðargæslusveita Atlantshafsbandalagsins
(SFOR) í Bosníu-Hersegóvínu.
Sveitin mun starfa undir verkstjórn breska hersins skv. samningi milli
ísienskra og breskra stjórnvalda. Leitað er að duglegum,
samviskusömum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt við erfiðar
aðstæður, eiga auðvelt með að umgangast aðra og taka leiðsögn.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á ensku og hafi mikla
aðlögunarhæfileika. [ ágúst 1999 mun heilsugæslusveitin gangast
undir þjálfun í Bretlandi. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf um
miðjan september 1999 og að ráðningartíminn verði sex til sjö mánuðir.
í
Upplýsingar um kaup og kjör fást á alþjóðaskrifstofu
utanríkisráðuneytisins.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun, fyrri störf,
tungumálakunnáttu og meðmælendur, sendist t
utanríkisráðuneytinu, alþjóðaskrifstofu,
Rauðarárstíg 25,150 Reykjavík.
Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Umsóknarfrestur
er til og með 15. apríl 1999.Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex
mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur, nema annað sé sórstaklega
tekið fram í umsókninni.
Fyrirliggjandi umsóknir skulu staðfestar.